Morgunblaðið - 01.03.1997, Page 30

Morgunblaðið - 01.03.1997, Page 30
30 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ BINDINDISSVEITIN Alsæla. Bindindi og poppmúsík VÍMUEFNAVANDINN var eitt sinn til umræðu í spjallþætti Eiríks Jónssonar í Stöð 2. Eiríkur bað viðmælandann að nefna sér bind- indisrokkstjörnu. Hinn misskildi spurninguna og þuldi upp nöfn poppara sem hafa dópað sig til dauða: Hendrix, Jim Morrison, Presley, Janis Joplin... Eiríkur áréttaði spurninguna. Þá gat viðmælandinn ekki bent á neinn bindindisrokkara. Var það nema von? Bind- indi þykir ekki frétt. Þegar drukknir og dópaðir unglingar liggja ósjálfbjarga á útihátíðum eða slást, rupla og nauðga þá er það uppsláttarfrétt. Sömuleiðis er rokk- stjarnan Kurt Cobain gafst upp í heróínmeðferð og svipti sig lífi. En þegar ungmenni skemmta sér óhappalaust á bindindismóti þá vantar fréttapunkt. Og hvað er fréttnæmt við að forsprakkar rokksveitarinnar Rage Against the Machine hafi alla tíð verið bindind- ismenn á áfengi og aðra vímu- gjafa, rétt eins og söngkonurnar Tína Turner, Madonna og Cher, tölvu-pönktríóið Atari Teenage Riot, kántrý-sveitin Rednex og sálar-rappbararnir Arrested Deve- lopment og Spearhead? Bindindisviðhorf Ingimars Eyd- al og Hauks Morthens eru kunn. Þeir voru stúkumenn. Ómar Ragn- arsson er líka þekktur sem bind- indismaður. Færri vita að söngvar- amir Anna Mjöll Ólafsdóttir og Páll Óskar eru bindindismenn. Fyrir hálfu öðru ári var mikið rætt um eiturlyfið ecstasy. Eitur- lyfjasalamir kölluðu það gleðipill- una alsælu. Fjölmiðlar átu nafn- giftina eftir. Þegar neytendur eit- urlyfsins fóru að svipta sig lífi tóku bindindisunglingar til sinna ráða. Þeir ýttu úr vör Gleðisveit- inni alsælu, rapp-metal rokksveit. Jafnframt var haft samband - ýmist bréflega eða símleiðis - við hátt í 100 fjölmiðlamenn. Þeir voru beðnir um að nota alsælu- nafnið einvörðungu um Gleðisveit- ina alsælu en kalla eiturlyfið e-pill- una. Allir - nema ein útvarpsstöð - hlýddu kallinu. í árslok átti bind- indissveitin Alsæla frumsamið lag við kvæði Kristjáns Fjallaskálds, Þorra- þrælinn, á safnplöt- unni Músíkblöndu 1 - Rymur. Lagið hefur notið mikilla vin- sælda, einkum í Rás 2, sem er móttækileg- ust útvarpsstöðva fyr- ir nýskapandi íslenska músík. Myndband við Þorraþrælinn hefur vakið athygli. Þar er kvæðið látið túlka vímuefnavandann. Fíkniefnaneytendur kalla amfet- amín, kókaín o.þ.h. snjó. Ef menn taka of stóran skammt (óverdósa) kallast það að frjósa. Ljóðlínurnar Þegar neytendur eitur- lyfsins fóru að svipta sig lífi, segir Jens Guð- mundsson, tóku bind- indisunglingar til sinna ráða. Þeir ýttu úr vör Gleðisveitinni alsælu. „Nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð ...“ fá því margþætta merk- ingu. I niðurlagi ljóðsins eru menn hvattir til að veija sitt bú betur. Aðeins þannig, þ.e. með öflugri forvörnum og meðferðarstarfi, geti menn linað þraut og komist á ný út í sól og sumaryl. Höfundur er skrautskriftar- kennari og á sæti í framkvæmda- nefnd stórstúku íslands. Jens Guðmundsson Eftirsóknarvert að vera bindindismaður ÞJÓÐFÉLAGSUMRÆÐAN er um vímuvarnir. Gott og vel, vissulega þarf að byrgja brunninn áður en bam- ið er dottið í hann. Ég hef þó af því nokkrar áhyggjur að mér finnst um- ræðan snúast mest um ólöglegu vímuefnin, en skaðsemi áfengis ekki haldið svo mjög á lofti. Ég vona samt að mér hafi yfirsést og ekki verði lögð minni áhersla á að koma í veg fyrir áfengisneyslu en önnur hættu- leg efni. Fyrir skömmu var ég á ráðstefnu í Gautaborg þar sem rætt var um nauðsyn þess að börn fengju að alast upp í vímulausu umhverfi. Þar var m.a. skýrt frá rannsókn sem hefur staðið yfir í nokkur ár á vímuefna- vanda unglinga í ýmsum hverfum Óslóborgar. Fylgst hefur verið með hópi unglinga í gegn um unglingsár- in. Það var athyglisvert að