Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Móðursystir okkar, LAUFEY SVAVA BRANDSDÓTTIR, Birkimel 6b, andaðist þann 14. maí. Jóhanna Haraldsdóttir, Rebekka Haraldsdóttir, Þóra Haraldsdóttir, Haukur Haraldsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES ÓLAFSSON, lést í Kaupmannahöfn 10. apríl. Minningarathöfn fer fram í Útskálakirkju, Garði, laugardaginn 18. maí kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Ólafsson, Friðrik Ólafsson. + ÞÓRHILDUR KRISTBJÖRG JAKOBSDÓTTIR, Austurvegi 17b, Seyðisfirði, sem lést 9. maí sl., verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju laug- ardaginn 18. maí kl. 14.00. Hugrún Ólafsdóttir, Óskar Friðriksson, Ellen Ólafsdóttir, Þorleifur Þorleifsson, Vigdís Ólafsdóttir, Einar Ólafsson, Emilía Jónsdóttir, Hallbjörg Ólafsdóttir, Tom Hansen, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, AÐALHEIÐUR JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR, Brunngötu 4, Hólmavík, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 14. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 18. maí kl. 14.00. Þorsteinn Guðbjörnsson, Aðalbjörn Þorsteinsson, Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Guðmundur Magni Þorsteinsson, Lilja Björk Ólafsdóttir, Birna Katrín Þorsteinsdóttir, Sjöfn Þorsteinsdóttir, Hjörtur Númason, Bjarni Hákon Þorsteinsson, Helga Hanna Þorsteinsdóttir, Steinunn Jóhanna Þorsteinsdóttir, Reynir Björnsson og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hlíf 2, Torfnesi, ísafirði, verður jarðsungin frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 18. maí kl. 14.00. Hákon Bjarnason, Erna Sigrún Hákonardóttir, Leif Berg, Hermann Hákonarson, Sigurveig Gunnarsdóttir, Stefán Hákonarson, Oddný Magnúsdóttir, Konný Hákonardóttir, Heiðar Jóhannesson, Bjarni Hákonarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR TRYGGVASON bóndi frá Búrfelli, Miðfirði, V-Hún., síðast til heimilis i Furugrund 68, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju, Miðfirði, laugardaginn 18. maíkl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Parkinsonsamtökin eða Samtök sykursjúkra. Guðrún Guðmundsdottir, Tryggvi Eiriksson, Guðmundur Eiríksson, Flosi Eiríksson, Jón Eiríksson, Þórunn Eiriksdóttir, Guðjón Eiriksson, Helga Eiriksdóttir, Milla Hulda Kay, Anna Sigurðardóttir, Sigurbjörg Geirsdóttir, Þorgeir Gunnlaugsson, Harpa Jónsdóttir, Jósef Pálsson og barnabörn. + EIín Jakobs- dóttir fæddist í Grímsey 24. októ- ber 1932. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Foss- vogi 9. mai síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jakob Helgason, f. 1904 í Svarfaðar- dal, d. 1970, og Svanfríður Bjarna- dóttir, f. 1905 í Fjörðum, d. 1984. Elín var fjórða barn þeirra. Elstur var Willard, f. 1926, d. 1945, þá Helgi, f. 1928, búsettur á Dalvík, og Bjarni Siguróli, f. 1930, búsettur á Húsavík. Yngri en Elín eru Guðrún, f. 1934, búsett á Dalvík, Matthí- as, f. 1936, búsettur á Dalvík, og Þórir Ottó, f. 1942, búsettur á Dalvík. Elín ólst upp í stórum frændgarði í Grímsey þar til árið 1947 að fjölskyldan flutt- ist til Dalvíkur. Þar bjuggu þau Svanfríður og Jakob síðan og flestir þeirra afkomendur. Hinn 1. desember 1950 giftist Elín Jónasi Sigurbjörnssyni vél- stjóra í Keflavík, f. 8. júní 1928, d. 18. okt. 1955. Jónas var son- ur Margrétar Einarsdóttur og Sigurbjörns Eyjólfs- sonar útgerðar- manns í Keflavík. Þau eru bæði látin. Elín og Jónas skildu. Dætur þeirra eru 1) Svanfríður Inga, f. 10 nóv. 1951, alþing- ismaður. Hún er gift Jóhanni Antonssyni frá Dalvík, viðskipta- fræðingi. Synir Svan- fríðar eru Pétur, f. 1971, unnusta hans er Hafdís Hrund Gísladóttir; Krislján Eldjárn, f. 1975, og Jónas Tryggvi, f. 1979. 2) Mar- grét Sigurbjörg, f. 16. apríl 1953, fulltrúi hjá Pósti og síma. Hún er gift Brynjari Kristmundssyni, útgerðarmanni og skipstjóra í Olafsvík. Börn Margrétar eru Hafdís Rán, f. 1975, Guðlaugur Mímir, f. 1978, og Oddur Orri, f. 1983. Hinn 11. apríl 1956 giftist Elín eftirlifandi manni sínum, Oddi Brynjólfssyni, starfsmanni hjá Pósti og síma, f. 2. júní 1930. Oddur er sonur Brynjólfs Odds- sonar bónda á Þykkvabæjar- klaustri í Alftaveri og konu hans Guðrúnar Bárðardóttur. Þau eru bæði látin. Börn Elinar og Odds eru 1) Brynjólfur, f. 21. des. 1955, skipsljóri á Akureyri. Hann er kvæntur Söndru Bar- bosa og á tvö börn, Odd Jó- hann, f. 1986, og Jöru Fatímu, f. 1989. 