Morgunblaðið - 30.03.1996, Side 41

Morgunblaðið - 30.03.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 41 GREINARGERÐ hafnargarðinum og um 300 m inn eftir Aðalgötu. Á bls. 7 í sömu skýrslu segir að yfirverkefnastjóri Veðurstofunnar hafi verið í síma- sambandi við athugunarmann í Súðavík um nóttina og segir að ótvírætt hafi komið fram í síðasta samtali þeirra að ekki væri síður ástæða til að hafa áhyggjur af ytra svæðinu. Þær áhyggjur voru aldrei á vitorði Almannavarna- nefndar ríkisins né sýslumanns. Á þetta var ekki minnst í samtali sýslumanns og sveitarstjóra og kveðst sveitarstjóri aldrei hafa vit- að um áhyggjur yfirverkefnastjóra Veðurstofunnar og athugunar- manns af ytra svæðinu, „sem var samkvæmt mati utan hættu- marka“. Nú er efri húsaröðin við Nesveg allt í einu komin út af hættusvæði því sem það var áður talið vera á á bls. 5. Og þar að auki greinilega tekið gott og gilt að sveitarstjóri hafi aldrei vitað um áhyggjur yfirverkefnastjóra Veðurstofunnar þrátt fyrir ský- lausa yfirlýsingu yfírverkefnastjór- ans í fyrri skýrslu um hið gagn- stæða. Á bls. 8 segir svo í skýrslunni nýju: „Ekki verður séð af fyrirliggj- andi gögnum að önnur málsmeð- ferð hefði firrt því manntjóni sem varð, þar eð þau hús sem lentu í snjóflóðinu voru utan hættusvæðis samkvæmt gildandi hættumati." Þetta er enn þvert á það sem seg- ir á bls. 5 um efri húsaröðina við Nesveg sem er innan hættusvæðis og óskiljanleg þversögn þar sem það voru einmitt hús við Nesveg nr. 1, 3 og 7 sem lentu í flóðinu og öll inn á hættusvæði samkvæmt mati. Má minna á að tvennt fórst í húsinu við Nesveg 7. Það er því beinlínis rangt og óskiljanleg syndakvittun að fyrirliggjandi gögn bendi ekki til þess að önnur málsmeðferð hefði fírrt manntjóni því sem varð. Það er alveg án nokk- urs vafa að áliti undirritaðra að ef mark hefði verið tekið á áhyggj- um yfirverkefnastjóra Veðurstof- unnar, eftirlitsmanns og hrepp- stjóra, og ef fundinum hefði ekki verið frestað til kl. 8 um morgun- inn þann 16. þegar allt var yfír staðið og ef þeir sem ábyrgð báru hefðu sinnt lagaskyldu sinni, hefði mátt fírra því manntjóni sem varð. Af þessari ástæðu er það nú ófrá- víkjanleg krafa okkar til Almanna- varnanefndar ríkisins að skýrsla þessi verði endurunnin af hlutlaus- um aðila. Það er ófrávíkjanleg krafa okkar að ekki sé skilið við þetta mál öðru vísi en að öllum megi vera ljóst hvað fór úrskeiðis og hverra sé sökin og ábyrgðin. Við vitum að tíminn verður aldrei færður til baka og að við munum aldrei endurheimta ástvini okkar sem fórust í þessum hryllilegu hamförum, en ef það mætti verða til þess að mistök af þessu tagi endurtækju sig ekki, verður hið sanna og rétta að koma í ljós, hvað sem þáð kostar. Þessi grein- argerð á eingöngu við um al- mannavarnaþáttinn og er alls óvið- komandi svokölluðu hreinsunar- máli og eftirmála þess. Reykjavík, 22. mars 1996. Hafsteinn Númason, Berglind María Kristjánsdóttir, Ragna Aðalsteinsdóttir, Björk Þórðardóttir, Þorsteinn Örn Gestsson, María Sveinsdóttir. Tölruleikmm, frí höiiniiii op lilbods/ierd. VEGGOFN •MeJeJaán blásturs • 2ja ára ábyrgö KÆLISKÁPUR *Hæð:85cm Kæl<r: 140 Itr. KffiUEBKRMR VlfeMMSom mfiijaairiOTtr. vteteiaDniti. Slepplu Imiíiimuliijhifniiii /misn op ratlailn siiiiiiin lit npformi it jiiimi ihiirétliiiftii. Iirort sein er ii bnili ebii í elil/uísi og siiiiin pililir iiiii fiitaskttiiii. Hji Rttflui /ii'rðn rriiii/mW iniiréttiiipiir sem em sérsuibnar fyrír lireni eiiisttiknii. UPPÞVOTTAVÉL •45 eða EOcm breiðar •9-12manna • 3ja ára ábyrgð HSfi | p | Opið virkn daf(a frá kl. 9:00-18:30, laiigarilaga frá kl. 10:00-16:00 E iu.. SUDIJRLANDSBRAIIT 16 • 108 REYKJAVÍK • SÍMl 588 0500 Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins! Dýrasta útfærslan. Einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri. Einn eigandi frá upphafi. Árgerð 1991, ekinn aðeins 12.000 km á splunkunýrri orginal bensínvél, beinskiptur, litur dökkgrár metalic. Dráttarkrókur, aukafelgur. Verð 1.860.000 kr. Upplýsingar í síma 552 8880 og 565 1176. 3ja sæta sófi, stgr. 91.800. 2ja sæta sófi, stgr. 77.100. Stóll, stgr. 57.600. Hár stóll, stgr. 64.900. Síðumúla 20, sími 568 8799. UOCKEY Þ R Ö N G A R BOXERBUXUR S T A N D A F Y R I R S í N U ! Einlitar og röndóttar. Útsölustaðir um land allt! Heildsölubirgöir: Davíð S. Jónsson 8 Co. hf. sími 552 4333

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.