Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 53
4 morgunbiAðið
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 53
J
i
i
:
j
4
í
4
4
i
4
4
I
4
i
i
4
4
<
i
<
<
<
<
i
<
<
i
i
Verkir og velferð ís-
lenskra skólabarna
DR. GUÐRÚN Kristjánsdóttir,
dósent við H.Í., flytur fyrirlestur á
vegum námsbrautar í hjúkrunar-
fræði Háskóla íslands í dag,
fimmtudaginn 17. apríl, í stofu 101
í Odda kl. 17. Fyrirlesturinn ber
yfirskriftina: Verkir og velferð ís-
lenskra skólabarna.
Erindið fjallar um nýlegar rann-
sóknir höfundar á verkjum meðal
úrtaks 2173 skólabarna. Niður-
stöður þeirra sýna m.a. að íslensk
skólabörn á aldrinum 11-12 og
15-16 ára finna oft til verkja í
höfði, baki og maga. Um 5% þeirra
finna til allra þessara verkja a.m.k.
vikulega. í framhaldi af þessum
niðurstöðum er athugað hvort og
hvemir þessir verkir tengjast
verkjalyfjanotkun og líðan skóia-
barnanna. Þá eru athugaðir ýmsir
líkamlegir, sálrænir og félagslegir
þættir er áhrif kunna að hafa á
verkjareynslu skólabamanna og
fræðileg umræða um orsakir
verkja metin í ljósi niðurstaðnanna.
Erindinu lýkur með umfjöllun
um þýðingu rannsóknanna fyrir
hugmyndir okkar um heilsu ís-
lenskra skólabarna og þá heilbrigð-
isþjónustu sem þau fá og eiga rétt
á lögum samkvæmt.
Samkomur hjá
KFUM og KFUK
ALMENNAR samkomur undir yf-
irskriftinni Jesús Kristur - er var
og kemur verða haldnar í húsi
KFUM og KFUK við Holtaveg
föstudags- og laugardagsvöld 18.
og 19. apríl kl. 20.30 og sunnudag-
inn 20. apríl kl. 17.
Ræðumaður á samkomunum
verður dr. Roland Wemer frá
Þýskalandi. Hann er í forsvari leik-
mannastarfsins Christus Treff í
Marburg en ferðast auk þess víða
til að predika, fræða og leiðbeina
í kristilegu starfi. Hann var fram-
kvæmdastjóri Christival 96, sem
var kristilegt mót ungs fólks í
Þýskalandi í maí í fyrra sem rúm-
lega 32.000 manns sóttu.
Á fyrstu samkomunni á föstu-
dagskvöld mun Kór KFUM og
KFUK syngja, sr. Guðmundur Klar
Brynjarsson flytja ávarp, boðið
verður til fyrirbænar fyrir þá sem
þess óska í lokin. Að samkomunni
lokinni er öllum viðstöddum boðið
í kaffi, te eða gosglas og rjóma-
vöfflu. Kristilegur bókamarkaður
með íslenskum og erlendum bókum
verður opinn í tengslum við sam-
komumar.
Morgunblaðið/Golli
BJÖRN Thoroddsen með félögum sinum í Norræna kvartettinum. F.v. Björn, Egill Ólafsson,
Per Arne Tollbom og Ole Rasmussen.
Norrænn djasskvartett
á ferð um landið
NORRÆNN djasskvartett
undir stjórn Björns Thorodd-
sen gítarleikara leikur á ís-
landi næstu daga. Verkefni
þetta er styrkt af Norræna
menningarsjóðnum og heldur
kvartettinn fimm tónleika hér
á landi og hljóðritar að auki
efni á geisladisk.
Kvartettinn er skipaður Agli
Ólafssyni söngvara, Ole Rasm-
ussen, kontrabassaleikara frá
Danmörku, og Per-Arne
Tollbom, slagverksleikara frá
Svíþjóð, auk Björns.
A fimmtudagskvöld verða
tónleikar í Hafnarborg í Hafn-
arfirði, Múlanum í Reylgavík
á föstudagskvöld og lokatón-
leikarnir hér á landi verða í
Norræna húsinu. Tónleikarnir
hefjast kl. 22 nema í Norræna
húsinu kl. 17.
