Morgunblaðið - 20.12.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.12.1996, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís INGIMAR í faðmi fjölskyldunnar á heimili þeirra í Kópavoginum í gærkvöldi. Frá vinstri: Helga Zoega kona hans, Ingimar og börn þeirra, Guðmundur Sveinbjörn, Halldóra og Ólafur Þór. Síðasta flugferð Ingimars K. Sveinbjörnssonar MIKIÐ var um dýrðir á Kefla- víkurflugvelli og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær þegar Boeing 757 þota Flugleiða kom til landsins frá Lundúnum, en við stjórnvölinn sat Ingimar K. Sveinbjörnsson flugstjóri í síðasta flugi sínu sem atvinnu- flugmaður. Móttökuathöfnin hófst í raun í Lundúnum, þar sem stöðvarstjóri Flugleiða á Heathrow kom um borð og færði Ingimar gjöf, auk þess sem flugfreyjurnar buðu upp á smurt brauð og meðlæti. Við heimkomuna óku siyóruðn- ingstæki á undan vélinni, slökkviliðsbílum var raðað upp í heiðursvörð við enda flugbrautar og þegar vélin kom að var sprautað vatni úr dælum bifreiðanna, en Ingi- mar starfaði lengi sem slökkviliðsmaður á Keflavik- urflugvelli. Hrærður og orðlaus Þegar farþegar höfðu geng- ið frá borði vélarinnar kom forstjóri Flugleiða, Sigurður Helgason, og sótti Ingimar og Mikið um dýrðir á Keflavík- urflugvelli fylgdi honum inn landganginn. Þar tók kór flugmanna á móti honum og söng fyrir Ingimar. Hann kveðst hrærður yfir þessum móttökum og í raun orðlaus. „Þetta tilstand kom mér í opna skjöldu og mér finnst ég varla eiga þetta skilið," segir Ingimar. Hann hóf að starfa sem at- vinnuflugmaður hjá Flugfélagi íslands árið 1954 og á því að baki fjörutíu og tveggja ára starfsaldur í háloftunum, hjá sama vinnuveitanda ef svo má segja. Nú um jólin verður hann 63 ára gamall, en samkvæmt þeim reglum sem gilda mega flugmenn ekki fljúga lengur í atvinnuskyni hérlendis. Hann kveðst ekki hafa gert neinar sérstakar ráðstafanir á þessum tímamótum og enga ákvörðun tekið um hvort hann haldi áfram að fljúga, kaupi hlut í flugvél, eða fái að „taka í“ stýr- ið á vélum vina og kunningja. „Ég á mörg áhugamál þann- ig að nóg er að gera, er til dæmis með búskap á jörðinni Króksfjarðarnesi í Breiðafirði, sauðarækt og æðarvarp, og hef mikinn tónlistaráhuga. Flugið kallar hins vegar ör- ugglega, ekki síst þar sem ég mun sakna samstarfsfólksins," segir Ingimar. Gríðarlegar breytingar Hann segir þær breytingar sem orðið hafa á fluginu síð- ustu áratugi ólýsanlegar. „Þegar ég var að byija var flugið vart búið að slíta barns- skónum og vélamar frumstæð- ar um margt, en nú eru stöðug- ar tæknibreytingar í gangi, þannig að menn eiga fullt í fangi með að fylgjast með,“ segir Ingimar. Dómur sjálfstæðum atvinnurekanda í vil Lífeyríspamað- ur frádráttarbær HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt að framlag sjálfstætt starfandi at- vinnurekenda til lífeyrissjóðs af eigin vinnu, vegna þess hluta sem almennt greiðist af vinnuveitanda, teljist til rekstrarkostnaðar. Því megi draga það frá atvinnurekstr- artekjum áður en skattstofn er ákveðinn. Dómurinn staðfestir fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavík- ur. Verkfræðingur, sem rekur eigin stofu, höfðaði málið gegn íslenska ríkinu. Honum er skylt að greiða iðgjöld í Lífeyrissjóð Verkfræð- ingafélags íslands vegna eigin vinnu. Þá ber honum einnig að halda eftir af launum starfsfólks síns 4% iðgjaldshluta þess og standa viðkomandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt 6% mótframlagi sínu. Meginregla að gjöld dragist frá tekjum í dómi Hæstaréttar segir að það sé meginregla í skattarétti að öll gjöld, sem fara í að afla tekna, tryggja þær og halda þeim við, 1 komi til frádráttar frá tekjum af | atvinnurekstri eða sjálfstæðri j starfsemi. „Allar undantekningar frá þeirri reglu verða að vera skýr- ar og ótvíræðar," segir Hæstiréttur og að í lögum um tekju- og eignar- skatt sé að þessu leyti enginn munur gerður á fyrirtækjum eftir rekstrarformi þeirra. „Þá ber að hafa í huga að stefnda var skylt að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð af j tekjum sínum og teljast slík skylduframlög atvinnurekenda til ' rekstrarkostnaðar. Er fallist á þá j niðurstöðu héraðsdóms að atvinnu- rekandaframlag stefnda í eigin líf- eyrissjóð falii undir rekstrarkostn- að sem heimilt sé að gjaldfæra," segir í dóminum. Hæstaréttardómararnir Harald- ur Henrysson, Guðrún Erlends- dóttir, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein j kváðu upp dóminn. Hjörtur skilaði j sératkvæði, þar sem hann komst , að sömu niðurstöðu, en leiddi rök * að henni á nokkuð annan veg. Hvatt til bænastunda í kirkjum landsins á sunnudagskvöld Beðið fyrir þeim sem kvíða jólunum BISKUP