Morgunblaðið - 25.02.1997, Page 1
112 SÍÐUR B/C
46. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Utför Dengs Xiaoplng fór fram í gær
„Farðu varlega,
félagi Xiaoping44
Pekinjr. Reuter.
UTFOR Dengs Xiaoping, leiðtoga
Kínverja, sem lést sl. miðvikudag,
fór fram í gær. Var lík hans flutt
frá sjúkrahúsi í miðborg Peking,
þar sem fjölskylda hans og hátt-
settir embættismenn kvöddu hann
hinstu kveðju, áður en það var flutt
í Babaoshan-kirkjugarðinn þar
sem það var brennt. I dag fer fram
minningarathöfn um hann í Höll
alþýðunnar, sem búist er við að
um 10.000 manns taki þátt í. Að
henni lokinni verður ösku Dengs
dreift á hafi úti. Þúsundir manna
vörðuðu leiðina frá sjúkrahúsinu
að kirkjugarðinum er lík leiðtog-
ans var flutt á milli og vottuðu
honum virðingu sína.
Deng var afar mótfallinn per-
sónudýrkun og óskaði hann eftir
því að lík hans yrði brennt auk
þess sem hann baðst undan því
að lík hans yrði látið liggja á við-
hafnarbörum. Það var hins vegar
gert í skamma stund í gær er fjöl-
skylda hans og leiðtogar Alþýðu-
lýðveldisins kvöddu hann. Emb-
ættismennirnir hneigðu sig í þrí-
gang og vottuðu fjölskyldunni
samúð sína en eiginkona hans og
dætur kysstu Deng og grétu. „Þú
ert ekki dáinn,“ hrópaði Deng
Rong, dóttir hans.
Sjónvarpað var frá sjúkrahúsinu
þar sem lík Dengs lá á viðhafnar-
börum. Var það sveipað kínverska
fánanum og börurnar nær huldar
blómum. A borða yfir börunum
stóð „Eilíf dýrð til handa félaga
Deng Xiaoping". Fremstur leið-
toganna, sem þóttu þungbúnir og
þöglir, fór Jiang Zemin, forseti
Kína, sem búist er við að verði
næsti leiðtogi landsins. Mun hann
lesa minningarræðu um Deng við
athöfnina í Höll alþýðunnar í dag.
Líkbíllinn sem flutti lík Dengs
í kirkjugarðinn var þakinn svört-
Reuter
ZHUO Lin, ekkja Deng Xiaoping, kveður eiginmann sinn hinstu kveðju en við hlið hennar standa
dætur þeirra; Deng Nan, Deng Rong og Deng Lin.
um og gulum borðum, sorgarlitum um. Grétu margir og flestir höfðu
Kínveija, og þúsundir manna fest hvít pappírsblóm á yfirhafnir
stóðu við götunar sem ekið var sínar. „Farðu varlega, Xiaoping"
stóð á einum borðanum og „Út-
hell heitum tárum fyrir félaga
Xiaoping“ stóð á öðrum.
Reuter
Málstöðvar
kvenna stærri
London. The Daily Telegraph.
KARLMENN hafa löngum haft
á orði að konur séu mun mál-
gefnari en karlar og nú hafa
ástralskir vísindamenn tekið
undir þetta og gert tilraun til
að skýra ástæðuna. Hún sé sú
að málstöðvar í heila kvenna
séu stærri en í körlum.
Áður hafa verið birtar rann-
sóknir sem renna stoðum und-
ir þá fullyrðingu að konur eigi
auðveldara með að tjá sig og
eiga samskipti við aðra en
karlar. Áströlsku vísinda-
mennirnir komust að því að
svæðin tvö þar sem málstöðvar
eru í heilanum, svokölluð
Broca- og Wernicke-svæði, eru
um 20% stærri í konum en
körlum.
Telja þeir að þessi stærðar-
munur sé skýringin á sam-
skiptahæfileikum kvenna.
Sögðu vísindamennirnir, sem
starfa við háskólann í Sydney,
að mestur munur væri á heil-
um kynjanna á áðurnefndum
svæðum.
Ráðgjafanefnd NATO
og Rússa í sjónmáli
Ósló, Brussel. Reuter.
Ættingja
leitað í bruna-
rústum
GRÁTANDI hindúar leita ætt-
ingja sinna í brunarústum strá-
kofaþyrpingar sem brann í
þorpi í austurhluta Indlands á
sunnudag. Að minnsta kosti 200
manns fórust í eldhafinu en
aðeins hefur tekist að bera
kennsl á um fjórðung líkanna.
