Morgunblaðið - 09.05.1995, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B
103. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Evrópumenn minnast þess að hálf öld er liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldar
Fagnað við
Bucking-
hamhöll
250.000 manns komu saman við
Buckingham-höll I gær þegar
þess var minnst að hálf öld er
liðin frá lokum siðari heimsstyij-
aldarinnar í Evrópu. Á efri
myndinni veifa Elisabet Breta-
drottning og móðir hennar
mannfjöldanum af svölum hallar-
innar en á neðri myndinni fylgist
fólkið með sýningu konungíega
flughersins.
Reuter
Áhersla á
sættir og frið
nm ókomin ár
Berlín. Reuter.
LEIÐTOGAR Þýskalands og ríkja bandamanna, sem báru sigurorð af Þjóð-
veijum fyrir 50 árum, komu saman í Berlín i gær til að minnast þeirra, sem
féllu í stríðinu, og til að strengja þess heit að vinna saman að friði um
ókomin ár. Hófust hátíðarhöldin í London á sunnudag en lýkur í Moskvu í dag.
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands,
tók á móti gestum sínum í Berlín
aðeins nokkrum klukkustundum eftir
að hann hafði kvatt þá í París en
meðal þeirra má nefna A1 Gore, vara-
forseta Bandaríkjanna, Víktor
Tsjernomyrdín, forsætisráðherra
Rússlands, John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, og Franeois Mitterr-
and, fráfarandi Frakklandsforseta.
Fasismi og kommúnismi
að baki
í ræðu, sem Roman Herzog, for-
seti Þýskalands, flutti, sagði hann,
að Þjóðveijar efuðust ekki um, að
þeir bæru sök á síðasta stríði en
Major lagði áherslu á þær sættir, sem
tekist hefðu með fornum ijandmönn-
um jafnt í heimsstyrjöldinni sem í
kalda stríðinu. „Fasisminn og komm-
únisminn heyra sögunni til. Tveir
mestu óvinir heilbrigðrar skynsemi
hafa verið lagðir að velli,“ sagði hann.
Tsjemomyrdín fagnaði vináttu Rússa
og vestrænna ríkja en varaði við
stækkun NATO þegar hann sagði,
að koma þyrfti á öryggiskerfi, sem
ekki byggðist á bandalögum.
Óánægja í París
Við hátíðarhöldin í París fyrr um
daginn olli það mikilli óánægju, að
almenningi var að mestu haldið frá
þeim af öryggisástæðum. Varð það
til þess, að margir gerðu hróp að
bílalest með 50 þjóðhöfðingja þegar
hún brunaði eftir Champs-Elysée.
í London tóku þær mæðgurnar
Elísabet drottning og Elísabet
drottningarmóðir þátt í mikilli söng-
samkomu við Buckinghamhöll til
minningar um mestu veislu í borg-
inni frá upphafi, sigurdaginn 1945.
Hátíðarhöldunum lýkur í Moskvu
í dag en Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, Mitterrand, Kohl og fleiri
leiðtogar ætla ekki að vera viðstadd-
ir hersýningu í mótmælsskyni við
hernaðinn í Tsjetsjníju.
■ Styrjaldarlok/18
Búist við að Chirac taki við embætti forseta Frakklands í næstu viku
Megináherslan
á baráttu gegn
atvinnuleysinu
París. Morgunblaðið.
Reuter
LEIÐTOGAR tæplega 50 ríkja komu saman í París í tilefni afmæl-
isins og Jacques Chirac fékk tækifæri til að heilsa þeim. Fór vel
á með þeim Chirac og Francois Mitterrand, fráfarandi forseta.
Sex létust er bíll
rann út af ferju
Ósló. Reuter.
Grimmd-
arverk í
Tsjetsjníju
Washington. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkj-
unum kváðust í gær vera
furðu lostin á fréttum um
mikil grimmdarverk rúss-
neskra hermanna í bænum
Samashki í Tsjetsjníju. Kröfð-
ust þau þess, að hinum seku
yrði refsað.