íslands og þjóðmála- nefnd þjóðkirkjunnar hafa beint þeim tilmælum til presta um allt land að þeir hafi stuttar bænastundir í kirkjum sínum næstkomandi sunnudag, þar sem beðið verði fyrir þeim sem kvíða jólunum. „Við prestar verðum þess mjög varir í starfi okkar að jólin spenna upp miklar vonir, sem geta af ýmsum ástæðum ekki allar uppfyllst. Fólk opinberar oft við okkur miklar áhyggjur og kvíða fyrir jólunum og okkur langar til að þetta fólk finni að til þess sé sérstaklega hugsað," segir séra Jakob Ágúst Hjálm- arsson, formaður þjóðmála- nefndar Þjóðkirkjunnar. Meðal þeirra sem eiga erfítt um jólaleytið nefnir séra Jakob til dæmis þá sem misst hafa ástvini, eiga við veikindi eða vímuefnavanda að stríða. „Við hugsum líka til þeirra sem ótt- ast þessa breytingu dagskrár- innar sem jólin færa með sér. Þjónustumiðstöðvar aldraðra eru lokaðar, skólamir fara í frí og það er ekki öllum fagnaðar- efni. Sum böm upplifa skilnað foreldra sinna aldrei sárar en einmitt um jólin og þau em jafn- vel sett í þann vanda að verða sjálf að velja á milli þeirra,“ segir Jakob ennfremur. Hann segir hugmyndina um bænastundir hafa mælst afar vel fyrir meðal presta og gerir ráð fyrir að flestir þeirra gangi til kirkju rétt fyrir kvöldmat á sunnudag ásamt þeim sem með þeim vilja safnast og biðja fyrir meðbræðrum sínum. „Þetta á að vera hvatning til allra hinna sem eitthvað betra eiga að muna eftir fólkinu í kringum sig.“ I \ I Endurskoðendur um viðskipti Hafnarfjarðarbæjar og Miðbæjar Hafnarfjarðar Bæjarsjóður hefur lagt 423 milljónir í bygginguna ENDURSKOÐUNARDEILD Hafnarfjarðarbæjar hefur skilað skýrslu um viðskipti bæjarins og Miðbæjar Hafnarfjarðar, sem reisti stórhýsið á Fjarðargötu 13-15, en fyrirtækið er nú gjald- þrota. Endurskoðendur bæjarins komast að þeirri niðurstöðu að kostnaður skattgreiðenda í Hafn- arfirði vegna byggingarinnar sé orðinn rúmlega 423 milljónir króna. Af þessari upphæð geti 35 milljónir þó fengizt endur- greiddar. Skýrslan er unnin að beiðni bæjarráðs, í framhaldi af tillögu bæjarfulltrúa Alþýðubandalags- ins á bæjarstjórnarfundi i septem- ber. Endurskoðunardeildinni bár- ust einnig fyrirspurnir frá bæjar- fulltrúunum 5. október síðastlið- inn. Þar er meðal annars spurt: „Hver eru heildarframlög og kostnaður bæjarsjóðs vegna kaupa á eignarhlutum, yfirtöku, niðurfellingu gjalda, endurbóta og fullnaðarfrágangs, rekstrar- og sérfræðikostnaðar varðandi svonefnt Miðbæjarhús?" Svar endurskoðendanna er að kostnaðurinn nemi alls 423.212.104 krónum. Frá því dragist hins vegar áætlaður hlut- deildarkostnaður annarra eig;enda hússins og endurgreiddur virðis- aukaskattur. Hins vegar liggi ekki fyrir samningur milli aðila um skiptingu kostnaðar og bæjar- sjóður hafi enn ekki gert tilkall í endurgreiðslu virðisaukaskatts. Eigið fé 0,14% af byggingarkostnaði í skýrslunni koma fram margar athugasemdir endurskoðendanna við viðskipti bæjarsjóðs og Mið- bæjar Hafnarfjarðar. M.a. segja þeir að Ijóst sé að MH hafi aðeins haft eina milljón króna í hlutafé, en ráðizt í byggingu húss, sem var rúmir 8.000 fermetrar. Gera hafi mátt ráð fyrir að byggingar- kostnaður yrði ekki undir 700-800 milljónum króna. „Eigið fé upp á um 0,14% af væntanlegum byggingarkostnaði er í raun afar veikur grunnur til að byggja á, enda fór svo að félag- ið var [...] tekið til gjaldþrota- skipta,“ segir í skýrslunni. Skýrslan var lögð fram í bæjar- ráði Hafnarfjarðar í gær. Bæjar- ráð samþykkti tillögu Magnúsar Jóns Árnasonar, bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins, um að í dag yrði boðað til fundar með bæjar- fulltrúum, endurskoðanda, skoð- unarmönnum og bæjarlögmanni til að skýra skýrsluna og gefa bæjarfulltrúum tækifæri til að spyija út í efni hennar. Tíu milljónir íútsendingu < Good Morn- i ing America, GERT er ráð fyrir að ríkið greiði allt að 10 milljónum kr. til þátttöku í kostnaði vegna útsendingar frá ís- landi í sjónvarpsþáttunum Good Morning America, sem áformað er k að gera og senda út frá öllum nor- rænu ríkjanna. Þetta er ein þeirra i breytinga, sem meirihluti tjárlaga- 1 nefhdar Álþingis hefur lagt til að gerðar verði á flárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Það verður tekið til þriðju umræðu í dag, föstudag. Annar nýr liður, sem meirihlutinn leggur til að bætt verði inn á fjárlög, er að samið verði við íþróttasamband íslánds um að ríkissjóður leysi til sín eignarhluta sambandsins í Laugar- i dalshöll, gegn niðurfellingu 40 millj- kr. skuldar þess við Endurlán ríkis- I sjóðs vegna láns sem veitt var til j undirbúnings heimsmeistarakeppn- innar í handknattleik vorið 1995. \
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.