Morgunblaðið - 25.10.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 19
LISTIR
Hátíðar-
tónleikar
Hveragerð-
isbæjar
TÓNLISTARFÉLAG Hveragerðis
og Ölfuss efnir til sérstakra há-
tíðartónleika í tilefni af 50 ára
afmæli Hvera-
gerðisbæjar
næstkomandi
laugardag í
Hveragerðis-
kirkju. Tónleik-
arnir eru jafn-
framt áskrift-
artónleikar fé-
lagsins. LFm er
að ræða ein-
söngstónleika
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, en
henni til aðstoðar og fulltingis eru
Anna Guðný Guðmundsdóttir
pínaóleikari og Martial Nardeau
flautuleikari. Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsóknar
mun einnig syngja með Diddú
nokkur lög.
Tónleikarnir hefjast kl. 17. Að-
gangseyrir er 1.000 kr., 500 kr.
fyrir börn og ellilífeyrisþega og
ókeypis er fyrir félaga í Tónlist-
arfélaginu.
Ljósmynda-
sýning í Aust-
urveri
FEÐGARNIR Mats Wibe Lund og
Christopher Lund sýna ljósmyndir
sínar í verslun Hans Petersens,
Austurveri, þessa dagana.
Myndir þeirra eru ólíkar, Mats
sýnir stórar litmyndir af landslagi
íslands, bæði teknar úr lofti og á
landi. Christopher sýnir hins vegar
svarthvítar myndir af börnum,
ungu fólki og landslagsmyndir.
Þeir feðgar vinna saman í fyrir-
tæki Mats, sem ber heitið Mats
Ljósmyndir. Það sérhæfir sig í
landslagsmyndum af íslandi, eink-
um þó loftmyndum af átthögum
íslendinga.
Sýningin stendur til 8. nóvem-
ber.
Myndlist + 4
í STUDIOI Bubba, Hringbraut
119, Reykjavík (JL-húsinu) verð-
ur á laugardaginn opnuð sýningin
„Myndlist + 4“. Þar verða til sýn-
is og sölu skúlptúrar (brons og
járnverk) eftir Bubba - Guðbjörn
Gunnarsson, grafíkverk eftir
kanadíska listamanninn og kenn-
arann Chris Sayer, vatnslita-
myndir eftir Jóhann G. Jóhanns-
son og olíuverk eftir Sigurð Vil-
hjálmsson. Alls verða verkin um
30 talsins og eru öll unnin á þessu
ári.
Sýningin stendur yfir frá 26.
október og lýkur sunnudaginn 10.
nóvember. Hún verður opin alla
daga frá kl. 14-18, nema sunnu-
daga frá kl. 14-22.
Landslags- og
sjávarmyndir
ÓLAFUR Oddsson opnar sýningu
í Lundinum á Akureyri laugardag-
inn 26. október. Á sýningunni eru
olíumálverk, akrýl- og vatnslita-
myndir og ein myndanna, andlits-
mynd, er unnin í kol.
Verkin eru frá árunum 1994-
1996 og eru mest landslags- og
sjávarmyndir.
Ólafur er fæddur 1947. Hann
er verkfæra- og mótasmiður og
hefur einnig numið myndlist.
Sýningunni Iýkur 3. nóvember
og er opin alla daga kl. 14-18.
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Kvikmyndahátíð í Reykjavík
Mynd fyrir alla að skilja og njóta
DANSKI kvikmyndaframleið-
andinn Peter Aabæk er heiðurs-
gestur Kvikmyndahátíðar í
Reykjavík, sem sett var í Regn-
boganum í gær. Aabæk er fram-
leiðandi myndar danska kvik-
myndaleikstjórans Lars von
Triers, „Breaking the Waves“,
sem sýnd er á hátíðinni og hefur
notið mikillar velgengni að und-
anförnu, auk þess sem hann hef-
ur verið með í framleiðslu
mynda Friðriks Þórs Friðriks-
sonar.
