Morgunblaðið - 17.04.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 8
FRÉTTIR
Varði doktors-
ritgerð í frönsk-
um miðaldabók-
menntum
•ÁSDÍS R. Magnúsdóttir varði
doktorsritgerð í frönskum mið-
aldabókmenntum við Stendhal-
háskólann í
Grenoble í
Frakklandi 21.
janúar sl. Leið-
beinandi var
Philippe Walter,
prófessor í
frönskum
miðaldabók-
menntum við
Stendhal-
háskólann en andmælendur voru
Claude Lecouteux frá Sorbonne-
háskólanum (Paris IV), Christ-
iane Marchello-Nizia frá École
Normale Supérieure Fontenay /
St. Cloud og Jacques Chocheyras
frá Stendhal-háskólanum. Rit-
gerðin ber heitið „La voix du cor.
Étude d’un motif mythique dans
la littérature narrative franqaise
et scandinave du moyen Age (XI-
Ie-XIVe siecles)“.
í fréttatilkynningu segir
„Verkefnið á upptök sín í Ró-
landskvæði þar sem notkun
hornsins Olifants veldur deilum
milli tveggja helstu kappa Karla-
magnúsar, Rólands og Olivers,
er her konungs er á heimleið eft-
ir sjö ára dvöl á Spáni. í Rúnsival
í Pýreneafjöllum sitja heiðingjar
fyrir bakvarðasveitinni en þrátt
fyrir tilmæli Ólivers neitar Róland
foringi hennar að þeyta horn sitt
til að biðja Karlamagnús um liðs-
auka. Þegar langt er liðið á bar-
dagann og flestir menn Rólands
eru fallnir í valinn blæs hann þó
kröftuglega í hornið í von um að
konungurinn heyri til hans og
hefni bakvarðasveitarinnar. Hetj-
an fórnar þar með lífi sínu því
áreynslan við blásturinn ber hana
ofurliði.
Olifanturinn og notkun hans
skipta sköpum í atburðarás þessa
fræga kvæðis, en óvíst er um
uppruna hornsins og hvort það
hafi upphaflega verið hluti af sög-
unni um Rúnsivalsbardaga. Er
ritgerðinni ætlað að varpa ljósi á
þessi atriði. Rannsóknin beinist
að hlutverki og merkingu blást-
urshorna í frönskum miðaldabók-
menntum, ekki síður í riddarasög-
um en í hetjukvæðum, og vekur
samnburður ólíkra bókmennta-
tegunda spurningar um hina
hefðbundu skiptingu franskra
miðaldabókmennta í flokka eftir
efniviði (matiére). Leitað er inn á
svið þjóðfræði, goðsagna og helgi-
sagna og er einnig fjallað um
yfirnáttúrulega eiginleika horns-
ins, ekki síst í tengslum við notk-
un þess sem drykkjarhorns.
Hornaminnið í keltneskum og
norrænum bókmenntum er haft
til hliðsjónar.“
Ásdís undirbýr nú þýðingu á
þremur fornaldarsögum sem
gefnar verða út við Stendhal-
háskólann í Grenoble á næsta
ári. Hún vinnur einnig að ítar-
legri rannsóknum á hornaminninu
í norrænum bókmenntum og hef-
ur fengið til þess styrk frá Rann-
sóknarráði íslands.
Ásdís R. Magnúsdóttir lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Hamrahlíð 1984 og hóf nám
í frönskum bókmenntum við
Stendhal-háskólann í Grenoble
1988 með styrk frá franska utan-
ríkisráðuneytinu. Hún lauk þar
maítrise-gráðu 1992. Hún er
dóttur Geirlaugar Björnsdóttur
meinatæknis og Magnúsar Skúla-
sonar geðlæknis. Eiginmaður
hennar er Serge Comte myndlist-
armaður.
Rýmingarsala
Ótrúlegt verð. Stærðir 2-14 ára.
Nýtt kortatímabil
Barnastígur, Skólavörðustíg 8
Franskar útskriftardragtir
TESS
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
v ned
Opið virka daga kl. 9-18,
laugardag kl. 10-14.
„Spice girls" bolir kr. 990
Útviðar buxur, margir litir, kr. 1.990
Gallabuxur kr. 1.990
jogginggallar frá kr. 1.590
Sendum í póstkröfu
Barnakot
Kringlunni 4-6, sími 588 1340
FROTTE SLOPPAR
Stuttir/síðir, þykkir/þunnir
fjöldi Iita, fjöldi gerða
Mikið úrval
4
lympís
Laugaveg 26 sími 551 3300
Kringlunni 8-12 sími 553 3600
r Siuncu^^ ‘7 ^
í tilefni sumar- Qýll/1
dagsins fyrsta..-
gefum við20°/o staðgreiðsluafslátt
(io% afilátt afkortum) af öllum vörum til 26. apríl.
(í.s/u/n /a/ic/.s/uö/i/ui/u
p/e/ít/ep.s .va/iia/w.'
Laugavegi 101, s. 562 1510
Fallegar vorvörur
Á sænskum dögum í Kringlunni 17.-19. apríl
er 15% afsláttur af öllum vörum
Polarn&Pyref
Vandaður kven- og bamafatnaður, Kringlunni, sími 568 1822.
M j ini
V
LAURA ASHLEY
Sumarfatnaður
Ný sending af bolum
verð 1000-2900 kr.
Kistan
\j Laugavegi 99,:
Laugavegi 99, sími 551 6646
XJrval af
drögtum
sumarfrökkum
úlpum
buxum
peysum
bolum
Greiðsludreifing i allt að
6 mánuði án aukakostnaðar