Morgunblaðið - 09.05.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ1995 39
Fyrsti vísindamaður
skákarinnar látinn
SKÁK
MIKHAIL Botvinn-
ik, fyrrum heims-
meistari í skák, lést í
Moskvu á föstudag
83ja ára að aldri. Bot-
vinnik var heims-
meistari í samtals
þrettán ár, lengur en
nokkur annar heims-
meistari eftir lok
seinni heimsstyijald-
ar. Hann varð fyrst
heimsmeistari árið
1948, er hann sigraði
örugglega á heims-
meistaramóti fimm
skákmanna, sem haldið var til að
fylla skarð Alexanders Aljekíns sem
féll frá ósigraður árið 1946.
Áhrif Botvinniks á þróun skáklist-
arinnar á þessari öld voru gífurleg.
Hann innleiddi vísindaleg vinnu-
brögð í skákina, hóf snemma kerfis-
bundnar rannsóknir á skákum and-
stæðinganna og sundurgreiningar
hans á biðskákum voru frægar.
Keppinautar hans urðu að taka upp
svipuð vinnubrögð um miðja öldina
til að geta staðist honum snúning.
Botvinnik stofnaði skákskóla í
Moskvu og komu þangað flestir
frægustu stórmeistarar
Sovétmanna, þ.á m. þeir
Karpov og Kasparov.
Það er einmitt Gary Ka-
sparov sem mest hefur
þróað áfram vísindaleg
vinnubrögð Botvinniks.
Síðustu æviár Botvinn-
iks var hann þó svarinn
andstæðingur Ka-
sparovs og hann stóð
með Karpov í hatrömm-
um átökum um yfirráð
yfir húsi skákfélagsins í
miðborg Moskvu, sem
m.a. voru í brennidepli á
síðasta Ólympíuskák-
móti. Þegar Kasparov
var hér á Islandi um daginn kallaði
hann Botvinnik gamlan stalínista.
Með Botvinnik er fallinn í valinn
tengiliður skáklistar samtímans við
gömlu meistarana. Hann vann skák-
ir af þeim Emanúel Lasker (1868-
1941), Jose Raoul Capablanca
(1888-1942) og Alexander Aljekín
(1892-1946).
Botvinnik fæddist 17. ágúst 1911
í finnskum smábæ þar sem foreldrar
hans dvöldu í leyfi. Strax á ungl-
ingsárum var hann orðinn vel lesinn
og öfiugur skákmaður. Hann tefldi
fyrst á Vesturlöndum um áramótin
Mikhail Botvinnik
skólar/námskeið
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus í maí og júrú.
Hannes Flosason,
sími 554 0123.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda.
Sparið og saumið fötin sjálf.
Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Uppl. hjá Sigríði Péturs
dóttur í síma 17356.
tölvur
STJÓRNUNARFÉLAGS fSLANDS
OG NYMEAJA
69 77 69 <Q>
62 1 □ 66 NfHlRJl
■ Tölvuskóli í fararbroddi
Öll hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
Itsi ~ ' JH Sjábu
í víbara samhcngi!
1934-35 er hann tók þátt í Hastings-
mótinu. Fram að heimsstyijöldinni
síðari tefidi hann á nokkrum mótum
vestra og gat sér góðan orðstír.
Stríðið gerði þó að engu fyrirætlanir
um heimsmeistaraeinvígi hans og
Aljekíns.
Hann hreppti titilinn með sigri á
heimsmeistaramótinu í Haag og
Moskvu árið 1948. Hann varði síðan
titilinn á jöfnu, 12-12 í tveimur ein-
vígjum, fyrst gegn Davíð Bronstein
árið 1951 og síðan Vassilí Smyslov
1954. Smyslov vann loks af honum
titilinn árið 1956. En samkvæmt
þágildandi reglum átti fallinn heims-
meistari rétt á nýju einvígi árið eft-
ir og þá sigraði Botvinnik óvænt og
endurheimti tignina. Tal sigraði
hann 1960 en árið eftir lék Botvinn-
ik sama leikinn að nýju og varð
heimsmeistari í þriðja sinn. Réttur
heimsmeistara á hefndareinvígi var
þá felldur úr gildi og Botvinnik tap-
aði titlinum í þriðja og síðasta sinn
árið 1963 fyrir Tígran Petrosjan. Á
næstu árum tók hann þátt á mörgum
mótum og stóð sig yfirleitt mjög
vel, en árið 1970 hætti hann tafl-
mennsku, 59 ára að aldri.
