Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 15
Fyrirlestur um
bj örgnnarmemi í að-
gerðum og áfallahjálp
yaðbrekku, Jökuldai - Kristbjöm
Oli Guðmundsson frá Björgunarskóla
Slysavamafélags Islands og Lands-
bjargar flutti fyrirlestur um björgun-
armenn í aðgerðum í Skjöldólfsstaða-
skóla um síðustu helgi. Fyrirlesturinn
er liður í fyrirlestraferð Björgunar-
skólans um allt land um þetta efni.
Kristbjörn er í Landsstjórn björgun-
arsveita og fjallaði fyrirlesturinn um
samskipti hins almenna björgunar-
manns við vettvangsstjórnir, svæðis-
stjórnir, landsstjórn, svo og Al-
mannavarnir ríkisins.
Á fyrirlesturinn mætti fólk frá
Hafliða á Þórshöfn, Vopna Vopna-
firði, Fjallaskátum, Jökli Jökuldal,
og Gró Egilsstöðum, alls þijátíu og
sex manns.
Mikill tími fór í að skýra út ferli
stórútkalla með hliðsjón af fenginni
reynslu af áföllunum í Súðavík og á
Flateyri, en ýmsir hnökrar komu upp
eftir þau útköll og skírði Kristbjörn
út hvernig hugsað er útí að þeir
endurtaki sig ekki. Landsstjórn
björgunarsveita vinnur nú að því að
stytta þann tíma eins og unnt er sem
líður frá útkalli þangað til hjálparlið
er komið á staðinn.
Einnig fór Kristbjörn ítarlega yfir
í hveiju áfallahjálp er fólgin og hveij-
ir þyrftu aðallega á henni að halda.
Fram kom að við mikil áföll þar sem
björgunarmenn eru að vinna að
björgun fólks sem er í ýmsu ástandi,
jafnvel illa útleiknu og látnu. Við það
myndast mjög oft eðlileg bráð
streituviðbrögð hjá björgunarmönn-
um, og gengur áfallahjálpin útá að
Nýtt fyrirtæki á Hornafirði
Morgunblaðið/Þorkell
SIGRÚN Sveinbjörnsdóttir
Gerir við
segl og skó
SEGL og saumur heitir nýtt
fyrirtæki á Höfn í Hornafirði.
Eins og nafnið bendir til eru
saumuð segl á verkstæði þessu
en einnig geta Hornfirðingar
fengið þar gert við skó sína.
„Eg ætlaði með skó í við-
gerð en þá var miði í glugga-
num þar sem fram kom að
skósmiðurinn væri hættur
störfum. Við vorum lengi búin
að velta fyrir okkur möguleik-
um á einhverskonar rekstri
og ákváðum eftir stutta um-
hugsun að leita eftir kaupum
á þessu verkstæði," segir Sig-
rún Sveinbjörnsdóttir sem
rekur Segl og saum ásamt
manni sínum, Snorra Aðal-
steinssyni sjómanni.
Nýjungar í seglasaumi
Keyptu þau tækin og komu
þeim fyrir í bílskúrnum við
heimili sitt. Seljandinn, Jón
Benediktsson, hefur svo hjálp-
að þeim af stað.
„Við munum leggja alveg
eins mikla áherslu á segla-
sauminn og skóviðgerðirnar,
enda er þar óplægður akur og
við með ýmsar nýjungar í
huga,“ segir Sigrún.
SIGURVEGARAR spurningakeppni Grunnskólans í Grindavík
1996. Talið f.v. Gunnlaugur Dan Olafsson skólasljóri, Guðmund-
ur Ásgeirsson, Þuríður Gísladóttir, Baldur Jóhann Þorvaldsson
og Ellert Sig. Magnússon umsjónarkennari.
