Morgunblaðið - 20.12.1996, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 63
Jólahátíð
fjölskyld-
unnar hjá
KFUM og K
JÓLAHÁTÍÐ KFUM og K verður
í húsi félaganna að Holtavegi 28
sunnudaginn 22. desember.
Hefst hún kl. 17 með samveru
þar sem jólasagan verður lesin og
barnakór KFUM og K syngur
nokkur lög og sönghópur KFUK
sömuleiðis. Jólasálmar verða
sungnir og í lokin verður gengið
í kringum jólatré. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. Opið
hús verður frá kl. 16 þar sem
heitt kakó og piparkökur verða á
boðstólunum.
Sérstök hátíðarsamkoma verður
síðan sunnudaginn 29. desember
kl. 20. Þar mun Ragnheiður Haf-
stein syngja einsöng, kór KFUM
og K syngja nokkur lög og Gunn-
ar J. Gunnarsson hafa hugleið-
ingu.
FRÉTTIR
Skipulag Grafarholts á sýningu
OPNUÐ var á Kjarvalsstöðum
sýning, 17. desember sl., á 14
tillögum í hugmyndasamkeppni
um skipulag í Grafarholti sem
Reykjavíkurborg efndi til í júní
sl. í samvinnu við Arkitektafélag
íslands.
Markmiðið með samkeppninni
var að fá fram góðar hugmyndir
um íbúðabyggð á Grafarholti. Um
er að ræða nýtt landnám þar sem
nú er í fyrsta sinn skipulögð
byggð austan Vesturlandsvegar.
Það þótti því við hæfi að efna til
hugmyndasamkeppni um skipu-
lag þessarar nýju byggðar. Graf-
arholt er um margt afar sérstakt
og fallegt frá náttúrunnar hendi
við jaðar góðra og notalegra úti-
vistarsvæða sem borgarbúar nýta
sér í vaxandi mæli.
Dómnefnd skipuðu Guðrún Ág-
ústsdóttir, formaður skipulags- og
umferðarnefndar, sem var formað-
ur nefndarinnar, Ágústa Svein-
björnsdóttir, arkitekt FAÍ, Knútur
Jeppesen, arkitekt FAÍ, Jón Þór
Þorvaldsson, arkitekt FAÍ og
HÖFUNDAR fyrstuverðlaunatillögunnar, Hörður Harðarson
og Þorsteinn Helgason, ásamt formanni dómnefndar, Guðrúnu
Ágústdóttur.
Stefán Örn Stefánsson, arkitekt. veitt verðlaun. Sú nýbreytni var
Höfundum þriggja tillagna voru ákveðin í þessari samkeppni að
auk þess að veita höfundum til-
lagna sem lentu í 1., 2. og 3.
sæti peningaverðlaun eiga þeir
þess kost að útfæra nánar afmark-
aða hluta samkeppnissvæðisins á
þeim forsendum og hugmyndum
sem 1. verðlaunatillagan byggir á.
1. verðlaun hlutu arkitektarnir
Hörður Harðarson og Þorsteinn
Helgason, 2. verðlaun komu í hlut
Kanon arkitekta ehf., Halldóru
Bragadóttur, Helga B. Thoroddsen
og Þórðar Steingrímssonar og 3.
verðlaun fengu arkitektamir Guð-
mundur Gunnarsson og Sveinn
ívarsson.
Dómnefnd veitti Ólafi Þórðar-
syni viðurkenningu fyrir athyglis-
verða tillögu og loks fengu tvær
6 ára stúlkur sem tóku þátt í sam-
keppninni, Dagrún Aðalsteinsdótt-
ir og Sandra Yr Pálsdóttir, bóka-
gjafir í þakklætisskyni fyrir þátt-
tökuna enda þótt dómnefnd legði
ekki mat á tillögur þeirra.
Sýning tillagnanna á Kjarvals-
stöðum stendur til sunnudagsins
5. janúar nk.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skothylki í jólakökunum
Mengun frá Járnblendiverksmiðjunni
Hollustuvemd
kanní málið
KÖKUR eins og þær sem
skæruliðar notuðu til að smygla
vopnum og skotfærum inn í
bústað japanska sendiherrans
í Líma þykja sjálfsagður liður
í jólahaldi Perúmanna. Jóla-
kökur þessar eru þykkar og
þéttar, um eitt kíló að þyngd,
gerðar úr hveiti, þurrkuðum
ávöxtum, rúsínum, súkkati ofl.
