Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996 67
BREF TIL BLAÐSINS
Frá Ólafi R. Dýrmundssyni:
LÍFRÆN ræktun - hvað er nú
það? spyr Pálmi Stefánsson efna-
verkfræðingur í Ósló í bréfi til
biaðsins sunnudag 12. maí sl.
Hann dregur í efa að lífræn mat-
væli á borð við grænmeti séu holl-
ari en önnur og gefur í skyn að
markaðssetning lífrænt vottaðra
afurða sé sölubrella. Verið sé að
blekkja neytendur því að í nýjum
sænskum rannsóknum hafi komið
í ljós að enginn munur sé á næring-
argildi grænmetis framleidds ann-
ars vegar með lífrænum áburði og
hins vegar með tilbúnum áburði.
Alit Pálma endurspeglar frétta-
flutning um þessar niðurstöður,
m.a. í sjónvarpi hér á landi síðla
vetrar. En hér er ekki allt sem
sýnist.
Skýrsla um sænsku rannsókn-
irnar birtist í ritinu Vár Föda, 8..
tbl. 1995 og þar kemur skýrt fram
að þær taki nær eingöngu til
nokkurra gæðaþátta sem unnt er
að meta með efnagreiningum.
Þótt lítill mUnur kæmi fram á
milli lífrænna og annarra afurða
hvað varðaði suma þessa þætti
Lífræn
ræktun
er fram-
tíðin
var í flestum tilvikum minna af
skaðlegum aðskotaefnum í lífræn-
um vörum og lífrænir tómatar og
gulrætur reyndust hafa meiri
bragðgæði. Þar sem lífrænar bú-
fjárafurðir voru ekki teknar með
í rannsóknunum var ekki tekið
tillit til vistvæns lífræns búfjár-
halds án hefðbundinna lyfja og
hormóna og sömuleiðis var ekkert
tillit tekið til hinna margvíslegu
jákvæðu áhrifa sem lífrænir bú-
skaparhættir hafa á umhverfið,
t.d. í sambandi við mengunai-varn-
ir. Það er því ljóst að sú túlkun á
framangreindum niðurstöðum
sem Pálmi og fleiri hafa haldið
fram er mjög villandi. Fram-
leiðslukostnaður lífrænna afurða
er oftast meiri en á þeim hefð-
bundnu en vaxandi fjöldi neytenda
kaupir þær og greiðir fyrir nokkuð
hærra verð vegna hinna sjálfbæru
framleiðsluhátta og þeirra gæða
sem fólk metur mikils.
Til fróðleiks skal geta þess að
allítarlega lýsmgu á viðurkennd-
um lífrænum framleiðsluháttum
hér á landi er að finna í lögum
nr. 162/1994 og reglugerð nr.
219/1995. Efling lífrænna bú-
skaparhátta hér er verðugt lang-
tímaverkefni sem ekki byggist á
neinum misskilningi því að unnið
er innan ramma alþjóðlegra
reglna og í samræmi við re.glu-
gerðir Evrópusambandsins. Því
síður er um sölubrellu að ræða
því að vaxandi fjöldi bænda og
neytenda kann að meta gildi líf-
rænnar ræktunar og afurða henn-
ar. Lífrænn búskapur er veiga-
mikill liður í eflingu sjálfbærrar
þróunar. Þetta er framtíðin.
DR. ÓLAFUR R. DÝRMUNDSSON,
Bændasamtökum íslands, Reykjavík.
Guðœundw Rapi Gemóal
væntanlegur forsetaframbjóðandi
Þín hjálp fleytir
mér áfram
Yfiriýsing:________________________________________ ■
Ég undirrituð/-aður mæli nieð Guðmundi Rafni Geirdal
sem forsetaefni við kjör til forseta íslands sem fram á að
faraþann 29. júní 1996:
Nafn ____
Lögheimili______________
Kennitala
Sendist til:
Guðmundur Rafn Geirdal, Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík.
(S. 567 892 L s. 567 8922, fs. 897 2350, bt. 846 5015, fax 567 8923).
