Morgunblaðið - 01.03.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 01.03.1997, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forstjóri Landsvirkjunar segir niðurstöðu Járnblendifélagsins vonbrigði Iðnaðarráðherra Opel Astra C*xt/ieme 100.000.- kr. afsláttur Sratrofl %■ -Þýskt eöalmerki Bílheimar ehf. § m □ # Sœvarhöfba 2a Sími:525 9000 Svartsengi, sem yrði um 30 MW. Ennfremur kæmi til skoðunar að taka einungis fyrri vélasamstæðu Sultartangavirkjunar í notkun, en hún myndi framleiða 60 MW. Mikil óvissa ríkir um hvort umhverfisráð- herra muni leyfa virkjun í Bjarnar- flagi, en áform um virkjun þar hafa kallað á mótmæli. Hitaveita Suður- nesja hefur um nokkurt skeið undir- búið virkjun í Svartsengi, en ekki hefur verið gert samkomulag um hana milli Landsvirkjunar og Hita- veitu Suðurnesja. Halldór sagði ekki víst að það væri nægilega hagkvæmt að virkja einungis 60 MW við Sultartanga. Landsvirkjun myndi skoða þessa kosti vandlega á næstu dögum og vikum. Landsvirkjun í tímaþröng Landsvirkjun hefur ekki margar vikur til að taka ákvörðun í þessu máli. Þegar er búið að opna tilboð í gröft fyrir stöðvarhús Sultar- tangavirkjunar og auglýsa útboð á vélum og rafbúnaði. Landsvirkjun verður að taka ákvörðun um miðjan mars eða fljótlega upp úr því hvort tilboðum verður tekið. Ef ákvörðun- in dregst fram í apríl er hætt við að fyrirtækið geti ekki staðið við áætlun um að afhenda álveri Col- umbia á Grundartanga nægilega mikla orku í október 1999. Halldór sagði að þó óhjákvæmi- legt væri að endurskoða áform um Sultartangavirkjun væri það Landsvirkjun kappsmál að virkjun- in yrði byggð og fyrirtækið myndi á næstu dögum leita allra leiða til að tryggja rekstrargrundvöll henn- ar. Hann benti á að afhendingarör- yggi Landsvirkjunar ykist verulega með virkjun við Sultartanga. Með henni yrðu öll ísvandamál á efra Þjórsársvæðinu leyst í eitt skipti fýrir öll. í Morgunblaðinu í gær kom fram að Landsvirkjun hefur í viðræðum við erlenda orkukaupendur talið koma til greina að selja raforku á verðbilinu 21-24 Bandaríkja- dali/MWst. Halldór sagði að þetta væri það verð sem nefnt hefði ver- ið í viðræðum við Atlantsál-hópinn, Hydro Aluminium og Magnes- íumfélagið. Þetta væri hins vegar ekki það orkuverð sem rætt hefði verið í samningum við Columbia og Járnblendifélagið, vegna þriðja ofnsins. Áform um Sultartanga- virkjun endurskoðuð HALLDÓR Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að ef ekki takist að útvega nýja kaupendur að orkunni sem ætluð var þriðja ofni íslenska járnblendifélagsins hf. á Grundartanga verði Landsvirkjun að endurskoða áform um byggingu Sultartangavirkjunar. Halldór ræddi í gær við forstjóra Columbia Ventures um þann möguleika að álverið, sem fyrirtækið áformar að reisa á Grundartanga, verði fljót- lega stækkað úr 60 þúsund tonnum í 90 þúsund tonn, en slík stækkun hefur verið rædd á fyrri stigum málsins. Halldór sagði að Landsvirkjun yrði nú að gefa sér að ekkert yrði af áformum um stækkun Járn- blendiverksmiðjunnar um einn ofn, en áætluð orkuþörf hans var 370 GWst á ári. Þessi niðurstaða væri vonbrigði fyrir Landsvirkjun. „Hingað til höfum við reiknað með að hann kæmi í gagnið í októ- ber 1999 eða um svipað leyti og Sultartangavirkjun. Virkjun við Sultartanga hefur verið ein megin- orkuöflunarframkvæmdin í okkar virkjanaáætlunum vegna hins fyrir- hugaða álvers Columbia á Grund- artanga og vegna byggingar þriðja ofns Járnblendiverksmiðjunnar. Þegar fyrir liggur að þriðji ofninn verður ekki að veruleika vaknar óneitanlega sú spuming hvort Sult- artangavirkjun eigi áfram rétt á sér með hliðsjón af því hvað hún er stór. Það verður vart raunhæft að gera ráð fyrir því að svo sé miðað við þessar breyttu aðstæður nema því aðeins að það komi annar orku- kaupandi, álíka stór í staðinn fyrir þriðja ofn Járnblendiverksmiðjunn- ar og að hann geti tekið við þess- ari orku um svipað leyti, þ.e. haust- ið 1999.