Morgunblaðið - 17.04.1997, Side 1
88 SÍÐUR B/C/D/E
86. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR17. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Kabila útilokar viðræður
LAURENT Kabila, leiðtogi
uppreisnarmanna í Zaire, (t.v.)
kom í gær til Suður-Afríku til
viðræðna við Nelson Mandela
forseta og Thabo Mbeki vara-
forseta. Suður-afrískir ráða-
menn freista þess að finna frið-
samlega lausn deilunnar í Zaire
en Kabila útilokaði vonahlé og
viðræður við Mobutu Sese Seko
forseta. Franska stjórnin sagði
í gær að upplausn og fullkomin
ringulreið væri að skapast í
Zaire og neituðu uppreisnar-
menn friðarviðræðum yrði
þeim kennt um afleiðingarnar.
Israelska lögreglan leggur til að Netanyahu verði ákærður
Kann að leiða til
nýrra kosninga
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKA lögreglan leggur til að
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra iandsins, verði kærður fyrir
trúnaðarbrot og sviksemi við útnefn-
ingu ríkissaksóknara. Yaacov Wein-
roth, lögmaður Netanyahus, sagðist
myndu reyna að sýna saksóknurum
fram á, að tilmæli lögreglunnar væru
tilefnislaus. Yehoshua Matza heil-
brigðisráðherra sagði, að engra ann-
arra kosta væri völ en efna til nýrra
þingkosninga yrði forsætisráðherr-
ann ákærður en hann var kosinn til
starfans í beinum kosningum í maí
í fyrra.
Winroth staðfesti að frétt ísra-
elskrar sjónvarpsstöðvar, Stöðvar-1,
um að lögreglan mælti með ákæru á
hendur Netanyahus vegna spillingar-
mála, væri rétt.
Lögreglan skilaði á þriðjudag 995
síðna skýrslu um embættisfærslu
Netanyahus er hann útnefndi Roni
Bar-On ríkissaksóknara í janúar sl.
Stöð-1 hélt því þá fram, að Aryeh
Deri, leiðtogi Shas-flokksins, lítiis
samstarfsflokks Netanyahus, hefði
fengið því framgengt að Bar-On var
skipaður í embætti í staðinn fyrir
stuðning flokksins við samkomulag
um yfirráð Palestínumanna í borginni
Hebron á Vesturbakkanum. Deri var
fyrir rétti og sagður telja sig myndu
komast hjá dómi með útnefningu
Bar-Ons.
Stutt í starfi
Bar-On var aðeins nokkrar klukku-
stundir í starfi þvi hann sagði af sér
vegna ásakana fagmanna um að
hann væri ekki starfinu vaxinn.
Weinroth, lögmaður Netanyahus,
sagðist hafa fengið þær upplýsingar
hjá ríkissaksóknara, að fyrirvarar
væru í tilmælum lögreglunnar sem
kynnu að veikja þau.
Hermt var, að lögreglan mælti
ennfremur með því að þrír ónafn-
greindir en nánir samstarfsmenn
Netanyahus yrðu dregnir fyrir rétt.
Netanyahu vann Shimon Peres,
leiðtoga Verkamannafiokksins og
fyrrverandi forsætisráðherra, með
aðeins 30.000 atkvæða mun í kosn-
ingunum í fyrra. Peres sagði að ættu
staðhæfingar lögreglunnar við rök
að styðjast jafngilti skýrslan pólitísk-
um jarðskjálfta og krafan um nýjar
kosningar væri eðlileg. Ásökunin á
sér enga hliðstæðu í 49 ára stjórn-
málasögu ísraels. Búist er við að rík-
issaksóknari taki afstöðu til málsins
um helgina.
Atvinnu-
lausum
fækkar
London. Reuter.
ATVINNULAUSUM fækkaði um
41.000 í Bretlandi í mars og hefur
atvinnuleysi ekki verið minna þar í
landi um sex ára skeið. Talið er að
þessar fregnir geti orðið íhalds-
flokknum til framdráttar í barátt-
unni fyrir þingkosningarnar 1. maí
nk.
John Major forsætisráðherra
sagði minnkandi atvinnuleysi til
marks um uppgang í efnahagslífinu
en talsmenn Verkamannaflokksins
héldu því fram að tölurnar gæfu
ekki rétta mynd af ástandinu. Eru
atvinnuleysingjar nú 1,71 milljón og
hefur þeim fækkað 13 mánuði í röð.
