Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 1
108 SÍÐURB/C
58. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• 39 sjómönnum bjargað í TF-LÍF á sex dögum • Tíu skipveijum Þorsteins
GK bjargað við Krísuvíkurberg • Tíu bjargað en tveir fórust með Dísarfellinu
SKIPVERJAR á Dísarfelli kræktu saman handleggjum og biðu þannig í um tvær klukkustundir í sjónum eftir björgun. Þeir vissu að þyrla og skip voru á leiðinni, en
meðan þeir biðu gekk sjór, olía og brak frá skipinu yfir þá, í átta til tíu metra ölduhæð, á opnu úthafinu um hundrað sjómílur frá Höfn í Hornafirði.
„Eins og almættið kæmi og
rétti okkur hjálparhönd“
Eignatjón í þremur sjó-
slysum tæpir 4 milljarðar
DÍSARFELLIÐ fórst miðja vegu milli íslands og Færeyja.
Á SEX dögum hefur 39 sjómönnum
verið bjargað úr sjávarháska í björg-
unarþyrlu Landhelgisgæslunnar,
TF-LIF. í gær var 10 mönnum
bjargað af Þorsteini GK, sem rak
vélarvana upp í Krísuvíkurberg. Á
sunnudagsmorgun bjargaði áhöfn
þyrlunnar 10 mönnum af Dísarfelli
eftir að skipið fórst 100 sjómílur
suðsuðaustur af Hornafirði. Tveir
menn fórust í slysinu. Á miðvikudag-
inn var 19 mönnum bjargað af
Vikartindi þegar skipið strandaði
austur af Þjórsárósi, en einn mann
tók út af varðskipinu Ægi þegar það
reyndi að bjarga skipinu.
Skipveijarnir á Dísarfelli voru um
tvo klukkutíma í sjónum eftir að
skipinu hvolfdi í vonskuveðri suður
af landinu á sunnudagsmorgun.
„Við vorum allan tímann sannfærðir
um að okkur yrði bjargað. Það er
ekki hægt að lýsa því þegar þyrlan
birtist. Það var eins og almættið
kæmi þarna og rétti okkur hjálpar-
hönd,“ segir Valdimar Sigþórsson,
háseti á Dísarfelli.
Sjór í lestum
Óljóst er hvers vegna skipið fórst,
en Valdimar segir að sjór hafi af
einhveijum orsökum komist í lestar
skipsins. Hann sagði að skipveijar
á Dísarfellinu hefðu á yfirvegaðan
hátt tekist á við erfiðleikana. Strax
í upphafi hefði verið ákveðið að allar
ákvarðanir yrðu teknar sameigin-
lega og menn reyndu að halda hóp-
inn eftir að í sjóinn væri komið.
Valdimar sagði að skipveijar
hefðu gert sér ljóst að þeir kæmust
ekki í björgunarbáta og þeir myndu
leggja sig í enn meiri hættu við að
reyna það því björgunarbátana rak
með skipinu og að gámum sem voru
á reki við skipið innan um annað
brak. Hann sagði það sitt mat að
skipveijar væru ekki á lífi ef þeir
hefðu reynt að komast í björgunar-
bátana.
Karl Arason, skipstjóri á Dísar-
felli, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að hann gæti ekki tjáð sig um
björgunina fyrr en eftir sjópróf sem
fara fram á morgun. Hann vildi
koma á framfæri innilegu þakklæti
til Landhelgisgæslunnar, áhafnar
björgunarþyrlunnar, björgunar-
manna á Hornafírði og annarra sem
stóðu að björguninni. Þeir hefðu
unnið björgunarafrek sem aldrei
yrði fullþakkað.
Áætlað verðmæti Dísarfellsins,
farms og gáma er 1.650 milljónir
króna. Verðmæti Vikartinds, farms
og gáma er áætlað um 2 milljarðar.
Tryggingarverðmæti Þorsteins GK
er 85 milljónir og er það vanmetið
að mati útgerðarinnar. Samtals má
því áætla að tjón í þessum þremur
sjóslysum sé hátt í 4 milljarða króna.
Ægir nánast á hliðina
í sjóprófum, sem haidin voru
vegna strands Vikartinds, kom
fram að varðskipið Ægir lagðist
nær á hliðina í versta brotinu, þeg-
ar bátsmanninn tók út. Einar Vals-
son skipherra sagði að sjólag hefði
versnað mjög skyndilega. „Miðað
við hvað allt gerðist hratt eftir þess-
ar tilraunir okkar efast ég um að
okkur hefði_ gefist tími til að draga
skipið frá. Ég hefði hins vegar aldr-
ei lagt skip mitt og menn i hættu
ef ég hefði ekki haldið að við gætum
bjargað Vikartindi."
■ Dísarfellið sekkur/13-19
■ Vikartindur/12