„Ég hef unnið með Lars von
Trier í átta ár og hef einnig átt
þátt í framleiðslu á fimm til sex
íslenskum myndum. Ég hlakka
alltaf til að koma hingað til lands
enda er það mér sérstök ánægja
að vinna með Friðrik Þór,“ sagði
Aabæk í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði þá Friðrik og
Lars vera góða leikstjóra. „Þeir
hafa báðir valið að starfa í sínum
heimalöndum þrátt fyrir að það
geti oft verið erfitt. Það væri
auðvelt fyrir þá að flytja út og
vinna að mynd-
um sínum þar
sem tækifærin
eru fleiri og
peningarnir
meiri.“
Trier þjáist af
mikilli ferða-
lagahræðslu og
fer nær aldrei
útfyrir Kaup-
mannahafnar-
borg. Því er þess
þá kannski enn
síður að vænta
að hann fari til
Hollywood ef
kall kæmi það-
an?
„Nei, og jafnvel áður en
hræðslan varð svona mikil og
hann hafði fengið mörg freist-
andi tilboð, þá sagðist hann
einungis vera tilbúinn til að gera
kvikmyndir fyrir viðkomandi
með því skilyrði að hún yrði tek-
in í Danmörku. Ég held að ein
aðalástæðan fyrir að bæði hann
og Friðrik Þór
vilja vinna í
heimalöndum
sínum er að þeir
geta haldið um
stjórnartau-
mana í myndum
sínum sem er
ómögulegt í
Hollywood til
dæmis."
Híirðjaxlarnir
gráta
Fyrri myndir
Triers höfðuðu
ekki til stórs
áhorfendahóps.
„Breaking the
Waves“ er sögð af öðrum toga
og fyrir alla að skilja og njóta.
„Myndin er einlæg og barnsleg
og jafnvel mestu harðjaxlar
gráta yfir henni,“ segir Aabæk.
I henni er sögð ástarsaga um
ungt par sem giftir sig en mað-
urinn slasast með þeim afleiðing-
um að hann getur ekki gagnast
konu sinni. „Auðvitað er slysið
martröð hvers karlmanns. Ég
held samt að það sé ekki þessi
kynlífstenging sem geri mynd-
ina eins góða og hún er. Best
er að vera ekki að leita að ein-
hveiju yfirmáta gáfulegu og
heimspekilegu í henni. Gáfu-
mennin fá ekki eins mikið út úr
henni og það er kannski ástæðan
fyrir að hún nær svona vel til
karlmanna. Konur eru svo miklu
gáfaðri en karlmenn. Þetta er
mynd fyrir viðkvæma og tilfinn-
inganæma menn og þvi stærri
og tröllslegri sem þeir eru, því
betra,“ sagði Aabæk brosandi.
Er Aabæk ekki hræddur um
að stórir framleiðendur keppist
um að fá Trier til liðs við sig
sökum aukinnar velgengni.
„Auðvitað, en hann er mjög
tryggur maður og fyrst ég stóð
með honum þegar hann var
óþekktur og enginn vildi hafa
með hann að gera, held ég að
hann fari ekki að yfirgefa mig
og mitt fyrirtæki núna.“
Falleg tónlist
fyrir „flokkinn“
TONLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Fluttur var Oberon-forleikurinn eftir
Weber, Þríleikskonsertinn eftir Beet-
hoven og sjöunda sinfónian eftir
Prokofiev. Einleikaran Auður Haf-
steinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadótt-
ir og Mona Sandström. Finuntudag-
urinn 24. október, 1996.
CARL Maria von Weber (1786-
1828) er án efa upphafsmaður róm-
antísku óperunnar, einn af fyrstu
rómantísku tónskáldunum og eins
og Alfred Einstein orðaði það, skap-
aði hann heim „yfirnáttúrulegra
töfrasagna, vakti með mönnum
hrylling og sem andstæðu, lék hann
með góðvildina og öll náttúruleynd-
armálin lifnuðu í persónugervingum
og tengdust þannig á magnaðan
hátt örlögum manna“.
Forleikurinn að óperunni Oberon
eftir Weber er mjög fallegt verk
og hefst inngangurinn á „do-re-mí“
stefi, leiknu á horn, sem Ognibene
lék mjög fallega. Þannig vekur
Weber upp stemmningu en sjálft
aðalstefið er ekta Weber, byggt á
hröðum brotnum hljómum, skreytt-
um hljómleysingjum. Hljómbygging
verksins er einföld en sannfærandi
og á móti henni má heyra snjöll
stef, eins og t.d. lokastefið. Hljóm-
sveitin lék verkið vel og með tölu-
verðum tilþrifum.
