Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 20

Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ 12:00 13:00-13:15 13:15-13:30 13:30-14:00 14:00-14:30 34:30-15:00 15:00-15:15 15:15-15:4$ 15:45-16:15 16:15-16:45 * Afengis- og vímuefna- notkun unglinga Ráðstcfna á Hótel KEA, 20. og 21. mars 1997. Dagskrá Fimmtudagur 20. mars 1997 Skráning og afhending ráðstefnugagna Setning-Jakob Bjömsson, bæjarstjóri Avarp-Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, borgarstjóri í Reykjavík Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ Bjöm Jósef Amviðarson, sýslumaður á Akureyri Páll Tryggvason, bama- og unglingageðlæknir Kaffihlé Gísli Ámi Eggertsson, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur Snjólaug Stefánsdóttir, verkefnisstjóri, „ísland án eiturefna" Þurí Björg Björgvinsdóttir & Sigurður Jónsson Jafningjafræðsla framhaldsskólanema AKUREYRI Morgunverðarfundur Yerslunarráðs Einkavæðing á fjármagns- markaði og atvinnulífið EINKAVÆÐING á fjármagns- markaði - verður atvinnulífínu bet- ur þjónað, er yfírskrift morgunverð- arfundar Verslunarráðs íslands sem haldinn verður á Hótel KEA á morgun, miðvikudaginn 12. mars. Fundurinn stendur frá kl. 8 til 9.30 en þar verður fjallað um ríkisbank- ana og fjárfestingalánasjóði. Framsögumenn verða Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, og Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Ný- sköpunar- og þróunarsviðs Sam- heija. Starfsemi opinberra fyrirtækja er um 70% af ljarmagnsmarkaðn- um. Viðamiklar breytingar eru fyr- irhugaðar þar á með frumvarpi um einkavæðingu ríkisbankanna tveggja og þriggja íjárfestingalána- sjóða í Fjárfestingabankann annars vegar og Nýsköpunarsjóð hins veg- ar. Leitast verður við að svara því hvort opinber starfsemi sé undir það búin að starfa við krefjandi skilyrði fijáls markaðar eða hvort hin nýju hlutafélög verði undir í hinni hörðu samkeppni, hvort stofnun Fjárfest- ingabankans stuðli að aukinni hag- ræðingu á fjarmagnsmarkaðnum og hvert hlutverk hin nýja Nýsköp- unarsjóðs verði. 09:00-09:15 09:15-09:30 09:30-10:00 10:00-10:30 10:30-10:45 10:45-11:00 11:00-11:30 11:30-12:00 12:00-13:15 13:15-13:45 13:45-14:15 14:15-14:45 14:45-15:00 15:00-16:00 16:00 Ráðstefnustjórar: Heifíiriyðtsráöurte yttð Föstudagur 21. mars 1997 Ávarp-Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra Ávarp-Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ Sigurður Magnússon, fræðslustjóri ÍSÍ Valgerður Magnúsdóttir, félagsmálastjóri Akureyrar Kaffihlé Kristín Sigfúsdóttir, formaður Áfengis- og vímuvamanefndar Akureyrar Steinþór Einarsson, formaður SAMFÉS, Samtaka félagsmiðstöðva Ólafur H. Oddsson, héraðslæknir Norðurlandshéraðs eystra Matarhlé Unnur Halldórsdóttir, framkv.stj. samtakanna Heimili og skóli Foreldravaktin-Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkmnarfræðingur Elísa Wium, framkvæmdastjóri Vímulausrar æsku Jóhannes Bergsveinsson, Áfengisvarnaráði, yfirlæknir geð- deildar Landspítalans Kaffihlé Pallborðsumræður, með þátttöku framsögumanna Ráðstefnu slitið Þátttakendum gefst kostur á fyrirspumum í lok hvers erindis. Sigmundur Emir Rúnarsson, aðstoðarfréttastjóri Stöðvar 2 Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags-Tímans Ráðstefnugjald er krónur 3.500,- Þátttaka tilkynnist Upplýsingamiðstöðinni á Akur- eyri í síma 462 7733 fyrir kl. 12:00, þriðjudaginn 18. mars 1997. Sérstök tilboð á flugi og gistingu eru í boði vegna ráðstefn- unnar. Allar nánari upplýsingar um flug og gistingu veitir ferðaskrifstofan Úrval-Utsýn á Akureyri í síma 462 5000 BLUriDUGLUGGATJÖLD Breidd 120 cm til 150 cm ’V. Z-BRAUTIR OG GLUGGATJOLD, FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333. •• Olvaður á ferð með bamavagn UM