Morgunblaðið - 27.08.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996 9
FRETTIR
Forseti Islands til Vestfjarða
fsafirði. Morgunblaðið.
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson og eiginkona hans, Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir, eru væntan-
leg í opinbera heimsókn til Vestflarða
í vikulokin.
Forsetahjónin fljúga að morgni
föstudagsins 30. ágúst til Þingeyrar
þar sem æðstu embættismenn svæð-
isins taka á móti þeim. Þaðan verður
farið til Hrafnseyrar, þar sem blóm-
sveigur verður lagður að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar, og síðan aftur til
Þingeyrar þar sem snæddur verður
hádegisverður.
Á Þingeyri skoða forsetahjónin og
fylgdarlið þeirra sig um auk þess sem
móttaka verður í íþróttahúsinu á
Þingeyri. Frá Þingeyri halda forseta-
hjónin til Flateyrar. Þar leggja þau
krans við kirkjuna í minningu lát-
inna. Flateyri verður skoðuð og síðan
verður haldið að Holti þar sem farið
verður til kirkju. Frá Holti aka for-
setahjónin í gegnum jarðgöngin til
Suðureyrar. Þar skoða þau atvinnu-
líf staðarins og þiggja kaffi og veit-
ingar í félagsheimilinu með íbúum
staðarins. Síðar um kvöldið verður
ekið til ísafjarðar en forsetahjónin
gista á Hótel ísafirði.
Laugardaginn 31. ágúst _gengur
forsetinn og fylgdarlið um Isafjörð
og heimsækir fiskvinnslufyrirtæki en
síðan liggur ieið þeirra til Bolung-
arvíkur með viðkomu í Hnífsdal. í
Bolungarvík heimsækja forsetahjón-
in Ósvör, Bakka og Árborg, íbúðir
aldraðra, auk þess sem þau þiggja
hádegisverð í safnaðarheimili Hóls-
sóknar. Opið hús verður í Árbæ og
þar gefst heimamönnum kostur á að
hitta forsetahjónin.
Síðdegis verður ekið aftur til ísa-
fjarðar og munu forsetahjónin þá
sækja íbúa Hlífar heim auk nýbú-
anna við Pollgötu. Þá verður Neðsti-
kaupstaður heimsóttur og síðan verð-
ur kvöldverður í boði bæjarstjórnar
ísafjarðarbæjar. Síðar um kvöldið
verður hátíðarsamkoma í íþróttahús-
inu í Torfnesi fyrir íbúa ísafjarðar-
bæjar, Bolungarvíkur og Súðavíkur-
hrepps. Þar verða flutt ávörp, tónlist
og söngur.
Farið til Súðavíkur
Á sunnudeginum halda forseta-
hjónin áleiðis til Súðavíkur, minnast
látinna og skoða nýju byggðina á
staðnum. Þá halda þau til messu í
Súðavíkurkirkju og síðan sem leið
liggur út í Vigur. Þar verður þeim
boðið til hádegisverðar í boði Súða-
víkurhrepps. Frá Vigur verður haldið
aftur til Súðavíkur og þar verða for-
setahjónin við opnun grunnskólans á
staðnum auk þess sem boðið verður
til almennrar samkomu.
Frá Súðavík halda forsetahjónin
til ísafjarðar og verða viðstödd skóla-
setningu Framhaldsskóla Vestfjarð-
ar og halda síðan til kvöldverðar á
Hótel Isafirði. Opinberri heimsókn
forsetahjónanna til Vestfjarða lýkur
á mánudagsmorgun.
20-50% afsláttur
af húsgögnum.
Rýmum til fyrir nýjum vörum.
við Ingólfstorg, sími 552 4211
Athugið: Vantar málverk eftir gömln meistarana í söln!
Nýjar peysur, blússur og toppar,
gallajakkar, pils og vesti
í stærðum 10 -18 (38-46).
Enn má gera góð kaup á átsölufatnaði.
Opið mánud. til föstud. kl. 10 -18
omiarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
LAURA ASHLEY
ÚT5ÖLUNNI lýkur á morgun miðvikudag.
Lokað vegna breytinga fimmtudag og föstudag.
Opnum með nýjan haustfatnað mánudaginn
2. æptember.
Kistan
VI Laugavegi 99, sími 551 6646
Mikiá úrvd rf
fallegum
rúmffltnaái
SkóLavöröastig 21 Sáml 551 4050 Reykjavlk.
Mibvikudaginn 28. ágúst 1996 fer fram
útbob spariskírteina og skiptiútbob
vegna innlausnar á 2.fl. D 1988 - 8 ár,
sem kemur til innlausnar
2. september 1996
HAUST
VÖRUR
frá
EPISODE
Sími 553-5522
ALGJÖRT DÚNDUR
Verötryggb Verbtryggb Verbtryggb
spariskírteini ríkissjóbs spariskírteini ríkissjóbs spariskírteini ríkissjóbs
2. fl. D 1990,* 1. fl. D 1995, Árgrei&sluskírteini 1. fl. B 1995,
Nú 5 ár. 20 ár. 10 ár. 10 ár.
Útgáfudagur: 1. febrúar 1996 (endunitg. n.j Útgáfudagur: 29. september 1995 1. febrúar 1995 Útgáfudagur: 27. október 1995
Lánstími: Nú 5 ár Lánstími: 20 ár 10 ár Lánstími: 10 ár
Gjalddagi: 1. febrúar 2001 Gjalddagi: 1. október 2015 10. apríl 200S Gjalddagar: 2. maí ár hvert, í fyrsta
Grunnvísitala: 2932 Grunnvísitala: 173,5 3396 sinn 2. maí 1997
Nafnvextir: 6,0% fastir Nafnvextir: 0,00% 4,50% fastir Grunnvísitala 174,1
Einingar bréfa: 3.000,5.000,10.000, Einingar bréfa: 100.000, 1.000.000, 5.000, 10.000, 50.000, Nafnvextir: 0,00%
50.000, lOO.OOOj 10.000.000 kr. 100.000,1.000.000, Einingar bréfa: 500.000,1.000.000,
1.000.000 kn 10.000.000 kr. 10.000.000 kr.
Skráning: Skráð á Verðbréfa- Skráning: Skráð á Verðbréfa- Skráð á Verðbréfa- Skráning: Skráð á Verðbréfa-
þingi íslands þingi íslands þingi íslands þingi íslands
Sölufyrirkomulag:
Spariskírteinin veröa seld með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum
er heimilt að bjóða í þau aö því tilskyldu aö lágmarksfjárhæö
tilboösins sé ekki lægri en 10 milljónir króna að söluveröi.
Öörum aðilum en veröbréfafyrirtækjum, verðbréfamiölurum,
verðbréfasjóðum, bönkum, sparisjóðum, fjárfestinga-
lánasjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingarfélögum er heimilt
í eigin nafni að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða
enda sé slíkt tilboð gert í eigin nafni og án milligöngu síðast
greindra aðila.
* Spariskírteini í 2.fl. D 1990, nú 5 ár, eru einungis í boði
í skiptum fyrir innleyst spariskírteini í 2.fl. D 1988 - 8 ár.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að hafa borist Lánasýslu
ríkisins fyrir kl. 14.00 á morgun, miðvikudaginn 28. ágúst.
Útboðsskilmálar, tilboösgögn og allar nánari upplýsingar eru
veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 564070.
LANASYSLA RIKISINS
llverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 562 4070.