Annað verk tónleikanna var kon-
sert fyrir þijá einleikara og hljóm-
sveit, eftir Beethoven. Verkið í heild
er frekar einfalt og í stíl samstofna
fyrstu verkum hans, þó það sé sam-
ið á „mið-tímabilinu“. Þá er form
þess að byggingu til eins konar
Cocerto Grosso, þar sem hljómsveit
og einleikarar skiptast mjög gjarn-
an á og unnið er, t.d. í 1. kaflanum,
að mestu úr einni tónhugmynd.
Hægi þátturinn er eins konar inn-
gangur að hraða káflanum.
Bryndís Halla opnaði einleikinn
á ítrekum hins einfalda stefs og var
leikur hennar oft mjög fallega mót-
aður. Auður birti síðan stefið í
„dóminant tóntegund" og Mona
Sandström færði það síðan I frum-
tónstóntegund og minnir þessi að-
ferð að því leyti til á fúgufram-
sögu. í heild var leikur Auðar nokk-
uð veikur og þess gætti einnig í
hröðu tónferli að Bryndísi Höllu
vantaði kraft, þó hún á milli ætti
mjög fallega mótaðar tónhendingar.
Mona Sandström hafði þann kraft,
sem þurfti til að halda í við hljóm-
sveitina. Þrátt fyrir að konsertinn
væri að mörgu leyti vel fluttur vant-
aði í hann kraft og þar með átök,
svo hann var í heild nokkuð daufur.
Lokaverkið á tónleikunum var sú
7., eftir Prokofiev. Hún var frum-
flutt 11. október 1952 og vakti
strax mikla athygli og var mjög
fljótlega flutt fyrir félaga í tón:
skáldafélagi Sovétríkjanna. í
Pravda sagði Prokofiev að markmið
hans með gerð verksins hefði verið
að skapa „tónmynd bjartrar æsku,
til að svara kalli flokksins ... að
tónskáld semdu fallega tónlist, sem
bæði þjónaði undir markmiðum fag-
urfræðinnar og fagursmekk rúss-
neskrar alþýðu". Rússneskir gagn-
rýnendur voru yfir sig hrifnir en í
Ámeríku þótti mönnum verkið vera
minni háttar, miðað við það sem
Prokofiev hafði gert áður.
Þetta er létt og fallega unnin
tónlist og var hún frekar vel flutt
og sérstaklega lokakaflinn, sem
ásamt þeim fyrsta eru viðamestu
þættirnir að gerð og innihaldi.
Hljómsveitarstjórinn Adrian Leaper
er auðheyrilega góður fagmaður en
það var ekki fyrr en í Prokofíev
sinfóníunni, sem hann gaf leik
hljómsveitarinnar nokkurn lit í ýms-
um fínlegum tóntiltektum og stjórn-
aði „blaðalaust“ af töluverðri rögg-
semi og öryggi.
Jón Ásgeirsson
Ávarp:
Ávarp:
Skemmtiatriði:
Ávarp:
Afhending:
Ávarp:
Opnun sýningar í Perlunni
og veiting vidurkenninga fyrir Lofsvert lagnaverk 1995
í dag, föstudag kl. 16.00. - Aögangur er ókeypis
Guðmundur Þóroddsson vatnsveitustjóri, formaður Lagnafélags íslands
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra, opnun sýningar
Bubbi Morthens
Valdimar K. Jónsson prófessor, formaður Viðurkenningarnefndar
Viðurkenningar fyrir Lofsvert lagnaverk 1995. íþróttahús Fylkis í Árbæ
Alfreð Þorsteinsson formaður Veitustofnana Reykjavíkurborgar
ÍSLANDSBANKI
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Vatnsveita
Reykj avíkur
Hitaveita
Reykj aví kur
Verkfræðingafélag
íslands
Félag
blikksmiðrjueigenda
Tæknifræðingafélag
íslands
Félag
pípulagningamei stara