Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 57
I DAG
jrrkÁRA afmæli.
tlv/Fimmtug er í dag,
fimmtudaginn 17. apríl,
Aðalheiður Finnboga-
dóttir, til heimilis að
Vogabraut 40, Akranesi.
Eiginmaður hennar er
Svavar Tryggvi Óskars-
son. Þau hjónin verða fjar-
verandi á afmælisdaginn.
BRIDS
limsjön Guðmundur Páll
Arnarson
SAGNHAFI þarf að læðast
eins og músin til að gefa
ekki á sér höggstað, því
vestur er vei vopnum búinn
og bíður eftir tækifæri til
að reiða til höggs.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ D64
V KD64
♦ D7
♦ KG75
Suður
♦ K32
V G3
♦ G1043 * ÁD92
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Pass Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Vestur hefur vömina á
afgerandi hátt með því að
taka ÁK í tígli og spila þeim
þriðja. Austur á aðeins einn
tígul og hendir fyrst hjarta,
síðan laufi. Hvernig myndi
lesandinn spila?
Sagnhafi er strax kominn
með sex slagi og er með
efnivið í þijá í hálitunum.
En hann verður að búa þá
til án þess að hleypa vestri
tvisvar inn. Fyrsta skrefið
er að spila hjartaþristi —
ekki gosanum — að hjónun-
um í borði:
Norður * D64 y KD64 ♦ D7 + KG75
Vestur Austur
♦ ÁGIO ♦ 9875
V ÁIO ♦ ÁK9865 il If52
♦ 63 * 1084
Suður ♦ K32 y G3 ♦ G1043 ♦ ÁD92
Ef vestur rýkur upp með
ásinn, fær sagnhafi þijá
slagi á hjarta og þarf þá
engan á spaða. Vestur gef-
ur því og hjartakóngurinn
á slaginn. Sagnhafi fer
næst heim á lauf til að spila
spaða að drottningunni.
Enn er vestur í sama vand-
anum: Ef hann stekkur upp
með ásinn, fríast tveir slag-
ir á litinn, sem duga sagn-
hafa nú í níu. Vestur gefur
þv? aftur. Þá þarf suður
aðeins einn slag í viðbót og
sækir hann á hjarta.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stelpur héldu flóamarkað nýlega til
styrktar hjartveikum börnum og varð ágóðinn 1.220
krónur. Herdís Ingibjörg Svansdóttir er til vinstri og
Sigríður Tinna Heimisdóttir til hægri.
Með morgunkaffinu
Áster....
... þegar lífið er
einmanalegt án hans.
TM R*g. U.S. P«. Off. — «!t rtgm» ™
(c) 1B9C Lo« Ango**» TVn«» SyDdical*
HANN fékk áfall. Konan
hans fór frá honum og
kom aftur heim.
ÞÚ verður að vanda málfarið þegar þú talar við
blómin mín.
HOGNIHREKKVÍSI
n T/ctnn. er ai> mohoc stéttíno.."
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
HRUTUR
Afmælisbam dagsins: Þú
ert heimspekilega þenkj-
andi, drekkur íþig fróðleik
og ferð þínar eigin leiðir.
Þúátt ekki erfitt með að
vinna með öðrum en þarft
að vera þinn eigin herra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú vilt fá að vera í friði við
leit að lausn á vandasömu
verkefni árdegis. En einhver
nákominn hefur góða tillögu
fram að færa.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffö
Hugsaðu þig vel um áður en
þú ákveður að taka þátt í
vafasömum viðskiptum vinar
í dag. Láttu skynsemina ráða
ferðinni.
Tvíburar
(21.mai-20.júni) Æfc
Þú átt annríkt bæði heima og
í vinnunni, en þér tekst að ljúka
öllu, sem gera þarf í dag.
Starfsfélagi færir góðar fréttir.
Krabbi
(21. júnl — 22. júlf) H$í
Ef þú leggur þig fram tekst
þér auðveldlega að leysa smá
vandamál heima i dag. Hug-
myndum þínum varðandi
vinnuna er vel tekið.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Hlustaðu á það sem aðrir
hafa til málanna að leggja í
vinnunni í dag áður en þú
tekur afstöðu. Varastu óþarfa
fljótfæmi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) 32
Skemmtanalifið getur haft
meiri útgjöld í för með sér
en þú gerðir ráð fyrir. Reyndu
að setja eyðslunni einhver
takmörk.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þótt fjárhagsleg staða þín
styrkist, þarft þú áfram að
sýna aðgát og varast alla
áhættu. Reyndu að hvíla þig
í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) Hj(0
Þér berst freistandi tilboð.
Mundu að ef þér finnst það
of gott til að vera satt hefur
þú sennilega á réttu að standa.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú ættir ekki að byrgja inni
tilfinningar þínar í samskiptum
við ástvin. Hreinskilni er rétta
leiðin til styrktar sambandinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Góð samvinna og samstaða í
vinnunni leiðir til batnandi
fjárhags. Ættingi hefur
óvæntar og góðar fréttir að
færa ( kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar- 18. febrúar) ðh
Þú ert eitthvað á reiki í fjár-
málum, og átt það til að spara
eyrinn, en kasta krónunni.
