Morgunblaðið - 02.08.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 15
______________LAIMDIÐ______________
Drengur á hjóli féll fyrir bíl á Ölfusárbrú
Hjálmur kom
í veg fyrir
stórslys
Selfossj - Litlu munaði að stórslys
yrði á Olfusárbrú síðdegis á
fimmtudag þegar ungur drengur
missti stjórn á reiðhjóli sínu. Hann
féll út á veginn þar sem hann lenti
á bíl. Drengurinn skall síðan með
höfuðið í götuna og rakst utan í
annan bíi sem kom á eftir. Hann
slasaðist ekki alvarlega enda með
hjálm á höfðinu.
Drengurinn var fluttur á
Heilsugæslustöð Selfoss þar sem
hlúð var að honum. Að sögn Ósk-
ars Reykdal læknis var mikil mildi
að ekki skyldi fara verr. „Hann
hlaut mjög slæmt höfuðhögg og
réði úrslitum að hann var með
hjálm.“ sagði Óskar. Einnig verð-
ur að teljast mildi að hann skyldi
skeila utan í bílunum tveimur en
ekki verða undir þeim.
Drengurinn sem fyrir slysinu
varð heitir Sævar Daníel Ko-
landavelu, búsettur á Selfossi.
Hann var óvenju hress þegar
blaðamann bar að garði en sagð-
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SÆVAR Daniel með hjálminn góða sem
læknar segja að hafi bjargað honum frá
stórslysi þegar hann féll fyrir bíl á Ölfus-
árbrú.
og eru foreldrar á Selfossi ugg-
andi um börnin sín sem sum hver
þurfa yfir brúna á hverjum degi.
Að sögn fulltrúa bæjarsljórnar
Selfoss hefur áskorunum bæj-
arbúa verið komið til skila en ekki
hafa borist nein svör frá yfirvöld-
um vegamála, sem eiga að sjá um
framkvæmdir við Ölfusárbrú.
ist þó hafa fengið
mikið sjokk þegar
hann skall í götuna.
Að sögn Sævars eru
krakkarnir ekki all-
ir nógu duglegir að
nota hjálma en hann
er staðráðinn í að
nota alltaf sinn
hjálm, enda segja
læknar honum að
það hafi bjargað lífi
hans.
íbúarnir vilja
handrið
Það hefur verið
mikil umræða um það á Selfossi
að koma upp handriði við Ölfusár-
brú. Undirskriftarlisti gekk á
meðal bæjarbúa í vor þar sem
skorað var á bæjaryfirvöld að
beita sér í því að koma upp handr-
iði tij þess að veita vegfarendum
um Ölfusárbrú meira öryggi.
Gríðarleg umferð er um brúna
Of snemmt að framhaldsskólar byrji í ágúst
Framhaldsskólanemar
á Þórshöfn ósáttir
Þórshöfn - UMRÆÐUR um að
nám við framhaldsskóla hefjist viku
fyrr en venja hefur verið, eða síð-
ustu viku í ágúst, koma misjafnlega
við fólk. Framhaldsskólanemar á
Þórshöfn tjáðu sig um málið og
höfðu ákveðnar skoðanir. Þeir von-
uðu allir að þetta væru aðeins um-
ræður og skólar myndu hefjast í
september eins og áður.
Mjög mikil atvinna hefur verið á
Þórshöfn síðan snemma í vor og
allir unglingar eru í vinnu. Frétta-
ritari hitti Þórhildi Guðmundsdótt-
ur, nema í Verkmenntaskólanum á
Akureyri, og henni fannst „algjört
rugl“ ef breyting yrði á skólatíma.
„Okkur munar um heila viku í
vinnu,“ sagði Þórhildur sem er í
byggingarvinnu og hefur nóg að
gera. Þeir voru á sama máli, Rób-
ert Jónsson, nemi í Menntaskólan-
um á Egilsstöðum, og Þórður Ragn-
ar Þórðarson, nemi í VMA á Akur-
eyri, en þeir félagar eru í vinnu við
byggingu nýja íþróttahússins. „Það
yrði slæmt að missa heila vinnuviku
í ágúst því það er dýrt að kosta sig
sjálfur í skóla,“ sagði Róbert og
vonuðu þeir félagar báðir að engu
yrði breytt. Þórður Ragnar sagði
að hann og margir fleiri leigðu or-
lofsíbúðir af stéttarfélögum yfir
veturinn og þær íbúðir eru undan-
tekningarlaust í leigu út ágúst og
ekki tilbúnar fyrir skólafólk fyrr en
1. september. „Við yrðum þá á
götunni í eina viku,“ sagði Þórður
Ragnar.
