Morgunblaðið - 08.01.1997, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVI NNU/\ (JGL YSINGAR
Loðnufrysting
Starfsfólk óskast í loðnufrystingu.
Upplýsingar í símum 472 1169, 472 1344
og á kvöldin í síma 472 1320.
Strandasíld hf.,
Seyðisfirði.
Fiskvinnslustörf
Óskum eftir fólki í síldar-, loðnu-
og kolavinnslu.
Upplýsingar í símum 478 2256/478 2257.
Borgeyhf.,
Krossey,
Hornafirði.
Reykjavík
Starfskraftur
óskast í borðsali Hrafnistu.
Upplýsingar gefur Magnús í síma 568 9323.
Þvottahús
Röskur starfskraftur óskast strax.
Reglusemi og stundvísi áskilin.
Vinnutími frá kl. 7.30-15.30.
Upplýsingar hjá verkstjóra, ekki í síma.
Grýta, hraðhreinsun,
Borgartúni 27.
Sölumaður
Rótgróin fasteignasala í Reykjavík óskar eftir
metnaðargjörnum sölumanni/konu. Viðkom-
andi verður að hafa bíl til umráða og geta
hafið störf sem fyrst. Góð vinnuaðstaða.
Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun
og fyrri störf til afgreiðslu Mbl. fyrir
15. janúar, merktar: „Rex - 4070.“
Atvinnutækifæri
Hárgreiðsiustofa á góðum stað
í Reykjavík til sölu eða leigu. Miklir möguleikar.
Upplýsingar í síma 898 3806.
Félag fslenskra
hjúkrunarfræðinga
auglýsir eftir tveimur starfsmönnum,
hjúkrunarfræðingi og skrifstofumanni.
Óskað er eftir hjúkrunarfræðingi til að hafa
umsjón með ýmsum faglegum verkefnum í
hjúkrun og félagslegum verkefnum varðandi
skipulag félagsins.
Leitað er að hugmyndaríkum hjúkrunarfræð-
ingi með sterka stéttar- og fagvitund, til að
vinna með formanni að faglegum og félags-
legum verkefnum fyrir hjúkrunarfræðinga.
Meðal annarra verkefna eru samskipti við
innlenda sem erlenda hjúkrunarfræðinga
vegna náms og starfa hérlendis sem erlend-
is, samskipti við nefndir, fag- og svæðisdeild-
ir félagsins, undirbúningur að stærri fundum
og þingum fyrir félagið, erlend samskipti og
upplýsingamiðlun á vegum félagsins.
Lifandi og fjölbreytt starf hjá vaxandi félagi,
þar sem starfsemin er í stöðugri mótun og
fágætt tækifæri gefst til að hafa áhrif.
Starfshlutfall er 60% og er staðan veitt frá
15. febrúar 1997 eða eftir samkomulagi.
Óskað er eftir skrifstofumanni til almennra
skrifstofustarfa, sem fela m.a. í sér rit-
vinnslu, símavörslu og afgreiðslu.
Reynsla af skrifstofustörfum, Ijúfmannleg
framkoma og sveigjanleiki teljast æskilegir
kostir.
Krefjandi starf á björtum og skemmtilegum
vinnustað, sem býður upp á samskipti við
fjölda fólks.
Um er að ræða hálft starf virka daga frá
kl. 13.00-17.00.
Staðan er veitt frá og með 1. mars 1997 eða
eftir samkomulagi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, berist til Mbl., merktar
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,
í síðasta lagi 20. janúar 1997.
Skólaskrifstofa
Seltjarnarness
Vegna veikinda vantar okkur kennara strax.
Um er að ræða hlutastarf (2/3) við almenna
bekkjarkennslu í 7. bekk.
Mýrarhúsaskóli er einsetinn grunnskóli með
480 nemendur í 1.-7. bekk.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma
561 1980.
Grunnskóiafuiitrúi.
Staða leikskólastjóra
Súðavíkurhreppur auglýsir lausa stöðu leik-
skólastjóra við Leikskóla Súðavíkur.
Leikskólinn er rekinn í nýju og glæsilegu
húsnæði.
Við skólann er í gangi tilraunaverkefni með
útfærslu heiltækrar skólastefnu og mun vænt-
anlegur leikskólastjóri taka þátt í mótun henn-
ar í samstarfi við skólastjóra grunnskólans.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst
Kr. Björnsson, sveitarstjóri, í síma 456 4912.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Súðavík-
urhrepps, Njarðarbraut 14, 420 Súðavík,
fyrir 20. janúar nk.
