Morgunblaðið - 25.10.1996, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ekkja Andreas Papandreou ræðst gegn stjórnvöldum
Fordæm-
ir fækkun
lífvarða
sinna
Aþenu. Reuter.
DÍMÍTRA Liani, hin umdeilda ekkja Andreas Pap-
andreou, fyrrum forsætisráðherra Grikklands,
réðst á miðvikudag af fullri hörku gegn fyrrum
samheijum eiginmannsins burtgengna og gagn-
rýndi þá ákvörðun stjómvalda að fækka lífvörðum
hennar. Er þetta í fyrsta skipti sem ekkjunni lend-
ir saman við hina pólitísku arftaka Papandreous.
Dímítra, sem Grikkir nefna
jafnan „Mimi“, sagði í yfirlýs-
ingu sem birt var frá henni í
dagblaði einu sem gefið er út í
Aþenu, að yfirvöld hefðu með
þessu látið undan þrýstingi
fjölmiðlamanna. Fullyrti hún og
að þessi ákvörðun gæti orðið til
þess að öryggisgæslu yrði- ekki
sinnt sem skyldi. Ekkjan, sem
starfaði sem flugfreyja áður en
hún gekk að eiga Papandreou
og kynntist honum raunar í flug-
ferð, verður framvegis að láta
sér nægja sex lífverði en þeir
voru áður 32.
„Ég harma það mjög að ýms-
ir hafa nú gleymt því að merkir
atburðir í hinni pólitísku sögu
þjóðar vorrar gerðust hér i þessu
húsi og að hér er að finna merkt
skjalasafn, sem nú kann að vera
í hættu," sagði í yfirlýsingunni.
Bleika húsið varið
Fjölmiðlar á Grikklandi hafa
að undanförnu mjög beint at-
hyglinni að þeim fjölda lífvarða
sem gæta Liani og halda uppi
gæslu við glæsihýsið bleika þar
sem grísku forsætisráðherra-
hjónin bjuggu áður en Pap-
andreou gekk á fund feðra sinna.
Fjórir mánuðir eru nú liðnir frá
dauða Papandreou en hann gekk
DÍMÍTRA Liani með Andreas heitnum
Papandreou skömmu eftir að ástarsam-
band þeirra hófst.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
hafa sagt að ákvörðun þessari
hafi ekki verið beint sérstaklega
gegn ekkju forsætisráðherrans.
Akvörðun í þessa veru hafí legið
fyrir um nokkurt skeið og teng-
ist hún áformum um að fækka
almennt lífvörðum og starfs-
mönnum sem sinni öryggisgæslu
á vegum hins opinbera. Afram
verði haldið uppi gæslu við heim-
ili Papandreou-hjónanna á með-
an títtnefnt skjalsafn er þar að
fínna.
Gæslan aflögð?
Ónefndir heimildarmenn
sögðu það ekki viðtekna venju
að ekkjur látinna stjórnmálafor-
ingja nytu þjónustu lífvarða og
að vænta mætti þess að öll ör-
yggisgæsla Liani til handa yrði
aflögð þegar skjalasafn Pap-
andreous yrði flutt í höfuðstöðv-
ar gríska Sósíalistaflokksins eins
og áform eru uppi um.
Liani stóð ávallt við hlið Pap-
andreous í sigrum sem í sorg frá
því þau kynntust er hún færði
honum drykk í afdrifaríkri flug-
ferð árið 1988. Hún studdi hann
og með ráðum og dáð í veikind-
um hans en uppskar ekki í sam-
ræmi við það sem til var sáð í
huga almennings í Grikklandi.
að eiga Liani árið 1989 og batt
þá enda á hjónaband sitt og hinn-
ar bandarísku eiginkonu sinnar
til 37 ára.
Það er einkum dagblaðið Avr-
ani sem saumað hefur að Liani
að undanfömu. Blaðið hefur
löngum haft af því sérstakt yndi
að birta vafasamar myndir af
forsætisráðherrafrúnni fyrrver-
andi en önnur blöð hafa einnig
lýst yfir furðu sinni á því að hún
þurfi á svo öflugri öryggisgæslu
að halda. Blaðið Eleftherotypia
bar lof á þá ákvörðun stjórnvalda
að beita niðurskurðarhnífnum í
þessu viðfangi. „Enginn ógnar
lífi hennar og enginn hefur í
huga að stela skjalasafninu."
