Morgunblaðið - 20.12.1996, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
i-
Samningaviðræður hafnar við
gíslatökumenn í Lima
Ástandið inn-
andyra sagt
„ótryggt“
Lima, Bonn, Varsjá, Tókýó. Reuter.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR hófust í
gær á milli skæruliða Tupac Am-
aru-hreyfíngarinnar og stjórnvalda
í Perú en þeir fyrmefndu halda allt
að 484 mönnum í sendiráði Japana
í Lima. Hóta skæruliðar að myrða
gísla sína, verði 4-500 félagar
þeirra, sem eru í fangelsi, ekki látn-
ir lausir. Að sögn milligöngumanna
skæruliða og stjórnvalda er geysi-
lega þröngt inni í sendiráðinu, gísl-
arnir hafa átt erfitt með svefn, auk
þess sem skortir mat og nauðsyn-
legar hreinlætisvörur.
Fulltrúar Rauða kross Perú og
fimm sendiherrar erlendra ríkja,
sem skæruliðar létu lausa á mið-
vikudag, bera boð á milli gíslatöku-
manna og stjórnvalda. Héldu
sendiherrarnir að nýju inn í sendi-
ráðsbygginguna í gær og ræddu
við skæruliðana í hálfa klukku-
stund.
Áður höfðu þeir átt tveggja
stunda fund með menntamálaráð-
herra Perú, Domingo Palermo
Cabrejos, sem fer með málið fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar. Engar upp-
iýsingar fengust um gang viðræðn-
anna í gær.
Alberto Fujimori, forseti Perú,
hefur ekki tekið beinan þátt í við-
ræðum við skæruliðana, þrátt fyrir
kröfur þeirra þar að lútandi. Hvatti
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, Fujimori til þess að
láta einskis ófreistað til að ná sam-
komulagi um lausn gíslanna.
Ótryggt ástand
Að sögn fulltrúa Rauða krossins,
sem fór inn í sendiráðið um hádegis-
bil að ísl. tíma í gær, var allt með
kyrrum kjörum innandyra. Hann
sagði hins vegar brýna þörf á mat
og hreinlætisvörum. Þá var haft
eftir þýska sendiherranum, sem er
einn milligöngumanna að skærulið-
arnir væru átján talsins og að einn
þeirra væri særður. Sagði sendi-
herrann ástandið innandyra
„ótryggt". Þrátt fyrir að skærulið-
arnir héldu ró sinni, vissu þeir ná-
kvælega hvað þeir vildu. Þá væru
allir undir gífurlegu sálrænu álagi.
Ekki hefur verið staðfest hversu
ERLEIMT
Reuter
TVEIR menn sjást reglulega í glugga á fyrstu hæð sendiráðs
Japana í Lima. Ekki er vitað hvort þeir eru gíslar eða skæruliðar.
margir gíslar eru í haldi, í gær var
fullyrt í símbréfi frá gíslunum að
þeir væru 490, siðar voru sex menn
látnir lausir.
Sérfræðingar til Lima
Umsátursástand er í nágrenni
sendiráðsins. Skæruliðarnir kveðast
hafa komið fyrir sprengjum við inn-
ganga hússins, sem springi, reyni
lögreglan inngöngu. í öruggri fjar-
lægð frá sendiráðinu bíða blaða-
menn, ættingjar þeirra sem inni eru
og forvitinn almenningur í ofvæni
en leyniskyttur lögreglunnar eru
hvarvetna.
Þá eru breskir sérfræðingar á
leið til Perú, en bresk stjórnvöld
vildu ekki gefa upp hvort um menn
úr SAS-sérsveitunum væri að ræða.
Árið 1980 réðust þeir inn í íranska
sendiráðið í Lundúnum þar sem sex
skæruliðar héldu 21 manni í gísl-
ingu. Féllu fimm skæruliðar í árás-
inni en þeir höfðu drepið tvo gísla.
Skæruliðum Tupac Amaru barst
á miðvikudag hvatning frá fyrrver-
andi skæruliðaforingja í Kólumbíu,
sem sagði öllu máli skipta að þeir
héldu ró sinni. Maður þessi, Rosem-
berg Pavon, fór fyrir skæruliða-
hópnum M-19 sem hélt 57 manns
í gíslingu í dómínikanska sendiráð-
inu í Bogota í 61 dag árið 1980.
Fidel Castro Kúbuleiðtoga tókst að
koma á samningum á milli þeirra
og stjórnvalda og komust skærulið-
arnir undan til Kúbu.
Yfirmaður vopna- i
eftirlits hjá SÞ
Segir Ir-
aka enn
hafa fjölda j
flugskeyta 1
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ROLF Ekeus, yfirmaður vopnaeftir-
lits hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði
á fundi öryggisráðs SÞ_á miðviku-
dag að hann teldi að írakar réðu
enn yfir umtalsverðum fjölda flug-
skeyta,_ sem væru nothæf. Einnig
hefðu írakar nægan búnað til að
skjóta þeim; eldsneyti, skotpalla og
fleira. I
Ekeus sagði við blaðamenn að
það væri „fræðilegur möguleiki" að
Irakar hefðu eyðilagt eldflaugarnar
á laun, en þeir hefðu ekki sýnt eftir-
litsmönnum brakið úr þeim.