kl. 5 aðfaranótt sunnudags vakti maður ýtandi barnavagni á undan sér athygli lögreglumanna á eftirlitsferð um Þingvallastræti. Var maðurinn greinilega vel við skál og þótti lögreglu því ekki annað fært en að kanna innihald vagnsins og athuga hvort maður í þessu ástandi væri virkilega að viðra hvítvoðung um miðja nótt. Brást maðurinn ókvæða við þess- um afskiptum og las lögreglu pist- ilinn með alls kyns svívirðingum. Við skoðun á vagninum fannst ekkert ungbarn en nokkrir per- sónulegir munir mannsins sem hann hafði kosið að flytja með þessum hætti og var honum því leyft að halda áfram för sinni. ----------------- Margir aka of hratt ÓVENJU margir ökumenn hafa verið kærðir fyrir að aka of hratt síðustu daga, eða um tuttugu manns. Lögregla hvetur ökumenn til að fylgjast betur með hraðamæli bif- reiða sinna, en aðstæður til akst- urs eru fremur slæmar í bænum um þessar mundir, hálka, ísing og háir snjóruðningar sem byrgja mönnum sýn og því rík ástæða til að fara varlega. ----» ♦ ♦--- Punkturinn kynntur KRISTBJÖRG Magnadóttir kynnir tómstundamiðstöðina Punktinn á mömmumorgni í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á morgun, mið- vikudaginn 12. mars frá kl. 10 til 12. Leikföng og bækur eru fyrir bömin. Morgunblaðið/Hörður Geirsson Lítið hægt að fljúga um helgina vegna veðurs ERFIÐLEGA gekk að halda uppi flugsamgöngum um helgina og lentu margir sem ætluðu sér að vera á ferð og flugi í óþægindum. Ókyrrð í lofti, ísing og leiðinlegt veður um land allt gerðu að sögn Bergþórs Erlingssonar umdæmisstjóra Flug- leiða á Akureyri að verkum að lítið var hægt að fljúga. A fimmtudagskvöld varð ein Fokkervél innlyksa á Akureyrarflug- velli og komst ekki suður aftur fyrr en eftir hádegi á föstudag. Þá um kvöldið komu um 150 farþegar með þotu frá Keflavík en um fleiri flug- ferðir var ekki að ræða þann dag- Færri um- ferðarslys Ólafsfirði. Morgunblaðið. í SKÝRSLU fyrir árið 1996 sem lögreglan í Ólafsfírði hef- ur tekið saman kemur fram að mikil fækkun umferðar- slysa er milli áranna 1995 og 1996 eða úr 29 í 16. Þakkar lögregla það einkum góðu veðri. Á árinu voru alls skráð hjá lögreglunni 342 mál, umferð- arlagabrot voru 142 og þá voru 22 færðir í fangageymsl- ur, 66 sinnum þurfti að hafa afskipti vegna ölvunar og 20 þjófnaðir voru á árinu. Ellefu mál eru óupplýst eftir árið. inn. Þá biðu um 150 manns eftir flugi. Ekkert var hægt að fljúga á laugardag en á sunnudag var farið frá Keflavík undir kvöld. Dugði þá ekkert minna en stærsta vél Flug- leiða, Boeing 757, auk einnar Fokk- ervélar, en þær fluttu um 230 far- þega bæði norður og suður. „Veðrið setti stórt strik í reikninginn, hér voru öll hótel full m.a. vegna árshá- tíðar Landsvirkjunar sem haldin var um helgina, en því miður komst ekki nema hluti af fólkinu norður. Þetta var afskaplega leiðinleg helgi í fluginu,“ sagði Berþór en í gær, mánudag, var hið besta veður. Kvenfélagið Æskan 80 ára Leikskólinn fékk burstabæ KVENFÉLAGIÐ Æskan í Ólafs- firði verður 80 ára á þessu ári, eða 17. júní næstkomandi. Félagið mun minnast þessara tímamót með margvíslegum hætti. Nýlega var gefin út uppskriftar- bók og var hún seld í bænum. Þá gaf félagið á dögunum leikskólan- um Leikhólum lítinn burstabæ sem Hilmar Tryggvason þúsundþjala- smiður smiðaði. Bærinn ætti að koma í góðar þarfír fyrir leikskól- ann til sýningar á því hvernig krakkar bjuggu og léku sér í gamla daga. ) i ) ) ) I í i l l CTADKC<S|, HOTEL KEA STARFSFOLK 19 4 4 HOTEL KEA ÞAKKAR 1944 FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR Á PÁSKATILBOÐI HÖTELSINS FYRIR HÖND STARFSFÓLKS HÓTEL KEA SEM STENDUR ER FULLBOKAÐ FYRIR FJÖLSKYLDUFOLK NOKKUR HERBERGI ERU LAUS FYRIR EINSTAKLINGA. i i L I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.