Morgunblaðið - 07.12.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 07.12.1996, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VAXANDIVIÐ- SKIPTIVIÐ RÚSSA * ISLENZK fyrirtæki eru i vaxandi mæli tekin að nýta sér þá miklu möguleika, sem skapazt hafa í verzlun og viðskiptum við Rússland. Enn sem komið er eru þau langmest á sviði sjávarútvegs, en þó eiga íslendingar þar hlut í lyfjaiðnaði og gosdrykkjaframleiðslu. Þá hafa íslend- ingar fengið talsverð verkefni í byggingariðnaði og öðrum verklegum framkvæmdum. Viðskiptafulltrúi Útflutnings- ráðs í Moskvu, María Ingvadóttir, segir, að í deiglunni séu ýmiss konar viðskipti við Rússa, einkum með fisk, ullarvörur og fleiri iðnaðarvörur, jafnvel lambakjöt. Síldarútvegsnefnd keypti fyrr á árinu helmingshlut í fisksölufyrirtækinu Viking Group í Pétursborg, sem opn- aði í gær nýja söluskrifstofu í borginni og mun opna stóra frysti- og kæligeymslu um næstu áramót. Fyrirtækið hef- ur verið stærsti kaupandi íslenzkrar saltsíldar á rússnesk- um markaði, auk þess sem það hefur selt þar frysta loðnu. Islenzkar sjávarafurðir hf. reka umfangsmikla starfsemi á Kamtsjatka í samvinnu við rússneskt útgerðarfyrirtæki og viðskipti Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna eru veru- leg. Þá hafa Marel og Hampiðjan náð umtalsverðum ár- angri í sölu á framleiðsluvörum sinum til rússneskra sjáv- arútvegsfy ri rtækj a. Viðskiptin við Rússa eru gagnkvæm, því þeir hafa selt hingað talsvert magn af fiski til vinnslu og allar líkur eru á, að þau viðskipti geti vaxið stórlega í framtíðinni. Smugudeilan hefur varpað nokkrum skugga á sjávarút- vegssamstarf þjóðanna, en vonandi leysist, deilan með vorinu, því mikið er í húfi. Má þar nefna aðgang ís- lenzkra skipa að veiðum í Barentshafi og skynsamlega nýtingu norsk-íslenzku síldarinnar. Lausn Smugudeilunn- ar mun væntanlega gera Islendingum kleift að bjóða í þau 15% af þorskkvóta Rússa í Barentshafi, sem þeir hyggjast setja á uppboð í því skyni að afla fjár til að efla fiskiðnað sinn. Margvísleg vandamál eru samfara viðskiptum við Rússa, því tíma tekur að byggja upp markaðskerfi þeirra og reisa þjóðfélagið úr rústunum, sem kommúnisminn skildi eftir sig. Hins vegar eru óþijótandi möguleikar í framtíðarvið- skiptum við Rússland, sem íslendingar eiga ekki að láta fram hjá sér fara. EINKAVÆÐINGAR- ÁTAK ER TÍMABÆRT VERZLUNARRÁÐ íslands hefur að undanförnu fært rök að því að kominn sé tími til að gera Víðtækt átak í því að.einkavæða ríkisfyrirtæki. Ráðið bendir réttilega á að þótt bæði síðasta ríkisstjórn pg sú, sem nú situr, hafi haft einkavæðingu á stefnuskrá sinni, hafi hún geng- ið hægt og engin af stærri ríkisfyrirtækjum verið seld. Þá hafi nær ekkert verið einkavætt á þessu kjörtímabili, að frátalinni sölu hlutabréfa í Jarðborunum hf. fyrir um 200 milljónir króna fyrr á þessu ári. Ástæða er til að taka undir tillögur Verzlunarráðs í þessu efni. Reynslan af einkavæðingu, jafnt erlendis sem og þeirri takmörkuðu sölu ríkisfyrirtækja sem átt hefur sér stað hér á landi, sýnir að hún stuðlar að betri rekstri fyrirtækja, aukinni samkeppni, valddreifingu, eflingu hlutabréfamarkaðar og batnandi hag neytenda, skatt- greiðenda og starfsmanna fyrirtækjanna, eins og rakið er í skýrslu Verzlunarráðs. Ráðið hefur bent á að með því að nota söluhagnað af einkavæðingu til að greiða niður skuldir ríkisins megi lækka vaxtagreiðslur ríkissjóðs um 2,6 milljarða króna á ári. Hér skal tekið undir það sjónarmið að hagnaðurinn verði fremur notaður til að greiða niður skuldir en til þess að auka umsvif ríkisins á öðrum sviðum. Slíkt er ekki sízt skynsamlegt ef horft er til þeirrar hættu á of- þenslu í efnahagslífinu, sem margir hafa varað við að geti átt sér stað á næstu árum. Ríkisstjórnin ætti nú að hraða því að hrinda áformum sínum um einkavæðingu í framkvæmd. Það er ekki seinna vænna, ætli hún að geta sýnt árangurinn áður en til næstu kosninga kemur. Sameign þj o sett að ve< „Nytjastofnar á íslands- miðum eru sameign ís- lensku þjóðarinnar,“ segir í 1. grein laga um stjórn fiskveiða. Síðar í sömu grein segir, að út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lögunum myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt for- ræði einstakra aðila yfír veiðiheimildum. Ragn- hildur Sverrisdóttir segir að til þessara ákvæða hafi oft verið vitnað og ekki síst þegar þingið hefur fjallað um frumvarp til laga um samningsveð. FRUMVARP um samnings- veð hefur skotið upp koll- inum af og til á þingi og nú er það enn til meðferð- ar. í þeirri útgáfu, sem þingflokkar stjórnarflokkanna hafa skoðað und- anfarið, er gert ráð fyrir að veð- setja megi aflaheimild skips með skipinu, en tekið skýrt