Morgunblaðið - 27.08.1996, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
JÁ hnusaðu bara góði, það er ekki svo mikið sem smá pissulykt úr mínum koppi . . .
Morgunblaðið/Golli
54 KANDÍDATAR víðsvegar af landinu voru brautskráðir með B.Ed.-próf úr fjarskóla Kennarahá-
skóla Islands á laugardaginn við hátíðlega athöfn í Kópavogskirkju.
Fyrsta brautskráningin
úr fj amámi á háskólastigi
FYRSTU B.Ed.-kandídatarnir
voru brautskráðir úr fjarskóla
Kennaraháskóla íslands á laug-
ardaginn. Þetta er í fyrsta sinn
sem háskólakandídatar eru út-
skrifaðir úr fjarskóla hér á landi
að loknu heildstæðu háskóla-
námi, sem byggir á samskiptum
um tölvunet.
Alls brautskráðust 54 kennar-
ar með B.Ed.-próf. Þeir hafa
stundað háskólanám undanfarin
fjögur ár en hafa þó einungis
verið í skólanum, í bókstaflegri
merkingu þess orðs, í rúmlega
fjóra mánuði.
Þórir Ólafsson, rektor Kenn-
araháskólans, sagði meðal ann-
ars í ræðu sinni við brautskrán-
inguna, að fjarskólinn væri
fyrsti háskóli dreifbýlisins á ís-
landi. Með því að festa fjar-
námið í sessi hefði verið stigið
stórt skref í byggða- og atvinnu-
málum á landsbyggðinni.
Krefst mikillar þrautseigju
Að sögn rektors er fjarnámið
fyllilega sambærilegt við stað-
bundna kennaranámið, enda
sömu námskröfur gerðar. Brott-
fall úr náminu hafi verið heldur
meira en í staðbundna náminu.
Það krefjist mikillar þrautseigju
og dugnaðar að stunda heima-
nám samfellt í fjögur ár og sum-
ir hafi ætlað sér um of með
vinnu samhliða náminu. Þó verði
það að teljast mjög góður árang-
ur að tveir af hveijum þremur
sem hófu fjarnámið skyldu Ijúka
því á áætluðum tíma, auk þess
sem nokkrir stefni að því að
ljúka námi á næsta misseri.
Rektor gerði að umtalsefni
upplýsinga- og þekkingarþjóðfé-
lagið, sem krefst stöðugrar
endurmenntunar, sem mun hafa
í för með sér aukið framboð af
margskonar viðbótar- og fram-
haldsnámi. Samsetning stúdenta-
hópsins í Kennaraháskólanum
hafi sýnt vel hvert stefnir. Þá
hafi rúmlega 400 kennaranemar
verið innritaðir í staðbundið
nám, tæplega 200 í fjarnám, um
100 kennarar í framhaldsnám,
flestir í fjarnámi að hluta til og
um þúsund kennarar á endur-
menntunarnámskeið.
Fótbolti gegn fíkniefnum
Sýnir árangur
forvarnastarfs
SÁÁ í verki
Guðni Þórisson
ELGINA 7.-8.
september næst-
komandi mun
Knattspyrnufélag SÁÁ,
KSÁA, í samvinnu við
Iþrótta- og tómstundaráð,
forvarnadeijd lögreglunn-
ar og SÁÁ standa fyrir
stóru og miklu knatt-
spyrnumóti á gervigrasinu
í Laugardal sem bera mun
yfirskriftina „Fótbolti
gegn fíkniefnum“.
KSÁÁ leikur í fjórðu
deild Islandsmótsins en
auk þess að vera knatt-
spyrnulið gegnir félagið
þó nokkrum öðrum hlut-
verkum. Guðni Þórisson
er formaður KSÁÁ og seg-
ir hann hugmyndina að
stofnun félagsins fyrst
hafa komið fram árið 1993
hjá ungu fólki innan SÁÁ.
„Hugmyndin að stofnun félags-
ins vaknaði fyrst fyrir þremur
árum hjá ungu fólki innan SÁÁ
en KSÁÁ var svo formlega stofnað
þann 3. febrúar 1994. Hlutverk
okkar er fyrst og fremst það að
taka á móti nýjum félögum og
hjálpa þeim að ná tökum á lífinu
og tilverunni án vímuefna og erum
við þar með í raun vettvangur
fyrir unga vímuefnaneytendur,
sem vilja byggja upp heilbrigt líf
eftir meðferð.
Einnig höfum við mikinn hug á
taka þátt í forvarnarstarfi SÁÁ í
grunnskólum með því að tengja
boðskap gegn vímuefnum við já-
kvæða íþróttaiðkun. Myndum við
að öllum líkindum gera það í sam-
vinnu við fulltrúa frá SÁÁ, sem
myndi þá væntanlega halda sig
við fræðilegu hlið málsins á meðan
við myndum segja okkar sögu og
halda okkur við raunveruleikann.