„Vanstillt og hrokafull“
Blaðið lét þess og getið að sér-
lega ógeðfelldur „tónn“ hefði verið
í yfirlýsingu frúarinnar. Yfirlýs-
ingin einkenndist í senn af „kald-
hæðni og hroka“ og bæri „van-
stilltu skapferli hennar glöggt
vitni.“ Virtist þessum orðum eink-
um beint að eftirfarandi setningu
í yfírlýsingu Liani: „Það gleður
mig mjög að ríkisstjómin hafi nú
afráðið að ráðast gegn halla-
rekstri ríkissjóðs...með því að reka
á brott flesta þá verði sem gæta
heimilis Andreas Papandreou.“
Stöðluð ESB-
rafmagnsinn-
stunga felld
Forsætísráðherra
Bretlands
Kosningar
fyrir 1. maí
London.Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í samtali við útvarpsstöð
BBC, að þingkosningar færu fram í
síðasta lagi 1. maí nk.
„Ég ætla ekki að gefa upp dag-
setninguna, en í síðasta lagi þarf að
bíða til 1. maí,“ sagði Major. Hann
hefur frest til 22. maí til að efna til
kosninga; en þá rennur kjörtímabil
stjórnar Ihaldsflokksins út.
Leiðtogar Verkamannaflokksins
hafa ítrekað skorað á Major að efna
til kosninga eins fljótt og auðið yrði,
enda miklu fylgismeiri en íhalds-
flokkurinn samkvæmt könnunum.
Nýjustu skoðanakannanir benda
til þess, að Verkamannaflokkurinn
njóti allt að 20% meira fylgis meðal
kjósenda en íhaldsflokkurinn. Allra
síðasta könnun bendir þó til að bilið
hafi minnkað í 14%.
TILLAGA að staðlaðri gerð raf-
magnsinnstungna fyrir aðildarríki
Evrópusambandsins (ESB) var felld
á fundi rafmagnstæknistaðlanefndar
ESB í síðustu viku. Með því var
Evrópubúum forðað frá mikilli fyr-
irhöfn og útgjöldum.
Áætla má, að upptaka hinnar nýju
„Evró-innstungu“
hefði kostað um
ellefu billjónir
(11.000 milljarða)
króna, og hefði
auk þess, sam-
kvæmt áliti sam-
bands þýzkra raf-
magnstækni-
fræðinga, skapað fleiri vandamál en
hún leysti.
Nýja Evró-rafmagnsklóin, sem lík-
ist mjög þeirri svissnesku, hefði
nefnilega ekki passað í neina inn-
stungu í heiminum - og hefði auk
þess bundið snöggan endi á þá sam-
ræmingarþróun, sem þegar hefur átt
sér stað. Nú þegar eru tæki, sem
ekki þurfa sterkari straum en 2,5
amper, framleidd með flatri tvípóla
kló, sem passar í rafmagnsdósir í
16 af 18 löndum Vestur-Evrópu.
Fyrir tæki, sem þurfa meiri straum
og þvi aukalega jarðtengingu, eru tvö
kerfí mjög útbreidd í Evrópu. Annars
vegar það sem við þekkjum hér á
landi, en er auk þess notað í Þýzka-
landi, á Norður-
löndum og víðar,
með jarðtengin-
unni á jöðrum kló-
arinnar. Hitt er
það franska, þar
sem jarðtengingin
er í formi titts sem
skagar út úr innst-
ungunni. Stöðluð kló, sem hægt er
að nota í báðum þessum útbreiddustu
kerfum, er þegar fáanleg. En að láta
þessa kló þjóna sem fyrirmynd að
„Evró-klónni“ hefði hins vegar brotið
gegn grundvallarreglu framkvæmda-
stjómar ESB: Að ekkert aðildarland
ESB njóti efnahagslegs ávinnings af
ákvörðuninni um staðlaða ESB-inn-
stungu.
Örvæntingarmerki í herbúðum Doles
Reynaað
fá Perot til
að víkja
Jacksonville, Flórída. Reuter.
SCOTT Reed, kosningastjóri Bobs Doles, forsetaefnis repúblik-
ana, flaug í gær til Dallas í Texas á fund Ross Perots, auðkýf-
ings frá Texas, til að skora á hann að draga forsetaframboð sitt
til baka og lýsa yfir stuðningi við Dole.