Kökuna á myndinni keypti
Unnur Guðjónsdóttir í Líma í
Perú á dögunum. Að sögn
hennar var þær að finna í ann-
arri hverri verslun í borginni.
„Kassinn utan um kökuna er
með handfangi þannig að hana
Jólatón-
leikar
Bubba
Morthens
BUBBI Morthens heldur sína
árlegu jólatónleika á Hótel
Borg mánudaginn 23. desem-
ber kl. 23.
Á tónleikunum flytur
Bubbi lög af nýju plötunni
Allar áttir auk þess að lesa
upp ljóð úr nýju hljóðbókinni
í bland við lög af fyrri piötum
sínum. Með Bubba á tónleik-
unum spilar Jakob Smári
Magnússon á bassa.
Tónleikarnir hefjast kl. 23
og er forsala miða hafin á
Hótel Borg og í Skífubúðun-
um.
má bera eins og tösku. Skæru-
liðunum hefur því vafalaust
þótt tilvalið að nýta þær i því
skyni að koma vopnum og skot-
færum inn í bygginguna,“ sagði
Unnur.
Hún kvaðst ekki hafa gengið
úr skugga um hvort kakan
hennar reyndist innihalda skot-
færabúr en sagðist vökva hana
reglulega með portvíni til að
koma í veg fyrir ofþornun. Kök-
una ætlar Unnur síðan að skera
á aðfangadagskvöld. „Ef hún
reynist innihalda skothylki
geymi ég hana kannski fram á
gamlárskvöld."
SAMSTAÐA um óháð ísland hef-
ur sent frá sér ályktun þar sem
mótmælt er þeirri áráttu íslenskra
stjórnvalda að tengja ísland stöð-
ugt sterkari böndum Evrópusam-
bandinu, eins og segir orðrétt.
Er ályktunin birt í tilefni af því
að ísland hefur áritað Schengen-
samkomulagið, sem fjallar um
afnám vegabréfaeftirlits millum
þeirra aðildarlanda Evrópusam-
bandsins sem hafa ákveðið að
gerast aðilar að samningnum, auk
Islands og Noregs.
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra hefur ákveðið að
óska eftir því við Hollustuvernd
ríkisins að hún kanni hvort Járn-
blendiverksmiðjan á Grundar-
tanga hafi brotið reglur um meng-
unarvarnir. Hann sagði að í þess-
ari beiðni fælist enginn áfellisdóm-
ur yfir verksmiðjunni. Það væri
eðlilegt að kröfu íbúa Kjósar-
hrepps yrði svarað.
Guðmundur sagði að umhverfis-
ráðuneytinu hefði ekki borist
formlegt erindi frá íbúum Kjósar-
hrepps, en þeir hafa samþykkt
ályktun þar sem krafíst er rann-
sóknar á starfsemi Járnblendi-
verksmiðjunnar. Hann hefði hins
vegar heyrt gagnrýni íbúanna í
gegnum fjölmiðla og tæki hana
að sjálfsögðu til skoðunar.
„Það er auðvitað sjálfgefið að
við munum kanna þetta. Ég mun
biðja Hollustuvernd ríkisins um
upplýsingar um málið og hvort
þarna er eitthvað á ferðinni sem
þarf að bregðast við.“
Guðmundur sagði að hann sæi
ekki ástæðu til að bregðast við
Með afnámi vegabréfaeftirlits er
í raun lagður grunnur að Evrópu
án landamæra. Um leið verður
sjálfkrafa slakað á ýmsum kröfum
sem áður hafa verið gerðar m.a. í
því skyni að hefta flæði eiturlyfja
og ólöglegs varnings millum landa,
segir í ályktuninni.
