Morgunblaðið - 23.05.1995, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B
115. TBL. 83.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjórnin í Israel fellst á tilslökun á neyðarfundi
Frestar eignar-
námi í Jerúsalem
Jerúsalem. Reuter, The Daily Telegraph.
STJÓRN ísraels ákvað á neyðar-
fundi í gær að fresta umdeildum
áformum um að taka 53 hektara
lands í Austur-Jerúsalem eignar-
námi. Tilslökunin kom mörgum á
óvart og henni var ætlað að bjarga
stjórninni, sem stóð frammi fyrir
vantrauststillögu á þinginu, og af-
stýra því að friðarviðræðurnar við
araba sigldu í strand.
„Stjórnin hefur ákveðið að fela
hópi ráðherra undir forystu forsæt-
isráðherrans að gaumgæfa deiluna
um eignarnám í Jerúsalem," sagði
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels, á þinginu eftir skyndifund
með Yasser Arafat, leiðtoga Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO).
Tveir flokkar araba, sem hafa
stutt minnihlutastjórn Yitzhaks Rab-
ins forsætisráðherra á þinginu,
höfðu hótað að fella stjórnina með
vantrauststillögu. Eftirgjöf stjórn-
Spánverjar
fordæmdir
Brussel. Reuter.
EMMA Bonino, sem fer með sjáv-
arútvegsmál innan framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins
(ESB), fordæmdi í gær spænska
sjómenn sem stöðvuðu flutninga-
bíl á leið frá Marokkó til Hollands
með djúphafsrækju.
Sjómennirnir stöðvuðu bílinn og
köstuðu helmingi farmsins á veg-
inn nálægt spænska hafnarbæn-
um Algeciras.
„Þetta er ólögleg aðgerð og
óviðunandi athæfi nú þegar samn-
ingaviðræður standa yfir,“ sagði
Bonino og vísaði til viðræðna ESB
og Marokkó, sem deila um veiði-
kvóta og landanir í marokkóskum
höfnum.
„Ég furða mig á því að sama
fólkið og fordæmdi Kanadamenn
og sagðist vilja að farið yrði að
lögum skuli hegða sér svona,“
bætti Bonino við.
Falli stjórnar
Rabins afstýrt
arinnar varð til þess að fallið var frá
tillögunni.
Hægriflokkarnir sögðust ætla að
greiða atkvæði með vantrauststillög-
unni, þótt þeir væru hlynntir eign-
arnáminu. „Þetta er mesta hneyksli
í sögu landsins - að fella stjórnina
frekar en að standa vörð um einingu
Jerúsalern," þrumaði Peres á þing-
inu.
Hægrimenn brugðust hins vegar
ókvæða við ákvörðun stjórnarinnar
og sögðu Rabin hafa látið undan
þrýstingi araba.
Israelsstjórn tilkynnti í síðasta
mánuði að hún hygðist taka 53 hekt-
ara lands eignarnámi í Austur-Jerú-
salem, sem Palestínumenn vilja gera
að höfuðborg ríkis síns þegar fram
líða stundir. ísraelar náðu Austur-
Jerúsalem á sitt vald í stríðinu í
Miðausturlöndum árið 1967 og segja
að ekki komi til greina að gefa borg-
arhlutann eftir.
Leiðtogafundi aflýst
Frelsissamtök Palestínumanna og
ýmis arabaríki brugðust ókvæða við
áformum ísraelsku stjórnarinnar og
þau stefndu friðarviðræðunum við
araba í hættu.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, fagn-
aði eftirgjöf stjórnarinnar. „Svo virð-
ist sem viðleitni Palestínumanna,
araba og umheimsins hafi borgað
sig,“ sagði hann og kvaðst vona að
staðið yrði við ákvörðunina.
Arabaríki höfðu boðað til leiðtoga-
fundar í Marokkó á laugardag til
að ræða deiluna um Jerúsalem, en
Esmat Abdel-Meguid, framkvæmda-
stjóri Arababandalagsins, sagði í
gær að fundinum hefði verið aflýst
vegna eftirgjafar ísraela.
Reuter
Eignarnámsdeilan leyst
"YASSER Arafat, leiðtogi PLO, og Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, kveðjast eftir fund þeirra um eignarnámsdeiluna.
Umdeildur
dýrlingur
JÓHANNES Páll páfi II lauk í
gær þriggja daga heimsókn til
Tékklands og Póllands en í
heimalandi hans komu saman
allt að 200.000 manns til að fagna
honum þrátt fyrir kalsaveður. í
ræðu, sem páfi flutti í Póllandi,
hvatti hann landsmenn sína til
að láta ekki nýfengið frelsi verða
siðferðislegri upplausn að bráð
en í ferðinni lagði páfi megin-
áherslu á, að kristnir menn í öll-
um kirkjudeildum viðurkenndu
misgjörðir sínar á umliðnum öld-
um og fyrirgæfu hverjir öðrum.