Dagblaðið New York Times
skýrði frá því í gær, að
grimmdarverkin hefðu verið
unnin snemma í síðasta mán-
uði eftir að rússneskir her-
menn höfðu náð bænum á
sitt vald. Sagði blaðið, að
meira en 3.000 hermenn
hefðu ausið bensíni á húsin í
bænum, kveikt í þeim og skot-
ið til bana konur, böm og
gamalt fólk. Hefðu meira en
100 manns legið í valnum.
Studd frásögnum
mannréttindasamtaka
Talsmaður bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, Christ-
ine Shelly, sagði, að frásagnir
mannréttindasamtaka og Al-
þjóða Rauða krossins styddu
fréttina í New York Times og
hefði þess verið krafist, að
hinir seku yrðu dregnir til
ábyrgðar.
VERÐANDI forseti Frakklands,
Jacques Chirac, borgarstjóri í París
og fyrrverandi forsætisráðherra,
vann sitt fyrsta embættisverk í gær
þegar hann tók þátt í athöfn við
Sigurbogann í París ásamt Francois
Mitterrand, fráfarandi Frakklands-
forseta, og fjölda erlendra þjóðhöfð-
ingja. Þar var þess minnst, að hálf
öld er liðin frá styijaldarlokum í
Evrópu. Sat Chirac við hlið Mitterr-
ands meðan á athöfninni stóð og
ræddu þeir stöðugj. saman.
Chirac hlaut alls 52,64% atkvæða
í kosningunum á sunnudag en fram-
bjóðandi sósíalista, Lionel Jospin,
47,36%. Kosningaþátttaka var rétt
rúmlega 80%.
Fyrir kosningar var mikið rætt um
það hvernig þeir kjósendur, er kusu
hægriöfgamanninn Jean-Marie Le
Pen í fyrri umferðinni, myndu veija
atkvæði sínu í þeirri síðari. Að sögn
SOFRES-stofnunarinnar virðist sem
um 40% þeirra hafi kosið Chirac, 25%
Jospin en 35% annaðhvort setið
heima á kjördag eða skilað auðu.
Chirac hefur lýst yfir, að helsta
baráttumál hans verði að draga úr
atvinnuleysi í Frakklandi, auka
kaupmátt og draga úr fjárlagahall-
anum.
Heillaóskir til Chiracs
Fjöldi erlendra þjóðhöfðingja
sendi Chirac heillaóskir á sunnu-
dagskvöld eða á mánudag og meðal
þeirra fyrstu var Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna. Var kjöri Chiracs
almennt tekið vel í Bandaríkjunum
og var sérstaklega tekið fram, að
hinn nýi forseti væri enskumælandi
og fyrrum verið nemandi við Har-
vard-háskóla.
Ekki hefur enn verið ákveðið hve-
nær Chirac tekur formlega við emb-
ætti en flest bendir til, að það verði
á mánudag eða þriðjudag í næstu
viku. Þá mun hann jafnframt greina
frá skipan nýrrar ríkisstjórnar. Er
talið víst, að Alain Juppe utanríkis-
ráðherra verði forsætisfáðherra.
■ AIlterþegar/16
AÐ MINNSTA kosti sex manns
týndu lífi þegar fólksflutningabif-
reið rann út af feiju, sem var á
siglingu innanfjarða í Noregi í gær.
Bifreiðin stóð á þilfari skipsins
og biðu farþegarnir í sætum sínum
en ökumaðurinn hafði farið úr bíln-
um meðan á siglingunni stóð en hún
tekur aðeins 10 mínútur. Þegar feij-
an nálgaðist bryggjuna í Hatvik,
sem er skammt frá Björgvin, rann
bílinn skyndilega af stað og fyrir
borð.
Tveimur farþegum, sem tókst að
komast út úr bílnum, var bjargað
en hann liggur nú á 30 metra dýpi.