Morgunblaðið - 17.04.1997, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Kveikt í
kirkjum á
N-írlandi
HARKA hefur færst í átök
kaþólikka og mótmælenda á
Norður-írlandi að undanförnu
og kveikt var í kaþólskri kirkju
í Annaclone í fyrrinótt. Þetta
er fimmta kirkja kaþólikka
sem kveikt er í á hálfum mán-
uði. Kvöldið áður höfðu átök
blossað upp milli mótmælenda
og kaþólikka nálægt Lurgan.
Lögreglan skaut plastkúlum
til að dreifa hópunum, sem
köstuðu bensínsprengjum að
lögreglumönnunum.
Sharansky í
Ukraínu
NATAN Sharansky, sovéski
andófsmaðurinn sem varð ráð-
herra í ísrael, fór í gær til
Úkraínu og minntist 100.000
manna, aðallega gyðinga, sem
nasistar drápu skammt frá
Kiev í síðari heimsstyrjöldinni.
Sharansky fæddist í úkraínsku
borginni Donetsk en flutti
seint á sjöunda áratugnum til
Rússlands og var þar dæmdur
í fangelsi fyrir meintar njósnir
1978. Þetta er fyrsta heimsókn
hans til Úkraínu frá því hann
var látinn laus í fangaskiptum
níu árum síðar.
Yfirmaður
Compuserve
ákærður
ÞÝSKIR saksóknarar sögðust
í gær hafa ákært fram-
kvæmdastjóra Þýskalands-
deildar beinlínuþjónustufyrir-
tækisins Compuserve fyrir að
aðstoða við dreifingu barna-
kláms á alnetinu. Ákæran
gæti reynst prófsteinn á það
hversu langt þýsk yfirvöld
geta gengið í baráttunni gegn
slíkri dreifingu á netinu.
Tólf fórust
í eldi á
diskóteki
Lissabon. Reuter.
TÓLF manns létust og þrettán
fengu brunasár í eldsvoða á diskó-
teki í Portúgal í fyrrinótt. Þrír
vopnaðir og grímuklæddir menn
ruddust inn á skemmtistaðinn
skömmu fyrir lokun og kveiktu í
staðnum. Átta hinna látnu voru
konur og einn útlendingur, fransk-
ur sölumaður. Líkin fundust flest
við neyðarútgang sem hafði ekki
tekist að opna.
Diskótekið er í bænum Amar-
ante, í norðurhluta Portúgals, og
réðust mennirnir inn á það skömmu
fyrir kl. fjögur um nóttina. Skutu
þeir nokkrum skotum inni á staðn-
um, skipuðu öllum sem inni voru,
um þijátíu manns, að standa upp
við vegg, helltu bensíni yfir hús-
gögn og kveiktu í. Einn maður
varð fyrir skoti þegar hann reyndi
að hindra árásarmennina.
Talið er að árásina megi rekja
til átaka glæpaflokka í bænum en
á síðasta ári var kveikt í sama
skemmtistað. Þá slasaðist enginn.
Reuter
DISKÓTEKIÐ í Amarante í Portúgal var rústir einar eftir eldsvoðann, sem kostaði tólf manns lífið.
Ofarir á Everest
þeirra voru í ábata-
skyni, þaulvanir leið-
sögumenn með
ferðalanga, sem
borguðu allt að hálfa
milljón króna fyrir
ævintýrið, í eftir-
dragi.
Vandinn er að
komast niður á lífi
Jon Krakauer
KÁPA bókar Jons
Krakauers.
10. og 11. maí 1996 voru
örlagaríkir dagar á Mount
Everest, Kæsta fjalli heims. Þá
létu átta menn og konur lífið
í óveðri, sem brast á, og þar á
meðal voru tveir leiðangurs-
foringjar, Rob Hall og Scott
Fisher, sem taldir voru þeir
færustu í heimi á sínu sviði.
Blaðamaðurinn Jon Krakauer
komst á tindinn nokkrum
klukkustundum áður en óveðr-
ið hófst og í nýrri bók, „Into
Thin Air“, lýsir hann fjall-
göngunni án þess að draga
nokkuð undan.
Frásögn Krakauers snýst
ekki um að hrósa sigri yfir því
að hafa komist á tindinn. Hann
var aðframkominn líkamlega,
losnað hafði um brjósk í bijóst-
kassa og súrefnið var að ganga
til þurrðar. Hann andaði að sér
Blaðamaður, sem lifði
af óveður á Mount
Everest, hefur skrifað
bók um gönguna á
hæsta tind heims.
úr súrefnisgeymi og fyrir hvert
skref þurfti hann að draga
djúpt að sér andann þrisvar eða
fjórum sinnum. „Mér fannst ég
vera á lyfjum og úr sambandi,"
skrifar Krakauer. Þegar hann
náði tindinum hafði hann ekki
sofið í 57 klukkustundir: „Ég
gat ekki safnað orku til að láta
mig það einhveiju varða,“ seg-
ir hann.
30 leiðangrar voru á leið upp
hlíðar fjallsins þessa daga. Tíu
„Hvaða bölvaður bjáni sem
er getur komist upp á þennan
hól ef hann er nógu ákveðinn,“
sagði Nýsjálendingurinn Hall,
sem stjórnaði Adventure Con-
sultants, einu þekktasta Ieið-
sögufyrirtækinu. „Vandinn er
að komast niður á lífi.“
Þegar stormurinn hófst voru
fjallgöngumenn enn að klifra
þótt orðið væri of áliðið dags.
