Morgunblaðið - 27.08.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996 43
FRÉTTIR
MICHAEL Evans t.v. og Chris Johnson fengu þessa fallegu morg-
unveiði fyrir neðan Ægissíðufoss í Ytri-Rangá fyrir skömmu.
Lifnar yfir Grímsá
Fór 61 metra
utan vegar
Kynlífs-
könnun
á eigin
vegum
KONA kærði nýlega tii lög-
reglu upphringingu frá manni
sem spurði hana nærgöngulla
spurninga um kynlíf hennar.
Maðurinn kynnti sig sem
starfsmann Mannfræðiskrif-
stofu Háskóla íslands og
kvaðst vera að framkvæma
kyníífskönnun á hennar veg-
um. Svo virðist sem maðurinn
hafí að undanförnu hringt í
konui' og spurt slíkra spurn-
inga. Engin könnun af þessu
tagi er framkvæmd af Há-
skóla íslands.
Engin
handtaka
í FRÉTT í blaðinu sl. sunnu-
dag um skemmdir sem unnar
voru á róðukrossi í Viðeyjar-
kirkju var því ranglega haldið
fram að pilturinn sem hlut
átti að máli hefði verið hand-
tekinn. Hið rétta er að lögregl-
an í Reykjavík, sem kvödd var
út í Viðey, leysti málið á
staðnum án þess að til hand-
töku kæmi.
LEIÐRÉTT
Með lögum skal
land byggja
í STUTTRI grein eftir Vil-
hjálm Alfreðsson í Velvak-
anda sl. sunnudag var rangt
farið með lokasetninguna en
rétt er hún svona: „Með ólög-
um skal landi eyða.“
Árheitið misritaðist
í viðtali við Svanhildir Steins-
dóttur í sunnudagsblaði varð
villa í árheiti. Guðrún Lárus-
dóttir og dætur hennar fórust
í Tungufljóti ekki Brúará. Þá
var það misskilningur að Lára
Sigurbjörnsdóttir hafi verið
skólastjóri í Hallormsstaða-
skóla. Hún var kennari fyrir
austan 1934-35. En það er
rétt að hún og maður hennar
komu til Reykjavíkur að aust-
an þegar slysið varð.
GRÍMSÁ í Borgarfirði hefur þegar
gefíð meiri veiði en allt síðasta sumar
þó svo að illa hafi veiðst stóran hluta
ágústmánaðar. Maðkaveislan í byijun
ágúst tók sinn toll, 150 laxa á þrem-
ur dögum og veiði dalaði verulega
um tíma eftir það, svo mjög að eitt
hollið fór niður í 6 laxa á tíu stangir
á tveimur dögum. En síðustu daga
hefur veiði aftur glæðst, nýgengnir
fískar eru áberandi á neðri svæðunum
og í kaupbæti hafa verið mjög iífleg-
ar sjóbirtingsgöngur. Eru það allt að
7 punda fískar.
„Þetta hefur verið í heild verið
skemmtilegt sumar.
Það eru komnir 1.243
laxar á land, en allt
síðasta sumar fór
heildarveiðin rétt yfir
1.100 físka. Það er
vaxandi straumur og
nýir laxar hafa verið
að koma í ána, þeir fyrstu í nokkuð
langan tíma. Veðrið hefur breyst til
hins betra, það fór að rigna í morgun
og veiðin glæddist strax. Ef það verð-
ur dimmt yfír með úrkomu fram yfir
strauminn gæti ég trúað að veiðin
tæki góðan kipp,“ sagði Ingi Þór Jóns-
son kokkur í veiðihúsinu Fossási við
Grímsá í gærdag.
Ingi Þór sagði meðalvigt smálaxins
hafa farið vaxandi að undanförnu.
Algengur smálax framan af hafí ver-
ið 3-5 pund, en nú væri algengara
að fá 5-7 punda físka. Ætti það eink-
um við nýrri físka í ánni. Sjóbirtingur-
inn væri einnig vænn, mest 3-4 pund
og allt að 7 punda. Stærstu laxamir
í sumar hafa komið úr Kotakvörn,
einn 20 punda og annar 16,5 punda.
Góð útkoma á vatnasvæði Lýsu
Svava S. Guðmundsdóttir að Görð-
um sagði í samtali við Morgunblaðið
um helgina að laxveiði teldist góð á
vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi í
sumar. „Ég held eina veiðibók og þar
eru komnir yfír 90 laxar. Veiðivörður-
inn er með aðra bók og ég reikna
með að það sé annað eins af laxi
komið á skrá þar. Annars hefur verið
róleg veiði í sólinni síðustu daga.
Fólk sækir ekki eins mikið í svæðið
okkar þegar þannig viðrar. Um leið
og dregur fýrir fer laxinn að taka
aftur,“ sagði Svava. Hún sagði litla
silungsveiði þessa dagana, en góð
bleikjuveiði hefði verið í júní og júlí.
Tölur úr ýmsum áttum
Stóra-Laxá í Hreppum hafði gefíð
313 laxa um helgina. Neðstu svæðin
tvö höfðu þá gefíð
nokkuð vel síðustu
daga, en rórra var
efra. 158 laxar voru
komnir af svæðum 1
og 2, 84 laxar af
svæði 3 og 71 lax af
efsta svæðinu.
Veiði er enn lítil í Soginu og hafa
heyrst tvær skýringar öðrum fremur.
Vatnsborðssveiflur hafí verið óvenju-
miklar vegna vinnu við raforkuverin
og auk þess telja margir að það sé
einfaldlega lítið af laxi. Aftur á móti
hefur Sogið löngum gefíð vel í sept-
ember og afar lífleg bleikjuveiði á
köflum hefur bætt mörgum veiði-
manninum laxekluna upp. Annað
áberandi við Sogið í sumar er skortur
á stórlaxi. Þar ku þó hafa veiðst ann-
ar af tveimur stærstu löxum sumars-
ins, 25 punda lax fýrir landi Þrastar-
lundar.
Rólegt hefur verið á Brennunni í
ágúst, laxar veiðst á stangli, en
þokkalegar sjóbirtingsgöngur hafa
haldið mönnum við efnið. Samkvæmt
upplýsingum veiðimanna sem veiddu
á svæðinu um helgina voru þá komn-
ir um 100 laxar á land og talsvert
af sjóbirtingi sem er yfirleitt 2-4 pund.
Á sunnudaginn urðu menn varir við
smálaxagöngu sem hraðaði för sinni
upp Þverá.
MAÐUR slasaðist alvarlega í bílveltu
við Dragháls í Hvalfirði sl. laugar-
dagskvöld. Maðurinn missti stjórn á
bílnum sem hentist út af veginum
og fór 61 metra leið utan vegar.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
flaug bíllinn yfir girðingu, sem þarna
er, og yfir læk. Þegar komið var að
manninum var hann meðvitundar-
laus í aftursæti bílsins. Hann komst
þó fljótt til meðvitundar. Talið var
að maðurinn væri axlarbrotinn og
rifbeinsbrotinn auk þess sem hann
hafði meiðst innvortis.
Á RÁÐSTEFNU miðflokkakvenna á
Norðurlöndum sem haldin var í Kópa-
vogi um síðustu helgi var rætt um
heimilisofbeldi og leiðir til að vinna
bug á því.
I ráðstefnunni tóku þátt sextán
konur frá Svíþjóð, Noregi, Eistlandi
og íslandi. Það var Freyja, félag fram-
sóknarkvenna í Kópavogi, sem var
gestgjafi ráðstefnunnar.
í sameiginlegri ályktun ráðstefn-
unnar segir m.a. að ofbeldi gagnvart
konum og bömum sé útbreitt vanda-
mál á Norðurlöndum. Sú kvennasýn
sem endurspeglist í þessu ofbeldi sé
ekki samræmanleg jafnréttismarkm-
iðum samfélagsins. I jafnréttissamfé-
lagi eigi konur ekki að vera fóm-
arlömb ofbeldis, þvingana, nauðgana
eða annarrar misnotkunar.
