Morgunblaðið - 25.10.1996, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkeppnisstofnun um samanburð bílatryggingagjalda
Oeðlilegt að leggja fé-
lagsgjald FÍB við iðgjald
SAMKEPPNISSTOFNUN og aug-
lýsinganefnd, ráðgjafamefnd Sam-
keppnisráðs, teija að óeðlilegt hafi
verið að leggja félagsgjald FÍB við
tryggingaiðgjald Alþjóðiegrar miðl-
unar/IBEX með þeim hætti sem
Vátryggingafélag ísland hf. hafi
gert í auglýsingu á samanburði á
bifreiðatryggingagjöldum og í bréf-
um sem vátryggingafélögin Sjóvá-
Almennar hf. og Ábyrgð hf. sendu
viðskiptavinum sínum, þar sem
gerður var samanburður á iðgjöld-
um bifreiðatrygginga.
Samkeppnisstofnun hefur beint
því til félaganna í bréfi að fram-
vegis verði tekið mið af þessu áliti
en þeim er jafnframt gefinn kostur
á að gera athugasemdir innan tíu
daga.
Fyrirsögn auglýsingar VÍS
talin misvísandi og villandi
Alþjóðleg miðlun ehf. sendi
Samkeppnisstofnun kvörtun í til-
efni af auglýsingu VÍS og bréfum
Sjóvár-Almennra og Ábyrgðar til
viðskiptavina sinna. Kvörtun
vegna auglýsinga VÍS var tekin
til umfjöllunar í auglýsinganefnd
Samkeppnisráðs, sem komst að
ofangreindri niðurstöðu og í áliti
hennar segir ennfremur: „Að mati
auglýsinganefndar er fyrirsögn
auglýsingarinnar um „hagkvæm-
ustu iðgjöldin í bílatryggingum án
nokkurra skilyrða“ misvísandi og
villandi. Notkun lýsingarorða í
efsta stigi í auglýsingum er ekki
leyfíleg nema hægt sé að sanna
fullyrðinguna með auðveldum
hætti. Það hefur VÍS ekki gert og
tilvísun til fjölskyldutryggingar í
því skyni telst villandi þar sem
fyrirsögnin gefur slíkt ekki til
kynna.“
Örn Gústafsson, framkvæmda-
stjóri hjá VÍS, sagði að hér væri
ekki um úrskurð að ræða heldur
álit ráðgefandi auglýsinganefndar
og að málið sé í athugun.
Sjóvá-Almennar líta ekki svo á
að Samkeppnisstofnun hafi kveðið
upp úrskurð í þessu máli heldur
eigi tryggingafélagið nú í bréfa-
skriftum við Samkeppnisstofnun
vegna málsins og ekki sé enn feng-
in niðurstaða í það, að sögn Ein-
ars Sveinssonar forstjóra.
Jóhann E. Björnsson, forstjóri
Ábyrgðar, segir að félagið muni
ekki stilla verðdæmum upp með
sama hætti aftur. Hins vegar sé
ljóst að IBEX geri kröfu um að
viðskiptavinir séu félagar í FÍB.
Efast um heimild Sam-
keppnisstofnunar
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru forsvarsmenn Sjóvár-
Almennra algerlega ósammála
áliti Samkeppnisstofnunar og
draga í efa heimild stofnunarinnar
til að „ritskoða bréf“ sem félagið
sendir tilgreindum hópi viðskipta-
vina sinna. Hvorki hafi verið um
almenna dreifingu bréfsins eða
auglýsingu að ræða. í bréfinu
hafi forsendur samanburðarins
verði skýrðar og á engan hátt
verið reynt að villa um fyrir við-
skiptavinum félagsins.
Cargolux-
flugmenn í
Gufunesi
ÞRÍR yfirflugstjórar Cargolux,
þeir Eyjólfur Örn Hauksson,
Ragnar Kvaran og Ásgeir Torfa-
son, eru staddir hér á Iandi og
heimsóttu meðal annars Fjar-
skiptastöðina í Gufunesi í gær.
„Við höfum aldrei komið þangað
áður en erum búnir að tala við
kallana í Gufunesi í 25 ár,“ sagði
Eyjólfur. Hann sagði þá félagana
hafa orðið undrandi yfir hve
umsvifin í Gufunesi væru mikil
og hve mikið þyrfti til að stjóma
svæðinu út frá Islandi og tryggja
fjarskiptin. „Hér er búið að hanna
eitt fullkomnasta flugsljómar-
svæði heimsins og það var gaman
að fá tækifæri til að skoða þetta,“
sagði Eyjólfur. Á myndinni sést
Bjami Nielsen hjá Pósti & síma
í Gufunesi sýna Asgeiri og Ey-
jólfi tækjabúnaðinn.