Það varpaði hins vegar nokkrum
skugga á, að hann skyldi taka í
dýrlingatölu í Tékklandi um-
deildan prest, Jan Sarkander,
sem féll fyrir mótmælendum á
17. öld. Hér er páfi ásamt mynd
af prestinum, heilögum Sarkand-
er, en Pavel Smetana, einn helsti
leiðtogi mótmælenda í Tékk-
landi, hafnaði fundi með páfa
vegna þessa máls. I augum mót-
mælenda var Sarkander málaliði
kúgunarafla og útsendari kaþól-
sku herjanna.
Reuter
Japanski sértrúarsöfnuðurinn „Æðsti sannleikur“ o g gasárásin í Tókýó
Tókýó. Thc Daily Telegraph.
JAPANSKI sértrúarsöfnuðurinn
„Æðsti sannleikur" hafði skipulagt
hermdarverk í japönskum borgum
síðar á árinu áður en hann var leyst-
ur upp eftir mannskæða gasárás í
Tókýó 20. mars, að því er háttsett-
ir félagar í söfnuðinum hafa sagt
lögreglunni.
Einn af svokölluðum „ráðherr-
um“ safnaðarins, Kiyohide Hay-
akawa, sem sagði skilið við hann í
vikunni sem leið, hafði undirbúið
hermdarverk í Tókýó og borgum á
eyjunum Honshu og Hokkaido.
Lögreglan hefur fundið stór
vopnabúr, riffla, skammbyssur,
skotfæri og sprengjur, auk eitur-
Fleiri hryðju-
verk ráðgerð
Yildu láta heimsendaspána rætast
efna, í byggingum safnaðarins.
Félagar í söfnuðinum hafa viður-
kennt við yfirheyrslur að nota hafi
átt vopnin til að skapa ringulreið í
stærstu borgunum í nóvember.
Markmiðið hafi verið að láta spádóm
leiðtoga þeirra um að heimurinn
færist í gjöreyðingarstríði rætast.
Leiðtoginn, Shoko Asahara, var
handtekinn fyrir viku en hefur neit-
að að ræða gasárásina. Hann kveðst
hafa haft of marga aðstoðarmenn
til að geta fylgst með því hvað þeir
væru allir að gera. Lögreglan segir
hins vegar að nokkrir safnaðar-
mannanna hafi sagt að leiðtoginn
hafi fyrirskipað árásina.
Ennfremur hafa komið fram vís-
bendingar um að Asahara hafi gef-
ið fýrirmæli um morð á lögfræðingi
foreldra sem reyndu að endur-
heimta unglinga úr söfnuðinum.
Lögfræðingurinn hvarf árið 1989
ásamt konu sinni og ungum syni
þeirra. Háttsettur safnaðarmaður
hefur játað að hafa ásamt fimm
öðrum ráðist inn í hús lögfræðings-
ins, sprautað eitri í fjölskylduna og
grafið líkin á lóð safnaðarins við
rætur Fuji-fialls.
Þýskaland
Fangar
taka gísl
Bonn. The Daily Telegraph.
ÞÝSKA lögreglan elti í gær
tvo fanga, er héldu fangaverði
í gíslingu og óku um á
Porsche-bíl sem lögreglan
neyddist til að láta þeim í té.
Fangarnir sögðu í símavið-
tali að þeir hefðu engu að tapa.
„Við viljum frekar deyja frjáls-
ir með byssukúlu í hausnum
en hægum og kvalafullum
dauðdaga á bak við lás og slá.“
Annar fanganna, sem var
dæmdur fyrir rán og fjársvik,
sagði í viðtali við sjónvarpsstöð
að þeir myndu láta fangavörð-
inn lausan um leið og lögregl-
an hætti að elta þá á bílum
og þyrlum. Gíslinn grátbað
lögregluna um að verða við
kröfunni.
Hinn fanginn hafði verið
sakfelldur fyrir morðtilraun.
Þeir voru með byssur, sem
þeir smíðuðu sjálfir, og tóku
fangavörðinn í gíslingu í bóka-
safni fangelsis nálægt Hanov-
er. Eftir 12 stunda samninga-
þref féllst lögreglan á að láta
þeim í té jafnvirði 9 milljóna
króna, Porsche-bíl og farsíma.
Mennirnir virtust ekki hafa
ákveðið hvert þeir ættu að
fara og óku um í stórum
hringjum í von um að komast
undan lögreglunni. „Við ætl-
um að bíða eins lengi og mögu-
legt er og þreyta þá,“ sagði
talsmaður lögreglunnar.
Fangarnir voru áður eitur-
lyfjafíklar og eru smitaðir af
alnæmi. Annar þeirra reyndi
að sleppa úr sama fangelsi
með svipuðum hætti fyrir ell-
efu árum.