Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BEKKJARSYSTKIN Sölva og Anna Margrét Ákadóttir kennari hlusta á Sölva segja frá sjúkrahúsvistinni. Níu ára drengur hrapaði í klettum „Indíánagils“ Krakkar eiga ekki að klifra í klettum „MÉR finnst að krakkar ættu ekki að klifra í klettunum,“ sagði Sölvi Guðbrandsson, þeg- ar hann kom í „IndíánagiT' í Elliðaárdalnum í gær, þar sem fjöldi barna var við leik. „Það er hættulegt," bætti Sölvi við, en hann féll úr kletti í „Indíána- gili“ 26. apríl sl. og lá meðvit- undarlaus á gjörgæslu í sex sólarhringa. Sölvi er illa handleggsbrot- inn, en höfuðmeiðsl hans virð- ast ekki alvarleg. Hann á erfitt með gang, en tekur daglega miklum framförum. Félagarnir sýndu kjark og snarræði Sölvi, sem er bráðum níu ára, var ásamt skólabræðrum sínum í Fossvogsskóla, Arnari Jónssyni og Olafi Guðmunds- syni, að leika sér í Elliðaárdal. Hann var efst uppi í klettinum þegar steinn losnaði undan fæti hans og hann hrapaði niður. Oli og Arnar sýndu mikinn kjark og snarræði við fyrstu hjálp. OIi beið hjá Sölva rænu- lausum á meðan Arnar hljóp upp á göngustíginn eftir hjálp. Meðan Sölvi var á spítalanum fór allur bekkurinn hans í heim- sókn til hans og færði honum gjafir og kveðjur, frumsamin ljóð, gátur og brandara. Fjölskylda Sölva vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem aðstoðuðu við björgun hans og hjúkrun og þeirra sem báðu fyrir honum. VIÐ klettinn í Indíánagili. F.v. Óli, Sölvi og Arnar. Frumvarp um opinbera starfsmenn afgreitt til 3. umræðu á Alþingi Stg órnarandstaða andvíg afgreiðslu FRUMVARPI um réttindi og skyld- ur starfsmanna ríkisins var í gær vísað til þriðju umræðu á Alþingi eftir atkvæðagreiðslu um einstakar greinar frumvarpsins. Þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu allir atkvæði gegn því að vísa frumvarp- inu áfram. Atkvæðagreiðslan um frumvarpið stóð I tvo klukkutíma eftir að felld hafði verið frávísunartillaga sem fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna lögðu fram. Þingmenn gerðu oft grein fyrir atkvæði sínu, bæði um frávísunartil- löguna og einstakar greinar frum- varpsins. Jón Baldvin Hannibalsson Al- þýðuflokki sagði að laun opinberra starfsmanna væru sannanlega lægri en ella vegna þess að þeim væru talin tiyggð margvísleg réttindi umfram það sem gerðist á almenn- um vinnumarkaði. Með frumvarpinu legði ríkisstjórnin til að ýmist af- nema eða skerða þessi réttindi án þess að verða við einróma tilmælum um að ganga til samninga um hverju skyldi breyta og hvernig skyldi bæta réttindaskerðinguna. Ágúst Einarsson Þjóðvaka sagði að frumvarpið væri alvarlegasta atlaga að réttindum opinberra starfsmanna í áratugi. Það væri illa unnið og samþykkt þess myndi hafa alvarlegar afleiðingar. Kristín Hall- dórsdóttir Kvennalista sagði að frumvarpið fæli í sér óeðlileg af- skipti af málefnum stéttarfélag og setti í uppnám ýmis grundvallarrétt- indi ríkisstarfsmanna, svo sem fæð- ingarorlof og veikindadaga og af- næmi fyrirframgreiðslu launa og biðlaunarétt nýrra starfsmanna. Þá væri frumvarpið andstætt hags- munum kvenna, sem væru meiri- hluti starfsmanna ríkisins. Siðlaust frumvarp Ögmundur Jónasson Alþýðu- bandalagi sagði frumvarpið skerða samningsbundin kjör og áunnin réttindi. Það stangaðist á við alþjóð- legar skuldbindingar og stjórnar- skrána. Það skerti félagafrelsi, byggi í haginn fyrir neðanjarðar- launakerfi og væri ávísun á launa- misrétti. Frumvarpið væri siðlaust og vitnisburður um siðlausa ríkis- stjórn sem ynni ólýðræðislega og hlýddi skipunum atvinnurekenda. Vilhjálmur Egilsson Sjálfstæðis- flokki sagði að frumvarpið væri vel samið og hefði fengið ýtarlega um- fjöllun í þingnefnd og óvenju ýtar- lega umræðu á Alþingi. Reynt hefðí verið að gera ýmis atriði frumvarps- ins tortryggileg en það myndi koma í ljós, að