Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 76

Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 76
JíeWii£d -setur brag á sérhvern dag! HEIMILISLÍNAN - Heildarlausn áfjánnálum einstaklinga (Æ) BÚNAÐARBANKI ÍSIANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sjö manns handteknir í Reykjavík Lagt hald á kókaín og amfet- amín eftir húsleit LÖGREGLAN í Reykjavík hand- tók sjö manns á aldrinum nítján ára til þrjátíu og eins árs í gær vegna fíkniefnamisferlis, þar af þijár konur. Fólkið var handtekið í kjölfar þess að farið var í hús skammt frá miðbænum þar sem grunur lék á að fíkniefni væru höfð um hönd. Meira amfetamín fannst Grunur lögreglu reyndist á rök- um reistur því að á staðnum fund- ust 5,6 grömm af kókaíni, átta E-töflur og tæpt gramm af amfet- amíni sem lagt var hald á. í kjölfar yfirheyrslna yfir fólk- inu var gerð húsleit hjá einum Marel sækir um lóð í Garðabæ MAREL HF. hefur fyrir nokkru sótt um lóð fyrir u.þ.b. 10.000 fermetra verksmiðjuhúsnæði í nýju iðnaðar- hverfí í Molduhrauni við Reykjanes- braut. Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að bæj- aryfirvöld hafí verið í viðræðum við Marel og allar meginlínur séu skýr- ar. „Það er bara eftir að ganga frá samningi um lóðina og það verður væntanlega gert öðru hvoru megin við áramótin," segir Ingimundur. Mannbjörg þegar kvikn- aði í trillu Ólafsvík. Morgunblaðið. MANNBJÖRG varð þegar eldur kom upp í vélarrúmi Snarfara SH- 236, sem er fimm tonna þil- farsbátur frá Olafsvík, um ellefu- leytið í gærmorgun. Tveir skipverjar voru á Snar- fara og voru þeir að veiðum u.þ.b. sex sjómílur norður af Ól- afsvík þegar eldurinn kom upp. Þeir skutu upp neyðarblysi og kom Fanney SH-248 til hjálpar eftir stutta stund. Höfðu skip- verjar á Snarfara þá þegar sett út gúmbjörgunarbát en eldurinn var svo mikill að við lá að kvikn- aði í gúmbátnum. Skipveijar á Fanneyju hjálpuðu til við að Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum Á EFRI myndinni koma slökkviliðsmenn um borð í Snarfara er báturinn var kominn að bryggju. Á þeirri neðri er Fanney með trilluna slökkva eldinn ogtóku siðan Snarfara í tog til Ólafsvíkur. Að sögn Arnars Þórs Ragnars- sonar, skipstjóra á Snarfara, í togi. virðist sem spíssarör hafi farið í sundur og olía farið á eldgrein vélarinnar, með þeim afleiðing- um að kviknaði í. BIUG N AKRÆKIR ©Leenderl DAGAR TIL JOLA Tæki til kókainneyslu. þeirra manna sem handteknir voru og þar var lagt hald á 10,5 grömm af amfetamíni til viðbótar, auk kannabisfræja. Málið er talið upplýst að mestu og er búið að láta viðkomandi lausa úr haldi, samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu. Skattleysismörk lækka og skatthlutfall stefnir í 41,99% LJÓST verður í dag hvert inn- heimtuhlutfall staðgreiðsluskatts verður á næsta ári en fjármálaráðu- neytið reiknar nú með að skattapró- sentan á næsta ári gæti hækkað í allt að 41,99%. Lokafrestur sveitar- félaga til að tilkynna ákvörðun út- svars rennur út fyrir hádegi í dag. Hækkun útsvars mun þýða lækk- un skattleysismarka þar sem ákveð- ið hefur verið að halda persónu- afslætti óbreyttum