Talið er að bíllinn hafi komið á
talsverðri ferð niður hálsinn, þar sem
er malarvegur, og ökumaðurinn
misst stjórnina í beygju. Maðurinn
er grunaður um að hafa ekið ölvað-
ur, samkvæmt upplýsingum lög-
reglu. Til þess að ná manninum úr
bílnum þurfti að klippa þakið af og
er bíllinn talinn gjörónýtur.
Maðurinn var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, til
Reykjavíkur og lenti hún við Sjúkra-
hús Reykjavíkur í Fossvogi klukkan
tæplega hálftíu.
Konur í miðflokkum vilja beijast á
móti þeim fordómum sem beint eða
óbeint endurspegla hugmyndir um
vald karla yfír konum, þar sem þeir
fordómar séu ástæða ofbeldis og kyn-
ferðislegra brota gagnvart konum.
Á ráðstefnunni kom fram að
sænskar rannsóknir sýni að þriðjung-
ur allra morða sem framin eru í Sví-
þjóð flokkist undir heimilisofbeldi.
Ennfremur kom fram að fjöldi kvenna
sem myrtar eru þar í landi af eigin-
mönnum eða sambýlismönnum sam-
svari því að tíunda hvem dag sé kona
myrt af maka sínum.
Kristjana Bergsdóttir, formaður
Landssambands framsóknarkvenna,
segir það afar athyglisvert að á ís-
landi vanti allar rannsóknir á ofbeldi
gegn konum og börnum.
Ráðstefna norrænna miðflokkakvenna
Morgunblaðið/Golli
MIÐFLOKKAKONUR frá Svlþjóð, Noregi, Eistlandi og Islandi hitt-
ust á ráðstefnu í Kópavogi um helgina og ræddu ofbeldi á heimilum.
Alyktað gegn ofbeldi
Ur dagbók lögreglunnar
22 unglingar
færðir í athvarf
TÆPLEGA fjögur hundruð mál
voru færð til bókunar um helgina.
Af þeim eru 10 líkamsmeiðingar,
14 innbrot, 23 þjófnaðir og 14 eign-
arspjöll. Afskipti vora höfð af 36
einstaklingum vegna ölvunarhátt-
semi. Vista þurfti 43 í fangageymsl-
unum, bæði vegna ölvunar, annarr-
ar háttsemi sem og afbrota. Þannig
vora 17 einstaklingar vistaðir vegna
mála, sem rannsóknar þurftu við
hjá RLR. Níu ökumenn vora kærðir
fýrir of hraðan akstur og 21 öku-
maður er granaður um ölvunarakst-
ur. Tilkynnt var um 32 umferðar-
óhöpp og eitt umferðarslys. Þá var
30 sinnum tilkynnt um hávaða og
ónæði innan dyra og utan. Auk
þessa var m.a. tilkynnt um stuld á
einu ökutæki, 2 fíkniefnamál, 5
brana, 1 vinnuslys og 7 heimilis-
ófriðartilvik. Ofbeldi hafði verið
beitt í þremur þeirra. í 37 tilvikum
veittu lögreglumenn fólki aðstoð
ýmiss konar, s.s. vegna veikinda,
vatnsskemmda og við að opna læst-
ar hurðir.
Talsvert var um unglinga á ferð
í og við miðborgina á föstudags-
kvöld. Lögreglumenn höfðu afskipti
af 22 þeirra og færðu í athvarf ÍTR
þangað sem þeir vora sóttir af for-
eldram. Auk þess höfðu lögreglu-
menn afskipti af 5 ungmennum á
ferð með áfengi í fóram sínum. Því
var hellt niður á staðnum.