“ Vænlegt að flýta stækkun Columbia álversins Halldór sagði að Landsvirkjun myndi á næstu dögum kanna áhuga annarra stórra orkunotenda á að kaupa raforku af fyrirtækinu. Landsvirkjun hefði átt í viðræðum við Atlantsál-hópinn, Hydro Alumi- nium og Magnesíumfélagið. Halldór sagði að viðræður um orkusölu til nýrra aðila væru á frumstigi. „Kannski er vænlegasti kosturinn að leita eftir viðræðum við stjórnendur Columbia Ventures um að hið fyrirhugaða álver á Grundartanga verði fljótlega stækkað úr 60 þúsund tonnum upp í 90 þúsund tonn. Slík stækkun þýddi að álverið þyrfti á um 450 GWst á ári að halda, sem er svipað orkumagn og áætlað var að þriðji ofn Járnblendiverksmiðjunnar þyrfti. Ef samkomulag tækist um að hraða þessari stækkun væri ekki ástæða til að hrófla neitt við hug- myndum okkar um byggingu Sult- artangavirkjunar," sagði Halldór. Halldór sagði að í viðræðum við stjórnendur Columbia hefði komið fram að arðsemi álversins ykist umtalsvert við að stækka það úr 60 þúsund tonnum í 90 þúsund tonn. Þess má geta að í umsókn Columbia um starfsleyfi á Grund- artanga er sótt um leyfi til reksturs allt að 180 þúsund tonna álvers. Smærri virkjanakostir skoðaðir Ef Landsvirkjun neyðist til að leggja áform um Sultartangavirkj- un til hliðar að sinni stendur fyrir- tækið frammi fyrir því að finna annan virkjunarkost. Virkjun á Nesjavöllum, sem framkvæmdir eru hafnar við, og Hágöngumiðlun, koma ekki til með að framleiða nægilega mikla orku fyrir álver Columbia á Grundartanga. Halldór sagði að þeir kostir sem væru fyrir hendi væru gufuvirkjun í Bjarnarflagi, sem yrði 40 MW og virkjun Hitaveitu Suðurnesja í Efnahags- legt áfall fyrir okkur „ÞETTA er efnahagslegt áfall fyrir okkur,“ sagði Finnur Ingólfsson iðn- aðar- og viðskiptaráðherra um þá niðustöðu sem varð á fundi eigenda Járnblendifélagsins í Osló, að stækka ekki verksmiðjuna á Grund- artanga. „Það eru vonbrigði að þetta skyldi ekki ganga upp. Þessi stækkun hefur verið undirbúin í langan tíma og við höfum trúað því að þetta myndi tak- ast þegar á reyndi. Nú er komið í ljós að eignaraðilar ná ekki saman um þær ákvarðanir sem þarf að taka til þess að af stækkun geti orðið. Við létum fara fram verðmæta- mat á fyrirtækinu sem var unnið af óháðum aðila, Salomon Brothers, einum virtasta fjárfestingabanka á þessu sviði í heiminum. Þrátt fyrir það náðu menn ekki samkomulagi um hvert verðmæti fyrirtækisins ætti að vera. Það þýddi að um leið komust menn ekki að niðurstöðu um með hvaða hætti og undir hvaða kringumstæðum Elkem gæti orðið meirihlutaeigandi í fyrirtækinu,“ sagði Finnur. Hann vildi ekki greina frá niðurstöðu Salomon Brothers. Meirihlutaeignin lítils virði Forsætisráðherra hefur lýst þyí yfir að ríkisstjórnin áformi að selja hlut sinn í Járnblendifélaginu. Finnur sagði of snemmt að segja nokkuð um hvort þessi niðurstaða hefði áhrif á þessi áform. Það þyrfti samþykki allra hluthafa ef einhver vildi selja sinn hlut og engin ákvörðun hefði verið tekin af hálfu stjórnvalda um að fulltrúar ríkisins í stjórn félagsins óskuðu eftir að selja hlut þess. „Samningurinn, sem gerður var milli eignaraðila við stofnun fyrir- tækisins, tryggir okkur ekki virka eignaraðild þrátt fyrir að hlutur okkar í því sé 55%. Samningarnir setja okkur miklar skorður og tryggja mikil minnihlutaréttindi í fyrirtækinu. Það þarf samþykki allra aðila til að breyta markaðs- samningi eða selja eignarhlut í fyrir- tækinu. Það þarf 2/3 hluthafa til að taka ákvörðun um að auka hluta- fé eða taka lán til fjárfestinga." Finnur sagði að þrátt fyrir að eignaraðilar hefðu tekist á að undanförnu vonaðist hann eftir að samstarf innan Járnblendifélagsins yrði gott. Það væri hins vegar ljóst að samkeppnisstaða og arðsemi fyrirtækisins yrði ekki eins góð og ef af stækkun hefði orðið. Starfsmenn Landmælinga afþökkuðu boðsferð til Akraness Enginn starfsmanna hyggst flytja STARFSMENN Landmælinga íslands þáðu ekki boð bæjar- stjórnar Akraness um að koma þangað í kynnisferð í gær vegna fyrirhugaðra flutninga stofnunarinnar til bæjarins eft- ir tæp tvö ár. Þess í stað snæddu þeir saman hádegisverð í kaffi- stofu Landmælinga. „Það stóð til að fara með okkur í skoðunarferð um bæinn og bjóða okkur síðan til há- degisverðar. Einnig átti að sýna okkur bæjarskrifstofurnar og væntanlegt húsnæði Landmæl- inga. En hér reyndist enginn áhugi fyrir ferðinni þannig að bæjarstjórnin ákvað að fresta henni um óákveðinn tíma,“ seg- ir Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, talsmaður starfsmanna Land- mælinga. Morgunblaðið/Ásdís STARFSMENN Landmælinga íslands afþökkuðu boð bæjar- stjórnar Akraness um kynnisferð og hádegisverð en dúkuðu þess í stað borð í kaffistofu sinni og pöntuðu kínverskan mat. „Við vorum svo ánægð með að það langaði engan að fara uppeftir að við ákváðum að panta okkur mat utan úr bæ og hafa það huggulegt. Við dúkuðum borð í kaffistofunni og borðuðum okkar eigin mat í staðinn fyrir mat bæjar- stj órnarinnar, “ segir hún enn- fremur. Starfsmannafundur miðviku- daginn 26. febrúar sl. ályktaði að enginn starfsmaður Land- mælinga íslands hygðist flylja með stofnuninni eða starfa hjá henni á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.