Botvinnik varð sex sinnum skák-
meistari Sovétríkjanna, eða jafnoft
og Mikhail Tal. Enginn skákmaður
sigraði oftar en þeir tveir á þessum
mótum, sem voru geysilega löng og
erfið. Hann var meistari stöðubar-
áttunnar og í endataflstækni hafa
fáir náð lengra.
Ótrúlega sterkur persónuleiki
Botvinnik var skilgetið afkvæmi
sovéska kerfísins og eftirlæti þess.
Hann kom sér snemma vel við hátt-
setta ráðamenn í kommúnista-
flokknum, sem sáu áróðursgildi þess
að eiga bestu skákmenn heims í sín-
um röðum. „Ég hef aldrei rekið áróð-
ur fyrir neinu nema skák,“ sagði
Botvinnik þó sjálfur.
Hann hafði mikinn metnað og
sjálfsaga til að bera strax í æsku
og sterkur persónuleiki hans mótað-
ist snemma. Botvinnik tók öll við-
fangsefni sín mjög föstum tökum
og var afar gagnrýninn á aðra. Urðu
samferðamenn hans oft hart úti í
slíkum palladómum, en óvægnastur
var hann þó við gagnrýni á eigin
taflmennsku.
Botvinnik var rafmagnsverkfræð-
ingur að mennt og starfaði í áratugi
að gerð tölvubúnaðar sem tefldi
skák. Hann var frumkvöðull á því
sviði en verk hans þar byggðust upp
á allt öðrum forsendum en þeim sem
liggja á bak við nýlegan árangur
tölvuforrita. Störf hans að raunvís-
indum trufluðu oft skákferil hans.
Það liggja mörg ritverk eftir Bot-
vinnik, hæst ber þriggja binda verk
á rússnesku um skákferil hans. Skrif
hans eru merk, bæði vegna mikillar
vinnu sem lagðar eru í rannsóknir
á skákum og þess að sterkur per-
sónuleiki hans skín alls staðar í
gegn. Á enskri tungu ber hæst „Tak-
markinu náð“ (Achieving the aim),
sjálfsævisaga, sem er frábær
skemmtun fyrir alla skákáhuga-
menn. Lesandinn fellur hreinlega í
stafi yfir dugnaði, metnaði og
ákveðni höfundarins við að hrinda
takmörkum sínum í framkvæmd.
Keppinautar hans fá það flestir
óþvegið, meira að segja Vasilí
Smyslov, en þeir Botvinnik voru þó
orðnir nánir vinir síðustu árin. „Skák
í hálfa öld“ (Half a century of chess)
er vandað safn 90 skáka, með ýtar-
legum skýringum og mögnuðum
innskotum.
í viðtali við hollenska blaðið New
in Chess árið 1992 ráðlagði Botvinn-
ik ungum skákmönnum að skoða
skákir Bobby Fischers, kynna sér
skákasafn Aljekíns, lesa kennslubók
Capablanca auk eigin þriggja binda
ritverks.
Frægasta skák Botvinniks er sig-
ur hans yfír Capablanca á AVRO
mótinu í Hollandi árið 1938:
Hvítt: Botvinnik
Svart: Capablanca
Nimzoindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Bb4 4. e3 - d5 5. a3 - Bxc3+
6. bxc3 — c5 7. cxd5 — exd5 8.
Bd3 - 0-0 9. Re2 - b6 10. 0-0 -
Ba6 11. Bxa6 — Rxa6 12. Bb2 —
Dd7 13. a4 - Hfe8 14. Dd3 - c4
15. Dc2 - Rb8 16. Hael - Rc6
17. Rg3 - Ra5 18. f3 - Rb3 19.
e4 - Dxa4 20. e5 - Rd7 21. Df2
- g6 22. f4 - f5 23. exf6 - Rxf6
24. f5 - Hxel 25. Hxel - He8
Botvinnik telur 25. — Hf8 betri
varnarleik.
