Morgunblaðið - 25.10.1996, Síða 1
64 SÍÐUR B/C
244. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Samið um Svartahafsflotann
RÚSSNESKIR embættismenn
sögðu í gær að Borís Jeltsín,
forseti Rússlandsj og Leoníd
Kútsjma, forseti Úkraínu, hefðu
náð samkomulagi um hvernig
leysa bæri deiluna um Svarta-
hafsflotann. Ráðgert væri að
Viktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra færi til Kíev um miðj-
an næsta mánuð til að undirrita
samninga um skiptingu 600 her-
skipa, sem Rússar og Úkraínu-
menn hafa deilt um frá hruni
Sovétríkjanna árið 1991.
Hvorki Kútsjma né talsmenn
Jeltsíns vildu greina frá sam-
komulagi/orsetanna í smá-
atriðum. Á myndinni er eitt af
herskipunum í Sevastopol á
Krímskaga.
Thorbjorn Jagland leggur fram ráðherralistann í dag
Búist við allveru-
legiim breytingiim
Ósló. Reuter.
THORBJ0RN Jagland, arftaki Gro
Harlem Brundtland sem forsætis-
ráðherra Noregs, átti í gær fundi
með nánustu samstarfsmönnum
sínum um skipan nýrrar stjórnar.
Arbeiderbladet, málgagn Verka-
mannaflokksins, sagði, að hann
hefði haft ráðherralistann tilbúinn
í fyrrakvöíd en í gær ætlaði hann
að leggja hann fyrir flokksforyst-
una og hann verður kynntur opin-
berlega í dag.
„Ég hef verið að ræða við þá,
sem ég vil hafa með í ríkisstjórn-
inni,“ sagði Jagland í gær en flest
bendir til, að allverulegar breyting-
ar verði á henni. Talið er víst, að
fimm ráðherrar hætti og hugs-
anlega fleiri. Meðal þeirra er Jan
Henry T. Olsen sjávarútvegsráð-
herra en hann hefur áður gefið í
skyn, að með tilliti til fjölskyldunn-
ar finnist honum nóg komið.
Grete Berget barna- og fjöl-
skylduráðherra og Thorbjorn
Berntsen umhverfisráðherra eru á
útleið að flestra áliti og það hefur
verið staðfest hvað varðar Gunnar
Berge, ráðherra sveitarstjórnar-
mála, og Gunhild Oyangen land-
búnaðaráðherra.
Nýir ráðherrar?
Norskir fjölmiðlar veðja á, að á
meðal nýrra ráðherra verði Teije
Rod Larsen, einn af aðstoðarfram-
kvæmdastjórum Sameinuðu þjóð-
anna, en ekki er ljóst hvaða emb-
ætti hann fær. Utanríkismálin væru
kannski nærtækust en almennt er
búist við, að Bjorn Tore Godal fari
með þann málaflokk áfram. Þá er
formaður í félagsmálanefnd þings-
ins, Sylvia Brustad, einnig talin fá
ráðherraembætti.
Norskir fjölmiðlar sögðu í gær
um Jagland, að enginn annar mað-
ur hefði tekið við forsætisráðherra-
embætti í landinu við betri aðstæð-
ur í efnahagsmálunum en Noregur
með sína 4,3 milljónir manna er
annað mesta olíuútflutningsríki í
heimi. Þau sögðu hins vegar líka,
að hann væri ekki öfundsverður af
því að taka við af Gro Harlem
Brundtland, svo mikið væri það
skarð, sem hún skildi eftir sig.
Bob Dole að verða úrkula vonar
Segist ekkert
skilja í fólki
Pensacola, Washington. Reuter.
MIKIL örvænting er farin að ein-
kenna kosningabaráttu Bobs Doles,
frambjóðanda repúblikana í forseta-
kosningunum í Bandaríkjunum 5.
nóvember nk., og í gær skammaði
hann kjósendur, fjölmiðla og ríkis-
stjómina og kvaðst ekkert skilja í
því hvað fólk væri að hugsa. Ross
Perot, frambjóðandi Umbótaflokks-
ins, hélt blaðamannafund í gær þar
sem hann hæddist að Dole fyrir að
hafa reynt að fá hann til að draga
framboðið til baka.
Dole virtist reiður þegar hann
hélt ræðu á kosningafundi í Pensac-
ola á Flórída í gær en þá vó hann
hart að siðferði Bills Clintons, for-
seta Bandaríkjanna, og skoraði á
landsmenn að vakna áður en það
væri um seinan.
