Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ahugaleysi
Frá Ólafi Jóhannessyni:
ÞAÐ er ýmislegt miður gott sem
gengur á í þessu samfélagi. Fyrir
utan atvinnuleysið, ríkisstjórnina
og eðlilega spillingu er skortur á
meðvitund algengur kvilli í kerfis-
flórunni.
Undirritaður rak augun í próf-
skrá 10. bekkjar í grunnskólanum
við Hólabrekku og þar mátti hæg-
lega greina eitthvert hugsunar-
leysi eða mistök við uppröðun á
prófum. Þegar ég gekk úr skugga
um að þetta voru ekki mistök skildi
ég ekki þá skipulagssnilli að raða
tveimur prófum á sama dag og
síðan tvo daga í röð, þ.e. ef heil-
brigður námsárangur á að vera
niðurstaðan. Það er ágætt að gefa
grunnskólanemum á síðasta ári
forsmekk af prófkvíða, en hann
væri eflaust nægur ef það væri
eitt próf á dag.
Ég komst einnig yfir próftöflu
frá skólanum fyrir 9. bekk sl. vor
og þar er prófum raðað eftir sama
skipulagi utan því síðasta, þar sem
táningarnir fengu 5 daga til undir-
búnings. Prófið sem fórnarlömbin
fengu 5 daga til að undirbúa sig
fyrir var stafsetning, ég endurtek
stafsetning. Vissulega þurfa erf-
ingjar landsins að vera skrifandi
og er gott að forvígismönnum
grunnskólakerfisins er það svo
hjartfólgið, að þeir hendi stærð-
fræði og öðrum fræðum i eina
hrúgu og geri stafsetningunni hátt
undir höfð. En það er engin staf-
setning í jólaprófum 10. bekkjar.
Af hverju er engin stafsetning í
jólaprófunum?
Föstudagur 13. des.
Föstudagur 13. des.
Mánudagur 16. des
Mánudagur 16. des
Þriðjudagur 17. des.
Þriðjudagur 17. des.
Miðvikud. 18. des.
enska
líffræði
íslenska
félagsfræði
danska
landafræði
stærðfræði
Ekki veit ég hvernig prófskrár
eru í öðrum grunnskólum í Reykja-
vík, en taflan hjá Hólabrekkuskóla
gefur til kynna að kennarar þurfi
að endurskoða próftöflur og af-
stöðu sína til þeirra. Ef einhver
kennari ætlar að svara þessu bréfi
og útskýra þennan svefngengils-
hátt vil ég biðja hann eða hana
að koma með dýpri útskýringar
en „þetta er bara svona“ / ,ja,
svona er nú kerfið ..."
Kennarar, þið tilheyrið einni
vanmetnustu starfsgrein í þessu
landi, berið höfuðið hátt en hafið
grimmt eftirlit með kjánaskap líkt
og þessum.
ÓLAFUR JÓHANNESSON,
Austurbergi 2, Reykjavík.
Eg mótmæli
Frá Alberti Jensen:
TIL hollustuvemdar ríkisins! Ég mót-
mæli því að álver sé byggt við Hval-
íjörð. Rök fyrir því eru í aðalatriðum
þessi: Við fáum lítið fyrir mikið. í
náinni framtíð verður Hvalfjarðar-
svæði eftirsótt til búsetu. Ef á annað
borð verður ekki komist hjá að byggja
svo óþjóðhagslegt óþrifafyrirtæki sem
fóma þarf landi, heilbrigði og ferða-
mannaiðnaði fyrir, þá setjið það í
vatnsleysuna, þar sem ríkið hefur
þegar keypt rándýrt svæði undir land-
og loftspillisafglöp slík.
Allar arðsemisspár fram í tímann
mæla með óspilltu landi og mengun-
arlausu.
Að öðru leyti vísa ég í ágæta grein
Arnórs Hannibalssonar í Morgun-
blaðinu 11. desember.
Virðingarfýllst,
ALBERTJENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
CYCLO JET
Blástursofninn
Með hraða örbylgjuofnsins
og eiginleika blástursofnsins
Steikir, bakar, brúnar,
hitar, grillar.
&
Alþjóða
Verslunarfélagið ehf
Skipholt 5,105 Reykjavík -
S: 511-4100
Jólagjafír fyrír bútasaumskonur:
Bútapakkar, bækur,
snið, verkfæri,
gjafabréf og fleira.
CWIRKA
, ' . Mörkin 3, sími 568 7477
í jólapakkann
Silki herra- og dömunáttfóty
kínajakkar og kínakjólar
og fallegar gjafavörur
á mjög góðu verði.
