Morgunblaðið - 30.03.1996, Side 12
12 LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hagaskóli vann Rimaskóla í ræðukeppni grunnskólanna með 73 stiga mun
VINNINGSLIÐ Hagaskóla ber saman bækur sínar.
RIMASKÓLI keppti í fyrsta skipti í ræðukeppni grunnskóla og
stóð sig með ágætum.
GAUTUR Sturluson var valinn ræðumaður kvöldsins. Hér tekur
hann á móti heillaóskum félaga sinna.
MIKIL spenna lá í loftinu þegar
við gengum inn í Ráðhúsið síðast-
liðið fimmtudagskvöld. Þar átti
að fara fram úrslitakeppni í
ræðumennsku á milli Hagaskóla
og Rimaskóla. Umræðuefnið var
„fréttir“. Rimaskóli átti að mæla
þeim bót en Hagaskóli að mæla
á móti. Dómnefndina skipuðu
vanur ræðumenn og dómarar úr
framhaldsskólunum.
Fjöldi unglinga var mættur til
að styðja sitt lið. Þegar keppend-
ur gengu í salinn brutust út mik-
il fagnaðarlæti. Fyrir hönd Rima-
skóla töluðu þau Jón Hjörleifur
Stefánsson, Asta Mekkin Páls-
dóttir og Gústaf Ólafsson. Ingvar
Lárusson var liðsstjóri. Fyrir
Hagaskóla kepptu Hildigunnur
Hallgrímsdóttir Thorsteinsson,
Jóhann Pétur Wíum Magnússon
og Gautur Sturluson. Hrafnhild-
ur Þórólfsdóttir stýrði liði Haga-
skóla.
Jón Hjörleifur frá Rimaskóla
hóf umræðuna og velti þvi fyrir
sér hvort fréttir væru óþarfar,
óeðlilegar eða jafnvel skaðlegar.
Hann komst að þeirri niðurstöðu
að forvitni og nýjungagirni væru
þættir eðlislægir manninnum og
án upplýsinga og vitneskju gæti
mannlegt samfélag ekki þrifist.
„Fréttir má misnota eins og
allt annað, en það er ekki
fréttunum að kenna, heldur
þeim sem misnotar þær,“ sagði
hann. Næst tók Hildigunnur úr
Hagaskóla til máls. Hún ásakaði
Jón Hjörleif fyrir að vera hald-
inn þeirri blekkingu að fréttirn-
ar sjálfar væru hinn heilagi
sannleikur. „Fréttir eru einung-
is skoðanir og ólikt öðrum skáld-
skap er fólki ætlað að trúa þeim.
Fréttir eru ekki það sama og
sanleikur. Fréttir eru ekkert
„80% allra frétta
eru slæmar fréttir“
RIMSKÆLINGAR hvöttu vel sína menn.
NEMENDUR Hagaskóla mættu til leiks með trommur. Hljóðin
úr þeim áttu að gefa keppnisliðinu aukinn kraft
sjálfsagt val. Fréttir gera fólk
ekkert gáfaðra en þær eru á
hinn bóginn ágætt áróðurstæki,"
sagði hún.
Fréttir uppræta spillingu og
hættur
„An frétta hefðu aumingja
Bretarnir haldið áfram að hakka
í sig hamborgara og ekki haft
grænan grun um lífshættulegan
sjúkdóm í gómsætu kjötinu.
Frakkar hefðu sprengt og
sprengt í tilraunaskyni og al-
menning ekki grunað neitt fyrr
en dauðir fiskar flytu þúsundum
saman að ströndum,“ sagði Asta
Mekkin úr Rimaskóla. „Já fréttir
uppræta spillingu og hættur.“
Jóhann Pétur frá Hagaskólan-
um sagði að hugmynir Rimskæl-
inga um fréttir ættu ekki við
lengur. „Á komandi árum muni
tölvusamskipti leysa hinar hefð-
bundnu fréttir af hólmi. Þú ert
ekki mataður á upplýsingum
heldur getur valið það sem þú
vilt.“
„Stjórnmál og lýðræði geta
ekki þrifist án frétta, þær veita
stjórnvöldum nauðsynlegt að-
hald og eru því undirstaða lýð-
ræðisins," sagði Gústaf úr Rima-
skóla. „Óneitanlega hafa ýmsir
misnotað fréttirnar eins og nas-
istar sem heilaþvoðu þýsku þjóð-
ina. Þetta var vissulega sniðugt,
en ógeðslegt."