Reyna læknar nú að bjarga lífi
á annað hundrað manna sem
eru með alvarleg brunasár. ÖIl
fórnarlömbin munu hafa verið
karlar, en þeir voru á árlegri
trúarráðstefnu hindúa. Ind-
verskir embættismenn sögðu í
gær að þessi atburður sýndi að
eldvörnum væri afar ábótavant
á Indlandi.
■ Tugir manna á sjúkrahúsi/22
RÚSSAR og Atlantshafsbandalagið
(NATO) hafa nálgast samkomulag
um formleg samskipti, þrátt fyrir að
enn sé ósamið um mörg útfærsluat-
riði. Jevgení Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, átti fund með Jav-
ier Solana, framkvæmdastjóra
NATO, á sunnudagskvöld og í gær
fór hann í opinbera heimsókn til
Noregs, eina NATO-ríkisins sem á
landamæri að Rússlandi. Á blaða-
mannafundi í Ósló sagði Prímakov
að NATO og Rússar væru nú nær
bindandi samkomulagi en áður um
samskiptin.
Heimildarmenn innan NATO stað-
festu í gær að Rússar og bandalagið
væru sammála um þörfina á fastri
ráðgjafanefnd sem hefði eftirlit með
samskiptum þeirra. Rússar hafa lagt
fast að NATO að það verði gert í
lagaiega bindandi skjali en Atlants-
hafsbandalagið vill að samkomulagið
verði lausara í reipunum. Nefndin
yrði algerlega aðskilin frá stofnunum
NATO og Rússar og NATO ættu þar
jafnmarga fulltrúa.
Prímakov sagði Rússa hóflega
bjartsýna á að samkomulag næðist
sem þeir gætu sætt sig við. Þeir
myndu halda áfram viðræðum við
NATO, en næsti fundur rússneskra
ráðamanna og Solanas verður í
Moskvu í byijun næsta mánaðar.
Heimildarmenn innan NATO segja
að lokasamkomulag Rússa og NATO
kunni að liggja fyrir, áður en leið-
togafundur bandalagsins hefst í
Madríd í júlí. Þá er búist við því að
NATO bjóði nokkrum ríkjum í Mið-
og Austur-Evrópu aðild.
Prímakov ítrekaði í gær andstöðu
Rússa við stækkun bandalagsins og
sagði hana ekki hafa verið rædda á
fundi hans og Solanas. Á sunnudag
lýsti Borís Jeltsín Rússlandsforseti
því hins vegar yfir að hann hygðist
ná samkomulagi við Bandaríkjamenn
um stækkun NATO á fundi hans og
Bill Clintons Bandaríkjaforseta, sem
boðað hefur verið til í Helsinki í
mars. Er þetta túlkað sem svo að
Rússar hafi í reynd fallið frá and-
stöðu sinni, þó að þeir muni reyna
að tefja hana með öllum ráðum.
■ Jeltsín ætlar að semja/24
Lofa fjöl-
miðlafrelsi
í Serbíu
Washington. Reuter.
SLOBODAN Milosevic, forseti Serb-
íu, hyggst aflétta hömlum á tjáning-
arfrelsi fjölmiðla, að því er upplýs-
ingaráðherra Serbíustjómar sagði í
Washington í gær. Segir ráðherrann
það m.a. þýða að stjórnarandstæð-
ingar muni hafa aðgang að ríkisrekn-
um sjónvarpsstöðvum.
Upplýsingaráðherrann, Radmila
Milentijevic, sagði að með þessu verði
Milosevic við einni helstu kröfu
stjórnarandstöðunnar í tengslum við
kosningar sem halda á síðar á árinu.
„Við viljum fínna fijálslyndustu lög
um fjölmiðla í allri Evrópu og hafa
þau sem fyrirmynd er við mótum
reglugerðir okkar,“ sagði Mil-
entijevic.
♦ ♦ ♦---
Meller
eftirmaður
Engells
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKIR íhaldsmenn völdu í gær
eftirmann Hans Engells, sem sagði
af sér flokksformennsku í síðustu
viku eftir að hann var staðinn að
ölvunarakstri. Per Stig Meller, sem
var umhverfisráðherra í stjórn borg-
araflokkanna 1990-1993, tekur við
af Engell en hann þykir heldur til
vinstri í íhaldsflokknum.
Meller, sem er 54 ára og hefur
samið bækur um heimspeki og bók-
menntir, sagðist í gær myndu leggja
áherslu á áframhaldandi samstarf
við Venstre, flokk Uffe Ellemann-
Jensens. Sagði hann flokkana stefna
að því að mynda stjórn eftir næstu
kosningar með aðstoð miðjuflokka.