Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 19
DÍSARFELL SEKKUR
Verið að bjarga þeim síðustu úr áhöfn
Dísarfells er Hegranes kom á vettvang
Ekki liægt að
ná mönnun-
um af skipi
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
SVERRIR Kjartansson skipsljóri í brúnni á Hegranesinu SK.
HEGRANES SK kom á staðinn
þar sem Dísarfellið sökk þegar
áhöfnin á TF-LÍF átti eftir að hífa
tvo skipbrotsmannanna úr sjónum
og að sögn Sverris Kjartanssonar,
skipstjóra á Hegranesinu, var stór-
hættulegt að sigla um svæðið
vegna braks úr Dísarfellinu.
Hann segir að sennilega hefði
reynst ógjörningur að ná áhöfn
Dísarfellsins um borð í skip vegna
hættunnar sem stafaði af gámum
og öðru braki.
Keyrðu í þijá tíma
á móti brælunni
„Við vorum um 30 sjómílur
norðaustur af Dísarfellinu þegar
þeir sendu út neyðarkall og þurft-
um við að keyra á móti brælunni
í þrjá tíma, en þá hafði þá rekið
í átt að okkur. Þyrlan kom á stað-
inn um hálftíma á undan okkur
og þá var skipið komið á hvolf.
Um 3-4 sjómílum áður en við
komum á staðinn fórum við að
koma að íjúkandi rusli, korkein-
angrun úr gámunum og fleiru, en
þetta var eins og skæðadrífa út
um allt. Síðan komum við að gám-
um marandi í kafi í sjónum og þá
var orðið varhugavert að vera
þarna,“ sagði Sverrir.
Ekki inn í þetta nema af
því að menn voru í sjónum
Hann sagði að þegar Hegranes-
ið hefði komið að þar sem áhöfnin
á TF-LÍF var að hífa mennina upp
hafi verið mikið af gámum í sjón-
um og mjög erfitt að athafna sig
á milli þeirra.
„Þá voru þarna fiskikör og
ýmislegt annað í sjónum. Maður
var á nálum allan tímann með
gámana allt í kringum sig, en
þeir voru alveg í tætlum sumir og
hliðarnar úr þeim fljótandi út um
allt. Maður hefði ekki farið neitt
inn í þetta nema af því að maður
vissi að það voru menn þama enn-
þá í sjónum.
Þeir á þyrlunni hífðu þann síð-
asta úr hópnum upp þegar við
vorum komnir inn í þetta og svo
vora þeir að lóna þarna yfir þeim
látna sem varð eftir. Þeir þurftu
svo að fara og við tókum þennan
síðasta og voram við lengi að ná
honum um borð innan um allt
brakið en því var lokið rétt fyrir
kl. 10,“ sagði Sverrir.
Ólgandi sjór eftir
stöðuga brælu
Hegranesið er búið að vera á
þessum slóðum í níu daga en það
er að fiska fyrir siglingu og á að
selja í Þýskalandi 19. mars. Sverr-
ir sagði að veðrið hefði verið ág-
ætt fyrstu fjóra dagana en síðan
hefði verið suðvestan, sunnan og
suðaustan 8-10 vindstig og sjórinn
ólgandi eftir þessa stöðugu brælu.
„Við höfum lítið getað verið að
síðustu dagana og voram bara að
lóna þarna þegar beiðnin um að-
stoð barst. Þá var geysilega mikil
ölduhæð en sem betur fer var að
lægja og birta þegar þyrlan kom.
Ég held að hún hafi alveg skipt
sköpum því það hefði aldrei verið
hægt að ná þessum mönnum upp
úr sjónum á skipi innan um allt
þetta brak nema setja skipið í stór-
hættu.
Hegranesið óskemmt
Engar skemmdir urðu á Hegra-
nesinu innan um allt brakið úr
Dísarfellinu og þegar tekist hafði
að ná síðasta skipveijanum um
borð í togarann sigldi hann út af
hættusvæðinu. Skipverjinn var svo
fluttur um borð í varðskip Land-
helgisgæslunnar sem komið var á
vettvang, en það kannaði aðstæð-
ur á slysstað í gærmorgun og
ætlaði m.a. að reyna að ná björg-
unarbátunum af Dísarfellinu.
PHILIPS
n
Hljómar vel
2 x 40W
3ja diska
RDS (Radio Data system)
Incredible Sound
3way hátalarar
‘ 5
fl
23.650 kr.
stgr.
2 x 20W
Surround Sound
Tveir aukahátalarar
Tónjafnari m/rock,
classic, jazz o.fl.
L
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt