Morgunblaðið - 20.12.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.12.1996, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sjávarútvegsráðherra- fundur ESB hafinn Sagður verða „ein torfæra“ Brussel. Reuter. Athuga- semdir ESBná aðeins til Evrópu „EVRÓPU S AMBANDIÐ getur borið fyrir sig reglugerð frá 1989 og beitt sér gegn sameiningu erlendra fyrirtælga á þeim grundvelli," sagði Guðlaugur Stefánsson, sem starfar hjá Eft- irlitsstofnun EFTA, í tilefni af Reuters-frétt, sem birtist í Morg- unblaðinu í gær, um að ESB gæti komið í veg fyrir samein- ingu bandarísku stórfyrirtækj- anna Boeings og McDonnell Dou- glas. Guðlaugur sagði, að umrædd reglugerð um samruna fyrir- tækja ætti við í fyrsta lagi ef heildarvelta nýja, sameinaða fyr- irtækisins á ESB-markaði væri fimm miHjarðar ECU eða meiri, 415 milljarðar ísl. kr., og í öðru lagi ef heildarvelta einstakra fyr- irtækja í sameiningunni, tveggja eða fleiri, væri 250 milljónir ECU, tæplega 21 milljarður kr. Að þessum skilyrðum uppfyllt- um er litið á það hvort samein- ingin leiði til þess, að fyrirtækið nái markaðsráðandi stöðu eða styrki hann enn frekar. Guðlaug- ur sagði, að ESB hefði að sjálf- sögðu ekki lögsögu yfír fyrir- tækjum utan síns svæðis en gæti þó í raun komið í veg fyrir sameiningu þeirra ef þau ættu mjög mikilla hagsmuna að gæta á ESB-markaðinum. Það ætti áreiðanlega við um Boeing. ÁRLEGUR maraþonfundur sjávar- útvegsráðherra aðildarríkja Evr- ópusambandsins um kvótaúthlutun næsta árs hófst í Bmssel í gær. Sean Barrett, sjávarútvegsráð- herra írlands, sem er nú í forsæti ráðherraráðsins, hefur það hlutverk að reyna að miðla málum milli fram- kvæmdastjómar ESB, sem vill skera niður kvóta og vemda fisk- stofna, og ráð- herra aðildarríkj- anna, sem margir hverjir em undir miklum þrýstingi hagsmunaaðila í sjávarútvegi að beijast gegn niðurskurðinum. „Sjávarútvegsráð- herrafundurinn verður ein torfæra," sagði Barrett áður en fundurinn hófst. Deilt um endurúthlutun kvóta í Eystrasalti Að sögn embættismanna ESB verður einn harðasti slagurinn að öllum líkindum um kvóta í Eystra- salti, en veiðiheimildum þar verður endurúthlutað eftir að Svíþjóð og Finnland gengu í ESB og tvíhliða samningar þeirra um fiskveiðar við Eystrasaltsríkin féllu úr gildi. Dan- mörk, Þýzkaland og Finnland hafa mótmælt tillögum framkvæmda- stjórnarinnar um endurúthlutun fyrir næsta ár. Þá er búizt við deilum um sard- ínukvóta við Spán og Portúgal, tún- fískkvóta í Miðjarðarhafí og Atl- antshafi og sverðfiskkvóta í Atl- antshafi. Kvótatillögur fram- kvæmdastjómarinnar um þessa stofna eru byggðar á ráðgjöf Al- þjóðahafrann- sóknaráðsins. Gervihnatta- eftirlit samþykkt? Vonir standa til að aðildar- ríkjunum takist loks að ná sam- komulagi um gervihnattaeftirlit með fískiskipum, sem á að draga mjög úr misferli og ofveiði. Hins vegar er talið ólíklegt að ríkjunum takist að ná saman um nýja áætlun til fjögurra ára um samdrátt í stærð fískiskipaflotans. Tony Baldry, sjávarútvegsráð- herra Bretlands, ítrekaði enn einu sinni í gær að Bretland myndi ekki fallast á niðurskurð fiskiskipastóls- ins fyrr en tekið hefði verið fyrir „kvótahoppið" svokallaða, þ.e. kaup útlendinga á brezkum fískiskipum, sem leggja afla sinn upp í öðrum ríkjum ESB. EVROPA^. ÁÞREIFANLEGT YFIRBURÐA VERÐ! 1997 ATV 28" SJÓNVÖRPIN KOMIN Á FRÁBÆRU VERÐI 28" ATV Á AÐEINS KR. 59.900* *SUPER PLANAR BLACK LINE MYNDLAMPI *ÍSLENSKT TEXTAVARP *GÓÐIR HÁTALARAR AÐ FRAMAN *STEREO HEYRNARTÓLATENGI *FULLKOMIN GÓÐ FJÁRSTÝRING *ALLAR AÐGERÐIR Á SKJÁ *NICAM