Morgunblaðið/Halldór
Hæstiréttur sýknar íslandsbanka vegna gjörða fyrrum þjónustustjóra
Persónulegt samband
og lán en ekki fjárdráttur
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað íslandsbanka af
kröfum tveggja manna, sem töldu bankann
ábyrgan vegna þjónustustjóra, sem var dæmdur
árið 1994 fyrir að draga sér fé af reikningum
viðskiptavina. í öðru tilfellinu lítur Hæstiréttur
svo á, að um persónulegt lán viðskiptavinar til
þjónustustjórans hafi verið að ræða, en í hinu
að þjónustustjórinn hafí verið í persónulegu trún-
aðarsambandi við félaga í sjóði og tekið við
ávöxtun hans persónulega en ekki fyrir hönd
bankans.
í fyrra tilvikinu hafði viðskiptavinur átt sam-
skipti við þjónustustjórann í aldarfjórðung og
notið fjármálalegrar aðstoðar hans og ráðgjafar.
Samkvæmt því sem viðskiptavinurinn hélt fram
hafði þjónustustjórinn ráðlagt honum árið 1989
að skipta um ávöxtunarleiðir og hafí þjónustu-
stjórinn ráðið sjálfur hvernig hann ávaxtaði féð.
Hreyfði ekki andmælum í þrjú ár
Alls fóru um 4 milljónir út af reikningum við-
skiptavinarins, en þjónustustjórinn bar að féð
hefði verið persónulegt lán viðskiptavinarins til
sín. Viðskiptavinurinn neitaði því, en sagði að
þjónustustjórinn hefði að vísu talað um að fá
eitthvað af þessari upphæð að láni. Héraðsdóm-
ur taldi bankann ábyrgan fyrir fjárdrætti starfs-
manns hans og dæmdi hann til að greiða við-
skiptavininum rúmar 4 milljónir. Hæstiréttur
segir hins vegar, að misferli þjónustustjórans
með fjármuni, sem voru inni á reikningum hjá
viðskiptavininum, hafi komið í ljós þremur árum
eftir að tekið var út af reikningunum. Allan
þennan tíma hafi viðskiptavinurinn aldrei hreyft
andmælum, þótt hann hefði mátt sjá af yfirlitum
að peningarnir voru farnir af reikningunum og
voru ekki inni á öðrum reikningum hans. Honum
hefði mátt vera ljóst, að þjónustustjórinn leit á
féð sem persónulegt lán eða fé sem hann mætti
ávaxta á eigin vegum og bankinn bæri ekki
ábyrgð á. Hæstiréttur sýknar því íslandsbanka
af kröfum viðskiptavinarins.
Bréfsefni bankans og stimpill
í hinu tilfellinu var um það að ræða, að þjón-
ustustjórinn tók að sér að ávaxta sjóð í eigu
nokkurra Oddfellow-félaga. Þegar slíta átti
sjóðnum um áramótin 1992-1993 og skipta eig-
um hans, sem þá námu 11 milljónum, milli eig-
enda hans reyndist þjónustustjórinn ófær um
að standa skil á hluta af þessu fé. Hann gaf þá
út viðurkenningu til eins sjóðsfélagans, ritaða á
bréfsefni bankans og með stimpli hans, um
móttöku rúmlega 2,7 milljóna króna til tveggja
mánaða og áttu peningamir að bera 15% árs-
vexti.
Talið var sannað í dómi héraðsdóms á hendur
þjónustustjóranum að hann hefði á árunum 1990
og 1991 dregið sér rúmar 4 milljónir úr sjóðn-
um. Héraðsdómur dæmdi bankann til að greiða
sjóðsfélaganum þá upphæð sem hann gerði kröfu
um, rúmar 2,8 milljónir króna, enda hefði hann
mátt treysta því að skrifleg yfirlýsing þjónustu-
stjóra á bréfsefni banka væri gerð í umboði
bankans og þar með skuldbindandi fyrir hann.