2) Vilborg Kristín, f. 28 júlí 1960, félagsráðgjafi á Akureyri. Sambýlismaður hennar er Alan James myndlist- arnemi. Börn Vilborgar eru Tinna Hrund, f. 1978, Ægir James, f. 1992, og Ari James, f. 1994. 3) Jakob, f. 22. mars 1963, símsmiður. Sambýliskona hans er Ragnhildur Reyn Olafs- dóttir. Börn Jakobs eru Elín, f. 1986, Margrét, f. 1990, og Óli Baldur, f. 1992. Elín Jakobs- dóttir yngri er alin upp hjá Elínu og Oddi sem þeirra fóst- urdóttir. Þau Elín og Oddur voru með- al frumbyggja í Kópavogi er þau byggðu húsið á Borgar- holtsbraut 30 árið 1956. Þar hafa þau alið upp börn og barnabörn og ræktað garðinn sinn síðan. Elín starfaði flest árin sem hún bjó í Kópavogi við Brauðgerð Friðriks Har- aldssonar í Ommubakstri og var þar enn í starfi þegar hún féll frá. Um árabil söng hún og spilaði á gítar með Ommu- kórnum, hópi kvenna sem höfðu gaman af því að koma saman og syngja fyrir sig og aðra. Útför Elínar Jakobsdóttur fer fram frá Kópavogskirkju á morgun, föstudaginn 17. maí, og hefst athöfnin klukkan 13.30. ELIN JAKOBSDÓTTIR „Hafðu samt enga væmni í henni,“ sagði Elín tengdamóðir mín við mig fyrir skömmu þegar hún vissi að ég var að skrifa minningar- grein um mann sem var mér kær. Nú þegar ég set á blað nokkur minningarorð um hana langar mig satt að segja til að brjóta gegn þessu viðhorfi hennar til minningar- orða og skrifa um hana á þann hátt sem hún kallaði væminn. Fyrir- varalaust andlát hennar gerir það að verkum að það er svo margt ósagt og minningarnar hrannast upp. Sterkust er þó minningin um stórbrotna konu sem með návist sinni hafði alltaf áhrif á umhverfi sitt og þá sem voru í kringum hana. Þau ár sem ég hef verið í hennar fjölskyldu hefur heimili hennar í Kópavogi verið eins og annað heim- ili okkar. Þegar við höfum ein- hverra hluta vegna þurft að dvelja syðra höfum við gjarnan verið á Borgarholtsbrautinni hjá Ellu og Oddi. Þar hafa drengirnir verið aufúsugestir hvenær sem á hefur þurft að halda. Við bjuggum með strákana um eins árs skeið alfarið inni á þeirra heimili þegar atvikin höguðu því þannig að við störfuðum samfellt í Reykjavík. Það var mjög góður tími og sambúðin gekk ein- staklega vel. Þetta var eins og vel- heppnað sýnishorn af sambúð stór- fjölskyldunnar sem er ekki algengt sambúðarform í dag. Ella gegndi þarna lykilhlutverki og vakti yfir velferð sinna. Raunar hefur alltaf verið mikill gestagangur hjá hjón- unum á Borgarholtsbrautinni. Auk fjölskyldu Ellu og vina, systkina hennar og þeirra barna sem alltaf áttu víst athvarf um lengri eða skemmri tíma, hef ég heyrt margar sögur af fólki sem hér áður fyrr gisti þar og dvaldi á leið að norðan á vertíð suður með sjó. Þá var allt- af pláss þótt húsið væri fullt af börnum. Engin lognmolla fylgdi Elínu. Hún tók afstöðu til mála og lét skoðun sína í Ijós og ætlaðist til þess að aðrir í kringum hana gerðu slíkt hið sama. Þannig var Ella pólitísk að eðlisfari þó hún talaði sjaldnast út frá flokkspólitískum línum. Oft var tekist á um hug- myndir og málefni líðandi stundar í borðkróknum á Borgarholtsbraut- inni með þeim hávaða og orðkynngi sem viðeigandi þótti. Hún hafði til að bera ríka réttlætiskennd og stórt hjarta. Eins var Ella hrókur alls fagnaðar ef svo bar undir. Hún kunni býsn af sögum og sagði skemmtilega frá. Hún kunni líka ótrúlega mikið af lögum og textum og greip oft gítarinn og fékk fólk til að syngja eða söng fyrir aðra. Það var eins og samkvæmi lyftust upp í annað veldi þegar Ella setti mark sitt á þau með nærveru sinni. Elín Jakobsdóttir bar alla tíð svipmót síns uppruna. Hún ólst upp LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 - sími 587 1960 Minnismerki úr steini Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. BfiS. HELGASON HF ISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 557 6677 + Móðir okkar, SIGRIÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 8. maí. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu minningu hennar. Þórður Sveinbjörnsson, Birgir Sveinbjörnsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁRNÝ HALLA MAGNÚSDÓTTIR, Sunnuhlíð, Skagaströnd, lést í Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 12. maí. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 18. maí kl. 14.00. Anna Bára Sigurjónsdóttir, Karl Lúðviksson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Helgi Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.