Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ DÍSARFELL SEKKUR Frækileg björgun þyrluáhafnar á 10 skipveijum Dísarfellsins við mjög erfiðar aðstæður „Gámar, olía og brak um allan sjó“ Morgunblaðið/Júlíus ÁHOFN TF-LÍF við þyrluna skömmu eftir að lent var með skipbrotsmennina af Dísarfellinu í Reykjavík í hádeginu á sunnudaginn. Talið frá vinstri eru: Ben- óný Ásgrímsson flugstjóri, Auðunn F. Kristinsson stýrimaður og sigmaður, Hilm- ar Ægir Þórarinsson flugvirki og spilmaður, Hermann Sigurðsson flugmaður og Óskar Einarsson læknir. Að ðskari undanskildum er þetta sama áhöfn og bjargaði 19 skipverjum af Vikartindi á strandstað síðastliðið miðvikudagskvöld. ÁHÖFN TF-LÍF, þyrlu Landhelgsisgæsl- unnar, bjargaði 10 skipveijum Dísarfellsins og náði einum látnum skipveija við mjög erfíðar aðstæður eftir að skipið sökk snemma á sunnudagsmorguninn. Áhöfnin hafði þá bjargað 29 mönnum úr sjávarháska á þremur og hálfum sólarhring, en síðastlið- ið miðvikudagskvöld bjargaði hún 19 mönn- um af Vikartindi eftir að skipið strandaði, og í gær bjargaði áhöfn þyrlunnar svo 10 skipveijum af Þorsteini GK til viðbótar. Auðunn F. Kristinsson sigmaður sagði í samtali við Morgunblaðið eftir að TF-LÍF lenti með skipveijana af Dísarfellinu á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu á sunnu- daginn að björgun skipveijanna af Vikar- tindi hefði verið barnaleikur miðað við björgun skipbrotsmannanna af Dísarfellinu og hann vildi ekki lenda í verri aðstæðum við björgun en þá voru. Mjög þrekaður eftir fyrstu tvær ferðimar „Aðstæður voru mjög slæmar, 8-10 metra ölduhæð og mikið brak í sjónum og mikil olía. Eg fór fjórum sinnum niður eft- ir mönnum og tók þá einn og einn í einu. Svo sendum við niður lykkjurnar í hin skiptin og tókum þá tvo og tvo í einu. Ég var orðinn mjög þrekaður eftir fyrstu tvær ferðimar og náði svo að hvíla mig á meðan þeir hífðu fjóra. Síðan vom tveir orðnir slappir sem þurfti að taka, en þeir hjálpuðu sér mikið sjálfir. Þeir vom með fulla meðvitund strákarnir og gátu allir hjálpað sér sjálfir nema þess- ir fjórir. Þeir höfðu allir bundið sig saman nema tveir, og það er í raun og vera það sem auðveldaði þetta svo mikið að við þurftum ekki að vera að leita að þeim út um allan sjó,“ sagði Auðunn. Olían gerði erfitt fyrir Mikil olía var á sjónum sem gerði erfitt fyrir við björgunina og segir Auðunn ol- íuna hafa þyngt björgunarbúningana mikið og björgunarlykkjuna. „ Auk þess er vont að súpa á henni en það fóm nokkrar gusur upp í okkur. Brak- ið í sjónum torveldaði líka því það vildu hengjast á mann einhveijir pokar og dmsl- ur,“ sagði Auðunn. Óttuðust hið versta Benóný Ásgrímsson flugsljóri sagði að áhöfn þyrlunnar hefði verið ræst út um kl. fimm á sunnudagsmorguninn með þeim skilaboðum að Dísarfellið væri komið með um það bil 60 gráðu slagsíðu. „Þetta var bráðaútkall og rétt fyrir hálfsex fómm við í loftið. Það kom í ljós að þetta voru tæpar 300 mílur á slysstaðinn sem gerir um tvo tíma. Það var svo klukk- an sex að ekkert heyrðist frá Dísarfellinu lengur og menn óttuðust hið versta, sem svo reyndar kom í ljós þegar við komum á slysstað. Þá hafði skipinu hvolft og við sáum í botninn á því og gámar, olía og brak var um allan sjó. Það er nokkuð ljóst að mennirnir hafa farið í Slysavarnaskóla sjómanna því þeir gerðu allt hárrétt, þeir bundu sig saman og voru í hóp í sjónum, þannig að við vorum tiltölulega