„Það er sérkennilegt að Scheng-
en-samningurinn hefur enn ekki
verið þýddur á íslensku og almenn-
ingur hefur því ekki haft tök á að
kynna sér samninginn. Fjölmargir
fræðimenn, sem hafa fjallað um
gagnrýni íbúa Kjósarhrepps á
frekari uppbyggingu stóriðju á
Grundartanga. Afstaða umhverf-
isráðuneytisins til stóriðju á
Grundartanga kæmi fram í úr-
skurði um umhverfismat vegna
svæðisins. Hann benti einungis á
að fyrir tuttugu árum hefði verið
tekin ákvörðun um að staðsetja
stóriðju á Grundartanga. Stjórn-
völd myndu að sjálfsögðu skoða
alla þætti málsins vandlega áður
en ákvörðun yrði tekin um að reisa
þar fleiri verksmiðjur.
------»■ ♦ ♦----
■ INNANLANDSDEILD Úr-
vals-Útsýnar hefur á undanförn-
um árum sent jólakort til við-
skiptavina sinna jafnt erlendis sem
hérlendis. í ár hefur Innanlands-
deildin ákveðið að veita Mæðra-
styrksnefnd andvirði jólakort-
anna og sendir því engin jólakort
þessi jól. Áætlað er að Innanlands-
deildin hafi sent 750 kort síðastlið-
ið ár og því er gjöfin að upphæð
75.000 kr.
Schengen-samninginn, eru sam-
mála um að hann feli í sér óæski-
legt framsal réttinda þjóðríkja til
þess að gera gagnkvæma samn-
inga við önnur ríki. Þá virðast
ýmsir hliðarsamningar, sem gerðir
eru í tengslum við Schengen-samn-
inginn, ekki þola dagsins ljós.
Þannig fékk þjóðþing Frakklands
ekki upplýsingar um ýmis málefni
sem samið var um vegna sam-
skipta frönsku leyniþjónustunnar
við hliðstæðar stofnanir í öðrum
Schengen-löndum," segir orðrétt.
Fjármálaráðuneyti
Dómur hefur
ekki víðtæk-
ara gildi
BIRGIR Guðjónsson, forstöðumaður
starfsmannaskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins, segir að ráðuneytið hafni
því að úrskurður héraðsdóms um að
starfsmaður Hollustuverndar ríkisins
skuli fá greiðslur fyrir yfirvinnu í
vinnuferð hafi víðtækara gildi.
Reglur um að ekki sé greitt fyrir
yfirvinnu á ferðatíma séu í fullu gildi
og stofnanir ríkisins eigi að kynna
starfsmönnum sínum þær.
I Morgunblaðinu í gær var haft
eftir formanni Bandalags háskóla-
manna að það komi honum á óvart
að íjármálaráðuneytið hyggist ekki
greiða starfsfólki ráðuneyta og rík-
isstofnana fyrir yfirvinnu á ferðum
í útlöndum í kjölfar úrskurðar hér-
aðsdóms, og BHM líti svo á að um
launaskerðingu sé að ræða.
„Við erum á öndverðum meiði.
Dómurinn tekur á ákveðnu tilviki,
og það segir í dómnum að starfs-
manninum hafi ekki verið svo nægj-
anlega sé sannað verið gerð grein
fyrir því að það kæmi ekki til greiðslu
yfirvinnu á ferðatímanum, og að
reglur og túlkanir sem þá lágu fyrir
frá þessari skrifstofu, en það var
beinlínis leitað eftir þeim af þessari
stofnun fyrir nokkrum árum, hafi
ekki svo sannanlegt sé verið kynntar
manninum og þess vegna er þessi
niðurstaða. Við andmælum ekki
þessum dómi í þessu tilviki, en við
höfnum því að hann hafí eitthvert
víðtækara gildi,“ sagði Birgir.
Oboðinn
gestur inni
á gólfi
ÞEGAR íbúi í húsi í austurborginni
rumskaði snemma á miðvikudags-
morgun var óboðinn gestur með
kúbein í hönd í svefnherberginu.
Þegar íbúinn vaknaði kom styggð
að manninum og hljóp hann út. í
ljós kom að hann hafði spennt upp
garðhurð, en ekki náð að stela neinu.
-----» ♦.»----
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
FÖÐURNAFN dr. Björns Sigur-
björnssonar ráðuneytisstjóra í land-
búnaðarráðuneytinu misritaðist í
myndartexta á bls. 2 í gær og er
beðist velvirðingar á því.
A
Samstaða um óháð Island
Undirritun Schengen sam-
komulagsins mótmælt