Sjálfboðastarf
í Mósambík
The Travelling Folk Highs School í Noregi hefur þjálfað meira en
800 sjálfboðaliða hvaðanæva að úr heiminum til starfa í Afríku við
verkefnið HUMANA - frá þjóð til þjóðar. Starfið tekur 14 mánuöi:
6 mánaða þjálfun í Noregi, 6 mánaða starf í Nacala, Mósambík við
að kenna götubörnum, rækta á landsbyggðinni, skipuleggja heil-
brigðisstarf í þorpunum, koma á fót vatnshreinsistöðvum, salern-
um og eldsneytissparandi eldunaraðstöðu - 2ja mánaða úrvinnslu-
starf. Kröfur: Áhugi, vinnusemi, aðlögunarhæfni og vilji til að axla
ábyrgð. Dvalarkostnaður er við skólann. Möguleiki er á námsstyrk.
Byrjum 3/2, 6/4, 4/8 og 1/10. Kynningarfundur á íslandi.
Hafið samband:
The Traveiling Folk High School, 2636 Oyer Lillehammer, Noregi.
Sfmbréf 00 47 6126 4017, e-mail: oneworld@online.no.
Stofnun um sjálfboðastarf i þróunarlöndum
A Volunteer Institue for One World Development
http://home.sol.no/oneworld
R AÐ/A UGL YSINGAR
Póstur og sími hf.
Póstur og sími hf. óskar eftir tilboði í
Ijósieiðara og kóaxstrengi fyrir árið 1997.
Um er að ræða 4 til 64 leiðara einhátta Ijós-
leiðarastrengi, samtals 280 km og 150 km
af kóaxstrengjum.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu fjar-
skiptanets Pósts og síma hf., Landsímahús-
inu við Austurvöll, 4. hæð.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 30. janúar 1997 kl. 11.00.
PÓSTUR OG SÍMI
Jákvætt námskeið
f um hjónaband og sambúð
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 14. janúar
kl. 20.30 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Leiðbeinendur: Halla Jónsdóttir og séra
Þórhallur Heimisson.
Skráning í síma 555 1295.
Hafnarfjarðarkirkja.
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
Vetramámskeið verða haldin 13. janúar til
11. apríl.
Innritun fer fram alla virka daga kl. 15-19
í Austurstræti 3, sími 552 3870.
ALLIANCB PRANCAI8B
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast á ný 13. janúar.
Boðið er upp á byrjendahóp, fimm fram-
haldshópa og talhóp.
Einnig er ráðgert að bjóða í umboði Goethe-
stofnunar upp á undirbúningsnámskeið fyr-
ir hið viðurkennda þýskupróf, „Zertifikat
Deutsch als Fremdsprache".
Innritað verður á kynningarfundum í Lög-
bergi, Háskóla íslands, stofu 102, miðviku-
daginn 8. og fimmtudaginn 9. janúar kl.
20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma
551 0705 kl. 12-13 eða kl. 17-19.
Nýir þátttakendur eru velkomnir í alla hópa.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
Fjarkennsla um tölvur
við Verkmenntaskólann á Akureyri
á vorönn 1997
Kenndar verða eftirtaldar greinar:
Bókfærsla, danska, eðlisfræði, efnafræði,
enska, félagsfræði, fjármál, íslenska, íþrótta-
fræði, jarðfræði, líffræði, næringarfræði,
rekstrarhagfræði, reikningsskil, saga, sál-
fræði, stærðfræði, ' verslunarreikningur,
verslunarréttur, þjóðhagfræði, þýska o.fl.
Öll kennsla er miðuð við yfirferð, kröfur og
mat í almennum framhaldsskólum.
Nánari upplýsingar og innritun á skrifstofu-
tíma í Verkmenntaskólanum á Akureyri, sími
461 1710 á milli kl. 9.00 og 15.00 dagana
6. til 10. janúar.
Fyrirtæki óskast
Óskum eftir að kaupa fyrirtæki í góðum
rekstri. Verðhugmynd allt að 20 millj. kr.
Fullur trúnaður, öllum svarað.
Upplýsingar sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „F - 7492“, fyrir 1. febrúar 1997.