Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 33
Með gleðiraust
og helgum hljóm
TONLIST
llljómdiskar
FRÁ LJÓSANNA HÁSAL
Samkór Selfoss. Stjórnandi: Jón
Kristinn Cortez. Orgel: Dr. Pavel
Róbert Smid. Orgel Digraneskirkju
er frá orgelverkstæðinu Blikastöðum
í Mosfellsbæ, vígt 25. sept. 1994. Ein-
söngur: Garðar Thór Cortes, Krist-
jana Stefánsdóttir, María Mjöll Jóns-
dóttir, Soffia Stefánsdóttir. Hljóðrit-
að í Digraneskirkju í nóvember 1995.
Upptaka og hljóðvinnsla: Halldór
Víkingsson. Framleitt af Sonic,
London. Utgefandi: Samkór Selfoss
1995, SS-CD02.
ÞESSI ágæti hljómdiskur með
sígildum og fallegum jólasálmum
og lögum kom reyndar út um síð-
ustu jól og missti þarafleiðandi af
umsögn á jólamarkaði. Nú sýnast
mér síðustu forvöð að hafa snör
handtök og vekja athygli á honum,
en hann barst mér í hendur átta
dögum fyrir jól.
I raun og veru þarf ekki að
hafa mörg orð um hljómdiskinn,
söngskráin er tileinkuð jólunum
eins og komið hefur fram og söng-
ur kórsins er góður, sömuleiðis
einsöngvarar. Jón Kristinn Cortez
hefur stjórnað kórnum síðan 1986.
Verður ekki annað heyrt en hann
Englakvartett
frá Tjarnartröð
TÓNLIST
III j' ó m d i s k a r
TJARNARKVARTETTINN
Tjamarkvartettinn skipa: Rósa
Kristín Baldursdóttir sópran, Krist-
jana Amgrímsdóttir alt, Hjörleifur
Hjartarson tenór, Kristján Hjartar-
son bassi. Stjómandi er Rósa Kristín
Baldursdóttir. Upptökur fóm fram
í Dalvíkurkirkju 5.-8. okt. 1995.
Upptökur og eftirvinnsla: Hreinn
Valdimarsson. Listrænn ráðunautur:
Gerril Schuil. Útgefandi: Japis
JAP9535-2
ÞESSI einstaki kvartett er nú
mættur með jólalög, sem að vísu
voru hljóðrituð fyrir ári. Kvartettinn
hefur þann kost m.a. að hann batn-
ar með árunum og reynslunni og
var hann þó ágætur fyrir. Þessi
hljómdiskur inniheldur falleg og
„ekta“ jólalög úr ýmsum áttum,
byijar á gullfallegu lagi Jóns Ás-
geirssonar við texta Gunnars Dal (Á
jólanótt) og endar á enskum jólalög-
um. Við höfum hér íslensk þjóðlög
og þjóðkvæði í raddsetningu Róberts
A. Ottóssonar, Jóns Þórarinssonar
og Jóns Hlöðvers Áskelssonar, hinar
mestu gersemar, frönsk og pólsk
jólalög, og hér er Nóttin var sú ágæt
ein eftir þá höfðingjana Sigvalda
Kaldalóns og séra Einar Sigurðsson
frá Heydölum o.fl. Allt fallegt og
vandað í flutningi.
Frá rómantík
til nútímans
TONLIST
Hljómdiskar
CLARINET - PIANO -
SOPRANO
Rúnar Óskarsson (klarinett), Kees
Schul (píanó), Suze van Grootel
(sópran) Niels Wilhelm Gade: Fant-
as;v Pieces op 43, Gerald Finzi: Five
Bagatelles, Claude Debussy: Premi-
ere Rhapsodie pour Clarinette, Igor
Stravinsky: Three Pieces for Clari-
net Solo, Witold Lutoslawski: Dance
Preludes, Franz Schubert: Der Hirt
auf den Felsen. Hljóðritun og fram-
leiðsla: Reynir Thor Finnbogason,
Jos Vemeulen. Hljóðritað í Bach-
zaal, Amsterdam. ARSIS classics
(northem light) 96011.
RÚNAR Óskarsson klarinettu-
leikari útskrifaðist úr kennara- og
einleiksdeild Tónlistarskólans í
Reykjavík vorið 1993. Framhalds-
nám stundaði hann í Amsterdam,
þar sem hann hóf nám hjá George
Pieterson við Sweelinck Conservat-
orium og útskrifaðist þaðan með
einleikarapróf á þessu ári. Hann
sótti jafnframt tíma hjá Walther
Boeykens og bassaklarinetttíma
hjá Harry Sparnaay. Hann hefur
haldið tónleika víða í Evrópu og
leikið með kammersveitum og
hljómsveitum. Kees Schul er mjög
virkur í kammermúsik og heldur
reglulega tónleika, sem einleikari
og undirleikari, starfar mikið með
hljómsveitum Hollenska útvarpsins
og er fastur píanóleikari NOB -
salonensamble Capriccio. Að lok-
um verður að minnast á söngkon-
una Suze van Grootel - sem syng-
ur í verki Schuberts, en ljóðasöng-
ur og óratoríur eru mest á efnis-
skrá hennar, en þar má einnig
finna verk allt frá miðöldum til
nútímans. Hún hefur starfað með
píanóleikaranum Kees Schul síðar.