í 14 innbrotum var m.a. brotist
inn í bifreið við Ægisíðu, geymslu-
húsnæði við Flugvallaveg, í bifreið
við Brekkubæ, í verslun við Fálka-
götu, í verslun við Klapparstíg, í
bifreiðir við Geirsgötu, Fjölnisveg
og Sölvhólsgötu og í verslun við
Austurstræti. Maður var handtek-
inn eftir að hafa brotist inn í veit-
ingahús við Pósthússtræti aðfara-
nótt laugardags. Aðfaranótt mánu-
dags var maður handtekinn eftir
að hafa brotist inn á veitingastað
við Laugaveg og stolið þaðan áfeng-
isflöskum. Þá vora einnig tveir
menn handteknir eftir að þeir höfðu
brotist inn á dagheimili við Grænu-
hlíð og stolið þaðan ýmsum hlutum.
Auk þess þýfís fannst talsvert af
öðrum hlutum í fóram þeirra.
Aðfaranótt laugardags handtóku
lögreglumenn átta manns í húsi við
Frakkastíg eftir að sést hafði til
manna vera að bera hluti inn í hús-
ið. I Ijós kom að hlutimir reyndust
vera þýfi eftir innbrot í verslun. Á
staðnum fundust einnig fíkniefni,
fíkniefnaleyfar og áhöld til neyslu
fíkniefna. Sérstakt eftirlit mun
verða haft með húsnæðinu næstu
daga.
Um 5.000 manns voru í miðborg-
inni þegar flest var aðfaranótt laug-
ardags og u.þ.b. eitt þúsund færri
aðfaranótt sunnudags. Unglingar
sáust þar ekki á ferli síðari nóttina,
en þá þurfti að handtaka þijá vegna
ýmissa mála. Hins vegar þurfti að
handtaka sex aðfaranótt laugar-
dags. Talsverð ölvun var á meðal
hinna fullorðnu.
Á föstudagskvöld kom til slags-
mála stráka í Mjóddinni, en meiðsli
-reyndust óveruleg. Um nóttina sló
eiginmaður eiginkonu sína á veit-
ingastað í miðborginni. Mikið
blæddi úr konunni, en að aðhlynn-
ingu lokinni hélt hún áfram að
skemmta sér, Þá var maður færður
í fangageymslu eftir að hafa veist
að öðram í Austurstræti og tárag-
asi var sprautað í andlit manns í
Bergstaðastræti. Sá sem það gerði
var handtekinn undir morgun og
var látinn afhenda úðabrúsann. I
hádeginu á laugardag veittust 4-5
menn á einum í Austurstræti og
meiddu hann lítilsháttar. Aðfaranótt
sunnudags veittist vegfarandi að
öðram á Laugavegi við Frakkastíg.
Einhveijar skrokkskjóður hlutust
af. Til slagsmála kom á milli manns
og konu í húsi í Breiðholti. Hún
hlaut áverka á kinn og hann bitsár
á hendi. Einn aðili var handtekinn
og vistaður í fangageymslum.
Tvö reiðhjólaslys urðu á föstudag.
Níu ára drengur datt af reiðhjóli í
Reykjabyggð og hjólreiðamaður
varð fyrir bifreið á Háaleitisbraut
við Miklubraut. Þeir vora báðir flutt-
ir á slysadeild með sjúkrabifreið.
Meiðsli vora minniháttar í báðum
tilvikum.
Samstarfsnefnd lögreglunnar á
Suðvesturlandi kemur saman til
fundar í dag (þriðjudag). Ætlunin
er að leggja drög að sérstöku eft-
irliti lögreglu með umferð í ná-
grenni við skóla í tilefni þess að
þeir era bráðum að byija starfsemi
á ný eftir sumarfrí.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TALIÐ er að kveikt hafi verið
í fjölbýlishúsi í Rimahverfi sl.
sunnudagskvöld.
Eldur í fjöl-
býlishúsi
TALSVERÐUR eldur kom upp í fjöl-
býlishúsi í Rimahverfí sl. sunnudags-
kvöld. Eldurinn komst í þak hússins
og varð að ijúfa það á kafla. Grunur
leikur á um að kveikt hafí verið í.
Húsið hefur staðið nokkuð lengi
óklárað. Þakið er talsvert skemmt
en slökkvistarf gekk greiðlega fyrir
sig. Um eina klukkustund tók að
slökkva eldinn.