Þá reynum við að taka mikinn
og virkan þátt í starfí félagsmið-
stöðvar SÁÁ, sem ber nafnið „Úlf-
aldinn", en þar fer fram mjög
mikilvægur stuðningur við ungt
fólk sem hefur nýlokið meðferð
hjá SÁÁ.“
- Nú er þetta í annað skiptið,
sem þetta mót er haldið. Hvernig
kom það til að KSÁÁ ákvað að
halda knattspyrnumót með yfir-
skriftinni „Fótbolti gegn fíkniefn-
um“?
„Hugmyndin að þessu knatt-
spyrnumóti kviknaði í framhaldi
af auglýsingu, sem birtist í fyrra
og gaf í skyn að alsæla væri holl
og góð fyrir krakka á öllum aldri.
Þá var okkur eiginlega nóg boðið
og við vildum reyna að leggja
okkar af mörkum til þess að stýra
þessari þróun.
Við vildum gera eitthvað sem
vekti athygli og skildi
eitthvað eftir sig og í
framhaldinu ákváðum
við að komaá fót knatt-
spyrnumóti, sem bæri
yfírskrfítina „Fótbolti
gegn fíkniefnum“. Við vildum láta
í okkur heyra og sýna árangur
forvarnastarfs SAA í verki en
einnig töldum við þetta vænlega
fjáröflunarleið því það kostar
mikla peninga að halda þessu
gangandi.“
- Hvernig tókst mótið í fyrra?
„Þetta tókst mjög vel í fyrra
og voru þátttakendur þá í kringum
eitt hundrað. Við eigum von á
hátt í 250 þátttakendum í ár og
ætlum við að hafa sama háttinn
á og síðast, það er að segja að fá
fyrrverandi fíkniefnaneytendur til
þess að spila opnunarleik mótsins
við fíkniefnalögregluna.
Þá hefur einnig komið upp sú
► Guðni Þórisson fæddist þann
1. júní 1955 í Reykjavík og er
hann því 41 árs gamall. Hann
lauk múraraprófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík árið 1979 og
starfar nú sem múrari í höfuð-
borginni þar sem hann er jafn-
framt búsettur. Þá hefur hann
einnig verið formaður í Knatt-
spyrnufélagi SÁÁ um nokkurt
skeið en félagið var stofnað fyr-
ir tveimur árum. Guðni er frá-
skilinn og á einn son, Rlkharð
11 ára.
hugmynd að stilla upp einum riðli,
en leikið verður í fjórum fimm liða
riðlum, þar sem myndu leika sam-
an fyrrverandi fíkniefnaneytend-
ur, fíkniefnalögreglan, ÁTVR, lög-
fræðingar og Rannsóknarlögregla
ríkisins því við höfum mikinn hug
á að reyna að mynda einhvers
konar samstöðu milli þessara
hópa.“
-Eru margir félagar í KSÁÁ?
„í dag eru líklega um 50 félag-
ar í KSÁÁ en við tökum mjög vel
á móti öllum nýjum meðlimum og
reynum að gera okkar besta til
þess að allir falli samstundis inn
í hópinn. Það má því í raun segja
að knattspyrnufélagið sem slíkt
sé eins og nokkurs konar „verndað
umhverfi“ þar sem mönnum líður
vel og það er mikil samheldni í
hópnum.
Þarna eru t.d. mjög góðir knatt-
spyrnumenn, sem eiga að baki
marga leiki með unglingalandslið-
um okkar íslendinga en hafa svo
eyðilagt sig með vímuefnaneyslu.
Það má í raun segja að aðstöðu-
leysið sé það eina sem háir okkur
en við eigum engan heimavöll og
hefur því oft verið sagt að við
séum með eitt af þess-
um liðum, sem æfa á
umferðareyjum."
- Nú á KSÁÁ sæti í
fjórðu deild íslands-
mótsins og er alltaf að
verða sterkara og sterkara með
hverjum leiknum sem líður. Er
markmið félagsins að færast yfir
í þá átt að leika knattspyrnu ein-
ungis til þess að ná árangri eða
er hið upprunalega markmið enn
númer eitt?“
„Við stöndum í þessu fyrst og
fremst til þess að halda hópinn,
veita hver öðrum styrk og taka á
móti strákum, sem vilja byggja
upp líf án vímuefna. Við viljum
reyna að tengja þá inn í nýjan
félagsskap og auðvelda þeim að
koma undir sig fótunum á ný. en
auðvitað er oft mikið kapp í mönn-
um og það skemmir ekkert fyrir
að ná góðum árangri."
Eigum von á
upp undir 250
þátttakendum