engin réttindi væru skert sem hefði verið samið um í kjara- samningum og þar sem réttindi væru takmörkuð í frumvarpinu væri verið að gera sjálfsagða hluti. Stjórnarandstaðan greiddi yfir- leitt ýmist atkvæði gegn frumvarps- greinunum eða sat hjá. Ein greinin var þó samþykkt samhljóða, sú sem kveður á um að forseti Alþingis sé í fyrirsvari gagnvart starfsmönnum þingsins og taki ákvarðanir um rétt- indi þess og skyldur. Aðeins Ög- mundur Jónasson sat hjá í atkvæða- greiðslu um greinina. Kristinn H. Gunnarsson Alþýðu- bandalagi fór nokkuð á svig við aðra stjórnarandstæðinga í at- kvæðagreiðslunni. Hann greiddi at- kvæði með frávísunartillögunni, gegn því að vísa frumvarpinu áfram og gegn mörgum frumvarpsgrein- um. En hann greiddi einnig atkvæði með nokkrum greinum, þar á meðal greinum sem fjalla um biðlaunarétt starfsmanna ríkisins. Þá sat hann hjá í atkvæðagreiðslu um ýmsar greinar sem stjómarandstaðan greiddi almennt atkvæði gegn, þar á meðal ákvæði um að forstöðumenn stofnana geti greitt einstökum starfsmönnum, öðrum en embættis- mönnum, laun til viðbótar grunn- launum. Össur Skarphéðinsson Alþýðu- flokkki sat einnig hjá í atkvæða- greiðslu um þessa grein. MTY fylgir Bowie FJÖLMENNT tökulið frá sjón- varpsstöðinni MTV kemur til lands- ins í sumar og fjallar um tónleika Davids Bowie 20. júní. Vífilfell stendur að heimsókninni, en Coca Cola er einn helsti styrktaraðili MTV-stöðvarinnar í Evrópu. Um- sjónarmenn þáttarins „MTV and Coca Cola European Top 20 Co- untdown", vinsælasta þáttarins á evrópsku MTV-stöðinni, munu fylgja Bowie hvert sem hann fer hér á landi og fjalla um land og þjóð. Að sögn Ingvars Þórðarsonar hjá fyrirtækinu Tin, sem heldur tón- leikana, verður vafalaust um mikla landkynningu að ræða. Umfjöllunin gæti einnig orðið mikii auglýsing fyrir hljómsveitina Lhooq, sem hit- ar upp fyrir Bowie og gerði nýlega samning við breskt fyrirtæki um útgáfu þar í landi. Ingvar segir að nærri uppselt sé á tónleikana. Framkvæmdastjóri ASÍ um könnun ÍM-Gallup Omarktæk skoðanakönnun ARI Skúlason, framkvæmdastjóri ASI, segir að skoðanankönnun IM- Gallup, sem gerð var fyrir félags- málaráðuneytið, sé í veigamiklum atriðum gölluð og segi í reynd ekk- ert um skoðanir almennings á vinnu- löggjöfinni eða frumvarpi um breyt- ingar á henni. Hann segir að það sé alvarlegt að félagsmálaráðherra skuli nota svona aðferðir til að blekkja almenning. „í raun er það hlægilegt að menn skuli leggja fram spurningu þar sem svarið er svo augljóst. Spurt var: Ertu ánægður eða óánægður með núverandi fyrirkomulag kjarasamn- inga? Ef forysta ASÍ og félagsmenn þess væru spurðir þessarar spurning- ar er ég viss um að svarið yrði, óánægður. Ástæðan er ekki síst sú að við fáum í kjarasamningum ekki að tala við neinn nema Þórarin V. Það að túlka svörin við þessari spumingu sem stuðning við frum- varp félagsmálaráðherra er bara hlægilegt og lýðskrum. Það alvarlega við þetta er að félagsmálaráðherra skuli nota almannafé til að gera svona skoðanakönnun til þess að blekkja þjóðina," sagði Ari. Seinni spurningin í skoðanakönn- uninni hljóðaði: Ert þú sammála eða ósammála því að auka völd hins al- menna félaga í verkalýðsfélögum á kostnað stjórna verkalýðsfélaga og trúnaðarmannaráða, eins og lagt er til í nýju frumvarpi um stéttarfélög og vinnudeilur? Ari sagði að í frum- varpinu fælist röng fullyrðing að mati ASI. Með frumvarpinu væri alls ekki verið að færa vald frá for- ystu stéttarfélaganna til almennra félagsmanna. Svörin við spurning- unni væru þar af leiðandi ekki mark- tæk- ----*-*-«---- Samband við Bosníu- Hersegóvínu ISLAND og Bosnía-Hersegóvína hafa ákveðið að stofna til stjórn- málasambands og að skiptast á sendiherrum. Yfirlýsing þar um var undirrituð af fastafulltrúum ríkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.