Morgunblaðið - 09.05.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ1995 43
BREF TIL BLAÐSINS
Flygsum af bráðnu
járni rigndi niður
Frá Vilhjálmi Eyjólfssyni:
í VETUR sendi ég Morgunblaðinu
mynd af njósnadufli á Hnausa-
fjöru, og gerði nokkra grein fyrir
sögu fjörunnar. Þar sást mér yfir
eitt atriði eins og oft vill verða
með það sem er löngu liðið. Það
var að í síðari heims-
styijöldinni var íjaran
hlaðin vítisvélum,
tundurduflum, sem þá
rak um allar tjörur.
Hvergi meira en í Með-
aliandi, sögðu sprengj-
usérfræðingar sem hér
komu.
Þetta voru yfirleitt
ensk dufl, þó kom að-
eins fyrir að þýsk dufl
rak. Fyrst rak takka-
duflin, sem sprungu ef
takkarnir bognuðu,
síðar komu seguldufl-
in. Sum sprungu í lend-
ingu og hálfbráðnum
flygsum rigndi langt
upp á sand. Kom fyrir
að þau sprungu á
skipsflökum, sem þá þurrkuðust
út að mestu.
Tveir Bretar eyddu hér mörgum
duflum, síðar komu Bandaríkja-
menn. Þeir sprengdu duflin og það
gerðu Bretarnir einnig, ef þau voru
þýsk eða spennt. En þau áttu að
afspennast, þegar þau slitnuðu frá
festingum í hafinu. Bretarnir
gerðu mest af því að rífa duflin
og kveikja í þeim. Tóku fyrst af
litla lokið og íjarlægðu forsprengj-
una. Tóku síðan af stóra lokið og
lokið af tunnunni með aðal sprengi-
efninu og kveiktu í því. Það logaði
mjög glatt en sprakk ekki.
í stríðslokin var haldið námskeið
á Kirkjubæjarklaustri, þar sem ís-
lendingum var kennt að eyða tund-
urduflum og að nota ensku aðferð-
ina þar sem hún átti við. Helgi
Eiríksson á Fossi á Síðu, var einn
þeirra sem sóttu námskeiðið og
eyddi lengi tundurduflum hér.
Gerði hann mest af því að rífa
þau, enda var mikið af sprengiefni
Elías Pálsson á Sléttu
á Brunasandi
úr þeim flutt til Vestmannaeyja
og notað þar við flugvallargerð.
Mikla varfærni þurfti við þetta
starf. Þegar átt var við seguldufl-
in, mátti ekki vera með neitt járn
á sér og ekki einu sinni tölur úr
járni. Allt fór þetta farsællega hjá
Helga, nema einu sinni munaði litlu
að illa færi.
Helgi fór þá suður
á Meðallandsíjörur að
eyða tundurduflum.
Var það nokkuð vest-
an við Eldvatnið. Með
honum voru þeir Elías
Pálsson, síðar bóndi á
Sléttu á Brunasandi
og Einar Guðmunds-
son frá Klaustri, sem
var bílstjórinn.
Þetta voru ensk
dufl, sem þeir eyddu
þarna og það síðasta
var mjög sandkafið.
Þeir fara þarna að
öllu svo sem vera átti,
en það kemur strax
óhugur í Elías og hon-
um finnst að þeir séu
í hættu. Þegar Helgi hefur kveikt
í sprengiefninu, segir Elías að þeir
skuli koma sér í skjól, því duflið
muni springa. Þeir fara í skjól við
bílinn, en þeim félögum Elíasar
finnst þetta samt óþarfi og Helgi
segir að þetta geti ekki gerst. Þá
springur duflið með ægilegum
dynk og flygsum af bráðnu járni
rigndi niður í kringum þá. En þeir
sluppu að mestu leyti við þetta,
aðeins sindur frá sprengingunni
snerti þá og það sá lítið á bílnum.
Þeim var hlíf að bílnum, en það
bjargaði þeim mest hvað duflið var
sandkafið, Sprengingin fór því
mest beint upp.
Eftir þessa hremmingu héldu
þeir heim á leið. Fyrst heyrnarlaus-
ir eftir sprenginguna, en það lagað-
ist þegar frá leið. Þeir komu á bæ
til að fá sér kaffi og voru spurðir
um þessa miklu sprengingu á fjör-
unni, en þóttust einskis hafa orðið
varir. Og fannst ekki frítt við að
þeim væri reiknað til sljóleika að
Reiðskólinn Hrnuni, Grímsnesi
Reiðskóli fyrir 10-15 óra unglinga '95
Útreiðar og bókleg kennsla um hesta og hestamennsku -
sundlaug - gufubað - golfvöllur - minigolf - borðtennis - leikvöllur -
fótboltavöllur - skemmtikvöld - grillveisla o.fl. o.fl.
9 daga námskeið
méb fullu fæði
Verð kr. 25.800
l/lll framhaldsnemendur - IV vanir m. hest.
Bókanir í sima 562 3020 - 567 1631
Reiðskólinn Hrauni
þar sem hestamennskan hefst
verða ekki varir við annað eins.
Var þó ekki um það rætt. En þess
má geta að sprengingin var mjög
áberandi á Seljalandi í Fljóts-
hverfi, en þangað er meira en 30
km loftlína. En þeir vildu ekki segja
frá þessu. Fólkið heima yrði þá
hræddara um þá.
En hver var skýringin á þessu?
Ensk dufl hlutu að einhvetju marki
að falla í hendur Þjóðverja og þeir
gátu notað eitthvað af þeim aftur.
Settu þeir þessa dauðagildru i dufl-
ið? Enginn veit. Og þegar Elías
riijar upp þessar minningar í stof-
unni á Sléttu, þá finnst mér velþ
ess vert að halda þeim til haga.
FLeiri verða ekki spurðir, því hinir
félagarnir eru komnir yfir móðuna
miklu. En það verður ekki annað
sagt, en að verndarengill Elíasar
á Sléttu varð þeim öllum að nokkru
liði, þar suður á Meðallandsfjörum.
VILHJÁLMUR EYJÓLFSSON,
Hnausum.
u h -
0 k ?
KOMXtr
Grensásvegi 18 Sími 581 2444
Olga Færseth,
íþróttakona:
B r léi — ijllii
—JJD
SmKKARAR f
Kolbeinn Gíslason, stoðtækjafræðingur
við greiningarbúnaðinn.
Undirbúiö ykkur fyrir
sumariö hjá okkur.
Mikiö úrvai af vönduöum
hlaupaskóm.
Lækjargata 4, Reykjavík Tímapantanir í síma 551 4711
STOÐTÆKNI
Gísli Ferdinandsson hf.
Fjárfesting í betri heilsu og veiiíðan!
Fylgstu með en haltu rð þinni
- til 12. maí n.K.