Morgunblaðið - 01.03.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.03.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg INGIBJÖRGU Sólrúnu varð tíðrætt um umferðarþungann í hverfinu sem menn óttast að fari vaxandi með tilkomu nýrra vegatenginga. Hverfafundir borgarsljóra Skeiðarvogur- inn hættulegur gangandi fólki Umferðin, skólamálin og krafa um heilsugæslustöð voru mál málanna á hverfafundi borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, með íbúum Laugames-, Lækja-, Laugarás-, Sunda-, Heima- og Vogahverfís. Hildur Einarsdóttir segir frá því helsta sem þar bar á góma. AHVERFAFUNDINUM sem haldinn var síðastliðið fimmtudagskvöld kom fram í máli Ingibjargar Sólrún- ar Gísladóttur að allir skólar þessa borgarhluta væru nú einsetnir, þó misvel væri að þeim búið. Sagði hún að við Langholtsskóla væri gert ráð fyrir viðbyggingu, sem hýsa myndi fjöl- notasal. Yrði viðbyggingunni lokið árið 2000, en þessi áform hefði ekki enn hlotið endanlega staðfestinu. Lækjarskóla sagði hún einnig búa við þröng- an kost og félagsaðstaða væri þar slæm. Hefði sú hugmynd komið upp að kaupa viðbótarhús- næði við skólann og væri hús Fósturskólans nærtækast ef væri það falt. Um framtíð Langholts- og Vogaskóla sagði hún að upp hefði komið sú hugmynd að gera Vogaskóla að skóla fyrir 1.-7. bekk aðeins. Unglingadeildirnar yrðu þá fluttar annað hvort í Langholtsskóla sem þá þyrfti að stækka, eða í Réttarholtsskóla. Af leikskólamálum væri það að segja, að af öllum hverfum borgarinnar væri staðan best í þessum borgarhluta. Eftirspurn úr hverf- inu væri þegar fullnægt með því að borgin tók í rekstur leikskólann Hof við Gullteig á síðasta ári sem rúmaði eitt hundrað börn. Jafnframt sagði Ingibjörg að verið væri að leggja niður gæsluvöll við Sæviðarsund vegna lítillar aðsóknar, en þá yrðu eftir fjórir gæslu- vellir í hverfinu. Af íþrótta- og tómstundamálum væri það fréttnæmast að nú stæðu yfir viðræður milli íþrótta- og tómstundaráðs og íþróttabandalags Reykjavíkur, borgaryfirvalda og sundmanna um gerð yfirbyggðrar sundlaugar. Smáþjóðaleikarnir svonefndu yrðu haldnir næsta sumar í Laugardalslauginni og þeirra vegna stæðu fyrir dyrum ýmsar breytingar og lagfæringar sem myndu kosta um tuttugu milljónir króna. Gestafjöldi í lauginni, sagði Ingibjörg Sólrún, að hefði numið ríflega hálfri milljón á síðasta ári. Skautamenn ættu að kætast því samþykkt hefur verið að ganga til viðræðna við Iþrótta- bandalag Reykjavíkur um að bandalagið taki að sér að byggja yfir skautasvellið í Laugar- dal en gestafjöldi skautasvellsins var rúmlega fjörtíu og sex þúsund á liðnu ári. Fjölskyldu- og hús- dýragarði breytt Ingibjörg Sólrún sagði að áformaðar væru breytingar á rekstri Fjölskyldu- og húsdýra- garðsins í Laugardal. Gert væri ráð fyrir að í framtíðarstefnumótun- garðsins verði megin- áhersla lögð á uppeldis- og kynningarstarf, sem tengdist innlendri matvælaframleiðslu, vist- vænu umhverfi og endurvinnslu. Samstarfsað- ilar sem borgin vildi fá að rekstrinum yrðu valdir með tilliti til þessa. Markhóparnir væru börn og unglingar í grunnskólum, leikskólum og á sumamámskeið- um. „Skipuð hefur verið rekstrarstjórn sem er ætlað að undirbúa samninga við samstarfs- aðila borgarinnar og stofnað verður rekstrarfé- lag sem ætlað er að reka garðinn, helst frá byijun næsta árs,“ sagði hún. Á síðasta ári sóttu garðinn heim um eitt hundrað og níutíu þúsund manns. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar var samþykkt fyrir nokknim árum að Glímufélagið Ármann flytti starfsemi sína úr Sigtúni í Borgarholts- hverfí. Sagði hún að borgaryfirvöld og Ármann ræddu nú um hvaða mannvirki þetta kalli á til að aðstaða félagsins verði sambærileg við önnur íþróttafélög. Samhliða þessum viðræðum væri einnig til skoðunar tillaga Ármenninga að félagið fari hvergi og að samvinna verði milli Þróttar og Ármanns um uppbyggingu mannvirkja, íþrótta-og félagsstarfs í þessum hverfum. Ingibjörg Sólrún sagði að þegar hefði verið gerður samningur milli borgarinnar og Þróttar um flutning á starfsemi félagsins frá Sæviðar- sundi í Laugardal. „í samningnum er gert ráð fyrir að borgin eignist húsnæði og svæði Þrótt- ar við Sæviðarsund en að í Laugardalnum verði komið fyrir knattspymuaðstöðu á þremur stöðum fyrir Þrótt. Valbjarnarvöllur verði aðal- völlur félagsins, félagið yfirtaki rekstur gervi- grasvallarins og fái æfíngatíma í Laugardals- höll og byggt verði félags-og búningahús í samvinnu við félagið," sagði hún. Hvað félagsmiðstöðina Þróttheima varðaði hefði verið rætt um að flytja starfsemina að einhveiju leyti út í skólana með því að aðstaða þar væri bætt, en einnig hefði verið hugleitt að útvega annað húsnæði. Síðan ræddi Ingibjörg Sólrún almennt um hverfið og sagði meðal annars að þegar hefði verið ákveðið að íbúðarbyggð risi á gamla Þróttarsvæðinu við Holtaveg. Hvemig skipulag svæðisins yrði réðist meðal annars af umfangi umferðarmannvirkja við Sæbraut, ef væntan- leg Sundabraut tengdist Sæbraut norðan Holtagarða eins og Aðalskipulagið gerði ráð fyrir. Vilja ekki þunga- flutningabifreiðar Borgarstjóri fjallaði töluvert um umferðar- málin í hverfinu og í fyrirspumum að loknu upphafserindinu kom fram mikill áhugi á þess- um málaflokki. Ámi Geirsson gerði umferð um Skeiðarvoginn að umtalsefni og sagði að mikill fjöldi þungaflutningabíla frá Sundahöfn færi um Skeiðarvoginn en yfir Skeiðarvoginn færi fjöldi barna á leið sinni í skóla. Taldi hann tengibrautarhlutverk Skeiðarvogsins óþarft og vildi að borgin mjókkaði götuna. í máli Ingibjargar Sólrúnar kom fram, að vissulega væri mikil umferð um Skeiðarvoginn eins og um Álfheima, Holtaveg og Sundlaugar- veg. Væra þetta gegnumakstursleiðir á milli hverfa og frá athafnasvæðinu við Sund og yfir á Miklubrautina. Sagðist hún gjarnan vilja gera eitthvað til að draga úr umferð þunga- bíla og taldi æskilegt að beina þeim fremur upp á Sæbrautina og þaðan á Miklubrautina. Mislæg gatnamót sem ættu að koma á gatna- mótum Réttarholtsvegar, Skeiðarvogs og Miklubrautar myndu létta umferð sem væri að fara í Grafarvog og Breiðholt. Ágúst Tómasson tók undir málflutning Áma og spurði meðal annars hve margir bílar færa um Skeiðarvoginn núna og hvað væri gert ráð fyrir að margir bílar færa um Skeiðarvoginn eftir að opnuð yrði umferð í Grafarvoginn til austurs eftir Ósabraut í þeim tilgangi að tengja athafnasvæðið á Ártúnshöfða við Sundahöfn- ina Ingibjörg Sólrún sagði að um Skeiðarvoginn færa nú sex þúsund bílar á sólarhring að meðaltali. Ekki væri gott að segja hve mikið umferðin myndi aukast ef af gerð Ósabrautar yrði, en hún væri ein af stofnbrautunum. Sagði hún að Ósabrautin væri á gömlu skipulagi og vildi hún miklu frekar reyna að fá ríkið til að flýta framkvæmdum við Sundabraut. Sá vegur tengdi Sæbraut og Kleppsvík jfir í Gufunes og þaðan yfir í Geldinganes og Álfsnes. Sunda- brautin væri þjóðbraut milli landshluta en hún tengdi byggðimar sunnan við, það er á Reykja- nesi og í Reykjavík, yfír á Kjalames og áfram í gegnum Hvalfjarðargöngin og kæmi þannig í staðinn fyrir Vesturlandsveg. íbúar ekki sammála Magnús Þór vildi vita hvað borgin hyggðist gera í hljóðvarnarmálum fyrir íbúabyggð við Sæbrautina en búast mætti við að um tuttugu þúsund bílar fari um Sæbrautina eftir að hún yrði breikkuð. í