Morgunblaðið - 01.03.1997, Side 9

Morgunblaðið - 01.03.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997 9 FRÉTTIR Vaiva Drilingaite, markvörður Vals, lætur vel af íslandsdvöl sinni „Fólkið gott en veðrið vont“ VAIVA Driliugaite, markvörður Valsstúlkna, í handbolta segir hróður sinn hafa breiðst út með- al nemenda Hlíðaskóla frá því á Iaugardag, er hún varði 27 skot i leik liðsins við Hauka. Vaiva er ekki „bara“ markvörður hjá Val, heldur gangbrautarvörður við Hlíðaskóla, aðstoðarþjálfari í yngri flokkum, kennari og liðs- maður til 15 ára í handbolta- landsliði Litháens. Leið Vaivu Iá til Reykjavíkur í september til þess að spila með Valsstúlkum og líkar henni flest vel á Islandi nema rysjótt veður- farið. Segir hún Islendinga góð- lynda en talsvert rólega. Einnig brosa þeir meira en Litháar að Vaivu sögn. Hún hefur leikið handbolta í Frakklandi og Slóv- eníu og komst 18 ára í landslið Litháens. í sumar á hún 35 ár að baki, 100 landsleiki og hefur att kappi við aðrar handbolta- stúlkur oftar en hún hefur tölu á. Segir hún mikinn aldurs- og reynslumun á sér og stúlkunum í handboltaliði Vals og því sé Skipulagsstjóri Oánægður með niður- stöður ráðherra SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins kveðst mjög óánægður með þær ákvarðanir umhverfisráðherra að fella úr gildi úrskurð skipulagsstjóra um stækkun Hagavatns sunnan Langjökuls og breyta úrskurði um uppgræðslu Hólasands. „Við vinnum þessa úrskurði eins faglega og nákvæmlega og okkur er mögulegt, fáum athugasemdir og umsagnir úr ýmsum áttum, vinnum úr þeim og komumst að okkar niður- stöðu. Þess vegna er auðvitað ekk- ert um það að segja annað en að ég sé mjög óánægður með þessar niðurstöður ráðherra,“ segir Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, í sam- tali við Morgunblaðið. „Það sem við gerum nú er að við förum nákvæmlega yfir þessar nið- urstöður og reynum að átta okkur á því hvort í þeim felist einhver ákveðin skilaboð," segir skipulags- stjóri ennfremur. Morgunblaðið/Kristinn VAIVA Drilingaite, markmaður Vals í handbolta, starfar líka sem gangbrautarvörður við Hlíðaskóla. meira að gera hjá henni í mark- inu. Vaiva fæddist í Kaunas, ann- arri stærstu borg Litháens, og þar á hún jafnframt 11 ára son sem væntanlegur er til íslands í sumar. Hún segist hafa flutt frá heimalandi sinu vegna bágs efna- hagsástands og líkar lífið betur hér að því leyti. Einnig lofar hún íslenskan fisk en saknar trjánna að heiman. Vaiva er íþrótta- og frönsku- kennari að mennt en lætur sér nægja gangbrautarvörslu við Hlíðaskóla auk markvörslunnar vegna tungumálaerfiðleika. Þá segist hún bera meira úr býtum í því starfi hér en við kennslu heima og eiga afgang þrátt fyrir dýrtíð. Vinnudagurinn er langur, stundum frá átta til miðnættis, en hún segist stundum eiga frí. Skemmtanir á Islandi þykja henni dýrar en ekki vill hún meina að drykkjusiðum landans sé ábótavant, Litháar séu miklu verri að því leyti. Ný sending írá Daniel D. Töfraundirpilsin komin TESS v neð neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið virka daga kl. 9-18, kl. 10-16. Nýkominn nærfatnaður úr silkimjúku flaueli. Litir rautt og svart. Stærðir 75-85 b og c. Tilboð kr. 2.995 settið eða samfellan. Opið frá kl. 10-17 í dag. Laugavegi 4, sími 551 4473 Húsgagnaútsala Mikið úrval húsgagna með 15-70% afslætti t.d hjónarúm - einstaklingsrúm - stakir stólar - eldhúsborð - sófaborð o.fl. ( Qpið í dag frá kl. 10-16 ~) auaaaa VM7 HUSGAGNAVERSLUN 30 mán. Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 36 mán. Opið í dag frá kl. 10-I6J o cakewaIk Vorvörurnar komnar, Spennandi vortilboð. ENGLABÖRNÍN BuCKLeMyS/ioe^ Bankastræti 10, s. 552 2201 \ PostuliTisdúkkur sem eru engu öðru líkar Nú er tækifæri til að prófa eitthvað nýtt. Ný námskeið í postulínsdúkkugerð að hefjast. Upplýsingar í síma 565 1564. Millý Mollý Mandý postulínsdúkkugerh. _____________________________J Göflguskór - göngusokkar fylgja Láttu þér líða vel á fótunum í Grisport gönguskóm Stærðir 36-46 ✓ Grófur göngusóli ✓ Höggdeyfar í sóla ✓ Fótlaga innsóli ✓ Léttir ✓ Vatnsþolnir ✓ „Support system" fyrir ökla ✓ Gritex einangrun ✓ gegn kulda Gritex einangrun ✓ gegn bleytu TILBOÖSV'EKt) A&EINS 7.990 Póstsendum samdægurs • 5% staðgreiðsluafsláttur Opið laugardag kl. 10-14 SKÓVERSLUN KÓPAVOGS HAMRAB0RG 3 • S: 554 1754 Vélskóli íslands Hagnýtt nám bæði til sjós og lands Skrúfudagur - Skrúfudagur! Hin árlegi kynningardagur Vélskóla íslands verður haldinn í dag, laugardaginn 1. mars, kl. 13.00-16.00 í Sjómannskólahúsinu. Nemendur sjá um að kynna alla þætti þeirrar kennslu, sem fram fer í skólanum. Ef veður leyfir mun þyrla Landhelgisgæslunnar koma í heimsókn. Ýmis fyrirtæki tengd sjávarútvegi munu kynna vöru sína og þjónustu. Kaffiveitingar á staðnum. Allir velkomnir. Sjón er sögu ríkari. Skrúfudagsnefnd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.