fljótir að finna þá út af því. Samt byrjuðum við að Ieita í kring- um þá hvort hugsanlega væru einhverjir stakir, og það kom svo í ljós að það var einn, sem reyndist vera skipstjórinn, og við byrjuðum á að taka hann fyrst og hann reyndist vera handleggsbrotinn. Síðan fórum við að vinna í hópnum," sagði Benóný. Þegar búið var að ná mönnunum um borð í þyrluna kom í ljós að einn úr áhöfn- inni vantaði. Benóný sagði að strax hefði verið hafin leit að honum og fljótlega hefði áhöfn þyrlunnar komið auga á hann í flot- galla á grúfu í sjónum. „Við fómm alveg yfir og flugum mjög lágt, en það var ekkert lífsmark með hon- um. Við tókum siðan hring og fórum aftur að honum og það var nokkuð ljóst að það var ekkert lífsmark, þannig að við hentum út blysum. Togarinn Hegranes var þarna ekki langt frá og hann sigldi strax á stað- inn og náði manninum um borð og stað- festi að hann var látinn. Þá var orðið tiltölu- lega lítið eldsneyti eftir hjá okkur þannig að við urðum að fara strax til Horaafjarð- ar þar sem við náðum í eldsneyti og skiluð- um af okkur þeim látna sem við höfðum híft um borð,“ sagði Benóný. Aðspurður sagði hann að mjög erfitt hefði verið að stjóma þyrlunni við björgun- ina vegna hinnar miklu ölduhæðar, en við slíkar aðstæður þarf áhöfn þyrlunnar að sæta lagi til þess að flækja ekki vírinn í mönnunum sem verið er að bjarga. „Það er auðvitað mjög erfitt að þurfa að fylgja öldunni svona eftir, en það hjálp- aði mikið að við erum með nóg afl í þess- ari vél,“ sagði Benóný. 39 sjómönnum bjargað úr lífsháska á fjórum dögum ENN einu sinni hefur TF-LÍF, Sup- er Puma þyrla Landhelgisgæslunn- ar, sannað tilverurétt sinn við björg- unarstörf þegar hún á örfáum dög- um hefur í þremur ferðum bjargað ails 39 sjómönnum úr lífsháska. Þyrlan kom til landsins í júní 1995 og var tekin í notkun í ágúst sama ár. Til ársloka 1996 hefur hún alls farið í 39 sjúkraflug og 11 leitar- og björgunarflug. Meðalflugtími þyrlunnar á ári er um 300 tímar og lætur nærri að fjórðungur hans sé vegna æfinga. „Við vissum að þetta er öflug vél og ég er ánægður og stoltur yfir því hversu vel þessar aðgerðir tók- ust. Ég ætla að vona að nú þagni raddir um að leggja þurfí vélinni í sparnaðarskyni," segir flugrekstr- arstjóri Landhelgisgæslunnar, Páll Halldórsson yfirflugstjóri, í samtali við Morgunblaðið. Ríkisstjórnin ákvað 6. maí 1994 að endurnýja björgunarþyrlukost Landhelgisgæslunnar með því að kaupa þessa frönsku þyrlu sem er af gerðinni Aerospatiale AS 332L1 Super Puma. Var hún þá átta ára gömul og hafði henni verið flogið i 350 tíma. TF-LÍF er ellefta þyrlan sem Gæslan fær. Kaupverð ásamt varahlutum og tækjum var tæplega einn milljarður króna. TF-LIF er mun stærra og afkastameira tæki en fyrrý þyrlur Gæslunnar. TF-LÍF ber við bestu skilyrði 20 farþega ásamt fjögurra manna áhöfn, þ.e. flugstjóra, flugmanni, spilmanni og sigmanni, en í björg- unarflugi bætist fimmti maðurinn við, læknirinn og getur þyrlan þá tekið 19 manns um borð. Þegar farið er í lengstu leiðangrana með fulla tanka af eldsneyti, t.d. 290 mílur út, getur hún tekið 14 farþega auk áhafnar. Til samanburðar má nefna að TF-SIF tekur 8 manns í sæti ásamt þriggja manna áhöfn. TF-LÍF er með afísingarbúnaði, fjögurra ása sjálfstýringu og tvö- földu björgunarspili. Við björgun áhafnar Víkartinds í síðustu viku voru 19 menn hífðir um borð en fyrir það flug hafði verið létt á þyrlunni með