milli ára. Barna- bætur, barnabótaauki, sjómanna- afsláttur og vaxtabætur hækka heldur ekki um áramótin í samræmi við verðlagshækkanir en fjármála- ráðherra segir að skattar verði lækkaðir á næsta ári, þegar niður- stöður svokallaðrar jaðarskatts- nefndar liggja fyrir og lækkunin muni einkum verða hjá bamafólki og öðrum sem jaðaráhrif skattkerfís- ins snerta helst. Tekjuskattshlutfall lækkar á næsta ári úr 33,15% í 30,41% en hámarksútsvar sveitarfélaga hefur verið hækkað úr 9,2% í 11,99%. Hækkun þess um 0,05 prósentustig umfram lækkun tekjuskattshlut- falls er m.a. rakin til óvissu í kostn- aðarútreikningum vegna flutnings grunnskólans. 63% af staðgreiðslunni til sveitarfélaga og 37% til ríkisins Fjármálaráðuneytið áætlar að á næsta ári muni útsvar sveitarfélaga skila um 29 milljörðum kr. og tekju- skattur einstaklinga skila ríkinu um 16,8 milljörðum kr. nettó. Þannig muni 63% teknanna renna til sveit- arfélaga en 37% til ríkisins. Áætlað er að staðgreiðslan skili samtals um 54 milljörðum kr. en 8,2 milljarðar verða að óbreyttu endurgreiddir í ýmsum bótum til einstaklinga. ■ Fyrirséð að/4 Eldgleypir ræsti út slökkvilið BRUNABOÐAR i húsnæði unglingageðdeildarinnar við Dalbraut fóru í gang í vikunni og hraðaði slökkviliðið sér á vettvang. Þegar slökkviliðið birtist á deildinni sátu unglingar þar hinir rólegustu og nutu sýning- ar eldgleypis, en kyndill hans hafði sett brunaboðana í gang. Yfirmaður landbúnaðar- og matvælastofnunar Þýskalands GUNTER Drexelius, yfirmaður landbúnaðar- og matvælastofnun- ar Þýskalands, segir að niðurstaða máls þess, sem útgerðarfyrirtækið Mecklenburger Hochseefischerei, dótturfyrirtæki Útgerðarfélags Akureyringa, höfðaði á hendur stofnuninni vegna skiptingar kvóta þessa árs, breyti í raun engu um forsendur þess hvernig kvótanum var skipt. Einungis sé að því fundið að skiptingin hafi ekki verið nægilega rökstudd. Drexelius, sem hefur yfirumsjón með skiptingu kvótans, sagði að meðferð stjórnsýsluréttar- ins á þessu máli myndi engu breyta um kvótaskiptingu fyrir næsta ár. Morgunblaðinu hefur borist yfir- lýsing frá útgerðarfélaginu DFFU Dómsniðurstaða breytir engu um kvótaskipti í Þýskalandi og Samheija, sem á meirihluta í DFFU, þar sem lýst er furðu á að kærunni í þessu máli hafi aðeins verið beint gegn einu fyrirtæki og eru bæjaryfirvöld á Akureyri gagnrýnd harðlega fyrir að hafa ekki sinnt þessu máli en Akureyrarbær var meirihlutaeig- andi í ÚA á þeim tíma sem máls- meðferðin stóð yfir. „Eigendur Samheija telja fram- ferði meirihluta bæjarstjórnar Ak- ureyrar, stjórnar MHF og ÚA sem og framkvæmdastjóra MHF, með ólíkindum í þessu máli. Hlutur bæj- aryfirvalda í að skaða starfsemi þessara fyrirtækja á erlendri grund er forkastanlegur," segir í yfírlýs- ingunni. Ekki úrskurður heldur samkomulag Mathias Roggentin, dómari við stjórnsýsludómstólinn í Hamborg, sem fékk kæruna til meðferðar, sagði í gær að ekki hefði verið um úrskurð að ræða í málinu, heldur hefðu málsaðilar komist að sam- komulagi eftir langar viðræður á miðvikudag. ■ Þurfum aðeins/12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.