Hvorki innlagningarseðill né
reikningsyfirlit
Hæstiréttur bendir á, að þjónustustjórinn hélt
því sjálfur fram, að hann hefði, sem Oddfellow-
félagi, tekið við ávöxtun sjóðsins persónulega,
en ekki fyrir hönd íslandsbanka. Hæstiréttur
segir að yfirlýsingin um ávöxtun fyrir einn sjóðs-
félaganna hafí hvorki verið venjulegur innlagn-
ingarseðill né reikningsyfírlit bankastofnunar,
en það séu þau form sem þær stofnanir noti
almennt sem viðurkenningu fyrir móttöku fjár
og inneign manna á reikningum. Hæstiréttur
telur að við það verði að miða, að þjónustustjór-
inn hafí verið í persónulegu trúnaðarsambandi
við félaga í sjóðnum og að sjóðsfélaginn, sem
var vanur viðskiptum, hafí mátt gera sér grein
fyrir því að yfírlýsingin gæti ekki í raun bundið
bankann. Var því bankinn sýknaður.
Dómana kváðu upp hæstaréttardómararnir
Haraldur Henrysson, Guðrún Erlendsdóttir,
Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Pétur Kr.
Hafstein. í sératkvæði Guðrúnar við síðari dóm-
inn segir, að ekkert hafi komið fram annað en
að sjóðsfélaginn hafi verið í góðri trú um að
hann ætti fjárhæð inni í bankanum og að þjón-
ustustjórinn hafí gefið yfírlýsinguna í nafni
bankans. Því bæri að staðfesta dóm héraðsdóms.
Evrópskar sjónvarps-
stöðvar verðlauna
Dag Kára Pétursson
Sérstök
viðurkenn-
ing fyrir
handrit
DAGUR Kári Pétursson hlaut í gær
aukaverðlaun í handritasamkeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva. Voru
verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn
í Genf að því er greint var frá í
fréttum RUV í gærkvöldi.
Hollenskt handrit hlaut fyrstu
verðlaun keppninnar en dómnefnd
taldi handrit Dags Kára það athygl-
isvert að ákveðið var að veita hon-
um sértök aukaverðlaun. Handritið
heitir „Hemaðaráætlun Silju Woo“.
Dagur Kári var í hópi fímm höf-
unda er hlutu starfslaun fyrir drög
sín að þessu handriti í handrita-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva á
seinasta ári. Dagur Kári er 22 ára
Reykvíkingur og stundar nám við
kvikmyndaleikstjórn í danska kvik-
myndaskólanum.
Íslenskir höfundar hafa nokkrum
sinnum áður hlotið starfslaun og
sérstakar viðurkenningar í þessari
keppni: Vilborg Einarsdóttir og
Kristján Friðriksson hlutu starfs-
laun og sérstaka viðurkenningu
árið 1987 fyrir „Steinbarn“, Krist-
laug María Sigurðardóttir hlaut
starfslaun 1991 fyrir „Fríðu
frænku“ og Friðrik Erlingsson hlaut
starfslaun og sérstaka viðurkenn-
ingu árið 1993 fyrir „Hreinan
svein“.
------» + +----
Landhelgisgæslan
Líkur á að
Ægir verði
leigður til
veðurat-
hugana
í UNDIRBÚNINGI er að Landhelg-
isgæslan leigi eitt varðskipa sinna
með áhöfn til veðurathugana fyrir
Alþjóðaveðurfræðistofnunina í tvo
mánuði á næsta ári. Viðræður hafa
staðið yfir um nokkum tíma og era
allar líkur taldar á að gengið verði
formlega frá málinu innan skamms,
skv. upplýsingum Helga Hallvarðs-
sonar, yfirmanns gæslufram-
kvæmda hjá Landhelgisgæslunni.
^Fimm skip á hafinu milli
Irlands og Nýfundnalands
Um er að ræða samstarf veður-
stofa víðs vegar um heim og tekur
Veðurstofa íslands þátt í verkefninu.
Gert er ráð fyrir að veðurathuganir
verði gerðar á fímm skipum sem
haldið verði úti í tvo mánuði á haf-
svæðinu frá írlandi til Nýfundna-
lands að sögn Helga.
„Gera á veðurathuganir á skip-
unum með loftbelgjum og ýmsum
tækjum sem sett verða um borð í
skipin. Nú bíðum við bara eftir því
að samkomulagið verði undirritað
svo hægt verði að ganga í málið af
fullum krafti. Gert er ráð fyrir að
verkefnið verði unnið í janúar og
febrúar. Við höfum rætt um að
Ægir verði sendur í þetta verkefni,"
sagði hann.
Að sögn Helga leigði Landhelgis-
gæslan síðast eitt skipa sinna til verk-
efna af þessu tagi fyrir rúmum tutt-
ugu áram þegar varðskipið Albert
var leigt til olíuleitar við Grænland.
Starfsmenn Veðurstofunnar hafa
borið hitann og þungann af undir-
búningi verkefnisins fyrir íslands
hönd, að sögn Helga.
I
\