því að fjar- lægja kringum 100 kg af læknabún- aði sem venjulega er um borð og hún þyrfti heldur ekki að vera full- hlaðin eldsneyti. Ræðst það af veðri og slysstað hvort burðargetan skerðist, þ.e. hversu langt er að næsta eldneytisstað. „Viðmiðunin er 290 sjómílur að slysstað, að geta dvalið þar í 45 mínútur, híft upp 14 manns, flogið til baka og átt hálftíma flugþol eftir þegar komið er að næsta eldsneytis- stað,“ segir Páll Halldórsson, ',,„en þetta er alltaf samspil milli eldsneyt- ismöguleika, veðurs og annars sem meta þarf.“ Páll segir einnig að þrátt fyrir nákvæmar upplýsingar um burðargetu geti neyðarástand valdið því að hugsanlegt sé að leggja meira á þyrluna, slíkt sé alltaf matsatriði. „Þetta hefur verið ótrúleg vika og það er ljóst að TF-SIF hefði aldr- ei getað annast þessi verkefni. Á henni er hægt að fljúga 150 mílur út, vera yfir staðnum í 45 mínútur, fljúga til baka og eiga 30 mínútur eftir í flugþoli.“ Páll segir hins veg- ar að alltaf sé gætt þeirrar hag- kvæmni að þegar hægt sé að ann- ast verkefni á TF-SIF sé það gert en í lengri og erfiðari leiðangra sé farið á TF-LIF. Meða] annarra erfiðra leiðangra á TF-LÍF á síðustu misserum má nefna þegar ísraelsmenn voru sóttir í Kverkfjöll, en þá var bæði iangt að fara og veður og ísing gerðu öðrum björgunarþyrlum erfitt fyrir; ennfremur þegar slasaðir farþegar voru sóttir eftir að langferðabíll valt skammt norðan við Stað í Hrútafirði, þá var líka við erfitt veður að kljást en þá var reyndar einnig farið á TF-SIF. Fullkomin bráðamóttaka Segja má að TF-LÍF sé fljúgandi bráðamóttaka enda aðstaða um borð allt önnur en í TF-SIF og öðrum þyrlum sem Landhelgisgæslan hef- ur rekið. Læknar þyrluvaktarinnar hönnuðu ásamt starfsmönnum flug- deildar nýtt „sjúkrastell" í þyrluna. Meðal búnaðar eru tæki til endur- lífgunar þar sem fylgjast má stöð- ugt með hjartslætti, gefa rafstuð, og koma fyrir ytri gangráði við of hægum hjartslætti, einnig öndunar- vél, búnaður til svæfmga og barka- þræðingar og svokallaður lífvaktari sem gerir kleift að fylgjast með lífs- marki sjúklings. Læknir og aðstoð- armenn hafa mun betri aðstæður um borð til að sinna slösuðum en í minni þyrlunum og hafa læknar orðað það svo að bakpokalæknis- fræðin hafí hér vikið fyrir fullkom- inni bráðamóttöku. Flugdeild Landhelgisgæslunnar hefur starfað í rúma íjóra áratugi en fyrsta þyrlan var keypt í mars 1995. Þáttaskil urðu í rekstri Land- helgisgæslunnar árið 1985 þegar ný Dauphin vél, TF-SIF, kom til lands- ins. Var þá farið að hafa þyrluáhöfn til reiðu allan sólarhringinn og í kjöl- farið bættust læknar frá slysadeild Borgarspítalans í áhöfn þyrlunnar. Arlegur rekstrarkostnaður Super Puma þyrlunnar er um 165 milljón- ir króna miðað við 300 flugtíma samkvæmt rekstraráætlunum. Stærstu liðimir eru afskriftir og vextir, samtals um 70 milljónir króna, 16 milljónir eru vegna trygg- inga, annað eins vegna flugmanna, 5,5 milljónir vegna viðhalds og 25 milljónir eru ýmis kostnaður. Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg ÞÓTT mun meira rými sé um borð í TF-LÍF en TF-SIF getur orðið þröng á þingi þegar margir em komnir um borð. STJÓRNKLEFINN. TF-LÍF er með afísingarbúnaði og fjögurra ása sjálfstýringu. í > \ i ► i Morgunblaðið/Halldór SÉÐ inn í farþegarýmið. Olía af flotbúningum skipbrotsmanna Dísarfells hefur smitast um veggina. 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.