Morgunblaðið - 27.08.1996, Side 1
92 SIÐUR B/C
193. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Demókratar
þinga í Chicago
HILLARY Clinton forsetafrú og A1
Gore, varaforseti Bandaríkjanna,
voru í sviðsljósinu við upphaf flokks-
þings demókrata í Chicago í gær á
meðan Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti hélt áfram kosningaferð sinni í
lest um Bandaríkin.
Hillary Clinton hélt uppi vömum
fyrir sig og mann sinn er hún ræddi
við fulltrúa á flokksþinginu.
Hún varði það að Clinton skyldi
hafa samþykkt félagsmálalög repú-
blikana og lofaði það hugrekki
manns síns að bjóða byrginn öflug-
um þrýstihópum á borð við tóbaks-
framieiðendur og samtök skot-
vopnaeigenda, NRA.
Gore kom til Chicago á sunnudag
og hefur verið mikil mannþröng hvar
sem hann hefur komið fram. Hann
gagnrýndi andstæðingana harðlega
og þótti sýnt að hans hlutverk yrði
að leiða atlöguna gegn þeim.
Gore lét eins og Jack Kemp, vara-
forsetaefni Bobs Dole, forsetafram-
bjóðanda repúblikana, væri ekki til
og sagði að Dole og Newt Gingrich,
forseti fulltrúadeildarinnar, væru
holdgervingar hins illa. Hann kallaði
þá „tvíhöfða skrímsl", sem hygðist
rífa niður allt það, sem vinnandi
menn og konur hefðu áorkað á und-
anförnum áratugum.
Dole hyggst hvílast í Santa Bar-
bara í Kaliforníu meðan á flokks-
þingi demókrata stendur, en gefa
þó út yfirlýsingar til að koma í veg
fyrir að andstæðingarnir einoki
sviðsljósið næstu daga.
Clinton verður tilnefndur forseta-
frambjóðandi demókrata á miðviku-
dag og flokksþinginu lýkur með
ávarpi forsetans á fimmtudag. Ef
Clinton nær endurkjöri, verður hann
fyrsti forsetinn úr röðum demókrata
til þess að ná þeim áfanga.
■ Clinton hyggst/21
Reuter
TJSETSJENSKIR skæruliðar hvíla lúin bein á rústum nærri aðaljárnbrautarstöð Grosní í gær. I
bakgrunni stígur upp reykur frá olíubirgðastöð, sem kviknaði í er bardagar geisuðu um borgina.
Flugrán yfir Súdan
Nikosíu. Reuter.
Reynt að tryggja
friðaráætlun
Moskvu. Reuter.
AIRBUS-flugvél súdanska ríkis-
flugfélagsins Sudanese Airways,
sem var í áætlunarflugi frá
Khartoum í Súdan til Amman í
Egyptalandi, var rænt í gærkvöldi.
Flugræningjarnir — ekki er ljóst hve
margir þeir eru - beindu flugvél-
inni til Kýpur, þar sem vélin, sem
er með 186 farþega innanborðs og
13 manns í áhöfn, lenti í þeim til-
gangi að taka eldsneyti.
Flugvélin fékk ekki strax af-
greitt eldsneyti á Larnaca-flugvelli
og hótuðu flugræningjarnir þá að
sprengja hana í loft upp. Hermt er
að ræningjarnir séu vopnaðir hand-
sprengjum og TNT-sprengiefni.
BORGARDÓMUR í Seoul dæmdi
Chun Doo Hwan, fyrrverandi for-
seta, til dauða í gær og arftaka
hans, Roh Tae-woo, í 22‘A árs fang-
elsi vegna-valdaráns hersins í Suður-
Kóreu í október árið 1979 og fjölda-
morðs í borginni Kwangju árið eftir.
Ásamt Chun og Roh voru 13 fyrr-
verandi samverkamenn þeirra í her
landsins dæmdir í fangelsi og hlutu
þeir frá fjögurra til 13 ára refsivist-
ar. Til viðbótar voru níu auðjöfrar
dæmdir til fangavistar fyrir að múta
Roh en þar á meðal voru stjórnarfor-
menn fyrirtækjasamsteypanna
Samsung og Daewoo.
Auk fangelsisdóma var Chun
dæmdur til að endurgreiða ríkinu
225,9 milljarða wona, jafnvirði 18,2
Þeir kröfðust þess að vélinni yrði
flogið áfram til Lundúna, þar sem
þeir hygðust leita pólitísks hælis.
Kýpversk yfirvöld reyndu að
semja við flugræningjana um að
þeir slepptu konum og börnum laus-
um, en eina svarið sem kvað hafa
borizt frá talsmanni ræningjanna
var að hann myndi sprengja vélina
í loft upp. Síðar sagði hann að öllum
farþegum yrði sleppt eftir lendingu
í Lundúnum.
Skömmu eftir miðnætti að stað-
artíma lagði flugvélin af stað áleið-
is til Lundúna, með alla farþegana
innanborðs. Ræningjarnir hétu því
að gefast upp er þangað yrði komið.
milljarða króna, og Roh 283,8 millj-
arða wona en það jafngildir þeim
fjárhæðum sem þeir eru sagðir hafa
með ólögmætum hætti stungið í eig-
in vasa í embættistíð sinni.