Spurningakeppni
í grunnskólanum
Grindavík - Nýlega er lokið í
Grunnskóla Grindavíkur spurn-
ingakeppni unglingaskólans sem
var haldin í 6. skipti. Undankeppni
byrjaði á nýju ári og var útsláttar-
keppni til að byrja með. Síðan var
keppni milli þeirra þriggja bekkja
sem komust i úrslit. og kepptu allir
við alla. Eftir harða keppni, þar
sem hvert lið vann eina keppni,
var það 9.-E sem bar sigur úr být-
um í úrslitum, er þeir unnu sigur-
vegara síðustu keppni sem haldin
var fyrir tveimur árum. Það er því
9.-E sem varðveitir sigurlaunin,
sem er smíðisgripur, hannaður og
smíðaður af Ingibjörgu Sveinsdótt-
ur kennara við skólann. Auk þess
fengu þátttakendur bókagjöf.
Nærri lætur að í hverri keppni
hafi verið spurt yfir 30 spurninga
alls 6 sinnum svo að eftir keppnina
var búið að spyija tæplega 200
spurninga þannig að nemendur og
þáttlakendur urðu nokkurs vísari
að keppni lokinni.
LANDIÐ
MARGIR komu og hlýddu á fyrirlesturinn og er þetta með fjölmennustu fyrirlestrum í þessari
fyrirlestraferð, að sögn Kristbjörns Óla Guðmundssonar fyrirlesara.
bregðast við þessum streituviðbrögð- áföllum lenda verða einnig fyrir þess- og skipulagi á vettvangi. Á eftir fyr-
um og minnka áhrif þeirra. Farið var ari streitu. irlestrinum voru almennar umræður
yfir hvernig björgunarmenn eiga að Einnig var sagt lítillega frá ferli og fyrirspurnir, þar sem efni hans
bregðast við þessari streitu og út- venjulags útkalis þar sem ekki þarf var krufið og beint var fyrirspurnum
skírt að aðstandendur þeirra er í að kalla út Almannavarnabatteríið til Kristbjörns.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Sungið af lífi og
sál í karaókí
Flateyri - Ungviðið á Flateyri
fékk um daginn að kynnast
töframætti karaókí-söngkerfis-
ins þegar fyrirtækið Jaffasystur
var hér á ferð með tækið. í
fyrstu voru bæði drengir og
stúlkur feimin en þegar á leið
voru þessi sömu kyn búin að
breytast í sviðsvana söngvara
með allt sitt á hreinu. Og söng-
skalinn náði allt frá Led Zeppel-
in til Madonnu.
Siglufjörður
Bærinn keypti
eignir Glaðnis
Siglufirði - Bæjaryfirvöld á Siglu-
firði festu kaup á öllum tækjum
Glaðnis hf. á uppboði í febrúar sl.
en Glaðnir hf. hætti starfsemi undir
lok síðasta ár.
Að sögn Björns Valdimarssonar,
bæjarstjóra á Siglufirði, ákváðu
bæjaryfiivöld að kaupa þessi tæki
og kanna hvort aðilar hér í bænum
hefðu áhuga á að eignast þau og
nýta hér á staðnum. Tækin hafa
þegar verið auglýst til sölu innan-
bæjar og hafa aðilar sýnt þeim
áhuga.
Starfsemi Glaðnis hf. fluttist frá
Hveragerði til Siglufjarðar fyrir
tveimur árum og fengu forsvars-
menn fyrirtækisins styrk frá Siglu-
íjarðarbæ til flutningsins, svo og
lagði bærinn til húsnæði undir starf-
semina og þrjár milljónir kr. í hluta-
fé, sem hann mun að öllum líkindum
tapa.
Að meðaltali störfuðu 6-8 manns
hjá Glaðni hf. við framleiðslu á ýmis-
konar skartgripum, minjagripum og
merkjum.
ERUM FLUTT í AÐALSTRÆTI 6
STÓRKOSTLEGT OPNUNARTILBOÐ FRAM TIL PÁSKA
15-60% AFSLATTUR
GODIR GREIDSLUSKILMALAR
ALLIR SEM KAUPA í DAG FYRIR MEIRA EN 10.000 KR.
FÁ STÓRT PÁSKAEGG í KAUPBÆTI
OPIÐ í DAG KL. 12.00-16.00, VIRKA DAGA KL. 12.00-18.00
éraé&Lc
BORG
við INGÓLFSTORG
SÍMI552 4211