Morgunblaðið - 08.01.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.01.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ r Engin fátækt — Um áramótin talaði forsæt- isráðherra líka til þjóðar sinnar og hafði þá ýmislegt að segja henni. BÉVAÐURfjölmiðlaáróður, það er ekkiað finnasvo mikið sem einasúpuskál álofti . . . Forval auglýst vegna framkvæmda á vegum varnarliðsins Áætlaður kostnaður um 470 millj. kr. UMSÝSLUSTOFNUN varnar- mála, sala varnariiðseigna, hefur auglýst forval fyrir hönd varnar- liðsins á Keflavíkurfiugvelli vegna væntanlegs útboðs á tveimur verk- efnum. Um er að ræða byggingu þjónustuhúss fyrir kafbátaleitar- vélar varnarliðsins og endurnýjun biðhlaða fyrir flugvélar á Keflavík- urflugvelli. Áætlaðar kostnaður verkanna er á biiinu 6,5 til 7 millj- ónir Bandaríkjadollara, um 435 til 469 milljónir íslenskra króna. Ráð- gert er að framkvæmdir hefjist í vor. Verkefnin eru bæði fjármögnuð af Mannvirkjasjóði NATO. Stærra verkefnið felur í sér byggingu þjón- ustuhúss auk tveggja byrgja, þar sem fram á að fara fram viðhald og ýmiss búnaður fyrir kafbátaleit- arvéiar verður geymdur. Verkefnið felur jafnframt í sér uppsetningu nýrra vélbúnaðarkerfa og rafkerfa, lagninu vegar, bflastæða, lagna, uppsetningu girðinga og öryggis- ljósa. Áætlaður kostnaður er 6 miiljónir Bandaríkjadollara og verktími tvö ár. Verkið verður boð- ið út í öllum ríkjum NATO. Smærra verkið aðeins boðið út á íslandi Smærra verkið felst í endurgerð fjögurra biðhlaða fyrir flugvélar, samtals 6.750 fermetrar að stærð. Áætlaður kostnaður við verkið er hálf tii ein milljón Bandaríkja- dollarar. Það verður aðeins boðið út innanlands. Útboði vegna smærra verk- efnisins á að vera lokið fyrir iok febrúar en í mars-apríl vegna stærra verkefnisins. í fyrra var boðin út endurbygg- ing flugskýlis fyrir kafbátaleitar- vélar varnarliðsins. ístak hreppti verkið en áætlaður kostnaður við það er 20-22 milljónir Bandaríkja- dollara. Tilboð ístaks hljóðaði upp á 16,9 milljónir Bandaríkjadoll- ara. Verkið var boðið út í öllum ríkjum NATO og var níu erlendum fyrirtækjum, sem tilnefnd voru af ríkisstjórnum sinna landa, gef- inn kostur á því að bjóða í verk- ið. Þegar upp var staðið buðu ein- ungis þijú íslensk fyrirtæki í verk- ið. Elsta konan í Reykjavík 103 áraí dag ELSTA konan í Reykjavík Val- fríður Guðmundsdóttir frá Heimaskaga á Akranesi verður 103 ára í dag, miðvikudaginn 8. janúar. Hún hefur búið á Droplaugarstöðum í Reykjavík undanfarin fjögur ár, en til gamans má geta þess að þar býr einnig elsti Reykvíkingur- inn, Þórður Kristleifsson, en hann er 104 ára gamall. Valfríður er dóttir hjónanna Guðmundar Árnasonar, út- vegsbónda á Hóli á Akranesi, og Sigurrósar Gunnlaugsdótt- ur húsmóður. Valfríður ólst upp á Heimaskaga hjá föður- bróður sínum, Jóni Árnasyni skipstjóra, og eiginkonu hans Helgu Jóhannesdóttur húsmóð- ur. Valfríður giftist Jóni Guð- mundssyni útgerðarmanni frá Eyri í Ingólfsfirði árið 1920, en hann lést árið 1983. Þau eignuð- ust eina dóttur, Guðrúnu Möll- er, og á hún tvö börn. Valfríði sem á þijár dætur og Jón sem á tvo syni. Valfríður bjó öll sín fullorð- insár í Reykjavík. Á árum áður starfaði hún með Sjálfstæðis- kvennafélaginu Hvöt og kvennadeild Slysavarnafélags íslands. Valfríður mun ekki halda upp á afmæli sitt í dag sökum veikinda. VALFRÍÐUR Guðmundsdótt- ir er elsta konan í Reykjavík. Breytingar á starfsemi Hjartaverndar Einbeiting að rannsóknastarfi SKÖMMU fyrir jói var gengið frá nýjum þjónustusamningi ríkisins við Hjartavernd, sem gekk í gildi nú um ára- mótin. Samningurinn felur í sér breytt samskiptaform heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins og Hjartaverndar, þar sem nú er ítarlega skilgreint hvaða þjónustu Hjartavernd býður upp á og um leið er fyrir- fram skilgreint hvaða þjón- ustu ráðuneytið greiðir fyrir hjá Hjartavernd. Nikulás Sigfússon, yfir- iæknir á Rannsóknarstofu Hjartaverndar, var fenginn til að útskýra nánar hvað í þessum breytingum fælist. „Starfsemin hjá okkur 4 Rannsóknarstöðinni hefur verið tvenns konar. Annars vegar höfum við verið með í gangi vís- indarannsóknir á tilteknum hóp- um sem hafa verið valdir út úr þjóðfélaginu. Það