þeir ungl- ingar sem áttu í mestum vanda varð- andi áfengisdrykkju og neyslu ann- arra vímuefna búa í hverfi þar sem flestir foreldrarnir eru vel menntaðir og búa við góða fjárhagsafkomu. Margir unglinganna byijuðu drykkju ungir og oft var fyrsti sopinn borðvín eða bjór heima hjá foreldrunum, sem væntanlega hafa ætlað að kenna börnum sínum „góða vínmenningu". Á ráðstefnunni kom einnig fram að leið vímuefnaneytandans er oftast á þessa leið. Stúlkur: 1. áfengi 2. sígarettur 3. hass 4. önnur vímuefni. Piltar: 1. áfengi 2. sígarettur 3. sniff 4. hass 5. önnur vímuefni. Áður var talið að tóbakið kæmi fyrst og síðan áfengi o.s.frv., en nú virðist sú breyting hafa orðið að síg- arettan er komin í annað sæti. Áróð- ur gegn tóbaki hefur trúlega haft þau áhrif að unglingarnir byrja ekki að reykja fyrr en þeir eru undir áhrifum vímuefna. Þessar upplýsingar ættu að vera okkur umhugs- unarefni, það er ekkert eðlilegt við þáð að 12-14 ára börn séu byijuð að drekka áfengi. Þau eiga eftir að taka út þroska bæði andlega og líkamlega, sem okkur ætti að vera kappsmál að takist sem best. Það er einnig upplýst í gegnum rannsóknir að þeir sem byija að drekka 13 ára drekka yfirleitt miklu meira magn í einu þegar þeir eru orðnir 23 ára, en t.d. sá sem ekki bragðaði áfengi fyrr en 17-18 ára. Afengi er skaðlegt öllum _og ekki síst börnum og unglingum. Ég vona Áfengi er skaðlegt öllum, segir Katrín Eyjólfsdóttir, og ekki síst börnum og unglingum. sannarlega að öll sú umræða sem er og hefur verið um vímuvarnir verði til þess að foreldrar og aðrir uppal- endur verði sér meðvitaðir um ábyrgð sína gagnvart baminu. Fullorðna fólkið verður að sýna af sér ábyrgð og siðferði, sem getur verið barninu fyrirmynd og þroskað siðferðiskennd þess og ábyrgðartilfinningu og gert það fært um að taka sjálfstæðar ákvarðanir á grundvelli þess. Börn þurfa líka að fræðast um réttindi sín og skyld- ur og ekki síst þarf að gera þeim ljóst að lög og reglur era ekki settar til höfuðs þeim heldur verndar og að slíkar reglur á að virða. Margir fögnuðu þeg- ar sterkur bjór var leyfður hér, meðan aðrir báru ugg í bijósti. Því miður hefur flest farið á verri veg í áfengismál- um þjóðarinnar á þess- um árum og lítið farið j fyrir menningarauka af ' hans völdum. Það skýt- ur skökku við að á sama tíma og hrópað er upp vegna vanda unglinganna okkar era ráðamenn þjóðarinnar á fullri ferð að einkavæða áfengissöluna og auð- velda aðgengi sem mest að veigunum. Því má heldur ekki gleyma að vandinn er ekki unglinganna einna, ótal margir fullorðnir beijast við áfengissýkina og reynist það erfitt, ’ sumum tekst að komast úr klóm | Bakkusar en öðrum gengur það iila. Ég tel ekki eftir að fólk fái alla þá aðstoð sem hugsast getur til að losna úr viðjum þessa böls, en hve miklu farsælla hefði ekki verið að drekka aldrei fyrsta sopann? Það er eftirsóknarvert að vera bindindismaður, það er ekkert hallærislegt við það og ég hvet alla unga og eldri til að hugleiða hvort það sé ekki einmitt sú ákvörðun sem ( þeir ættu að taka í dag. i Höfundur er ritari Stórstúku íslands, I.O.G.T. Katrín Eyjólfsdóttir Svik á svik ofan ( Stefna stjórnvalda í áfengismálum 1 FYRIR stuttu hlustaði ég á þátt í Ríkisútvarp- inu, þar sem útlendingar lýstu íslendingum. Þjóð- veiji sagði: Islendingar drekka ekki í vinnunni og yfirleitt ekki nema um helgar. Þeir drekka mun minna en við.“ Mér fundust þetta réttar og skarplegar athuganir og í allt öðrum dúr en sum- ir erlendir fjölmiðlafugl- ar hafa lýst áfengis- ástandi á íslandi. Með þessum orðum er ég ekki að draga úr fréttum af villimennsku og mikilli vínneyslu um helgar í höfuðborginni og annars staðar. Staðreyndin er samt sú, að áfeng- isástand á íslandi, í Noregi og Sví- þjóð er á allt öðra róli en í Danmörku og Mið- og Suður-Evrópu, þar sem neyslan er um og yfír 10 lítrar á mann á ári á móti u.