Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hverfafundur
‘ með borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur hverfafund með íbúum í
Háaleitis-
Smáíbúða-
Bústaða-
Fossvogs-
og Múlahverfi
í Réttarholtsskóla fimmtudaginn 13. mars kl. 20.00.
Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða
um áætlanir og framkvæmdir í
hverfunum. Síðan verða opnar umræður
og fyrirspurnir með þátttöku
fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Jafnframt verða settar upp
teikningar af fyrirhuguðum
framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru
fróðlegu og myndrænu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.
smáskór
Mikið úrval af góðum
fyrstu skóm.
St. 17-25. 6 gerðir með lausum
innleggjum.
Erum í bláu húsi við Fákafen.
Brúðhjón
Áliur borðbiínaður Glæsilctj gjafavara Bi líðarhjóna lislar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
-kjarni málsins!
IDAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í 1.
deildarkeppni
Skáksambands
íslands um mán-
aðamótin. Bene-
dikt Jónasson
(2.285), Taflfé-
lagi Garðabæjar,
hafði hvítt og átti
leik, en Jóhannes
Jónsson (1.970),
Skákfélagi Kópa-
vogs, var með
svart.
lSvartur var að
enda við að taka
eitrað peð á g5.
19. Dh3! -
Dxcl+ 20. Bdl - f6 21.
Dh7+ - Kf7 22. Dxg7+
— Ke8 23. Dxg6+ og
svartur gafst upp.
Eftir 23. - Kd8 24. Dg7
— He8 25. Hh7 er stutt í
mátið.
HVÍTUR leikur og vinnur.
COSPER
AF hveiju svaraðu ekki símanum?
HOGNIHREKKVISI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Þakkir fyrir
blaðagrein
GUÐRÚN hringdi og
vildi hún senda Sveini
Indriðasyni þakkir fyrir
grein sem hann skrifaði
í Mbl. 6. mars, um Jón
H. Bjömsson í Alaska.
Hún tekur undir það sem
Sveinn skrifar. Jón
kenndi henni grasafræði
í unglingaskóla og
áhugasamari og meira
lifandi kennara hefur
hún aldrei haft. Sá áhugi
sem hann vakti með
henni á gróðri dafnar enn
á 1000 fm húsalóð og 3
hektara skógrækt.
Afrek
sigmanns
þyrlunnar
ÁRNI hringdi og vildi
hann vekja athygli á
afreki áhafnar þyrlu
Landhelgisgæslunnar, við
björgun áhafnar
Vikartinds. Þó vill hann
sérstaklega draga fram í
dagsljósið afrek sigmanns
þyrlunnar. Hann telur að
þama fari mjög kjarkaður
maður, hann fer einn
niður í náttmyrkrið og
óveðrið, niður í skipið,
stjómar þar aðgerðum og
yfirgefur síðan skipið síð-
astur ásamt skipstjóra.
Telur hann að þama fari
mikið hraustmenni.
Tapað/fundið
Taska fannst
í Laugardals-
lauginni
TASKA fannst í Laugar-
dalslauginni, með Nike
íþróttaskóm. Taskan er
merkt Agnesi. Upplýs-
ingar á staðnum.
Útsaumur
fannst
FUNDIST hefur
útsaumur, trúlega eftir
bam, í Engjahverfi í
Grafarvogi.
Útsaumurinn er af bleiku
svíni með bláa slaufu, á
hvítum granni. Myndin
er ekki fullgerð.
Eigandi getur hringt í
586-1025, Drífa.
Ljósmynd Árni Sæberg.
AFREK þyrluáhafnar TF-Líf hefur vakið at-
hygli þjóðarinnar. Þessi mynd er tekin er sig-
maður sígur úr þyrlunni við björgunarstörf.
FANNSTU engan sumarleyfisstað,
sem ekki var á floti?
Víkveiji skrifar...
NÚ ER allt á tilboðum. Ferða-
lög til útlanda eru á tilboðum.
Matvörur eru á tilboðum. Alls kyns
heimilistæki eru á tilboðum. Bækur
eru á tilboðum. Það vantar bara,
að peningar séu á tilboðum. Svo
eru afmælisafslættir. Gildir þá einu
hvort fyrirtækið á 1 árs afmæli, 5
ára afmæli eða 50 ára afmæli.
Viðskiptavinum stendur til boða
afmælisafsláttur. Þetta er að sjálf-
sögðu allt jákvætt. Eins og málin
koma hinum almenna neytanda
fyrir sjónir þýða þessi tilboð, að í
raun sé verðlag að lækka og stund-
um umtalsvert.
En svo má spyrja: Hvernig geta
kaupmenn og aðrir seljendur vöru
og þjónustu boðið svo margt á til-
boðum? Eru þeir að selja vöruna
með tapi? Hafa þeir efni á því? Ef
þeir eru ekki að selja vöruna með
tapi, eru tilboðin þá yfirlýsing um
það, að álagning þeirra á viðkom-
andi vörutegund hafi verið svo
mikil, að þeir geti vel leyft sér að
lækka hana um skeið?
Og svo má líka spyrja: Er hugs-
anlegt að vara sé í upphafi boðin
á hærra verði til þess að síðar sé
hægt að bjóða hana á tilboðsverði?
Þessi tilboðaþróun er óneitanlega
merkilegt rannsóknarefni fyrir
neytendur.
xxx
VÍKVERJA þótt ein merkileg-
asta fréttin í Morgunblaðinu
um helgina vera sú, að brezkir vís-
indamenn hefðu með DNA-rann-
sóknum fundið lifandi ættingja
manns, sem uppi var fyrir 9000
árum.
Slíkar rannsóknir hljóta að opna
óendanlega möguleika. Er hægt
að DNA-greina alla íslendinga?
Og tengja við DNA-greiningu
beinagrinda, sem til eru? Þ.á m. frá
Grænlandi og austurströnd Amer-
íku?
AÐ ER til fyrirmyndar hvað líf-
eyrissjóðir leggja nú orðið
mikla áherzlu á að veita sjóðfélögum
upplýsingar um eigin málefni. Auð-
vitað ætti það að vera sjálfsagt, en
staðreyndin er sú, að það var ekki
talið sjálfsagt.
Þáttur í þessari viðleitni lífeyris-
sjóða eru auglýsingar í dagblöðum,
m.a. hér í Morgunblaðinu. Sl. laug-
ardag birtist t.d. auglýsing hér í
blaðinu frá Sameinaða lífeyrissjóðn-
um. Þar sagði m.a.: „Samtrygging
sjóðfélaga tryggir þeim örorkulíf-
eyri, sem verða fyrir alvarlegu slysi
eða langvinnum veikindum. Með
sama hætti er eftirlifandi maka og
bömum tryggður fjölskyldulífeyrir
við fráfall sjóðfélaga."
Nú langar Víkveija til að beina
eftirfarandi fyrirspurn til Sameinaða
lífeyrissjóðsins: Hversu lengi er eftir-
lifandi maka og börnum tryggður
slíkur lífeyrir? Sjálfsagt er að birta
svarið í þessum dálki.