Hall kom sér fyrir skammt frá
tindinum ásamt
Doug Hansen,
vini sínum og við-
skiptavini. Þar
íétu þeir báðir líf-
ið, en áður hafði
Hall talað við
konu sína, Jan, í
síma: „Ég elska
þig. Sofðu rótt,
elskan mín.“
Samkvæmt frá-
sögn Krakauers
voru mörg dæmi
um fífldirfsku
meðal fjallgöngu-
mannanna, sem
voru í hlíðum Everest-fjalls í
maí í fyrra. Hann dregur þó
engar ályktanir utan hvað
eymdin hafi verið sýnu meiri
en ánægjan og hans eina ráð-
legging er sú að bann við súr-
efniskútum gæti komið í veg
fyrir að þeir, sem ekki eru
nógu sterkir líkamlega, leggi á
Everest.
• Byffgt á Time og Newsweek.
Aðskilnaðar-
sinnar valda
orkuskorti
AÐSKILNAÐARSINNAR í
Abkhazíu-héraði í Georgíu
hafa eyðilagt rafmagnslínur
frá stærsta raforkuveri lands-
ins í hefndarskyni eftir að
símasambandið frá héraðinu
var rofið. Embættismenn í
Tbilisi sögðu að þar sem raf-
magn fengist ekki frá orkuver-
inu þyrftu Georgíumenn að
kaupa orku frá Rússlandi og
Azerbajdzhan. Um helmingur
þeirrar raforku, sem notuð
hefur verið í Georgíu á síðustu
árum, hefur komið frá orku-
verinu.
Snákar
komnir af
sæeðlum?
SNÁKAR gætu verið komnir
af stórum sæskrímslum, sem
urðu útdauð á sama tíma og
risaeðlumar, að sögn vísinda-
manna frá Bandaríkjunum og
Ástralíu í gær. Þeir segja
rannsóknir á beinum 97 millj-
óna ára gamallar eðlu, sem
fannst í ísrael, benda til þess
að hún hafi verið ein af fyrstu
snákunum.
343 pílagrímar fórust
RÍKISÚTVARPIÐ í Saudi-Arab-
íu skýrði frá því í gær að 343
manns hefðu farist í eldsvoða í
tjaidbúðum pílagríma í Mena,
nálægt Mekka, í fyrradag. Yfir-
völd í Saudi-Arabíu höfðu ekki
staðfest þetta í gærkvöldi en
sögðu að 1.290 pílagrímar hefðu
slasast.
Stjórnarerindrekar sögðu að
70.000 Ijöld hefðu eyðilagst eða
skemmst i eldinum og flest fórn-
arlambanna væru frá Indlandi,
Pakistan og Bangladesh. Eldur-
inn náði einnig til tjaldbúða píla-
gríma frá Sýrlandi, Líbanon,
Egyptalandi, Súdan, Jemen og
Marokkó. Mörg líkanna voru illa
brunninn og mjög erfitt verður
að bera kennsl á þau.
Sjónarvottar sögðu að eldur-
inn hefði kviknað vegna spreng-
ingar í gaskúti en yfirvöld í
Saudi-Arabíu sögðu aðeins að um
slys væri að ræða. „Þetta var
hörmulegur atburður sem teng-
ist ekki stjórnmálum á nokkurn
hátt,“ sagði sendiherra landsins
i London.
Á myndinni flytja björgunar-
menn fórnarlömb eldsins úr
tjaldbúðunum.
Rússlandsforseti hittir Kohl að máli
Fjalla um NATO
o g stolna listmuni
Baden-Baden, Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
kom í gær til Baden-Baden, þar sem
hann mun eiga fund með Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands, í dag.
Verður það annar fundur leiðtog-
anna á þremur mánuðum en þeir
munu ræða stækkun Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og listmuni
sem rússneskt herlið lagði hald á í
Þýskalandi í lok heimsstytjaldarinn-
ar seinni og þjóðirnar hafa deilt um.
Þá mun Jeltsín taka á móti viður-
kenningu þýskra fjölmiðla, sem
völdu hann fyrir skemmstu „mann
ársins“. Hann hvíldist í gær og
naut dvalarinnar í heilsulindum
bæjarins.
Sergei Jastrsjembskí, talsmaður
Jeltsíns og ráðgjafi hans í erlendum
málefnum, sagði á þriðjudag að
fundur leiðtoganna kynni að verða
til þess að frekar þokaðist í sam-
komulagsátt hvað varðaði stækkun
NATO. „Mér virðist þýski kanslar-
inn einn sá leiðtogi á Vesturlöndum
sem hefur mestan skilning á rökum
Rússa,“ sagði Jastrsjembskí í sam-
tali við rússneska sjónvarpsstöð.
Kvaðst hann telja álit Kohl skipta
afar miklu máli þar sem hann gæti )
haft áhrif á aðra NATO-leiðtoga .
eftir að hafa hlýtt á málflutning
Jeltsíns.
Þingið frestar atkvæða-
greiðslu um listmuni
Þjóðveijar hafa þó sýnt öðru við-
ræðuefni leiðtoganna meiri áhuga;
hvort og hvernig Rússar muni skila
aftur listmunum sem þeir tóku í
styijaldarlok. Ummæli Jeltsíns í
samtali við tímaritið Stern hafa I
vakið nokkra furðu í Þýskalandi en |
hann sagðist myndu hafa nokkra
dýrgripi með sér þegar hann heim-
sækti Þjóðverja, þó ekki Tijóugull
Heinrichs Schliemanns, sem var á
meðal dýrgripanna.
Efri deild rússneska þingsins
frestaði í gær atkvæðagreiðslu um
hvort skila ætti listmununum, og
fer hún líklega fram í næsta mán-
uði. Nú liggja fyrir þinginu lög, sem
kveða á um að verkunum verði r
ekki skilað, og hefur neðri deiid j
þingsins samþykkt þau, þrátt fyrir ,
að Jeltsín hafi beitt neitunarvaldi í
málinu.