Morgunblaðið - 20.12.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 25
ERLENT
Irakar
hefja kaup
ámat
ÍRAKAR keyptu að minnsta
kosti 100.000 tonn af hveiti af
Frökkum í gær en það eru
fyrstu matvælin sem þeir
kaupa frá því að þeir fengu
leyfi Sameinuðu þjóðanna til
að selja olíu til kaupa á mat og
hjálpargögnum.
Mastroianni
látinn
MARCELLO Mastroianni, einn
þekktasti kvikmyndaleikari It-
alíu, lést í gær
á heimili sínu
í París, 72 ára
að aldri. Dán-
arorsök var
ekki gefin
upp en í ít-
ölskum fjöl-
miðlum var
fullyrt að leik-
arinn hefði
látist úr
krabbameini í brisi. Mastro-
ianni varð þekktastur fyrir leik
sinn í myndum Federicos Fel-
Iinis, þeirra á meðal „La Dolce
Vita“ (Hinu ljúfa lífi) og „Gin-
ger og Fred“.
Segja Rússa
hafa myrt
sendifulltrúa
STJÓRN aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjníju lýsti því yfir í gær
að menn í rússnesku öryggis-
sveitunum hefðu staðið að
fjöida morða í Tsjetsjníju, þar
á meðal morðunum á sex sendi-
fulltrúum Rauða krossins fyrr
í vikunni. Þá hefðu sveitirnar
myrt sex aldraða Tsjetsjena á
miðvikudag.
Færri blaða-
menn myrtir
AÐ minnsta kosti 29 blaða-
menn hafa verið myrtir á þessu
ári vegna starfa sinna, að sögn
samtakanna Blaðamenn án
landamæra. Eru það nokkuð
færri blaðamenn en undanfarin
ár og munar mestu um að ekki
féllu neinir blaðamenn í Bosníu
eða Rúanda. Alsír reyndist
hættulegasta landið, en átta
blaðamenn voru myrtir þar.
Seljið bílana
fyrir launum
LANDSSTJÓRINN í Austur-
Kazakhstan hefur hvatt for-
stjóra verksmiðja í héraðinu til
að selja bíla sína svo að hægt
verði að greiða starfsmönnum
þeirra laun. Ekki hafa forstjór-
arnir tekið vel í þessa málaleit-
an enn sem komið er.
Bardot sökuð
um kynþátta-
hatur
FRANSKA kvikmyndaleikkon-
an Brigitte Bardot, kom í gær
fyrir rétt í París, sökuð um að
ýta undir kynþáttahatur. Sam-
tök gegn kynþáttahatri, gyð-
ingahatri og fyrir friði höfðuðu
mál á hendur Bardot vegna
greinar sem hún ritaði í franskt
dagblað, þar sem hún sagði að
múslimar hefðu gert innrás í
Frakkland.
Mastroianni
Prestar í hóp
mótmælenda
í Grikklandi
KIRKJUNNAR menn bættust í
gær í hóp þeirra sem mótmæltu
efnahagsaðgerðum grísku
stjórnarinnar á götum Aþenu.
Bændur eru enn sem fyrr fjöl-
mennastir í hópi mótmælenda
en mótmæli þeirra hafa staðið
í 23 daga. Um 7.000 bændur
gengu um götur höfuðborgar-
innar í gær og bættust náms-
menn, prestar og bygginga-
verkamenn í hóp þeirra, sem
gengu með mótmælaspjöld að
þinghúsinu. Costas Simitis,
forstætisráðherra Grikklands,
ítrekaði í gær að hann myndi
ekki láta undan kröfum bænda
og annarra launþega, myndi
heldur segja af sér.
Filippía og Elsa sýna
"She herself is art"
Listaverkauppboð
Tolli. Eyjó. Móöi, Jón Bermann Kjartansson,
Haraldur Jónsson, Karl J. Jónsson, Hulda Hékon,
Jón Úskar, Birgir Andrésson, Porvaldur Porsteinsson,
Soffía Saemundsdóttir, Eiríkur Smith. Erla O. Gísladóttir.
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Bjami Sigurbjömsson.
Sigga Sigurjónsdóttir og Sigríöur Ásgeirsdóttir
Júlíus Kemp og Lars Emil
frumsýna stuttmynd
Móeiður Júníusdóttir
Stórhljómsveitin Skárr en ekkert
ásamt Ingvari Sigurðssyni
leikur fyrir dansi fram á rauðan morgun
Meistarakokkar Astro
sjá um veisluborð
Þossi sér um snúning á milli atniöa
Miðaverð: í forsölu kr. 2.990
við inngang kr. 3.300
Aldurstakmark 20. ára
Skylda að mseta í sínu flottasta dressi*
Kynnar kvöldsins eru hinir tekki)
heimsfrægu Þossi og Simmi
Húsið opnar kl 20.30 með
fordrykk í boði Smirnoff
n~t
ro
ö^fj^ínpsdlaiifQ
Æ^ÖGTlgSDTfQ
Helga Kristrún listakona færir
Koiaportið úr öskunni í eldheitan og
stórglæsilegan næturklúbb
Útsölustaðir:
Mál og menning, Laugavegi
cjón Indíafari, Kringlunni
Urbanía, Laugavegi
Jói og félagar, Skólavörðustíg.
Astro, Austurstræti
SHÍ
SÖSME