Veturinn kostar um hálfa
milljón
Vinkonurnar Rán Siguijóns-
dóttir og Halldóra J. Friðbergs-
dóttir vonuðu að breyting á skóla-
árinu yrði ekkert nema umræðan.
„Við megum ekki við því að missa
heila viku eða meira úr vinnu, það
er dýrt fyrir nema sem búa úti á
landi að fara burt í framhalds-
skóla." Rán hefur unnið hjá Hrað-
frystistöð Þórshafnar og Halldóra
í Söluskála Esso. Þær eru báðar
í VMA og leigja húsnæði á Akur-
eyri eins og hinir Þórshafnarbú-
arnir en engin heimavist er við
Verkmenntaskólann á Akureyri.
Aðspurðar sögðu þær að heildar-
kostnaður fyrir veturinn væri um
fjögur til fimmhundruð þúsund,
það væri dýrt að geta ekki búið í
foreldrahúsum meðan á námi
stendur. Fleiri framhaldsskóla-
nemar lýstu skoðun sinni á skóla-
tímanum og skilaboð frá ungling-
um á Þórshöfn eru skýr, „við vilj-
um vinna út ágústmánuð."
Útihátíð á Búlandshöfða
Morgunblaðið/KVM
JÓNÍNA Gestsdóttir bóndi á Búlandshöfða
stóð fyrir útihátíð á túninu á Höfða.
Grundarfjörður - Jónína Gestsdóttir,
bóndi á Búlandshöfða, stóð fyrir
ánægjulegri útihátíð í blíðskaparveðri
að kveldi 29. júli sl. Tilefni þessarar
hátiðar var að miklar endurbætur
eiga sér nú stað á veginum frá
Grundarfírði að Búlandshöfða og er
reiknað með að vegurinn verði orðinn
malbikaður um miðjan ágúst nk.
Yfír hundrað manns komu á útihátíð-
ina sem Jónína stjómaði með mesta
myndarbrag.
Skemmtiatriðin voru leikþættir,
sem m.a. Hjálmar Gunnarsson út-
gerðarmaður, Björg Ágústsdóttir
sveitarstjóri, Jónína Gestsdóttir
bóndi og Elna Bárðarson listamaður
fluttu. Þá voru sagðar gamansögur,
sungið var og fleira gerðu menn sér
til skemmtunar. Að lokum var svo
boðið upp á kaffí og pönnukökur
með ijóma eða sykri — allt eftir
smekk. Allir sem komu á túnið í
Höfða þetta kvöld voru samdóma
um það að þetta hefði verið hin
ágætasta skemmtun og góð tilbreyt-
ing sem lengi verður í minnum höfð.
Þess skal getið að Jónína flutti
ásamt manni sínum Antoni Finns-
syni (sem nú er látinn) að Búlands-
höfða fyrir 37 árum. Voru þá veg-
leysur svo miklar þangað að þau
þurftu jafnvel að bera á bakinu
efnivið til búsins. En nú er öldin
önnur og reiknað er með að góðar
samgöngur um norðanvert Snæfells-
nes verði staðreynd á næstu öld.
VIÐSKIPTI
Fj ármálaráðherra Noregs
Ihugar skatta-
breytíngar
Morgunblaðið/Tromsö
JENS Stoltenberg, fjármálaráð-
herra Noregs, íhugar nú að leggja
virðisaukaskatt á alla þjónustu.
Málið er ekki nýtt af nálinni því
árið 1990 þynntust sömu vanga-
veltur út í Evrópubandalagsum-
ræðunni þar sem ESB krefst virðis-
aukaskatts á þjónustu.
Fram kom í Dagens Næríngsliv
á miðvikudag, að norska fjármála-
ráðuneytið áformar að ná inn 80
til 90 milljörðum íslenskra króna
sem eiga að lækka virðisaukaskatt
um 1,5 prósentustig. Helstu hlutar
þjónustugreina sem ekki greiða
virðisaukaskatt í dag eru fólks-
flutningar og gisting. Einnig er
ákveðinn hluti dagblaða og bókaút-
gáfa undanþegin skattinum.
í leiðara blaðsins var gert ráð
fyrir að einhver hluti blaða- og
bókaútgáfu muni leggjast niður og
tók blaðið þann pól í hæðina að
norsku lýðræði og andagift muni
ekki stafa hætta af breytingunni.
Hægri menn í norskum stjórnmál-
um óttast það að þegar skatturinn
verði kominn á leiði það til aukinn-
ar skattbyrði.
