Morgunblaðið - 11.03.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 9
FRÉTTIR
Átak gegn inn-
brotum í bíla
Á SÍÐASTA ári var tilkynnt um
innbrot í rúmlega eitt þúsund bif-
reiðir á höfuðborgarsvæðinu, þ.e.
að meðaltalþ þijú innbrot hvern
dag ársins. í þessum innbrotum
handtóku lögreglumenn u.þ.b. 60
manns.
Lögreglan hefur unnið úr upp-
lýsingum varðandi innbrot í bif-
reiðir og annað á höfuðborgar-
svæðinu í samvinnu við RLR.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns er ætlunin á næstunni
að efla aðgerðir gegn slíkum af-
brotum, s.s. með eftirliti og mark-
vissari afgreiðslu slíkra mála.
VIÐ leit á ökumanni, sem stöðvað-
ur var á föstudag á Laugavegi,
fannst eitt gramm af ætluðu am-
fetamíni. Hann var færður á lög-
reglustöð til skýrslutöku.
Um nóttina voru 5 aðilar færðir
á stöð eftir að lítilsháttar af ætl-
uðu hassi fannst í fórum þeirra.
Fólkið hafði verið stöðvað á bif-
reið á Grandagarði.
Ónæði leiddi til fundar
Skömmu síðar voru 5 aðilar
færðir á stöð eftir að tæplega 50
skammtar af LSD höfðu fundist í
fórum þeirra, eitthvað að hassi og
amfetamíni í húsi við Tryggva-
götu.
Athyglinni verður ekki síst
beint gegn þeim aðilum, sem kom-
ið hafa við sögu slíkra mála,
tengsl þeirra innbyrðis, með-
höndlun þýfisins svo og þeim sem
líklegir eru til að hafa það undir
höndum.
Munir verði
merktir
Þá mun lögreglan leita sam-
starfs við tryggingarfélög og aðra
varðandi skipulegar upplýsingar
til eigenda ökutækja og merkingar
muna, svo auðveldara verði að
koma þeim til skila er þeir finnast
á ný.
í fyrra fundust 261 skammtur
af LSD hérlendis, 11 árið 1995,
369 skammtar árið 1994, 69
skammtar árið 1994, 97 skammtar
árið 1993 og 5 skammtar árið
1992.
Fíkniefni fundust á einum aðila
er lögreglumenn komu á vettvang
eftir að kvartað var yfir ónæði frá
íbúð við Vallarás á laugardags-
morgun. Hann var færður í fanga-
geymslu, en öðrum gestum var
vísað út.
Á laugardagsnóttina voru þrír
menn fluttir á stöð eftir að tæpt
gramm af amfetamíni fannst í
fórum þeirra á veitingastað við
Laugaveg.
Sænska
sendiráðið
kynnir land
sitt og þjóð
SENDIRÁÐ Svíþjóðar við Lágmúla
7 í Reykjavík er með opið hús í dag
til klukkan 15, þar sem almenningi
gefst kostur á að skoða sig um og
bera fram spurningar til sendiherr-
ans og annars starfsfólks sendiráðs-
ins.
Að sögn Daina Zaidi, blaðafull-
trúa sendiráðsins, er tilgangurinn
með opnu húsi fyrst og fremst sá
að kynna land og þjóð fyrir Islend-
ingum og sjái margir sér fært að
mæta sé hugsanlegt að slík uppá-
koma verði að árvissum viðburði
hér eftir. Daina segir ennfremur
að hugmyndin hafi komið frá utan-
ríkisráðuneytinu í Stokkhólmi, en
þeim tilmælum hafi verið beint til
sendiráða Svíþjóðar um allan heim
að Svíþjóð verði auglýst með þeim
hætti að hafa opið sendiráðshús
fyrir almenning í einn dag.
-----♦ ♦ ♦
Sakaði dyra-
vörð um
nauðgun
TVÍTUG stúlka kom inn á veitinga-
stað við Lækjargötu aðfaranótt
sunnudags og kvað dyravörð ná-
lægs veitingastaðar hafa nauðgað
sér þar skömmu áður.
Lögreglumenn færðu stúlkuna á
neyðarmóttöku slysadeildar fyrir
fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis
og sneru sér síðan að rannsókn
málsins í samvinnu við Rannsóknar-
lögreglu ríkisins.
50 skammtar af LSD
og- amfetamín
1
1
L
Nýtt útbob
ríkisbréfa
mibvikudaginn 12. mars 1997
Ríkisbréf, 1. fl. 1995
til 5 ára
Útgáfudagur: 22. september 1995
Gjalddagi: 10. október 2000
Greiðsludagur: 14. mars 1997
Einingar bréfa: 100.000, 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráning: Eru skráð á Verðbréfaþingi íslands
Sölufyrirkomulag:
Ríkisbréfin verða seld með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða
í ríkisbréf að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en
10 milljónir króna aö söluverði.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
sjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í
meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki 100.000 krónur.
ÖIl tilboð í ríkisbréf þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn 12. mars 1997. Útboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 562 4070
Kvenbuxur
95% bómull, 5% iycra. Verð kr.
Stærðir 36-46 - margir litir 3.900-4.900
Polarn&Pyref
Vandaður kven- og barnafatnaður,
Kringlunni, simi 568 1822
NY SENDING
faá-Cýfmfnhítdi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 18-18.30, laugardaga frá kl. 10-15.
Frábær fyrirtæki
1. Lítil verksmiöja sem framleiöir haröfisk til sölu. Flest tæki
sem þarf. Þarf að flytjast úr núverandi húsnæöi.
Verö kr. 1 millj. Laus strax.
2. Einstök gjafavöruverslun á frábærum staö. Gott tækifæri
fyrir þá sem vilja vera sjálfstæðir og selja fallega vöru i góöu
umhverfi.
3. Kvenfataverslun á Laugaveginum í góöu húsi ofarlega.
Sanngjarnt verð - laus strax - eftirsóttur staöur.
Fyrstir koma - fyrstir fá.
4. Gömul rótgróin snyrtivöruverslun á frábærum staö til sölu.
Góöur vörulager, þekkt merki. Laus strax af sérstökum
ástæöum.
5. Ein fallegasta gjafavöruverslun viö Laugaveginn til sölu.
Skemmtileg verslun fyrir smekklegt fólk. Hafiö strax sam-
band, eftirsótt verslun.
6. Falleg barnafataverslun á góðum staö. Eigin innflutningur frá
stórum framleiðanda. Skemmtilegt fyritæki meö góöar vörur.
7. Hverfisbjórkrá í fjölmennu íbúðarhverfi. Nýjar innréttingar í
nýju húsi. Vaxandi velta, góðar tekjur. Trygg og góö atvinna
fyrir réttan aðila.
8. Matsölu- og vinveitingastaöur á besta staö i borginni. Miklir
möguleikar til aö auka umsvif. Vinsæll staður sem allir
þekkja og margir sækja.
Upplýsingar aöeins á skrifstofunni.
iy7TTÍ;l7ilTT7f^TTYTT7
SUÐURVERI
SÍMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
HURÐIR HF
Skeifan 13 • 108 Reykjavík • Sími 568 1655