Ole Rasmussen er þekktur
kontrabassaleikari og hefur
leikið m.a. með Peter Gullin,
Andy Sheppard og Duke Ell-
ington Orchestra. Per Arne
Tollbom hefur leikið inn á
fjölda hljómplatna með þekkt-
um norrænum tónlistarmönn-
um, þ.á m. Anders Bergkrantz
o.fl.
SAFNAÐ verður fjármunum til heimilis ABC hjálparstarfs fyr-
ir munaðarlaus börn á Indlandi í dag og á morgun en þörf er
á ýmsum húsbúnaði, m.a. rúmfatnaði.
ABC hjálparstarf á Indlandi
Fjársöfnun fyrir heim-
ili munaðarlausra
Fundur um viðskipta-
hagsmuni Islands og ut
anríkisþj ónustuna
ABC hjálparstarf gengst í dag og
á morgun fyrir fjársöfnun fyrir
heimili 610 munaðarlausra og yfir-
gefinna barna á Indlandi. Safnað
verður í beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Omega í kvöld og
útvarpsstöðinni Lindinni allan
morgundaginn.
Fjársöfnun ABC hjálparstarfs er
tvíþætt. Annars vegar er leitað eft-
ir stuðningsaðilum sem vilja taka
að sér að sjá fyrir einstökum börn-
um sem dveljast á heimilinu og
vantar nú stuðning fyrir 150 börn.
Hins vegar á að safna fé til að ljúka
byggingaframkvæmdum við skóla
og hreinlætisaðstöðu fyrir börnin á
heimilinu, til kaupa á kojum, dýnum
og rúmfatnaði, húsgögnum, þvotta-
vélum og mjólkurkúm fyrir heimilið.
Heimilið er í bænum Gannavar-
am, skammt frá borginni Vijaya-
awada í Andhra Pradesh fylki á
Indlandi og hefur rekstur þess ver-
ið fjármagnaður frá íslandi. Heitir
það „Heimili litlu ljósanna". Safnist
meira fjármagn en þarf til framan-
greindra verkefna verður það notað
til að koma upp aðstöðu fyrir mun-
aðarlaus börn á vegum ABC hjálp-
arstarfsins við Madras. Er þar ver-
ið að kaupa land þar sem byggja á
upp aðstöðu til að taka við korna-
börnum, einkum stúlkum sem hafa
verið bornar út.
Víða tekið við framlögum
Framlögum er hægt að koma til
skila á skrifstofu ABC við Sóltún í
Reykjavík og hjá Radíónausti við
Geislagötu á Akureyri. Einnig er
hægt að leggja beint á söfnun-
arreikninga í bönkum og
sparisjóðum. í kvöld verður safnað
í beinni útsendingu á Omega milli
klukkan 21.30 og 23 og á morgun
á útvarpsstöðinni Lindinni við
Krókháls í Reykjavík frá klukkan 9
til 21 og einnig er hægt að koma
framlögum beint þangað. Verður
þar opið hús allan morgundaginn,
boðið uppá kaffi og sýnd myndbönd
frá barnaheimilinu. ABC hjálp-
arstarf er unnið í sjálfboðavinnu og
rennur söfnunarfé óskert til verk-
efnanna.
ALÞJ ÓÐ AMÁLASTOFNUN Há-
skóla íslands heldur almennan fund
um viðskiptahagsmuni íslands og
utanríkisþjónustuna með tilliti til
markaðssóknar erlendis og aðstoðar
við íslensk fyrirtæki. Fundurinn
verður haldinn föstudaginn 18. apríl
í Sunnusal Hótels Sögu og hefst kl.
16.
Á fundinum mun Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra flytja
ávarp. Síðan munu stutt erindi verða
haldin um fundarefnið. Ræðumenn
eru Helgi Ágústsson ráðuneytis-
Ráðstefna
um rándýr í
Mývatnssveit
RÁÐSTEFNA um rándýr í Mý-
vatnssveit verður haldin í Skjól-
brekku föstudaginn 18. apríl og
hefst klukkan 13. Það er Náttúru-
rannsóknarstöðin við Mývatn sem
stendur að ráðstefnunni.
Fjölmargir vísindamenn flytja
erindi um viðfangefni fundarins og
m.a. verður rætt um minka, refi,
fálka, máva og hrafna. Allir eru
velkomnir.
Ráðstefna
um þriðja
aldursskeiðið
ÖLDRUNARRÁÐ íslands gengst
fyrir ráðstefnu laugardaginn 18.
apríl kl. 13 í safnaðarheimili Ás-
kirkju við Vesturbrún. Yfirskrift
ráðstefnunnar er: Þriðja aldurs-
skeiðið - að lifa lífinu lifandi eftir
starfslok.
Ráðstefnustjóri verður Halldór
íbsen, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri. Framsögumenn verða: Stein-
unn K. Jónsdóttir, félagsráðgjafí
stjóri, Siguijón Svavarsson, útgerð-
arstjóri Granda, Jón Ásbergsson,
forstjóri Útflutningsráðs, Pétur Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs Marels hf., og Ólafur Daða-
son, framkvæmdastjóri Hugvits hf.
Áð erindum loknum munu verða
umræður um fundarefnið. Fundar-
stjóri verður Gunnar G. Schram,
formaður Alþjóðamálaskrifstofu Há-
skólans.
Fundur þessi er öllum opinn sem
áhuga hafa á þeim málefnum sem
rædd verða.
öldunarþjónustudeildar Félags-
málastofnunar Reykjavíkur,
Salome Þorkelsdóttir, fyrrum al-
þingismaður, Pétur Pétursson, fyrr-
verandi útvarpsþulur, og Margrét
Thoroddsen, fyrrverandi upplýs-
ingafulltrúi Tryggingastofnunar
ríkisins.
Kaffiveitingar verða. Ráðstefnan
er öllum opin og er ráðstefnugjaldið
500 kr.
Fyrirlestur um
lestur í íslensk-
um fjölskyldum
ÁGÚSTA Pálsdóttir bókasafns-
fræðingur, flytur fyrirlestur
fimmtudaginn 17. apríl kl. 15.30 í
fundarsal Norræna hússins sem hún
nefnir Lestur í íslenskum fjölskyld-
um. Ágústa mun ljúka meistara-
prófi í bókasafns- og upplýsinga-
fræðum frá félagsvísindadeild Há-
skóla íslands í vor og er efni fyrir-
lestursins lokaverkefni hennar.
Fyrirlesturinn er sá síðasti í röð
nokkurra fyrirlestra um rannsóknir
og þróun í bókasafns- og upplýs-
ingamálum sem haldnir eru í tilefni
af því að 40 ár eru liðin frá því að
kennsla hófst í greininni við Há-
skóla íslands.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Myndasýn-
ing hjá Hella-
rannsókna-
félaginu
HELLARANNSÓKNAFÉLAG ís-
lands gengst fyrir myndasýningu
í kvöld, fimmtudaginnn 17. apríl,
kl. 20.30 í sal Ferðafélags íslands
að Mörkinni 6 í Reykjavík. Um er
að ræða myndir sem ekki hafa
áður komið fyrir almenningssjónir,
en spanna tíu ára vinnu við hella-
skoðun og -rannsóknir félags-
manna.
Sýndar verða um 200 litskyggn-
ur úr helstu hraunhellum landsins
- flestar af stöðum sem fáir hafa
séð með eigin augum. Farið verður
í „heimsóknir" í þekkta hella, svo
sem Víðgelmi í Borgarfirði, en
einnig verða sýndar myndir frá lítt
þekktum hellum sem enn eru í
upprunalegu horfi.
í hléi verður kynning á starfsemi
Hellarannsóknafélags íslands og
eftir sýninguna verða umræður og
fyrirspurnir. Sýningin hefst kl.
20.30 og aðgangseyrir er 500
krónur.
LEIÐRÉTT
Hilmir en ekki Hilmar
í GÆR var Hilmir Snær Guðnason
leikari rangnefndur. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
Uglan - íslenski
kiljuklúbburinn
MEÐ ástarkveðju, eymd og vol-
æði, Þjófurinn og Mávahlátur eru
gefnar út af Uglunni - íslenska
kiljuklúbbnum. Það láðist að geta
þess í gær.
Greinar birtar fyrir mistök
MINNINGARGREIN ásamt ævi-
ágripi um Eirík Ólafsson var fyrir
mistök birt í Morgunblaðinu mið-
vikudaginn 16. apríl síðastliðinn.
Grein þessi hafði áður birst í blað-
inu og eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á mistökunum.