Chun og Roh létu engan bilbug á
sér finna meðan á réttarhaldinu stóð
og héldu því fram, að herbyltingin
í október 1979 hefði verið óhjá-
kvæmileg vegna upplausnarástands
í kjölfar morðsins á Park Chung-hee
forseta nokkrum dögum áður.
Roh fær mildari refsingu
Chun var forseti til 1988 en þá
tók Roh við til ársins 1993. í dómn-
um yfir þeim síðarnefnda sagði, að
hann hlyti mildari refsingu en Chun
sakir þess árangurs síns að fá sæti
ALEXANDER Lebed, yfirmaður
öryggisráðs Jeltsíns forseta og sér-
legur sendimaður hans í Tsjetsjníu,
reyndi í gær að komast á fund Jelts-
íns til að ræða við hann friðaráætl-
anir fyrir Tsjetsjníu, en forsetinn
fór i heilsubótarfrí í gær og að sögn
aðstoðarmanna hans í Kreml var
ekki ljóst hvort af fundum þeirra
Lebeds gæti orðið. Fyrr um daginn
hafði Lebed hitt Viktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra að máli
eftir að hafa snúið aftur til Moskvu
fyrir Suður-Kóreu hjá Sameinuðu
þjóðunum 1991 og fleiri diplómat-
ískra afreksverka.
Dómunum var misjafnlega tekið
í Seoul. Ættingjar fórnarlamba
morða hersins á stjórnarandstæðing-
um biðu niðurstöðu réttarhaldsins
við dómhúsið í Seoul. Mikillar
gremju gætti meðal þeirra er dómur
hafði verið upp kveðinn og fannst
þeim hann helst til mildur í garð
annarra en Chun.
á sunnudag og lýst því yfir að hann
þyrfti á stuðningi æðstu valdhafa
við friðaráætlun sína að halda.
Rússneska ríkissjónvarpið
greindi frá því í gær, að saksóknar-
ar myndu taka Konstantín Pu-
likovskí, annan æðsta yfirmann
rússnesku hersveitanna í Tsjetsjníu,
til yfirheyrslu um kringumstæður
þess er Grosní féll í hendur skæru-
liða aðskilnaðarsinna 6. ágúst sl.
■ Reynir að afla/19
Af hálfu beggja sakborninga var
tilkynnt að niðurstöðunni yrði áfrýj-
að. Yrði refsing Chun, Roh og sam-
verkamanna ekki felld niður eða
milduð, töldu stjórnmálaskýrendur
eins líklegt, að Kim Young-sam for-
seti myndi náða þá. Málshöfðunin
er undan rifjum hans runnin, en
hermt er að honum þyki nóg að sekt
forsetanna tveggja verði staðfest
fyrir hæstarétti, aukaatriði sé að
framfylgja refsingunni.
Karpov
sigrar
„heim-
inn“
Helsinki. Reuter.
ÞAÐ tók gamla brýnið Anatolí
Karpov aðeins 32 leiki og fjórar
klukkustundir og 25 mínútur
að knýja fram sigur yfir heims-
byggðinni, sem gafst í gær f
fyrsta sinn tækifæri til að
leggja saman krafta sína til að
tefla við FIDE-heimsmeistar-
ann í gegn um alnetið.
Karpov sat við taflborð á
hóteli í Helsinki. Leikjum hans
var miðlað, jafnóðum og hann
lék þeim, á tölvutaflborð á þar
til gerðri netsíðu alnetsins. All-
ir sem tengdir voru inn á net-
síðuna höfðu að loknum hveij-
um leik Karpovs sjö mínútur
til að velja gagnleik. Tölvan
reiknaði að því loknu út vinsæl-
asta gagnleikinn, sem miðlað
var á taflborð Karpovs.
Um 250 manns víða að úr
heiminum, þar á meðal frá
Brasilíu og S-Kóreu, tóku þátt
í taflinu frá upphafi til enda
og skipuleggjendur „mótsins"
sögðu að um 250.000 manns
hefðu „heimsótt“ alnetssíðuna
meðan á taflinu stóð.
„Ósigurinn
óhjákvæmilegur“
Skáksérfræðingar sögðu
„heiminn" hafa verið dæmdan
til að tapa frá upphafi, þar sem
hann var þvingaður til að fylgja
vali meirihlutans. „Heimurinn"
gerði engin „bjánaleg mistök,
en hugrekkið til að taka áhættu
vantaði. Þess vegna er
ósigurinn óhjákvæmilegur, en
hægur,“ sagði Roni Klim-
scheffskij, Finninn sem lék
leikjunum fyrir hönd heimsins.
Harðir dómar falla yfir tveimur fyrrverandi Suður-Kóreuforsetum
Chun Doo
Hwan dæmd
ur tíl dauða
Seoul. Reuter.
Reuter
CHUN Doo Hwan (t.h.) og eftirmaður hans í forsetastóli S-
Kóreu, Roh Tae-Woo, sjást hér klæddir fangabúningum er dómur
var kveðinn upp yfir þeim í Seoul í gær.