1988.
Þetta eru allt mjög góðir tónlist-
armenn, van Grootel er mjög fín
söngkona og hef ég sjaldan heyrt
Hirðinn á fjallinu (Schubert) betur
fluttan en hér í túlkun hennar og
Rúnars Óskarssonar, sem sannar
eftirminnilega á þessum hljómdiski
að hann er frábær klarinettuleikari.
Efnisskráin er fjölbreytt og
spannar ólíka tima, allt frá róman-
tík til Lutoslawskis. Rúnar virðist
jafn vel að sér í tónlistinni, hvort
sem hún er frá 19. öld eða þeirri
tuttugustu. Það kom mér á óvart
hvað Gade hljómar vel og sannfær-
andi í dag, enda var hann nú merki-
legasta tónskáld Dana á 19. öld-
inni. Satt að segja fannst mér verk
Stravinskys fyrir einleiksklarinettu
áhugaverðast (mjög vel leikið)
ásamt „dansprelodíum" Lut-
oslawskis, en auðvitað er Debussy
alltaf Debussy og Schubert Schu-
bert.
Oddur Björnsson
SJÓNVARP UM
GERVIHNÖTT
VERTU l-INN EIGIN DAGSKRÁRSTJÓRI
Einstakllngsbúnaður
1.2 mtr. diskur, DIGITAL Ready nemi, 0.7 dB.
Fullkominn stereo móttakari m/fjarstýringu og
truflanasíu fyrir veikar sendingar.
Verð frá kr. 39.900,- stgr.
Erum einnig með búnað fyrir raðhús og
fjölbýlishús á góðu verði
elnet
Auðbrekka 16, 200 Kópavogur • Sími 554 - 2727
hafi unnið gott starf með honum.
Jón hefur starfað við tónlistar-
kennslu síðan hann lauk kennara-
prófi við Tónlistarskólann í
Reykjavík 1973, m.a. verið kenn-
ari við Söngskólann í Reykjavík
frá stofnun.
Pavel Róbert Smid leikur undir
á orgel Digraneskirkju, sem er
falleg íslensk smíð frá orgelverk-
stæðinu Blikastöðum i Mosfellsbæ
og ber opustöluna 11. Björgvin
Tómasson, Karl Tómasson og Jó-
hann Hallur Jónsson önnuðust
smíðina, sá síðastnefndi sá um
smíði orgelhússins. Orgelið hljóm-
ar ágætlega svo langt sem það
nær, en of lítið reynir á það í þess-
um flutningi til að ræða um hljóm-
gæði.
Það er sumsé full ástæða til að
vekja athygli á þessum hljómdiski
sem inniheldur hið ágætasta jóla-
prógram.
Oddur Björnsson
Ég verð enn og aftur að lýsa
aðdáun minni á þessum kvartett,
sem er ekki aðeins skipaður miklu
hæfileikafólki á tónlistarsviðinu
heldur hefur hann haft vit á því að
leggja sig eftir vandaðri músik -
og vandasamri. Hann hefur m.ö.o.
sýnt listrænan metnað, sem varla
verður sagt um flesta kvartetta
áhugamanna gegnum tíðina og
hann hefur haft vit á að leita ráða
í listinni hjá hinum hæfasta manni,
Gerrit Schuil.
Ég vi! endurtaka að þetta er hið
ánægjulegasta jólaprógram, bæði
hvað snertir lagaval, smekklegt og
indælt, og góðan og fallegan flutn-
ing.
Upptaka Hreins Valdimarssonar
ágæt, einsog vænta má.
Jólagjafir - jólagjafir
Fyrir bútasaumskonuna höfum við
töskur fyrir verkfærin, barmnælur, bækur,
snið, efni, verkfæri og gjafabréf.
Irrú QótfiÉur
Suðurlandsbraut 20, sími. 553 3770.
Ljósbrigdi
Gjöf tilfagui'kera
U&SNM
Sasfeöfeii Iöhssoskv
GulLfalleg lúttaverkabók lun qjöf
Ájgrínu JónMonar LvttniáLara tiL úflenoka rík 'ufino.
Bókina prýða urn 200 myndir af verkum
Ájgrímo og eru fLeétar þeirra í lit.
LISTASAFN ÍSLANDS- SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Fríkirkjuvegi 7 simi 562 1000
Bókin fte<)teinnu) íöllum LseLtu bókaverAumim Reykjavíkur
Oddur Björnsson
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica og Kringlunni
Mikið og gott úrval af glæsilegum
og vönduðum skóm frá Lloyd
Tegund:Leroy
Tegund:Toby
LLOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN!
Athugið að við höfum margar tegundir af breiðum Lloyd skóm