Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ SAS Jackpot Allir í sumarfrí! Nú er tækifæriö tii að skella sér meö SAS í gott sumarfrí og taka alla í fjölskyldunni með. SAS Jackpot fargjöldin koma sér mjög vel fyrir fjölskylduna því börn og unglingar allt aö 18 ára aldri fá 50% afslátt þegar þeir feröast með foreldri. Hámarkstími er einn mánuður. Allar nánari upplýsingar færðu á ferðaskrifstofunni þinni eða söluskrifstofu SAS. Flugvallarskattar eru innifaldir í veröi. M/sas Laugavegi 172 Sími 562 2211 ÚRVERIIMU Félag úthafsútgerða vill stjórnarfrumvarp til umsagnar Gengur að íslenskri úthafsútgerð dauðri SNORRI Snorrason, formaður Fé- lags úthafsútgerða, segir að félagið hafi ekkert tækifæri fengið til að fjalla um stjórnarfrumvarp um út- hafsveiðar sem ætlunin sé að leggja fram á Alþingi á næstu dögum þó það sé helsti hagsmunaaðili, sem frumvarpið beinist að. Félagið krefst þess að fá frumvarpið til umfjöllunar og ráðrúm til að gera athugasemdir til sjávarútvegs- nefndar þingsins. Snorri segir að slík frumvörp gætu aðeins orðið til í gallhörðum kommúnistaríkjum svo og á íslandi. Félag úthafsútgerða mótmælir harðlega nokkrum greinum frum- varpsins og telur þær fallnar til þess að ganga að íslenskri úthafsút- gerð dauðri. Helstu athugasemdir félagsins eru þær að frelsi til at- hafna á úthafinu og í landhelgi annarra er stórlega skert. Skip með veiðileyfi í lögsögu íslands, hafa tvímælalausan forgang fram yfir úthafsútgerðir. Ný skip geta ekki bæst í flota úthafsveiðiútgerða. Kostnaður við eftirlit við úthafs- veiðar stóreykst, m.a. með fyrirhug- aðri gjaldtöku vegna veiða á Flæmska hattinum upp á 6-10 millj- ónir á skip. Framsal Alþingis á lög- gjafarvaldi sínu til sjávarútvegsráð- herra, skv. frumvarpinu, er með öllu ósamrýmanlegt íslensku rétt- arfari, að mati félagsins. Örlítið brot af heildinni Félagið bendir á að úthafsveiðar íslendinga séu aðeins örlítið brot af úthafsveiðum heimsins og ekki stundaðar í neinum mæli fyrr en á allra síðustu árum þó Island væri 13. eða 14. stærsta fiskveiðiþjóð heims, í magni talið. Þá væri nú mikiþ áhersla lögð á útflutning hugvits íslendinga. Að- eins í einni atvinnugrein hefðum við yfirburða þekkingu fram yfir aðrar þjóðir, en það er í fiskveiðum. Félag úthafsútgerða vill og hefur flutt þá þekkingu út og óskar eftir stuðningi Alþingis til þess að gera hlut íslendinga í þessum efnum sem mestan á alþjóðavettvangi," segir í tilkynningu frá félaginu. Félagið minnir á 87. grein Haf- réttarsáttmálans um frelsi úthafs- ins og fagnar jafnframt Úthafs- veiðisáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tilbúinn hafi verið til fullgild- ingar 4. ágúst 1995. Engin þjóð hafi enn fullgilt sáttmálann, en að mati Snorra felur hann í sér þjóð- réttarlega byltingu hvað varðar veiðar á úthöfum. Sáttmálinn hefur ekki verið lagður fyrir Alþingi. Fé- lag úthafsútgerða styður allar skyn- samlegar aðgerðir til verndar fiski- stofnum og vill vinna gegn rán- yrkju. Félagið lýsir einnig stuðningi við Úthafsveiðisáttmála SÞ og einn- ig við bálk Matvæla- og landbúnað- arstofnunar SÞ, FAO, um ábyrgar fiskveiðar. Sérstakir sjónarvottar Snorri segir það ljóst að Kanada- menn hafi leikið á íslendinga með því að fá samþykkt í Norð-Vestur Atlantshafsfiskveiðistofnuninni, NAFO, að sérstakir sjónarvottar yrðu um borð í íslenskum skipum við veiðar á Flæmska hattinum. Kanadamönnum hafi bersýnilega verið það ljóst að kostnaður vegna sjónarvottanna yrði það hár vegna fjarlægðar íslands frá miðunum að hann fældi íslénska útgerðarmenn frá veiðunum. Leggja þurfi allt kapp á að fá þessa kvöð niðurfellda eða finna leið, sem er kostnaðarlega viðráðanleg. Félag úthafsútgerða, sem nú þegar vinnur mikla eftirlits- vinnu fyrir íslensk stjórnvöld, s.s. Fiskistofu og Hafrannsóknastofn- un, lýsir sig reiðubúið til viðræðna við stjórnvöld vegna fyrrgreinds ákvæðis um sjónarvotta og til að leggja fram tillögur um skynsam- lega og ásættanlega lausn. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson FYRSTA farminum landað úr Sighvati Bjarnasyni í Eyjum í gær. ÞAÐ var líflegt á bryggjunni í Eyjum i gær þegar Sighvatur landaði þar og auðvitað voru allir helstu stjórnendur Vinnslu- stöðvarinnar á bryggjunni þegar skipið kom. Á myndinni eru Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri, Börkur Grímsson, fjár- málastjóri, Darri Gunnarsson, tæknifræðingur og Sigurður Frið- björnsson, verksmiðjustjóri, á spjalli á bryggjunni. Fyrsta síld- in til Eyja Vestmannaeyjar. Morgunblaðið. FYRSTA síldin sem berst til Eyja úr norsk-íslenska síldarstofnin- um á þessari vertíð var landað í fyrrinótt. Kap VE kom þá með fullfermi og í gær kom nýi Sig- hvatur Bjarnason með sinn fyrsta farm til Eyja. Sighvatur var með um 1.300 tonn sem fengust í níu köstum og sagði Guðmundur Svein- björnsson, skipstjóri, að vel hefði gengið í þessum fyrsta túr hans með skipið. Hann sagði að þeir hefðu kastað níu sinnum en afl- ann hafi þeir að mestu fengið í þremur köstum. Guðmundur sagði að þeir hafi skemmt djúpu nótina er þeir fengu hana í hlið- arskrúfuna og þá hafi þeir skipt yfir á grunnu nótina og fengið allann aflan í hana og var stærsta kastið sem þeir fengu um 700 tonn. Guðmundur sagði að þeir hefðu fengið aflann langt inni í síldarsmugunni og þar væri mik- il síld á stóru svæði en hún Iægi frekar djúpt og kæmi ekki upp nema í stutta stund á ákveðnum timum sólarhringsins og þá væri hægt að ná góðum köstum. Hann sagðist afar ánægður með skip sitt eftir þennan fyrsta túr, það væri öflugt og vel búið góðum tækjum. Síldin sem Sighvatur kom með til Eyja var átulaus en frekar horuð en Guðmundur sagði að svo virtist sem síldin synti frá átunni því mikið af átu hefði verið inni í islensku lögsögunni en síldin hafi ekki litið við henni og furðuðu menn sig á því hátt,- erni hennar. I i I I I > i I i f i I I i i I i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.