er fólk sem hef- ur verið boðið að koma hingað til skoðunar og borgar ekki neitt fyrir það. Hins vegar hefur einnig verið möguleiki fyrir aðra, sem ekki eru í þessum útvöldu hópum, að koma og fá sams konar skoðun hérna, að eigin frumkvæði eða með tilvís- un frá lækni. Þessi hópur greiðir fyrir sína skoðun eins og fyrir hverja aðra sérfræðingsskoðun. Þessar greiðslur hafa verið nýttar til reksturs stöðvarinnar, þ.e.a.s. runnið til rannsóknastarfanna sjálfra." - Hversu margir hafa nýtt sér þessa þjónustu? „Það er talsverður hópur sem hefur ieitað til okkar svona á hveiju ári, um það bil 2.000 manns. Fyrir þessar skoðanir hefur verið greitt af Trygginga- stofnun ríkisins. Sú upphæð hef- ur að sjálfsögðu sveiflazt svolítið til frá ári til árs, eftir því hve margir hafa leitað á þennan hátt til okkar. Með nýja þjónustusamningnum verður sú breyting á, að þessi starfsemi, sem veitt hefur verið hveijum sem er, verður smám saman lögð niður, þannig að árið 2000 verði henni alveg hætt. í staðinn munum við auka hinar vísindalegu hóprannsóknir okkar í sama mæli. Frá og með þessum áramótum hættir Tryggingastofnun að greiða fyrir þetta fólk sem leitað hefur hingað sjálft og ráðuneytið borgar í staðinn samsvarandi upp- hæð þeirri sem við hefðum fengið frá Tryggingastofnun að óbreyttu. Það er því ekki verið að setja neina viðbótarpeninga í starfsem- ina; við fáum sömu upphæð og áætlað var að við myndum fá. En hugmyndin er sú að hætta skoðunum á fólki sem leitar hing- að sjálft og auka vísindalegar rannsóknir í staðinn. _________ Féð sem við fengum frá Tryggingastofnun áður en fáum nú frá ráðu- neytinu verður notað í vísindaiegar rannsókn- “ ir á sviði hjarta- og æðasjúk- dóma.“ - Hverju breytir þetta fyrir rekstur Rannsóknastöðvarinnar? „Það sem er jákvætt við þessa breytingu fyrir okkur er það, að við öðlumst þar með öruggari tekjustofn. Nú verður ijárhags- legur grundvöllur rannsókna- stöðvarinnar tryggður með fastri upphæð sem við fáum á hveiju ári. Þetta auðveldar okkur til Nikulás Sigfússon ► Nikulás Sigfússon er fæddur 1. apríl árið 1929 á Þórunúpi í Hvolshreppi á Rangárvöllum. Hann varð stúdent frá MR 1950 og útskrifaðist úr læknadeild HI árið 1958. Á árunum 1960- 1967 Iagði Nikulás stund á sérnám í faraldsfræði og lyf- læknisfræði í Svíþjóð. Eftir heimkomuna hóf hann störf við Rannsóknastöð Hjartaverndar, þar sem hann starfar enn i dag. Frá árinu 1973 hefur hann gegnt stöðu yfirlæknis þar. Arið 1986 hlaut Nikulás dokt- orstitil frá læknadeild HI fyrir rannsóknir sinar. Eiginkona Nikulásar er Guð- rún Þórarinsdóttir þýðandi. Þau eiga fimm börn. muna að gera áætlanir um starf- semina og að standa við þær. Við getum sem sagt lagt meiri áherzlu á vísindalegar rannsóknir á sviði hjartasjúkdóma en við höfum gert.“ - Hvernig verður þessi almenn- ingsþjónusta, sem stendur til að afnema, þrepuð niður? „Þetta verður þannig, að við höfum ákveðinn kvóta á hveiju ári af fólki sem við megum taka inn. Við deilum því einfaldlega niður á hvern mánuð. Þegar hann er fullbókaður getum við ekki tek- ið fleiri. Við reynum að jafna þessu yfir árið. Á þessu ári er þessi kvóti 1.650 manns, sem er ekki svo mikil fækkun frá því sem verið hefur. Á næsta ári lækkar þetta svo í um 1.200 og á þarnæsta ári í 500. Árið 2000 fer það svo niður í núll.“ - Breytist starfsemi Hjarta- verndar að einhverju öðru leyti? „Aðalbreytingin í starfseminni verður sú, að við erum að ljúka þeirri rannsókn sem við höfum verið með í gangi í rúmlega 30 ár og byija á annarri, sem mun þó sennilega ekki taka eins lang- an tíma. Þetta er svokölluð af- komendarannsókn. Þar er um að ræða afkomendur þess fólks sem tók þátt í upphaflegu hóprann- sókninni. Sú náði tii um 30.000 íslendinga, og afkomendarann- sóknin mun sennilega ná til um 10.000 manns. Þetta á að gera okkur kleift að rannsaka betur arfgenga þætti hjarta- og æðasjúkdóma, sem við vitum að eiga talsverðan þátt í þeim. Með nýrri tækni á sviði erfðarannsókna eru komnir til auknir möguleikar til að komast lengra áleiðis í því efni. Þessi rannsókn verður okkar megin- verkefni næstu árin.“ Almennings- þjónustu hætt árið 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.