Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Aðalfundur Gilfélagsins
Skertir ferðastyrkir
grafa undan listum
GERBREYTT túlkun Félagsheimila-
sjóðs á reglum um ferðastyrki vegna
menningarstarfsemi á Akureyri kom
til umræðu á aðalfundi Gilfélagsins
sem haldinn var í Deiglunni nýlega,
en félagsmenn telja hana hafa grafið
undan starfsemi Listasumars sem og
annarri skyldri starfsemi í bænum.
í ályktun fundarins vegna þessa
máls er lýst furðu og andúð á af-
stöðu Félagsheimilasjóðs tii lista-
starfsemi á vegum félagsins „sem
meðal annars kemur fram í því að
ekki hafa fengist styrkir vegna
ferðalaga listamanna til Akureyrar.
Fundurinn skorar á stjórn Félags-
heimilasjóðs að endurskoða þessa
afstöðu sína,“ segir í ályktuninni.
Þá var einnig fjallað um umferð-
armál í Grófargili og lýsti aðalfund-
urinn þeirri skoðun sinni að „há-
vaði, hraðakstur og hætta sem búin
er gangandi vegfarendum í Grófar-
gili sé meiri en við verði unað,“ eins
og segir orðrétt og því beint til
bæjarstjórnar Akureyrar að úrbætur
verði gerðar áður en slys verða í
götunni.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundin-
um, Þröstur Ásmundsson var end-
urkjörinn formaður félagsins, en
aðrir í stjórn eru Gísli Gunnlaugs-
son, Hrefna Harðardóttir, Kristján
Pétur Sigurðsson og Ragnheiður
Ólafsdóttir.
Komur skemmtiferðaskipa 38 í sumar
Tekjur Akureyrar-
hafnar um 5 millj.
TEKJUR Akureyrarhafnar vegna
komu skemmtiferðaskipa til bæjar-
ins í sumar námu um 5,1 milljón
króna, sem er heldur iægri upphæð
en í fyrra. Skipakomurnar í sumar
urðu alls 38, eða jafn margar og á
síðasta ári.
Guðmundur Sigurbjörnsson hafn-
arstjóri segir að tekjur hafnarinnar
vegna komu skemmtiferðaskipanna
ráðist töluvert af stærð þeirra. Einn-
ig skipti miklu máli hvort þau geta
lagst að bryggju eða liggi á Pollin-
um. Skipin sem liggja á Pollinum
borga um 50% minna í hafnargjöld
en skipin sem leggjast að bryggju.
Ekki er skylda fyrir skipin að taka
hafnsögumann, sem einnig hefur
áhrif á tekjur hafnarinnar, en Guð-
mundur segir að aðeins tæp 40%
skipanna hafi tekið hafnsögumann
um borð. Hann er bjartsýnn fyrir
komandi ár og vonast til að skipa-
komunum íjölgi á næsta ári.
Morgunblaðið/Kristján
FRIÐFINNUR K. Daníelsson verkfræðingur að leita eftir heitu
vatni í landi Brimness i Árskógshreppi. Hann hefur þegar bor-
að sjö holur en áætlar að þær verði alls tólf.
Leitað að heitu vatni
í Arskógshreppi
Alls verða
boraðar
sjö holur
FRIÐFINNUR K. Daníelsson verk-
fræðingur hefur síðustu daga verið
að vinna fyrir Árskógshrepp við
jarðhitaleit á ýmsum stöðum í
hreppnum. Hann á og rekur fyrir-
tækið Alvarr sem er verktaki við
jarðhitaleitina.
Hann hefur þegar borað sjö holur
vítt og breitt en áætlar að bora 12
holur í allt.
„Það væri mjög gaman ef mér
tækist að finna heitt vatn hér,“
sagði hann þar sem hann var í óða
önn við borinn í landi Brimness
skammt sunnan við Árskógssand.
Holurnar sem hann hefur borað eru
tvö til þijú hundruð metra djúpar.
Þegar lokið er við að bora holurnar
eru þær hitamældar en Orkustofn-
un kemur að verkefninu og sér
m.a. um þann þátt auk þess að
velja þá staði sem borað er á.
Velgja í einni holu
Friðfínnur sagðist vera búinn að
bora bæði á Árskógssandi og
Hauganesi, þréttbýliskjömum sveit-
arfélagsins, en báðar holurnar
reyndust kaldar. Svo hefur einnig
orðið raunin með þær holur sem
gerðar hafa verið fram til þessa,
utan að nokkur velgja fannst í einni
sem er skammt frá fískhjöllum norð-
an Hauganess. Friðfínnur sagði að
vitað væri um heitt vatn í námunda
við Ytri-Vík og ekki væri ólíklegt
að það svæði yrði skoðað nánar.
V
—
GJALD
IO00-1730
VIRKA DAGA
Bifreiðastæðasjóður
Akureyrar kynnir:
gjoldskylt
Mánudaginn 7. október n.k. verður
tekið í notkun nýtt gjaldskylt stæði
við Geislagötu sunnan Búnaðar-
bankans. Miðamælir verður á
stæðinu og gjald verður það sama og
í þá mæla sem fyrir eru eða 10 kr. á
hverjar byrjaðar 10 mín. Hægt verður að
greiða með 5, 10, 50 og 100 kr. mynt. Þó
aldrei minna en 10 kr.(2x5 kr.)
OÞegar greitt er í mælinn kemur
kvittun sem segirtil um hvenær
greiddur tími er útrunninn.
Miðann skal leggja á mælaborð
bifreiðarinnar þannig að hann
sjáist í gegnum framrúðu til
glöggvunar fyrir stöðuvörð.