AööS>a skrautmunir
Hverfisgötu 37,
Opið kl. 10-22 alla helgina
Stefáni Sæmundssyni svarað
Frá Þórði E. Halldórssyni:
HINN 1. desember sl. birtist grein
er ég nefndi Reykjavíkurflugvöll
burt. Hinn 5. des. telur Stefán
Sæmundsson flugmaður sér skylt
að andmæla grein minni, á þeim
forsendum að ég og fleiri sem mót-
mæla tilveru vallarins gangi með
einhverja sálarkreppu. Hann velur
grein sinni nafnið „Sálræn umfjöll-
un um Reykjavíkurflugvöll". Það
undirstrikar hann með því að segja:
„Óþarft er að rekja þær sálrænu
tilfinningar sem tengst hafa um-
ræðu um flugvöllinn, en sú umræða
hefur ekki farið framhjá neinum."
Það heyrir til undantekninga að
menn viðurkenni veikleika sinn, en
það gerir Stefán svo sannarlega
með ummælum sínum um grein
mína. Hann gerir ekki minnstu til-
raun til að afsanna það sem ég hef
sagt um flugvöllinn, ástand hans
og frumlegheit við frumbyggingu.
Hann kýs að beina spjótum sínum
að okkur sem teljum óheppilegt að
eyða ómældum fjármunum í endur-
byggingu vallarins og velur okkur
einhvern sálarkreppustimpil. Ja,
hvílíkt ofurmenni.
Þar sem þú virðist, Stefán, vel
að þér í sálrænum efnum væri ekki
úr vegi að ætlast til þess að þú
gæfir skýringu á því hvers vegna
Bretarnir völdu þennan forarpoll í
Vatnsmýri til byggingar flugvallar,
einnig byggingar herbragga hvar
sem hægt var að byggja þá á borg-
arsvæðinu. Hvers vegna byggðu
þeir ekki flugvöllinn á Alftanesi eða
einhvers staðar fjær þéttbýli?
Ég held að því sé fljótsvarað.
Ástæðan var einföld, þeir töldu lífi
sínu og limum betur borgið í skjóli
þess að Þjóðveijar mundu hlífa
Reykjavík við loftárásum.
Stefán og sálufélagar hans geta
nú kokhraustir slegið um sig og
sagt: Okkar er sigurinn. „Niður-
staða fengin í málinu, völlurinn
verður endumýjaður, þótt dýrt sé,
enda ljóst að allar aðrar lausnir á
flugsamgöngum Reykjavíkur eru
mun dýrari en sú sem endanlega
var valin.“ Ennfremur segir Stefán;
„Það sem eftir stendur óhaggað er
flughræðsla sem hijáir nokkra íbúa
borgarinnar.“
Þær kostnaðarhugmyndir um
endurbyggingu Reykjavíkurflug-
vallar, sem Stefán segir ódýrari en
allan annan kost, eru settar fram
af algjöru þekkingarleysi og ósk-
hyggju.
Það vitrænasta sem ég hef séð
í þessari umræðu er grein Kristjáns
Pálssonar alþingismanns í Morgun-
blaðinu frá 20. nóvember sl. Tvö-
földun Reykjanesbrautar verður
verkefni vegagerðar væntanlega
um næstu aldamót, hvort sem það
þjónar flugi eða ekki. Með tvöfaldri
Reykjanesbraut, sem notuð yrði til
aksturs suður eftir og lögð yrði á
hrauni mest alla leið á besta jarð-
vegi sem er næstum óslitið hraun,
og 110 km leyfilegum ökuhraða
tæki ekki nema 20 mínútur að aka f
milli Mjóddar í Reykjavík og Leifs-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli. Þann
ökuhraða væri hægt að lögbinda
án þess að hann sé lögleiddur ann-
ars staðar.
Ég ber það traust til alþingis-
manna að þeir vitkist og sjái að
framtíðin í þessum málum getur
ekki orðið sú að endurbyggja flug-
völl í mýrarfeninu í Vatnsmýri. Eins
og Kristján Pálsson bendir réttilega
á er ekkert vit í því að ætla sér að
reka tvo stóra flugvelli í Reykjavík
og Keflavík þegar Bandaríkjamenn
skila Keflavíkurflugvelli, sem alltaf
getur gerst án langs fyrirvara. Út
af skrifum Stefáns Sæmundssonar
flugmanns vil ég að lokum segja
þetta: Það hlýtur að vera mikið djúp
staðfest á milli hans sem veifar
flugskírteini og mín sem enga papp-
íra hef uppá vasann. Hitt verð ég
þó að draga í efa að hann hafi lent
á rúmlega 150 (eitt hundrað og
fimmtíu) flugvöllum um allan hnött-
inn eins og undirritaður án flugskír-
teinis en með opin augu.
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Ilmvatnið hennar er komið aftur
>
4
D O M
/\ M
ásamt úrvali
g I æ silegra
ssa
J ólagj öfi n í ár