fram að afla- heimildina megi aldrei veðsetja eina sér. Andstæðingar hugmynda um veðsetningu af þessu tagi hafa gjarnan bent á 1. grein laga um stjórnun fiskveiða Og segja að ekki sé hægt að heimjja útgerðarmönn- um að veðsetja eigur 'annarra, í þessu tilviki þjóðarinnar allrar. Lánastofnanir þinglýstu kvöðum Með lögum um stjórn fiskveiða, sem tóku gildi árið 1991, var fram- sal aflaheimilda heimilað að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Áður mátti ekki færa aflaheimildir varan- lega frá skipi nema viðkomandi skip væri tekið út af skipaskrá. Afskráningin var háð því að ekki hvíldu veðbönd á skipinu. Eftir að lögunum var breytt skapaðist sú . hætta að aflakvóti væri seldur án þess að veðhafi skipsins fengi neitt urh það að segja, en með sölu afla- heimilda rýrnar verðmæti skips yf- irleitt verulega og þar með þess veðs sem á því hvílir. Lánastofnanir brugðust við þess- um breytingum með því að krefja lántakendur um skriflega yfirlýs- ingu um að þeir muni ekki fram- selja kvótann á meðan veðsamning- ur er í gildi. Slíkum samningum var þinglýst á skip og sjávarútvegs- ráðuneytinu tilkynnt það sérstak- lega. Lánastofnanir hafa hins vegar talið að þetta veitti ekki nægilegt réttaröryggi, því kaupanda kvóta sé ekki skylt að kynna sér þinglýs- ingabók. Lántakandi geti því í raun selt kvótann, án þess að bankinn fái rönd við reist, auk þess sem sjávarútvegsráðuneytið stöðvi ekki lengur sölu á kvóta nema veðsetn- ing skips hafi átt sér stað fyrir gildi- stöku laga um stjórn fiskveiða. Þetta þýði að bankar séu tregari en ella til að lána sjávarútvegsfyrir- tækjum. Ákvæði ýmist inni eða úti Eins og áður sagði hefur frum- varp til laga um samningsveð skot- ið upp kollinum áður, í fyrsta sinn í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks. í frumvarpinu er kveðið á um ýmis lagaleg skilyrði og reglur veðsetningar og mun löngu tímabært að setja heildstæða löggjöf um þetta efni, enda er stofn íslenskrar veðsetningarlöggjafar frá 1887, auk þess sem veðsetn- ingarheimildir er að fínna í hinum og þessum sérlögum. Fáir mæla þessu í móti, en deilt hefur verið harkalega ,um ákvæði sem tengjast veðsetningu skipa og aflaheimilda sem á þeim hvfla. Fyrsta frumvarpið, sem lagt var fram í desember 1994, sá ekki til sólar, enda var Alþýðuflokkurinn því mótfallinn og sagði að með umræddu ákvæði um veðsetningu aflaheimilda væri stjórn- völdum gert erfiðara um vik að breyta fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Ef veðsetning kvóta yrði lögfest mætti túlka það svo að ef ríkið breytti eða afnæmi kvótakerfið ættu þeir skaðabóta- kröfu, sem hefðu tekið veð í skipi og kvóta. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra svaraði gagnrýni Alþýðu- flokksins með því að benda á, að aflaheimildir væru þegar veðsettar, enda væri það forsenda þorra lána- viðskipta við útgerðirnir í landinu og um leið það öryggi, sem inni- stæðueigendur hefðu, enda væru ekki margir fúsir að leggja sparifé sitt í banka ef bankastjórum væri óheimilt að taka veð i aflaheimild- um. Veð í skipi væri ekki mikils virði ef enginn væri kvótinn. Haustið 1995 lagði dómsmála- ráðherra frumvarpið fram á nýjan leik. Það var þá samþykkt í þing- flokki sjálfstæðismanna, en þing- flokkur Framsóknarflokksins hafn- aði að leggja það fram að óbreyttu. Harðasta andstaðan við ákvæði frumvarpsins um veðsetningu aflakvóta kom frá þingmönnum Framsóknarflokksins í Reykjanes- kjördæmi, sem tóku upp röksemdir þær, sem Alþýðuflokkurinn hafði haft uppi í stjórnarsamstarfinu. Deilt um horfið ákvæði í byrjun þessa árs var frumvarp- ið enn til umræðu, en vegna and- stöðu Framsóknarflokks hafði ákvæði um veðsetningu aflaheim- ilda verið fellt út. Umræður á þingi snerust þó að miklu leyti um ákvæð- ið sem hvarf, en ekki þau sem eft- ir sátu. Dómsmálaráðherra ítrekaði að veðsetning kvóta viðgengist í raun og með því að fella ákvæðið út félli jafnframt niður lögbundin vernd lánastofnana og réttur út- gerðarmanna til að framselja kvóta yrði rýmri. Sem sagt, veðsetning yrði áfram við lýði, en bankar gætu ekki tryggt sig eins vel og ákvæðið hefði gert ráð fyrir. Frumvarpið fæli því í sér óbreytt ástand, sem dóms- málaráðherra sagði raunar að hefði hingað til ekki valdið óróleika á lánamarkaði. I greinargerð með nýja frumvarpinu var fjallað um brotthvarf ákvæðisins og þar vísað sérstaklega til þess, að lánastofnan- ir gætu tryggt hagsmuni sína að nokkru með sérstöku samkomulagi við útgerðir. Við umræðurnar urðu hártoganir um hvort ætlunin hefði verið að heimila veðsetningar veiðiheimilda einna og sér. Dómsmálaráðherra Veð treystir kvótakerfið í sessi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.