Hlustaðu á góð ráð starfsfé-
laga.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Framtak þitt í vinnunni færir
þér velgengni og styrkir stöðu
þína. Taktu ekki þátt í deilum
um mál, sem skiptir þig engu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HELENA RUBINSTEIN
KYNNING f DAG OG Á MORGUN
Með 50 ml R-Vincaline kremi,
sem er fyrirbyggjandi dag- og
næturkrem fylgir glæsilegur
kaupauki:
✓ Gyllt snyrtibudda
✓ 50 ml hreinsivatn
✓ 15 ml Force C dagkrem
✓ Khol blýantur
Verðmæti kaupaukans er
kr. 2.500
Laugavegi 80, sími 561-1330.
BIOTONE framleiðir
sérhæfðar nuddolíur
og nuddkrem sem
henta einnig vel til
heimilisnota.
BIOTONE hefur
fengið mjög góð
viðbrögð hjá fagfólki.
BIOTONE framleiðir
sína vöru úr náttúru-
legum efnum og
leggur metnað sinn í
að bjóða aðeins það
besta.
I grænu línunni frá
BIOTONE er m.a.
boðið upp á sérhæft
fótakrem og andlits-
krem aðeins unnin úr
lífrænt ræktuðum
j ‘ im og sjávarþör-
u..^, um.
Ofnæmisprófaða
nuddkremið frá
BIOTONE hentarvel
til ungbarnanudds og
er gott fyrir viðkvæma
húð.
Boðið er upp á hefð-
bundna nuddolíu,
s!-uiandaða íþrótta-
nuadolíu og olíu með
sérstökum ilmi í
nokkrum tegundum.
Utsölustaðir:
Holtsapótek, Háaleitisapótek, Breiðholtsapótek,
Árbæjarapótek, Lyfja, Kópavogsapótek,
.............. 5tek, I................
Vesturbæjarapótek, Húsavíkurapótek,
Búðin okkar Yoga-stúdíó, Hátúni.
Dreifing:
HALUR OG SPRUND chf.
Simi & Fax 588-1110
I
|
f
KARLAR KRUNKA!
Ráðstefna um málefni karla í Borgarlelkhúsinu 2.maí 1997.
Á vegum Sólstöðuhóps í samvinnu við Karlanefnd Jafnréttlsráðs
09.00-09.15 Setning.
09.15-09.30 TEGUNDIN KARL. Tilraun til skilgreiningar.
Sigurður Svavarsson, formaður karlanefndar jafnréttisráðs.
09.30-10.00 MEÐ LÍFIÐ í LÚKUNUM. Staöa karla í nútlmasamfélagi.
Ásþór Ragnarsson, sálfræðingur.
10.0ai0.20 Kaffihlé.
10.20- 10.40 KARLMENN OG VÍMUEFNANEYSLA.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir.
10.40.-11.00 „LIGGJA MENN ENNÞÁ VEL VIÐ HÖGGI?“ Umfjöllun um
ofbeldishneigð karla. Karl Steinar Valsson,
afbrotafræðingur og lögreglumaður.
11.00-11.20 KARLMENN OG SJÁLFSVÍG. Wilhelm Norðfjörð.sálfræðingur.
11.20- 11.35 Tónlist
11.35.-12.00 GLERVEGGIR HEIMILISINS.
Ingólfur Gíslason, starfsmaður karlanefndar
12.00-13.00 Hádegishlé.
13.00-13.25 HVERS VEGNA ÆTTU FYRIRTÆKIN AÐ STYÐJA
FÖÐURHLUTVERKIÐ? Árni Sigfússon, framkvæmdarstjóri.
13.25- 13.50 ER SKÓUNN FYRIR STRÁKA? Hafsteinn Karlsson, skólastjóri.
13.50-14.15 KARLAR OG KYNLÍF. Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur.
14.15- 14.35 Kaffihlé.
14.35-14.55 HVERNIG VERÐA NÝJU ALDAMÓTAMENNIRNIR?
Svavar Gestsson, alþinglsmaður.
14.55- 15.15 FRAMTÍÐARSÝN. Steingrímur Hermannsson.
15.15- 15.25 Tónlist. Egiil Ólafsson og
15.25- 15.55 Pallborðsumræður. trfó Björns Thoroddsen
15.55- 16.00 Ráðstefnuslit. sjð um tónlistarflutning.
Þátttökugjald fyrir 29.04: 4.500.- Þátttökugjald eftlr 29.04: 6.000.-
Innifallð í þátttökugjaldi er ráðstefnan, ráðstefnugögn og kaffiveltingar.
Skránlng fer fram hjá Ferðaskrifstofu íslands, ráðstefnudeild, með faxl eða síma.
Sími 552 5447. Faxnúmer 562 3345.
Þátttaka tilkynnist fyrir l.maí. Tekið er viö Visa og Eurocard kredltkortum.