Háttsettur starfsmaður í kosn-
ingaherbúðum Doles staðfesti að
Reed hefði farið á fund Perots í
Texas. Sharon Holman, talsmaður
Perots, sagði hins vegar að auðkýf-
ingurinn ætlaði að halda áfram
kosningabaráttunni fram á síðasta
dag og neitaði að staðfesta að Perot
og Reed hefðu hist.
„Heimskuleg" tilraun
Russ Vemey, kosningastjóri Per-
ots, sagði að tilraun Doles hefði
verið „öldungis heimskuleg".
Ekkert var sagt opinberlega um
för Reeds til Texas í herbúðum
Dojes, en samkvæmt heimildar-
mönnum þar, sem margir voru
furðu lostnir á för Reeds, var
ákvörðun um þennan fund tekin
vegna óþreyju frambjóðandans.
Dole hefur undanfarið mátt horfa
upp á það að Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti hefur verið að auka
forskot sitt þrátt fyrir linnulausar
fullyrðingar um siðleysi í stjórn
forsetans.
„Ég heyri illa“
Dole hefur ekki tjáð sig um
þetta mál. Þegar blaðamenn köll-
uðu til hans spurningar á kosn-
ingaferðalagi i Flórída í gær færð-
ist hann undan. „Ég heyri illa,“
sagði Dole.
Dole reyndi að höfða til stuðn-
ingsmanna Perots i forkosningum
Repúblikanaflokksins og hefur
haldið því áfram í kosningabarátt-
unni. Framboð Perots hefur valdið
repúblikönum áhyggjum og þeir
óttast að hann muni draga frá
þeim fylgi líkt og 1992. Það var
ekki síst þess vegna, sem aðstoðar-
menn Doles börðust gegn því að
Perot fengi að taka þátt í kapp-
ræðum forsetaefnanna.
Perot æfur út í Dole
Perot er enn æfur út í Dole, sem
hann sakar um að hafa útilokað
sig frá kappræðunum. Hann talar
einnig um tillögu Doles um 15%
skattalækkun með fyrirlitningu og
segir að slíkt mundi snarauka fjár-
lagahallann.
Aðstoðarmenn Clintons sögðu
að för Reeds bæri því vitni að Dole
væri farinn að grípa til örþrifaráða.
Stjórnmálaskýrendur segja að þessi
fundur með Perot gæti veikt fram-
boð Doles enn frekar.
„Dole hefði átt að vita betur,“
sagði Mark Rozell, stjórnmálafræð-
ingur við American University.
Hann sagði að vaninn væri sá í
forsetakosningum í Bandaríkjunum
að saman drægi með frambjóðend-
um á lokaspretti kosningabarátt-
unnar. Fyrir fjórum árum hefði
George Bush, fyrrverandi forseti,
til dæmis náð að vinna upp helming
forskots Clintons á síðustu tveimur
vikum kosningabaráttunnar, þótt
hann tapaði með sex prósentustiga
mun. Uppátæki Doles gerði hins
vegar að verkum að sýnu ólíklegra
væri að munurinn minnkaði á síð-
ustu dögum kosningabaráttunnar.
„Þessi viðurkenning á veikleika
gæti dregið úr möguleikum Doles
síðasta spölinn," sagði Rozell. „Hún
gæti dregið úr baráttuvilja starfs-
manna repúblikana og gert fram-
bjóðendum flokksins skráveifu á
öllum stigum.“
Þýskal.
Austurr.
Holland
írland
Svíþjóð
Finnland
Spánn
Frakkl.
Belgfa
Spánn
Bretland
EÞ frystir
til Tyrklands
Strassborg. Reuter.
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær
að frysta tuga milljarða króna fjár-
veitingu, sem ætluð var til að að-
stoða Tyrkland vegna hins nýja
tollabandalags þess við Evrópusam-
bandið. Evrópuþingmenn telja
Tyrki ekki hafa staðið við loforð
um umbætur í mannréttindamálum,
sem þingið gerði að skilyrði þess
að það samþykkti samningana um
tollabandalag.
Þingið samþykkti að greiða út
þá aðstoð, sem ætluð er til mann-
réttindasamtaka, sjálfstæðra hjálp-
arstofnana og til þess að styrkja
lýðræði, en hélt eftir ýmiss konar
efnahagsaðstoð.
Þingið ákvað jafnframt að fram-
lög til Tyrklands samkvæmt
MEDA-áætlun ESB um stuðning
við Miðjarðarhafsríki, skyldu endur-
skoðuð.