Frá Gísla Ólafi Péturssyni:
í FRAMHALDI af ágætri frétt
Mbl. þann 10. maí sl. af dpktors-
vörn Högna Egilssonar við Óslóar-
háskóla fyrr á þessu vori langar
mig að bæta við örfáum orðum -
vegna þess að ég var þar til staðar.
Högni er Vestfirðingur, frá Suð-
ureyri við Súgandaíjörð, og starf-
aði að mörgu áður en hann fór til
Noregs 1969. Meðal annars kenndi
hann við Kennaraskólann og var
skólastjóri við Skóla ísaks Jónsson-
ar.
Það áréttist hér með um fjöl-
skyldu Högna að fyrri kona hans
var Halldóra Gissurardóttir. Þau
skildu 1971 og háfa síðan bæði
búið í Noregi. Dóttir þeirra er Lilja
Kolbrún, sem býr í Reykjavík ásamt
börnum sínum, sem eru Gísli Örn
og Rakel. Seinni kona Högna er
dr. scient. Liv Randi Opdal, lektor
Dr. philos.
Högni
Egilsson
og námsstjóri við Akershus-háskól-
ann. Dóttir þeirra er Birgitte, en
dóttir Liv af fyrra hjónabandi er
Runa. Þau búa í Bærum við Ósló.
Högni lauk embættisprófi í upp-
eldisfræðum frá Óslóarháskóla
1974 og hefur síðan kennt þau
fræði um árabil sem försteamanu-
ensis við norska kennaraháskólann
í viðskiptagreinum.
í frétt Mbl. er vitnað til umsagn-
ar nefndarinnar sem fjallaði um
doktorsritgerðina þar sem fram
kom að hún taldi þetta mikilvægt
verk af mörgum ástæðum. Þar var
sérstaklega nefnt það ljós sem hann
varpar á streiturannsóknir og teng-
ir niðurstöður þeirra með öðrum
hætti en gert hefur verið.
Við vörnina luku andmælendur
miklu lofsorði á Högna og verk
hans og töldu niðurstöður hans
mjög mikilvægar: Þeir hvöttu hann
eindregið til að koma þeim sem
fyrst á framfæri bæði við lærða
og leika.
Við Óslóarháskóla eru ráðgerðir
fyrirlestrar fyrir háskólakennara
og annað starfsfólk strax í sumar.
Það er vonandi að Háskóli íslands
og Kennaraháskólinn sjái sér fært
að fá Högna til að halda fyrirlestra
um þessi efni hér heima áður en
mjög langt um líður.
GÍSLI ÓLAFUR PÉTURSSON,
Grenigrund 2b, Kópavogi.
©merísku Starcraft
fellihýsin og pallhús-
in eru ekki aðeins á
góðu verði því gæðin
eru ósvikin. Einnig Camp-let tjaldvagnarnir sem hafa
reynst svo vel hér um áraraðir og eru fádæma traustir.
Skoðaðu líka fortjöldin, ferða-
og gasvöruna eða hjólhýsin
sem við útvegum beint
frá framleiðenda.
AREIÐANLEIKI
ÁR EFTIR ÁR !
GÍSLI JÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
með útvarpi, segulbandi og
3ja diska spilara. 2x25 wött
Bor- og skrúfuvél
sem hægt er að hlaða.
Vélin hefur sjálfherðandi
borpatrónu hraðastillingu
hægri og vinstri snúning,
9,6 wött
Aður 6.850 nú 4.998
Blandari
Brauðrist
tekur 4 sneiðar
«„2.820 .o 1.998
með þremur
hraðastillingum
Áður 3.695 nú 2.998.
H 54 x 40 x 31 aðeins 990
H 60 x 45 x 35 aðeins l .690
H 65 x 51 x 41 aðeins l .990
Bastkörfur
Kjarakaupí
Lágmúla 6, Reykjavik,
simi 568-4910.
Óseyri 4, Akureyri,
simi 462-4964.