Gautur Sturluson úr Haga-
skóla sagði að það væri ekki rétt
að fréttir endurspegluðu raun-
veruleikann vegna þess að 80%
allra frétta væru slæmar fréttir.
„Þar ganga engar sögur af góð-
vild og náungakærleika því það
selur ekki neitt. Ef fréttir endur-
spegla veruleikann, hvers vegna
er hinu góða sleppt?"
Rannsókn-
ir á örorku
styrktar
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
hefur í tilefni 60 ára afmælis
Tryggingastofnunar ríkisins
ákveðið að styrkja stöðu prófess-
ors við Háskóla íslands í rann-
sóknum á orsökum örorku.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra tilkynnti um
ákvörðunina á afmælishátíð
Tryggingastofnunar í gær. Hún
tók fram að tilgangur rannsókn-
anna væri að sækja þekkingu
til fortíðarinnar um hvernig
hægt væri að heyja baráttuna
gegn örorku í framtíðinni.
Ingibjörg sagði í samtali við
Morgunblaðið að því miður
skorti flárhagslegt svigmm til
að hægt væri að færa afmælis-
barninu nýtt húsnæði á afmæl-
isdaginn. „Ég veit að í Trygg-
ingastofnun á Laugavegi 114
er þröng á þingi enda hef ég
oft dáðst að því hvað starfs-
mennirnir sýna mikla þolinmæði
við erfiðar aðstæður. Þegar birt-
ir aftur til getum við vonandi
farið að huga að framtíðarhús-
næði fyrir Tryggingastofnun,“
sagði hún.
Jens Andr-
ésson for-
maður SFR
JENS Andrésson tæknifulltrúi
hjá Vinnueftirlitinu og varafor-
maður Starfsmannafélags ríkis-
stofnana (SFR) hefur verið kjör-
inn formaður
félagsins með
66% atkvæða.
Þetta var til-
kynnt á aðal-
fundi SFR sem
haldinn var á
fimmtudags-
kvöld.'
Bragi Mic-
haelsson deildarstjóri hjá BYam-
kvæmdasýslu rikisins beið lægri
hlut fyrir Jens í kosningu til
formanns og hlaut 3j% at-
kvæða. Kjörgögn vom send fé-
lagsmönnum í fyrsta skipti í
kosningu til stjómar og greiddu
1.882 atkvæði, eða 42,06%. Á
kjörskrá vom 4.475. Bragi fékk
592 atkvæði og Jens 1.239. 51
seðill var auður og ógildur.
Sjálfkjörið var í varastjóm en
tíu vom í framboði til stjórnar,
þar sem sitja sex meðstjórnend-
ur. Flest atkvæði hlaut Guðbjörg
Halldórsdóttir, eða 81%, lngi-
björg' Óskarsdóttir fékk 72%,
Einar Andrésson 71%, Lára
Hansdóttir 66% og Hjálmtýr
Baldursson og Frímann Sig-
urnýasson. Auðir og ógildir vom
384.
Bílastæða-
gjöld við
Leifsstöð
BIFREIÐAGÆSLAN HF. í
Keflavík tekur frá og með 1.
apríl 1996 að sér rekstur og
umsjón með bifreiðastæðum við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
A tímabilinu 1. apríl til 30.
nóvember verður tekin upp
gjaldskylda fyrir afnot afmark-
aðra langtímastæða norðan og
vestan við flugstöðina. Stæðis-
gjald er 245 kr. fyrir hvern byij-
aðan sólarhring.
Á afmörkuðum svæðum fyrir
framan aðalanddyri flugstöðv-
arinnar verður óheimilt að
leggja bifreiðum lengur en 3
klst. samfleytt. Á þessum bíla-
stæðum er hægt að leggja bif-
reiðum ókeypis.