Furðar sig
á kjósendum
„Ég velti því stundum fyrir mér
um hvað fólk er að hugsa eða hvort
það hugsi yfirleitt eftir allt það, sem
á hefur gengið í Hvíta húsinu,"
sagði Dole, en miklu af tímanum
varði hann til að deila á fijálslynda
fjölmiðla, sem hann kallar svo. Sak-
aði hann þá um að hlífa Clinton
vegna þess, að þeir vildu sjá hann
endurkjörinn.
„Vaknið Bandaríkjamenn! Þið
hafið 12 daga til þess. Þið munuð
gera sjálfum ykkur mikinn bjamar-
greiða með því að kjósa Bill Clinton."
„Furðuleg“ tilmæli
Ross Scott, kosningastjóri Doles,
reyndi í fyrradag að fá Ross Perot
til draga framboð sitt til baka en
þeim tilmælum hans var vísað á
bug. Telja fréttaskýrendur, að Dole
hafí ekki bætt stöðu sína með þessu.
Létu blaðamenn spurningunum
rigna yfir Dole í gær af þessu til-
efni en hann svaraði þeim aldrei
efnislega.
Perot hélt síðan fréttamannafund
í gær þar sem hann kallaði tilmæl-
in „furðuleg og út í hött“. Kvaðst
hann mundu berjast sinni baráttu
til kjördags.
■ Reynt að fá/18
Zaire-her á flótta
Kigali. Reuter.
LIÐSMENN Zaire-hers voru í gær
á skipulagslausum flótta í austur-
hluta landsins undan sókn upp-
reisnarmanna af ættum tútsa, svo-
nefndra banyamulenge. Nær
300.000 manns, einkum hútú-
menn sem hrakist hafa frá Rúanda
og Búrundi, eru á flótta frá svæð-
inu.
Fulltrúi uppreisnarmanna sagði
í gær að þeir hefðu þegar tekið
þijár mikilvægar borgir og sætu
um héraðshöfuðstaðinn Bukavu.
Hefðu ættbálkar frá þrem svæðum
í austurhluta Zaire, Kasai, Shaba
og Katanga, slegist í lið með ban-
yamulenge en andstæðingar upp-
reisnarmanna fullyrða að hermenn
frá Rúanda hafi verið sendir til
aðstoðar uppreisnarliðinu.
■ SÞ óttast neyðarástand/16
^ Reuter
Rabins minnst í Israel
ÍSRAELAR minntust þess í gær
að ár er liðið frá morðinu á Yitzh-
ak Rabin, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, samkvæmt tímatali
gyðinga. Benjamin Netanyahu
forsætisráðherra flutti ræðu á
þinginu af þessu tilefni og sagði
morðið minna á nauðsyn þess að
binda enda á sundrungina meðai
Israela.
Fjölskylda Rabins var viðstödd
tilfinningaþrungna minningarat-
höfn við gröf hans í Jerúsalem.
Þúsundir manna komu einnig
saman á morðstaðnum í Tel Aviv,
þar sem myndin var tekin.
Rabin var myrtur 4. nóvember,
en samkvæmt tímatali gyðinga er
árið yfirleitt styttra en í okkar
tímatali og hlaupárin mun lengri.
■ Morðiðtalið hafa/17
Oftek-
inn virð-
isauka-
skattur
London. Reuter.
TVÖ fyrirtæki í Bretlandi unnu í
gær fyrir Evrópudómstólnum mál,
sem þau höfðuðu gegn bresku
stjórninni, en þau héldu því fram,
að þeim hefði verið gert að greiða
of mikinn virðisaukaskatt. Getur
þessi úrskurður leitt til tugmillj-
arða króna skaðabótakrafna frá
öðrum fyrirtækjum.
Það voru hreinlætisvörufyrir-
tækið Elida og smásölukeðjan
Argos, sem höfðuðu málið vegna
þess, að þeim var gert að greiða
fullan virðisaukaskatt af vörum,
sem þau seldu á sérstöku tilboðs-
verði. í úrskurðinum, sem byggður
er á reglum Evrópusambandsins,
segir, að greiða eigi virðisauka-
skatt af söluverði hvert sem það er.
Greinir á um
endurgreiðslur
Talsmaður breska fjármála-
ráðuneytisins sagði, að í versta
falli gætu fjárkröfur á hendur rík-
issjóði vegna þessarar niðurstöðu
farið eitthvað yfir 20 milljarða ísl.
króna, en ný lög, sem takmarka
endurgreiðslur á virðisaukaskatti
við þijú ár, gætu þó dregið veru-
lega úr þeim. Verður lagafrum-
varpið lagt fram með íjárlaga-
frumvarpinu í næsta mánuði.
Alan Buckett, kunnur skatta-
sérfræðingur í Bretlandi, telur
hins vegar, að fjármálaráðuneytið
geri of lítið úr hugsanlegum end-
urkröfum og segir, að þær geti
að hans mati orðið á sjötta hundr-
að milljarða króna.