Flugfélögin, SAS og Braathens
SAFE, gera ráð fyrir fjórðungs-
hækkun flugmiða og eins er búist
við því að einhveijar áætlunarleiðir
hjá fólksflutningafyrirtækjum eigi
eftir að leggjast af. Hækkunin
skýrist þó ekki einungis af fyrir-
huguðum virðisaukaskattsbreyt-
ingum heldur einnig vegna þess
að fjármálaráðuneytið íhugar að
breyta skatti sem hefur verið lagð-
ur á hvern farþega í sætaskatt sem
greiðist á hvert sæti flugvélanna,
hvort sem sætið er nýtt eður ei.
Flugfélögin mega þar að auki bú-
ast við svokölluðum grænum skatti
í þágu umhverfisverndar.
Sú starfstétt sem hingað til hef-
ur verið undanþegin virðisauka-
skatti, tannlæknar, þarf ekki að
óttast því norska ríkisstjórnin sér
hag sinn í reglulegri tannhirðu
landsmanna og áformar því ekki
breytingar á þeim bæ, að því er
blaðið hermir.
Lokasala Luft-
hansa íhaust
Frankfurt. Reuter.
ÞÝZKA stjórnin hefur gert grein
fyrir fimm milljarða marka einka-
væðingu hluts þess sem stjórnin á
eftir í Deutsche Lufthansa flugfé-
laginu.
Frá sölunni greinir í sameigin-
legri tilkynningu frá þýzka sam-
gönguráðuneytinu, fjármálaráðu-
neytinu og þýzku þróunarstofnun-
inni, Kreditanstalt fiir Wiederauf-
bau (KfW), og þar segir að KfW
muni selja þann 36% hlut, sem
eftir sé, í haust.
Gefin verða út hlutabréf fyrir
fimm milljarða marka samkvæmt
núverandi verðgildi.
Lufthansa var einkavætt að
hluta til 1994. Þýzka stjórnin hefur
viljað koma fjármálum sinum í lag
áður en evrópskt myntbandalag
verður stofnað 1999, en fullnægja
verður mörgum skilyrðum um að-
ild á þessu ári.
Hlutabréfin hafa verið í vörzlu
KfW síðan í desember 1996 og
stofnunin mun einnig selja 1,77%
hlut í flugfélaginu, sem hún hefur
átt um skeið.
Meirihluti í höndum Þjóðverja
Það skilyrði er sett að meiri-
hluti í félaginu verði í höndum
Þjóðveija. Framkvæmdastjórn
ESB hefur viljað fá það staðfest
frá Bonn um að Lufthansa verði
áfram í eigu Þjóðverja.
Samkvæmt alþjóðlegum loft-
ferðalögum verða ríkisflugfélög að
geta sýnt að innlendir hluthafar
eigi meirihluta hlutabréfa ef þau
eiga að halda vissum réttindum.
í mörgum af um 200 tvíhliða
loftferðasamningum Þjóðveija og
annarra landa er kveðið á um að
Lufthansa verði að vera áfram í
eigu þýzkra fjárfesta.
France Telecomlik-
lega selt í september
París. Reuter.
FRAKKAR kunna að bjóða minni-
hluta hlutabréfa í France Telecom
til sölu í september og hleypa þar
með aftur af stokkunum mestu
sölu hlutabréfa, sem um getur í
Frakklandi, samkvæmt opinberri
heimild.
Stjórn sósíalista mun hins vegar
undirstrika að salan sé nauðsynleg
í heimi harðnandi samkeppni og
ekki megi líta á hana sem fram-
hald á þeirri sölu ríkiseigna sem
fyrrverandi stjórn hægri manna
stóð fyrir.
Að sögn heimildarmannsins verð-
ur skýrt frá sölunni þegar skýrsla
stjómarfulltrúans Michels Delebarr-
es verður afhent ríkisstjórninni, lík-
lega fyrir 5. september.
Verðmæti France Telecom var
áætlað 160-180 milljarðar franka
í apríl og fyrirtækið var það stærsta
sem fyrri stjórn hugðist selja.
Á síðustu vikum hefur Lionel
Jospin forsætisráðherra stöðvað
sölu hergagna- og rafeindafyrir-
tækisins Thomson-CSF og sagt að
margmiðlunarfyrirtækið Thomson
Multimedia verði áfram í eigu ríkis-
ins.
Stjórnin lét verða af einkavæð-
ingu tryggingafyrirtækisins GAN
og bankadeildar þess, CIC, til að
fá leyfí ESB fyrir 23,7 milljarða
franka ríkisaðstoð við fyrirtækið.
Stjórnin mun einnig láta undan
kröfum ESB um að einkavæða
bankann Crédit Lyonnais.
Framtíð flugfélagsins Air France
er óljósari. Samgönguráðherra
kommúnista, Claudes Gayssots,
hefur sagt í útvarpsviðtali að hann
sé andvígur einkavæðingu Air
France.