26. He6 - Hxe6 27. fxe6 - Kg7
28. Df4 - De8 29. De5 - De7
30. Ba3!! - Dxa3 31. Rh5+ -
gxh5 32. Dg5+ - Kf8 33. Dxf6+
- Kg8 34. e7 - Dcl+ 35. Kf2 -
Dc2+ 36. Kg3 - Dd3+ 37. Kh4 -
De4+ 38. Kxh5 - De2+ 39. Kh4
- De4+ 40. g4 - Del+ 41. Kh5
og svartur gafst upp.
Átta skákmenn hafa borið heims-
meistaranafnbót frá stríðslokum.
Þrír eru látnir, þeir Tigran Petrosjan
(1929-1984), Mikhail Tal (1936-
1992) og Mikhail Botvinnik (1911-
1995). Hinir fimm eru Vasilí
Smyslov (f. 1921), Boris Spasskí (f.
1937), Bobby Fischer (f.1943), Ana-
tólí Karpov (f. 1951) og Gary Ka-
sparov (f. 1963). Þeir þrír síðast-
nefndu líta reyndar allir á sig nú sem
hinn eina rétta heimsmeistara.
Margeir Pétursson
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SNORRI KRISTJÁNSSON,
Gnoðarvogi 18,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, þriðjudaginn 9. maí
kl. 13.30
Helga Snorradóttir, Jón Oddur Sigurjónsson,
Olafur Snorrason, Jenný Steingri'msdóttir
og barnabörn.
RAÐAUGÍ YSINGAR
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7-9 - 210 Garðabæ - sími 658800 - fax 651957
Saumanámskeið
verður haldið fyrir almenning í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ. Frábær aðstaða, stór
sníðaborð, saumavélar og nýjustu sniðblöð-
in. Kennari: Ásdís Jóelsdóttir, textilkennari.
Verð kr. 8.000.
Innritun og upplýsingar í síma 642419.
Skólameistari.
Þingvallavatn - Grímsnes
Sumarbústaðalóðir
Til sölu nokkrar úrvals lóðir í Grímsnesi -
meðalstærð 7.000 fm.
Tvær lóðir við Þingvallavatn, 5.000 fm hvor,
og 24 fm hjólhýsi.
Símar 98-64500 og 985-24761.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3, 105 Reykjavík,
sími 682840, myndsendir 623219
Einarsnes - Bauganes:
Breytt deiliskipulag
Hér með er auglýst breyting á deiliskipulagi
Einarsness á reit 1.67, sem markast af Ein-
arsnesi, Skeljanesi og Bauganesi.
Deiliskipulagsuppdráttur verður til sýnis á
Borgarskipulagi Reykavíkur, Borgartúni 3,
1. hæð, frá kl. 8.30 til 16.00 alla virka daga
frá 9. maí til 6. júní nk.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur inn-
an auglýsts kynningartíma.
Borgarskipulag Reykjavíkur,
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.
SUÐAVI K
SÚÐAVÍKURHREPPUR
Njarðarbraut 14,420 Súðavfk, s. 94-4912, fax 94-4946
Ný Súðavík
Gatnagerð og holræsalagnir
Súðavíkurhreppur óskar eftir tilboðum í
gatna- og holræsagerð vegna uppbyggingar
nýrrar Súðavíkur. Verkið er nefnt Gatnagerð
í Eyrardalslandi og felst í að leggja nýjar
holræsa- og vatnslagnir og gera götur og
búa þær undir jöfnunarlag.
Helstu verkþættir og magntölur eru
eftirfarandi:
Götur 2.100 m.
Holræsalagnir 5.200 m.
Aðveituæð vatns 700 m.
Deifilagnirvatns 3.000 m.
Verkið er áfangaskipt og skal stærstum hluta
þess lokið fyrir 15. september 1995.
Útboðsgögn verða afhent 9. maí nk. hjá
Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. á
ísafirði og í Reykjavík frá kl. 13.00 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Súðavíkur-
hrepps, Njarðarbraut 14, 420 Súðavík, og
verða þau opnuð þar 24. maí nk. kl. 14.00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Súðavíkurhreppur.