STEREO MAGNARI *SJÁLFVIRK STÖÐVALEITUN *S-VHS INNGANGUR *2 EURO SCART TENGI KOMIÐ OG TRYGGIÐ YKKUR ÞETTA FRÁBÆRA TÆKI FYRIR JÓLIN. ♦STAÐGREIÐSLUVERÐ —— RADÍÓBÆR VÍSA/EURO RAÐGREIÐSLUR ÁRMÚLA 38 SÍMI5531133 SCHENGEN-SAMNINGURINN □ □ E3 □ Aðildarriki Schengen Hafa skrifað undir Schi en taka ekki enn fullan Hafa gert samstarfs- samning við Schengen ESB-riki utan Schengen Norðurlönd und- irrita samninga við Schengen AÐILDARSAMNINGAR Dan- merkur, Svíþjóðar og Finnlands og samstarfssamningar íslands og Noregs við ríki Schengen-sam- komulagsins voru undirritaðir við athöfn í Lúxemborg í gær. Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra undirritaði samstarfssamninginn fyrir íslands hönd. „Þetta er stór stund í sögu Schengen," sagði Marc Fischbach, dómsmálaráðherra Lúxemborgar, sem fer með formennsku í Scheng- en-ráðinu. „Schengen-svæðið mun nú teygja sig allt frá austurianda- mærum Finnlands, vestur í Atl- antshaf og suður að Miðjarðar- hafi.“ Þorsteinn Pálsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að undirrit- unin markaði þáttaskil. „Það eru nokkur tímamót þegar þessi tvö svæði, Norðurlöndin og Schengen, sem hafa tryggt fijálsa för fólks án vegabréfa, eru sameinuð. Ég tel einnig að þetta samstarf eigi eftir að gagnast okkur mjög vel í lögreglusamvinnu. Það er enginn vafi á að alþjóðleg glæpastarfsemi kallar á samvinnu af þessu tagi. Við getum ekki staðið utangátta í því samstarfi. Sá hluti þessa sam- komulags mun verða okkur því þýðingarmeiri, sem tímar líða fram,“ sagði Þorsteinn. Hugað að kaupum á nýrri móðurtölvu Nú hefst staðfestingarferli samninganna. Meðal annars verða yfirburða hljómtæki BflDÍÓBÆR ÁRMÚLA 38 SÍMI5531133 þeir lagðir fyrir þjóðþing viðkom- andi ríkja. Áætlað er að aðildar- og samstarfssamningar norrænu ríkjanna taki gildi á árinu 1998. Framkvæmd ákvæða þeirra mun hins vegar frestast til 1999 eða 2000 vegna vandkvæða á að færa Schengen-upplýsingakerfið út til hinna nýju aðildarríkja. Ráðherrar Schengen-ríkjanna samþykktu í gær að láta hefja athugun á kaupum á nýrri móður- tölvu fyrir upplýsingakerfið. I kerfíð eru skráðar upplýsingar um hættulega eða eftirlýsta einstakl- inga, fólk sem hefur horfið og eftirlýsta hluti. Kerfið er talið nauðsynlegur þáttur í að efla löggæzlu og eftirlit á ytri landa- mærum Schengen-svæðisins, jafn- framt því sem vegabréfaeftirlit á innri landamærum aðildarríkjanna er afnumið. Þorsteinn segir að Norðurlöndin muni tengjast nýju móðurtölvunni og það muni taka talsverðan tíma að prófa kerfið áður en hægt verði að taka það í notkun og samn- ingurinn komi til framkvæmda. „Menn gera sér enn vonir um að það geti orðið einhvern tímann á árinu 1999, en þó er ekki ólíklegt að það dragist fram yfír það,“ segir hann. Ítalía færist nær fullri þátttöku Þrettán af fimmtán aðildarríkj- um Evrópusambandsins eiga nú aðild að Schengen. Ákvæði samn- ingsins um samræmt eftirlit á ytri landamærum og afnám eftirlits á innri landamærum hafa tekið gildi gagnvart Frakklandi, Þýzkalandi, Benelux-ríkjunum, Spáni og Port- úgal. Austurríki, Italía, Grikkland og norrænu aðildarríkin hafa skrifað undir en taka enn ekki fullan þátt í samstarfinu. Noregur og ísland eru einu ríkin utan ESB, sem hafa fengið aðgang að sam- starfinu. Ítalía steig á miðvikudag mikil- vægt skref í átt til fullrar þátttöku í Schengen með samþykkt laga um vernd persónuupplýsinga. Strangar reglur gilda um aðgang að þeim upplýsingum, sem skráðar eru í Schengen-upplýsingakerfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.