Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 57
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Flugævintýrið
með Islandsflugi
Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni:
ÞAÐ er hásumar og snemma morg-
uns. Nú var skrúfuþotan - þessi
rennilega suðurfranska þokkadís
eins og smækkuð mynd af „Conc-
ordeþotu", sem er frægasta þota
heims og hönnuð af frönsku hugviti
og listrænum smekk, eins og Frans-
mönnum er lagið.
Það er stemmning í loftinu og lífs-
hreyfing. Eins og „Concordeþotan",
er þessi 46 sæta ATR-flugvél spenn-
andi farkostur. Öðru vísi spennandi
en hin þýzka „Dornier“, en hvort
tveggja eru þær gæddar „karekter"
eins og vélarhljóð þeirra vitna bezt
um. ATR er í alveg sér umslagi eins
og kona með „sex appeal" og er
upprunnin í Toulouse, sem er ámóta
mikil höfuðborg lista og menningar
og Parisarborg - ekki síður.
Sá, er þetta skrifar, kom þar við
í tvígang í leit að lífsævintýrinu.
Það er nautn að stíga inn í þenn-
an farkost. Ferðagleði varð til óðar
á leið norður til Akureyrar.
Það er svo einkennilegt, að þegar
maður er kominn um borð í farkost-
inn, er komið í nýja veröld.
Hver manneskja þarfnast and-
legrar næringar.
Franski rithöfundurinn Camus
sagði, eins og frægt er orðið, að list-
in að ferðast sé líkt og að detta ofan
í ástina - verða ástfanginn upp fyr-
ir haus. Marga vantar sérstaklega
ástina í lífið.
Það eru svo margir að drepast
úr hversdagslegri hugsun og leiða.
Sá ameríski Steinbeck sagði, að
sumt fólk dræpi hraðar, en sótt-
kveikjur.
Það er aldrei hversdagslegt að
ferðast í flugvél og hollt fyrir sál
og líkama samanber það, að astma-
sjúklingar geta fengið bót sinna
meina í flugvél.
Samferðamaður minn og sessu-
nautur - heimsmaður - sagði: „Hún
er eins og frönsk stelpa þessi flugvél“.
SKRÚFUÞOTA íslandsflugs.
Forleikurinn fyrsta stundarfjórð-
unginn var mjúkur og nú var flogið
yfir endilöngum Langjökli. Þaðan
er örskot yfir á Hveravelli og þá
batnaði skyggnið. Alltaf dýpkuðu
litir láðs og lofts og litirnir fengu æ
fleiri víddir. Nú var flogið yfir
Blönduvirkjun og þaðan er stefnan
tekin á Skagaförðinn, yfir Austur-
dal, yfir beljandi fljótinu, Jökulsá,
þar sem túristar glannast í tvísýnni
siglingu í straumhörkunni.
Mið tekið á Leyningshóla, sem eru
27 km frá Akureyri - dularfulit
svæði. Nú var sveigt til vinstri til að
gleðja farþega. Þetta fór að minna á
flugferðir í gamla daga með Billa
Snorra. Komið yfír botn_ Glerárdals,
sem er 30 km langur. í ljós komu
kunnuglegu fjöllin, eins og Karlinn,
Kerlingin - síðast en ekki sízt Tröllin.
Glerárdalurinn er tilvalinn staður
til útivistar og sérstaklega til skíða-
iðkana.
„ísland er langfegursta land í
heimi,“ sagði ítali við mig, þegar
hann steig út úr flugvélinni á flug-
vellinum á Akureyri og bætti við:
„Ég kem fljótt aftur hingað.“_
Að ferðast flugleiðis yfir ísland
er snerting við sjálft lífsævintýrið.
Það getur hver og einn reynt, ef
hann hefur vit á því að lifa sig inn
í „Flugævintýri með íslandsflugi". .
STEINGRÍMUR ST. TH.'
SIGURÐSSON,
Krummahólum 6, Reykjavík.
Drekkur fólk meira um
verslunarmannahelgina?
Frá Jóhönnu Aðalsteinsdóttur:
NÚ er júlí liðinn og ágúst tekinn
við. Margir eru í sumarfríi, aðrir að
koma úr sumarfríi og enn aðrir að
fara í sumarfrí. Ég er ein af þeim
sem eru að byrja í fríi og ég vona
að veðrið verði gott næstu vikur.
Ef það verður ekki gott er bara að
taka því, klæðast regngalla og/eða
þykkri peysu og arka út í veður og
vind. Sólarlandaferð er ekki á áætlun
þetta árið, ég tími satt að segja
ekki að eyða fríinu mínu erlendis
þegar það ber upp á þennan tíma.
Bjartar júnínætur eru yndislegar,
júlí er talinn hlýjasti mánuðurinn,
ágúst veit maður aldrei hvernig
verður, nema að þá dimmir smátt
og smátt á nóttunni. Samt er bjart
kvölds og morgna og stundum er
ágúst og jafnvel fyrstu dagarnir í
september besti tími sumarsins.
Margir kvíða fyrir verslunarmanna-
helginni og öllu unglingafylliríinu.
En drekkur fólk í rauninni meira um
verslunarmannahelgina en aðrar
helgar? Sumir vilja færa útihátíðirn-
ar til fyrstu helgarinnar í júlí og
telja jafnvel að þá verði minna
drukkið. Er þetta ekki bara eins og
þegar verið er að kenna eiginkon-
unni um drykkju bóndans eða öfugt?
Eða kenna félögunum um drykkju
unglingsins? Sannleikurinn er sá að
það þykir fínt að drekka áfengi nema
um verslunarmannahelgina, þá þykir
það allt í einu slæmt. Eigum við
ekki að hætta þessari tvöfeldni.
Ættum við ekki líka að taka upp
breytta skemmtanahætti og fara að
skemmta okkur á kvöldin eins og
annað fólk, en ekki frá miðnætti til
morguns eins og nú tíðkast á ís-
landi. Við þurfum að breyta útivist-
artíma unglinganna og líka okkar
sjálfra, svo maður tali nú ekki um
börnin. Þar sem smábörn eru úti að
leika sér langt fram á kvöld er ekk-
ert skrítið að unglingarnir vilji vera
ennþá lengur úti. Og það stoðar lítið
að ætla að fara að byrja að ala börn-
in upp þegar þau eru komin á ferm-
ingaraldur. Jæja, ég er farin að láta
eins og versti prédikari, en ég meina
þetta. Svo óska ég öllum góðrar og
heilbrigðrar skemmtunar um næstu
helgi og farið varlega í umferðinni!
Kærar kveðjur,
JÓHANNA AÐALSTEINSDÓTTIR,
Akranesi.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Dýraglens
Tommi og Jenni
Smáfólk
MAVBE VOU 6UYS 5H0ULP
60 VI5IT OUR BROTMER
5PIKE IN TME DE5ERT..ME
KNOWS MICKEY M0U5E..
MICKEY M0U5E HA5
A LOT OF FRIEND5
IN HOLLYUIOOD..
ILL BET ME COULD 6ET
VOU JO05 AT ONE OF
TME 5TUDI05.. MOIU
DOE5 TMAT SOUND?
Kannski að þið félagar
ættuð að fara og heim-
sækja Sám, bróður ykkar
í eyðimöi'kinni... hann
þekkir Mikka mús ...
Mikki mús á
fullt af vinum
í Hollywood..
Eg er viss um að hann
getur útvegað ykkur
vinnu í einhverju
kvikmyndaverinu ...
Hver er
Mikki mús?