í dag er von á nýjum tölum um
verðbólguþróunina og sögðust hag-
fræðingar eiga von á að þær yrðu
ríkisstjórn íhaldsflokksins hagstæð-
ar. Hefur verðbólgan að undanförnu
mælst minni en nokkru sinni í 30
ár og ráðstöfunartekjur launþega
hafa snarhækkað. Þá lækkaði láns-
fjárþörf ríkisins um 30% á fjárlaga-
árinu 1996/97, eftir miklar lántökur
í áratug. Með sama áframhaldi yrðu
fjárlög hallalaus í síðasta lagi árið
2000.
----» -».4---
Olía lækkar
í verði
London. Reuter.
OLÍUVERÐ lækkaði á heimsmark-
aði í gær og kostaði tunna af Brent-
olíu, sem höfð er til viðmiðunar í
olíuviðskiptum, 17,20 dollara.
Búist hafði verið við hækkun
olíuverðs en óvæntar fregnir í gær
um birgðasöfnun í Bandaríkjunum
gjörbreyttu því viðhorfi.
nfflgi!
Salmonella gegn
krabbameini
VÍSINDAMENN við hinn virta
Yale-háskóla í Bandarikjunum
hafa komist að því að breyta má
salmonella-bakteríunni svo að hún
ráðist á krabbameinsfrumur án
þess að skaða vefinn umhverfis
þær. Salmonella veldur t.d. alvar-
legri matareitrun í mönnum en
vísindamönnunum tókst að fjar-
lægja þtjú gen úr bakteríunni sem
varð til þess að hún missti lystina
á öllu öðru en illkynja krabba-
meinsfrumum.
David Bermudes, einn sérfræð-
inganna sem unnu að rannsókn-
inni, líkti þessu við að temja úlf.
Taminn úlfur sé hundur, sem
gæti hjarðarinnar en ráðist ekki
á hana. Vonast sérfræðingarnir
við Yale til að uppgötvun þeirra
verði til þess að hægt verði að
nota salmonellu við krabbameins-
lækningar þar sem genameðferð
er beitt.
Einn af kostum genabreyttu
salmonellunnar er að hún getur
fundið æxli sem eru svo lítil að
þau sjást vart. Þá lifir hún án
súrefnis, sem er mikill kostur, þar
sem mikill vöxtur krabbameins
getur leitt til súrefnisskorts í
krabbameinsfrumunum.
Reuter
Sveitasæla
í Albaníu
FYRSTU stóru sendingunni af
hjálpargögnum var skipað á land
í hafnarborginni Durres í Alban-
íu í gær, um 400 tonnum af hveiti
og baunum. Búist var við að af-
hending til almennings hæfist á
morgun, föstudag. Gert var ráð
fyrir frekari matvælasendingum
næstu daga en hjálparstofnanir
sögðu a.m.k. tíunda hvern Alb-
ana við hungurmörk. Fjölþjóð-
legt friðargæslulið freistar þess
að koma lögum og reglu á í land-
inu. Lágvaxinn kúasmali lét sér
fátt um finnast er brynvagnar
franskra soldáta, sem tryggja
eiga öryggi flutninga á veginum
frá Tirana til alþjóðaflugvallar
borgarinnar, tóku sér stöðu með-
fram veginum í gær.
Meiriháttar
íþróttaviðburðir
sýndir ókeypis
Sigur
sjónvarps-
áhorfenda
Brussel. Reuter.
RÍKISSTJÓRNIR Evrópusam-
bandsríkjanna og Evrópuþingið
hafa náð samkomulagi um, að
sjónvarpsáhorfendur fái að
horfa endurgjaldslaust á ýmsa
meiriháttar íþrótta- og menning-
arviðburði. Var það niðurstaðan
á fundi um ágreining, sem verið
hefur með þinginu og ríkis-
stjórnunum um endurskoðun á
lögum, sem kölluð hafa verið
„sjónvarp án landamæra".
Samkomulag varð um, að
einstakar ríkisstjórnir yrðu að
virða lista annarra ríkisstjórna
yfir þá atburði, sem þær vildu
sýna endurgjaldslaust en það
þýðir, að íþróttaviðburðir eins
og Heimsnieistaramótið í knatt-
spyrnu, Ólympíuleikarnir og
Evrópumeistaramótið í knatt-
spyrnu verði áfram öllum opnir.
Evrópuþingið ánægt
Þetta samkomulag er mikill
sigur fyrir Evrópuþingið og
framkvæmdastjórn ESB féllst
einnig á að kanna innan árs
hvort rétt sé að setja svokailaða
v-kubba í ný sjónvarpstæki til
að fólk geti komið í veg fyrir,
að börn horfí á mjög ofbeldis-
fullt efni.
I sumum löndum, Bretlandi,
Frakklandi og í flæmskum hluta
Belgíu, er árlega birtur listi yfir
þá atburði, sem ber að sýna
endurgjaldslaust og ótruflaða,
og er þess nú að vænta, að önn-
ur ESB-ríki birti sams konar
lista.