svari borgarstjóra kom fram að við breikk- unina fjarlægðist umferðin frá íbúðarhúsunum. Stefán Haukur sem býr við Sigtún spurði hvað liði framkvæmdum í Sigtúni og Gullteigi til að draga úr umferð frá Blómavali og Ás- mundarsafni um þessar götur. Gert væri ráð fyrir framkvæmdum á yfirstandandi ári á Ijár- hagsáætlun borgarinnar en hveijar þær yrðu virtist ekki vera búið að ákveða. Ingbjörg Sólrún sagði að ákveðin óeining ríkti um framkvæmdirnar hjá íbúum þessara gatna. Til þess að draga úr umferð um Gullteig- inn hefði komið til tals að opna Sigtún út á Kringlumýrarbrautina en íbúar Sigtúns væra ekki ánægðir með þá lausn. Huga þyrfti vel að framtíðarskipulagi á svæðinu því um kostn- aðarsama aðgerð væri að ræða. Helga Sigrún spurði hvort ekki væri hægt að flýta fyrir því að kæmi heilsugæslustöð í þetta rúmlega þrettán þúsund manna hverfi. I svari Ingibjargar Sólrúnar kom fram að hún hefði nýlega fengið upplýsingar frá heil- brigðisráðherra um forgangsröðun á byggingu heilsugæslustöðva í borginni. Þar væri heilsu- gæslustöð þessa borgarhluta í fjórða sæti. Kvaðst hún hafa í hyggju að ræða við heilbrigð- isráðherra um hvort nýta mætti Þróttheima- húsið undir heilsugæslu og hvort það gæti flýtt fyrir málinu. Lág húsabyggð á Þróttarsvæðinu Tilvonandi húsabyggð á Þróttarsvæðinu var nokkuð til umræðu. Ásdís Rósa sagði að íbúar sem byggju við svæðið gætu aðeins sætt sig við lága byggð þar. íbúarnir vildu einnig sjá þar athafnasvæði til leikja og íþrótta. Þeir sem byggju næst Þróttarsvæðinu hefðu allir sem einn undirritað skjal þar að lútandi sem hún færði borgarstjóra. Einnig spurði hún hvort í býgerð væri stækkun Laugamesskólans. Ingibjörg Sólrún sagði að hún vildi hafa samráð við íbúana um skipulagningu Þróttar- svæðisins. Og þó að ekkert hverfi hefði eins stórt hlutfall útivistarsvæða og þetta hverfi vegna Laugardalsins færu yngstu börnin ekki þangað, svo ekki væri útilokað að verða við óskum íbúanna. Hvað varðaði viðbyggingu við Laugarnes- skóla væri það mál viðkvæmt út frá húsagerð- arlegu sjónarmiði, því vandi væri að koma þar við viðbyggingu svo vel færi. Spurt var hvort ekki mætti hafa heitara vatn í bamasundlauginni í Laugardalnum því ómögulegt væri að fara með böm í laugina vegna þess hve hún væri köld. Ingibjörg Sólrún sagði að í bígerð væri að loka á milli fullorðins- og bamalaugarinnar en þá ætti að verða þar sæmilega hlýtt. Sveinn Karlsson gerði sundkennslu barna í Langholtsskóla að umtalsefni og sagði að þeg- ar börnin væra að fara í skólasund væri þar samstímis fjöldi sundlaugargesta, hann spurði hvort ekki væri hægt að koma þar upp sér- stakri aðstöðu fyrir börnin. Eða hvort þau gætu fengið aðgang að sundaðstöðu Dvalar- heimilis aldraðra sjómanna. Ingibjörg Sólrún sagði að sundlaug DAS væri endurhæfíngarlaug og hefði verið byggð fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta sér almenn- ingslaugamar meðal annars út af ys og þys í bömum. Taldi hún þetta ekki raunhæfa lausn nema væri þá hægt að aðskilja sundtímana. Helgi sem býr í Goðheimunum spurði hvort hægt væri að fá gangbrautarvörð við Álfheim- ana vegna bama sem væru að fara þar yfir í Langholtsskólann. „Það mætti skoða það mál og ef til vill prófa að gera það að átaksverkefni fyrir atvinnu- lausa, sagði Ingibjörg Sólrún. Ýmislegt fleira bar á góma eins og að æski- legt væri að ganga fljótt og vel frá lóðum í kringum byggingar fyrir aldraða. Tók borgar- stjóri undir það. Á fundinn komu milli fjöratíu og fimmtíu manns. Næsti hverfafundur borgarstjóra verð- ur næstkomandi mánudag með íbúum Efra- Breiðholts.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.