Samkvæmt ályktunum SÞ í kjöl-
far Persaflóastríðsins mega írakar
ekki hafa flugskeyti, sem draga
lengra en 150 km, undir höndum.
Ekeus var á eftirlitsferð í Bagdað
8. tii 11. desember. Hann hafði
áður sagt að írakar hefðu ekki gert •
grein fyrir sex til 16 flaugum, en
nú virtist hann gefa í skyn að þær
væru fleiri og fjöldinn væri umtals-
verður.
Hér er um að ræða SCUD eld-
flaugar. Þær flaugar, sem vantar,
draga minnst 300 km, að sögn
Ekeus. Eitt skilyrðið fyrir því að
viðskiptaþvingununum, sem örygg-
isráð SÞ lagði á íraka, verði aflétt
er að þeir geri grein fyrir öllum
svokölluðum gereyðingarvopnum.
ALV0RU SPOMVORUVERSLUN
Ótrúlegt vöruúrval
Golfsett
Golffatnaður
Golfkerrur
Golfpokar
Golf gjafavara
5 % staðgreiðslu-
afsláttur
I
__ wmmmmJÍAA Dl/lr
Unglingasett með poka kr. 14.900
Fullorðinssett 1/2m/pútterkr. 11.900
Verslunin
Filippus drottnmgarmaður
gagnrýndur fyrir ummæli
London. Rcuter.
FILIPPUS prins af Bretlandi, eigin-
maður Elísabetar Bretadrottningar,
var gagnrýndur harkalega í gær fyr-
ir að deila á áætlanir bresku stjórnar-
innar um að banna flestar gerðir
skammbyssa. Sagði Flippus að félag-
ar í skotfélögum væru ekki hættu-
legri en gylfingar eða krikketleikar-
ar. Hefur breska hirðin beðist afsök-
unar á ummælum prinsins.
Filippus, sem er vanur að tala
tæpitungulaust, lýsti yfir samúð með
foreldrum og ættingjum barnanna
16, sem byssumaður myrti í Dun-
blane í Skotlandi í mars, en sagði
að viðbrögð almennings og yfirvalda
hefðu farið út fyrir skynsemismörk.
„Ef krikketleikmaður ákvæði t.d
skyndilega að fara inn í skóla og
berja fjölda fólks til bana með krik-
ketkylfu, sem hann gæti auðveldlega
Líkti skammbyssum
við krikketkylfur
gert, ætti þá að banna krikketkylf-
ur?“ spurði Filippus í viðtali við BBC.
Verða að vera raunsæir
Margir hafa gagnrýnt Filippus
fyrir að bera saman skammbyssur
og krikketkylfur og láta þessi um-
mæli falla nokkrum dögum fyrir
fyrstu jólin eftir að Thomas Hamilton
framdi ódæðið í Dunblane.
„Hve marga er hægt að myrða á
þremur og hálfri mínútu með krik-
ketkylfu? Þetta er ekki það sama og
sjálfvirk byssa. Menn verða að vera
raunsæir," sagði Beverley Birnie,
sem á son, sem lifði árásina af.
Tony Blair, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, sagði að samlíking Filipp-
usar hefði verið óskynsamleg. Aðrir
úr röðum stjórnarandstæðinga tóku
dýpra í árinni: „Eg örvænti um her-
togann af Edinborg," sagði Tony
Banks, þingmaður Verkamanna-
flokksins. „Þessi maður er ónærgæt-
inn, eigingjam og klunnalegur. Enn
einu sinni hefur hann hætt sér á
hálan ís. Það væri vel þegið ef þessi
maður þegði um skeið.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem I
hertoginn kemst í vandræði vegna
ummæla sinna. Þegar hann heim-
sótti Kína árið 1986 kvað hann Pek-
ing vera „hræðilega" borg og sagði
við breska námsmenn: „Ef þið verðið
hérna mikið lengur verðið þið allir
orðnir skáeygir."
* T'. ö
NJOTTU ÞESS AÐ SPIIA ÞROSKANDI SPIL VK> FJOLSKYLDUNA
ÆVINTVRALAND:
Gömlu ævirttýrin rrfjast
upp þcgar þú f*rð um
aevintýTalandid í icrt að
fjársjóði.
HALLARDRAUGURINN
HÚGÓ:
Húgó birtlst Tjóslifantfi"
ogþácrbetraaðvaraág.
SCOTLAND YARD:
Hr. X hefur horfið í
London og þítt verk er
að firma hann.
VEGAS
Ekta fjárhættuspil
anda Las Vegas og þvi
er betra að hafa kvcikt
áperuni.
I
I
I
I
i
I