Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 41

Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 41 í Varasveitirnar og Borgnesingar í úrslitin BRIPS B r i d s h ö 11 i n Þönglabakka UNDANKEPPNI ÍSLANDSMÓTSINS í SVEITAKEPPNI Yflr 200 þátttakendur - Aðgangnr ókeypis EITT skemmtilegasta mót vetr- arins, undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni, fór fram um helg- ina. Þar mættust sterkustu sveitir landsins, en 40 sveitir spiluðu um 10 sæti í úrslitunum, sem fram fara um bænadagana. Eftirtaldar sveitir unnu sér rétt til að spila í úrslitunum: Landsbréf, Búlki, Eurocard, Verðbréfamarkaður Ís- landsbanka, Samvinnuferðir/Land- sýn, Málning hf., Anton Haralds- son, Sparisjóður Mýrasýslu, Hjól- barðahöllin og sveit Símonar Sim- onarsonar. Tvær þessara sveita, sveit Sím- onar Símonarsonar og Málningar hf., komu inn í keppnina sem vara- sveitir og spiluðu sig inn í úrslitin en auk þeirra kom sveit Sparisjóðs Mýrasýslu nokkuð óvænt í úrslit en þeir eru 5. sterkasta sveitin í sínum riðli skv. meistarastigaskrá og eru í E-flokki. Þeir Borgnesingar eru reyndar engir byrjendur í íþrótt- inni allt gamalreyndir harðjaxlar. A-riðill í þessum riðli spiluðu Landsbréf og Búlki og voru þessar sveitir fyrir mót taldar nokkuð öruggar í úrslit- in. Sveit Gylfa Pálssonar frá Akur- eyri taldi það hins vegar ekki vera lengst af og fyrir síðustu umferðina leiddu Akreyringarnir riðilinn, höfðu unnið 4 leiki og gert tvö jafn- tefli og voru með 120 stig. Þeir spiluðu við Landsbréf og áttu afleit- an leik, einkum síðari hálfleikinn og töpuðu 25-0. Búlki tapaði síð- asta leiknum en aðeins 13-17 og hékk því inni í úrslitunum. Lokastaða efstu sveita: Landsbréf 142 Búlki 127 Gylfi Pálsson 120 Byggingavörur Steinars 107 B-riðill Sveit Eurocard byijaði keppnina með miklum látum og vann VÍB í fyrsta leiknum með 24-6. Þeir héldu uppteknum hætti allt mótið og unnu aíla sína leiki. Sveit VÍB var ekki fullmönnuð þar sem tveir sveitar- meðlimir voru erlendis. Þeir unnu aðra leiki mótsins og skiluðu sér í úrslitin nokkuð örugglega. Lokastaðan í riðlinum: Eurocard 148 Verðbréfamarkaður Íslandsb. 132 ísl. útflutningsmiðstöðin 122 Guðfinnur KE 111 C-riðill Inn í þennan riðil kom sveit Málningar sem varasveit en hún var feti frá því að komast í keppnina í undankeppninni í Reykjavík í vetur. Þeir spiluðu sig inn í úrslitin með því að vinna 5 leiki nokkuð örugg- lega en með þeim koma Samvinnu- ferðir/Landsýn, sem tapaði aðeins einum leik með minnsta mun en það var gegn Kaupfélagi Hér- aðsbúa, sem endaði í neðsta sæti í riðlinum. Sveit Roche, sem spilaði hvað best á Bridshátíð, komst ekki í úrslitin að þessu sinni en þeir voru næstefsta sveitin skv. meist- arastigaskrá. Lokastaða efstu sveita í riðlinum: Samvinnuferðir/Landsýn 136 Málning hf. 120 LaCacé 110,5 Roche 107,5 Héðinn Schindler 101 D-riðill I þessum riðli tók sveit Antons Haraldssonar öll völd og vann alla Morgunblaðið/Amór HANN var örlagaríkur síðasti hálfleikurinn hjá sveit Gylfa Páls- sonar. Þeir norðanmenn höfðu spilað „eins og englar“ allt mótið og voru í efsta sæti í A-riðlinum fyrir síðasta leikinn en þá kom bakslagið og þeir töpuðu leiknum 0-25. Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson spiluðu í opna salnum gegn Ragnari Hermannssyni og Birni Eysteinssyni. SVEIT Málningar hf. kom inn sem varasveit og spilaði sig inn í úrslitin. Talið frá vinstri: Jón Steinar Gunnlaugsson, Steingrímur Gautur Pétursson, Ragnar Björnsson, Hjálmtýr Baldursson og Jón Alfreðsson. Á myndina vantar Baldvin Valdimarsson. sína leiki með glæsibrag og náði hæsta skori mótsins, 159 stigum, sem er tæplega 23 stig að meðal- tali í leik. Sveitin Marvin sem var stigahæsta sveitin skv. meistara- stigaskrá náði ekki í úrslitin að þessu sinni. Þeirra sæti tekur Spari- sjóður Mýrasýslu, sem spilaði sig inn í úrslitin í lokaleiknum. Borg- nesingar voru 5. stigahæsta sveitin í riðlinum eða svokölluð E-sveit. Lokastaðan: Anton Haraldsson 159 Sparisjóður Mýrasýslu 118 Marvin 117 Björn Friðriksson 101 E-riðill Hjólbarðahöllin vann 6 fyrstu leiki sína í þessum riðli og tryggði sér þar með sæti í úrslitum. í þenn- an riðil kom sveit Símonar Símonar- sonar sem varasveit. Það ruglaði nokkuð styrk riðilsins en Símon og félagar hans gáfu ekkert eftir og náðu örugglega öðru sætinu en sveit Þormóðs ramma varð að sætta sig við 3. sætið í riðlinum en það er hin þekkta bræðra/feðga sveit frá Siglufirði sem varð Islands- ■-----------■ SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur Oáuntv tískuverslun j V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 j meistari fyrir nokkrum árum. Lokastaðan í riðlinum: Hjólbarðahöllin 147 Símon Símonarson 124 Þormóður rammi 115 Sigfús Þórðarson 109 Mótið var að mestu prúðmann- lega leikið. Þó urðu einhver leiðindi sem vonandi eru nú gleymd en góð- ir keppnisstjórar, Sveinn R. Eiríks- son og Jakob Kristinsson, lentu í rimmu við einn þátttakandann, sem lét orð falla sem betur væru ósögð. Mótið fór að öðru leyti mjög vel fram. Ef eitthvað er þá má nefna að maturinn hjá vertinum, sem er yndisleg kona, er nokkuð dýr enda borðuðu fáir. Arnór Ragnarsson fcuölcUs}U /ú eyísir Aldamótaverð kr. 2000 imt&eúttt títmffliííD- Súpa eða salat —ctmiKim— Léttsteiktur lambavöðvi eða kjúklingabringa meö villisveppasósu eða fiskfang dagsins eða grænmetislasagne —Híumim— Hnetumousse eða kaffi og sætindi Ofi ballið initHalið \Borðapantanir sími 551-9636 Aðalfundur Islandsbanka hf. Aðalfundur íslandsbanka hf. 1997 verður haldinn í Súlnasal Ilótel Sögu niánudaginn 17. mars 1997 og hefst kl. 14:00. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans. 2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á hlutabréfum í íslandsbanka hf. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 11. mars kl. 17:00. Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð, 13. og 14. niars frá kl. 9:15 -16:00 og á fundardegi frá kl. 9:15 - 12:00. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 10. mars 1997. Illuthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi. 7. mars 1997 Bankaráð íslandsbanka hf. ISLANDSBANKI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.