þ.b. 5 lítram hjá okkur og norskum og sænskum frændum okkar. Ástæðan: Frá Mið- og Suður-Evrópu koma 2/s hlutar af vínframleiðslu heimsins og í Dan- mörku eru Carlsberg-verksmiðjumar einn stærsti atvinnurekandinn. Það er með öðrum orðum áfengisauð- magnið, sem hefur lykilstöðu í þess- um heimshluta. Ég hrökk í kút þegar ég sá ástandið í Danmörku, en þar dvöldum við hjónin í eitt ár fýrir skömmu: Flestar víntegundir á boð- stólum í matvöruverslunum, vínbúllur á öðru hveiju götuhorni, ungir sem aldnir drekkandi bjór á götum úti, reykjandi og drekkandi fólk í beinum sjónvarpsútsendingum, mjög vara- samt að vera einn á ferð í lestum eftir kl. 10 á kvöldin, vín haft um hönd á vinnustöðum, jafnvel í skólum. Og þetta gerist í landi þar sem al- mennt siðferði er á mun hærra plani en á íslandi. Það er af ótta við þetta Danmekur- og Mið-Evr- ópuástand í áfengismál- um sem andstaða margra Norðmanna og Svía við inngöngu í Efnahagsbandalag Evr- ópu byggðist að stóram hluta á. Samkvæmt reglum EB er áfengi ekki eitur heldur vara sem skal fijáls. Þess vegna skal það selt óhindrað. Burt með vín- sölur ríkisins, segja þeir. Og vissulega heyr- um við íslendingar enduróm af þessum „frelsis“kröfum hér. Er það ekki heitasta ósk núverandi fjármálaráð- herra að leggja einkasölu á áfengi niður? Þá gætu umboðsmenn vínsal- anna leikið lausum hala og þeir gera Það er einmitt um æsk- una, segir Hilmar Jónsson, sem slagurinn stendur. það raunar nú þegar. Fyrir síðustu kosningar rigndi t.d. yfir í mínu byggðarlagi tilboðum til stjómmála- flokkanna frá hinum og þessum vín- umboðssölum um ókeypis vín, einkum til ungra og óvissra kjósenda. Það hétu kynningar. En það er einmitt um æskuna, sem slagurinn stendur. Sumir segja að hún sé spillt. Slíkar fullyrðingar má styðja með fréttum af barsmíðum og eiturlyfjaneyslu unglinga. En hvaðan fá unglingar sínar fyrirmyndir? Hinn 7. janúar sl. sagði DV að ísfirskir foreldrar keyptu vín handa 14 og 16 ára bömum sínum. Ástæðan: Þau fá það hvort eð er. Og erum við þá komin að hinum Hilmar Jónsson uggvænlegu tölum í skýrslu Ásu Guðmundsdóttur, sálfræðings, um stóraukinn drykkjuskap unglinga eft- ir að bjórinn kom. Kannanirnar vora gerðar 1988 og 1992 og leiddu í ljós að piltar á aldrinum 13-15 ára hafa tvöfaldað neyslu sína svo og stúlkur og það sama gildir um pilta á aldrin- um 16-19 ára. Hið eina jákvæða í I skýrslunni er „að neysla stúlkna á þessum aldri (16-19) hefur staðið í . stað. Ása segir: „Síðustu ár hefur ' svonefnd heilsubylgja gengið yfir. Henni er ætlað að leiða af sér nýjan lífsstíl, þar sem einstaklingurinn lifir í sátt við sjálfan sig og þarf ekki á vímugjöfum að halda ... Enn sem komið er virðist áróður hennar (heilsubylgjunnar) ekki höfða til hraustra ungra pilta, en það er sá markhópur, sem beina þarf athygli að.“ Og í lok skýrslunnar segir Ása: „Forvamarstarf verður að vera stöð- ugt vegna þess að sífellt vaxa upp ( nýjar kynslóðir." Einmitt hér hefur hið stóra slys skeð. Af hálfu ríkis- valdsins era aliar áfengisvarnir og öll bindindisstarfsemi svelt. Á árinu 1993 var til dæmis ríkisstyrkur til Stórstúku íslands felldur niður. Þetta era efndir ráðamanna um að auka og styrkja forvamir í áfengismáium, hátíðleg loforð, sem þeir gáfu þegar bjórinn var samþykktur. íslenskir ' stjómmálamenn álíta að áfengis- 1 vandinn verði helst læknaður með | meðferðarheimilum. í byggingu og rekstur meðferðarheimila er sett ógrynni fjár. Samt er árangurinn þar ekki betri en að 55% fá nokkra bót en 45% litla sem enga. (Upplýsingar frá Guðmundi Jóhannssyni stofnanda Bláa bandsins.) Til þess að snúa þess- ari þróun við þarf sterka bindindis- hreyfingu og liðsmenn hennar eiga að vera óragir við að bera boðskap ( sinn á torg. i ( Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.